Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.08.2003, Blaðsíða 22
NEYTENDUR 22 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR VEGNA verðkönnunar á skólavörum vill Sigríður Gröndal, innkaupastjóri Hagkaupa koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: „Verðkönnunin átti að miðast við ákveðnar merkja- vörur sem við fögnum, því þá er verið að bera saman sömu vörur en því miður hefur það ekki verið gert í öll- um tilvikum. Í öllum tilvikunum 7 sem verðkönnunin nær yfir átti Hagkaup til merkjavöruna sem verið var að kanna og einnig ódýrari valkost. Í verslunum eins og t.d. Nettó, Bónus og Office 1 þá er í sumum tilvikum ekki verið að taka merkjavöru þar sem þeir eru ekki með hana.Hér er því ekki verið að bera saman sömu vörur.“ Svar Morgunblaðsins: Könnunin var í raun tvískipt. Annars vegar var kannað verð á ákveðnum tegundum merkjavöru og hins vegar ódýrustu vörur sem til voru í ákveðnum flokkum. Hægt hefði verið að fara einungis aðra leiðina, en var fallið frá því af ákveðnum ástæðum. Hefði eingöngu merkjavara verið könnuð hefði könn- unin einfaldlega ekki náð til verslanna sem ekki selja þessi ákveðnu merki, jafnvel þó þær selji sambærilegar vörur. Þar sem einn innflytjandi hefur yfirburðastöðu á markaðnum er líklegt að þær vörur sem kannaðar hefðu verið væru að mestu frá þeim innflytjanda og því hallað á þá sem ekki kaupa frá honum. Hefði á hinn bóginn ein- göngu verið kannað það ódýrasta sem fékkst í hverjum flokki hefði verið hætt við því að bornar væru saman vörur sem ekki eru jafnar að gæðum. Hvorug leiðin er fullkomin en metið var áður en af stað var farið að betra væri að taka merkjavöru í sumum tilvikum en ódýrustu vöru hverrar tegundar í öðrum. Það var skýrt áður en könnunin var gerð hvort væri ver- ið að kanna í hverju tilviki. „Lausablaðamöppur er Hagkaup með ódýrasta á 19 kr en upphaflega átti að taka Leitz möppur hér en ekki eru allir að selja hana svo að einhverjir eru með aðrar möppur hér í samanburðinum.“ Svar Morgunblaðsins: Hvað varðar flokkinn laus- blaðamöppur með vírbindingum var aldrei ætlunin að taka ákveðið merki, heldur að taka það ódýrasta sem til var. Hafi það ekki verið gert biðst Morgunblaðið velvirð- ingar á því. Einnig óskar Ólafur Sveinsson frá Pennanum eftir að gera eftirfarandi athugasemdir: „Þegar verðkönnunaraðilar komu í verslanir sem reknar eru á vegum Pennans var lögð rík áhersla á að eingöngu mætti taka inn vörur sem væru nákvæmlega sama vörumerki. Þessu ber að fagna því með því móti ætti að nást raunhæfastur samanburður. Þegar könn- unin birtist síðan í Morgunblaðinu kemur glögglega í ljós að þessari reglu hefur ekki verið framfylgt á öllum þeim stöðum sem könnunin er gerð. Þannig er því slegið upp í fyrirsögn að 157% verðmun- ur sé á stílabókum með gormum og sú bók á 185 krónur í Pennanum Eymundsson Austurstræti. Ef tekin hefði verið sambærileg stílabók, sem boðin er sem valkostur, hefði verðið verið 149 krónur. Á sama hátt er til mun ódýrari lausblaðamappa, vírbundin og fleiri liðir þar sem innan verslunarinnar er boðið uppá mikla breidd í vöruvali, verði og gæðum“ Svar Morgunblaðsins: Eins og áður hefur komið fram voru í sumum tilvikum könnuð ákveðin merki og í öðrum ódýrasta varan í hverjum vöruflokki. Hafi í einhverjum tilvikum ekki verið valin ódýrasta varan þegar það á við biðst Morgunblaðið velvirðingar á því. Athugasemdir vegna verðkönnunar SÍFELLT eykst framboðið á líf- rænt ræktuðu ís- lensku græn- meti. Nýjasta viðbótin á þenn- an markað er svokallaður Chile-pipar, sem er mildur pipar, eins konar milli- stig milli rauðr- ar papriku og sterks chilly- pipars. Piparinn er upprunalega ættaður frá Chile og er því kallaður Chile- pipar. „Mér finnst það nafn miklu skemmtilegra en chilly, enda vísar það í upprunann,“ segir Þórður Halldórsson garð- yrkjubóndi en hann og kona hans Karólína Gunnarsdóttir garðyrkjubóndi hafa verið að þróa ræktun á Chile-piparnum undanfarin ár. „Þetta er öðruvísi chilly en maður á að venjast, hann er stærri og matarmeiri. Hann er mun mildari,“ segir Þórður. Chile-piparinn er mun mildari en til dæmis jalapeño-pipar. „Það var líka það sem heillaði okkur, hann er boðlegri fyrir Ís- lendinga. Fyrsta árið vorum við að rækta Chile-piparinn og jalapeño. Chile-piparinn gátum við selt með þokkalegu móti en jalapeño seldist svo lítið að það var engin forsenda til að hafa svona margar plöntur eins og við vorum með. Þá fórum við al- farið út í þennan Chile-pipar.“ Þórður og Karólína selja tals- vert af því lífrænt ræktaða grænmeti sem þau framleiða beint til neytenda í gegnum áskriftarkerfi. Þórður segir mikilvægt að bjóða upp á mikið úrval í slíku kerfi og þess vegna hafi þeim dottið í hug að rækta þennan Chile-pipar. „Við erum með mjög fjölbreytta ræktun, og fjölbreytnin er nokkurs konar fylgifiskur lífrænnar ræktunar. Við vorum að rækta tómata, kirsuberjatómata, paprikur og gúrkur. Svo var það fyrir fjór- um eða fimm árum að okkur langaði að prófa að rækta chillý.“ Þórður segir að það hafi gengið ágætlega að markaðs- setja piparinn. Hann fæst víða í heilsubúðum með öðru lífrænt ræktuðu grænmeti, auk þess sem hann fæst pakkaður í Hag- kaupum, Nóatúni og Blómavali. „Við ræktum ekki mikið en samt nóg til að sinna þessum markaði sem við erum með í dag.“ Fylltur með osti og grillaður Vinsælasta matreiðsluaðferðin fyrir Chile-piparinn er að grilla hann, segir Þórður. Piparinn er þá skorinn upp og fræin hreins- uð úr. Piparinn er fylltur með góðum osti, cammenbert eða gráðosti, og grillaður þar til ost- urinn er bráðinn og piparinn farinn að krumpast. Þá er hægt að borða þetta sem meðlæti og dugir þá einn pipar á mann með mat. Einnig er hægt að saxa piparinn gróft niður í pottrétt eða fínsaxa hann út í ferskt sal- at. Best er að taka fræin úr sama hvernig hann er mat- reiddur enda eru þau mjög sterk. Nú eru Þórður og Karólína að þróa uppskrift að Chile-mauki. Þau gerðu tilraunir með fram- leiðslu á maukinu í fyrrahaust. „Þetta fórum við að selja í gegn- um áskriftina og fékk það gríð- arlega góðar viðtökur. Núna er- um við að vinna að því að þetta verði ein af framleiðsluvörunum hjá okkur. Nú erum við í sam- starfi við Matra við að þróa end- anlega uppskrift af þessu mauki, og það kemur hugsanlega á markað á næsta ári.“ Í maukinu er blandað saman Chile-pipar, papriku, ediki og sykri og það soðið niður á krukkur. Mildur íslenskur Chile- pipar kominn í verslanir Morgunblaðið/Kristinn Íslenski Chile-piparinn er nokkuð stærri en hefbund- inn chilly-pipar og er mun mildari. NÝ kynslóð barnabílstóla er komin frá Recaro og felst breytingin í því að höfuðpúðinn er með nýju lagi og inn- byggðum há- tölurum fyrir útvarp, kass- ettu eða geisla- spilara. Einnig eru ný áklæði úr micro fiber sem hrinda frá sér óhreinindum og anda vel. Nýju Recaro Start-barnabílstól- arnir uppfylla ECE 44/03 og hafa verið prófaðir í af mörgum óháðum aðilum og hlotið lof fyrir gæði og ör- yggi. Recaro Start hentar fyrir börn 9–36 kg og fæst í Bílasmiðnum. Recaro Start- barnabílstóll KOMIN er á mark- að ný tegund af Pepsi-gos- drykknum, Pepsi X. Formúlan að Pepsi X er að mestu hin sama og að Pepsi en Pepsi X er inniheld- ur mun meira koff- ein en hefðbundið Pepsi, auk þess sem það inniheldur Guarana og Taurine. Til að byrja með verður Pepsi X fáanlegt í 0,33l dósum. Ísland er eitt af fyrstu löndunum þar sem Pepsi X kemur á markað en nokkrar vikur eru síðan drykkurinn kom fyrst á markað í Hollandi og Danmörku. Pepsi X er ekki fáanlegt í Bandaríkjunum enn sem komið er. Pepsi X kom fyrst á markað í Hol- landi í sumar en þróun drykkjarins hefur staðið yfir lengi. Pepsi X KOMIÐ er á markað Pick- wick-te í nýj- um umbúð- um. Í pakkanum eru fjórar bragðtegundir af ávaxtatei, jarð- arberja-, skógarberja-, sítrónu- og suðrænt ávaxtate. Hver pakki inni- heldur 20 grisjur. Pakkarnir fást í öllum helstu stórmörkuðum. Pickwick- ferna NÝTT TUTTUGU og tveggja stúlkna kór frá Rheinland Pfalz, Pfälzische Kurr- ende, söng á dögunum í Bústaða- kirkju. Hið undarlega orð „Kurr- ende“ (kvk.) kvað skv. orðabók þýða drengjakór. Þegar nánar var kannað kom í ljós latneskur uppruni – curro (að hlaupa), og fyrr á tímum haft um þýzka farandkóra er sungu við jarð- arfarir, brúðkaup og álíka tækifæri. Margur fróðleiksmolinn getur sem sagt leynzt í orðsifjum. Annars var kórinn ekki nema 18 ára gamall. Hann var stofnaður af stjórnandanum Carolu Bischoff sem blandaður unglingakór en hefur síðan 1995 eingöngu verið stúlknakór. Ekki var gefið upp hvers vegna, en helzt hvarflar að manni að karlsöngvara- ekla sé víðar vandamál en hjá okkur. Stúlkurnar komu hingað fyrir milli- göngu Margrétar Bóasdóttur er kynnti hlustendum megininntak text- anna. Kórinn hóf söng sinn á inn- göngu með Canzon Villanesca, ítölsk- um tambúríndans frá 16. öld eftir da Nola. Var fágað en líflega sungið, og kom þar sem síðar fram að áherzla var lögð á léttan söngstíl og líflega framkomu, stundum ásamt „bak- grunnseffektum“ dæmigerðum fyrir nútímakórverk eins og rytmískum hreyfingum, hlátri og masi, en allt af hnífsamstilltri ögun. Eftir Märchen- zauber (J.G. Rheinberger) kom allk- refjandi mótetta eftir Max Reger, Er Ist’s, og síðan þjóðlagaútsetningarn- ar Wenn ich ein Vöglein wär’ (S. Strohbach) og fjallgöngulagið kunna Horch, was kommt von draußen rein (Helge Jung), er sungið var með fyrr- greindum aukaeffektum. Byron-ljóð- ið I saw thee weep var tónsett af Tékkanum Antonín Tucapský (f. 1928) í ljóðrænum nýklassískum stíl, og næst var flutt vandmeðfarin tveggja kóra mótetta í þéttri nútíma- legri hljómskipan um fornkirkju- sekvenzuna Veni creator spiritus eftir Baskann Xabier Sarasola (f. 1960). Siehst du den Stern eftir Robert Dappert (f. 1935) hafði ferskleika þjóðlagsins og var unaðsljúflega sungið. Sama gilti um Dat du min Leevsten büst e. Strohbach, sungið á mállýzku. Stúdentamarsinn gamli Als wir einst in Regensburg waren hljóm- aði næst undir heitinu Adlig Fräulein Kunigund (G.M. Göttsche, f. 1953), bráðvel fluttur með líflegu látbragði og lausmálgu Schwatzen. Finnska þjóðlagið er við þekkjum sem Fjær er hann enn þá birtist sem Über den Berg ist mein Liebster gezogen (við mörlandar erum greinilega ekki einir um staðfærsluáráttu), og fjallfersk Gavotta Griegs úr Holberg-strengja- svítunni var síðan sungin í eðlilega mjög einfaldaðri mynd en samt af þokka, nema hvað þrálát alla breve mótun stjórnandans (langt-stutt, langt-stutt) bútaði hrynflæðið niður í of skammt hugsaðar einingar. Sellósnillingurinn Pablo Casals átti síðan fallegt lag við Ljóðaljóð Salóm- ons, Nigra sum, er var annað tveggja laga fluttra við nettan píanóundirleik Sólveigar Önnu Jónsdóttur. Hitt var síðast á dagskrá, Gott ist mein Hirte (Schubert); sem flest mjög vel sungið þótt mótaðist af aðeins of órólegri dýnamík. Þar á milli kom lengsta og erfiðasta verkið, Memento Homo (A. Kubizek, f. 1918), er var glæsilega sungið þrátt fyrir ofurlítinn þreytu- vott. Var öllu dável tekið og sungu stúlkurnar tvö aukalög, raddsetningu Jóns Ásgeirssonar á Sofðu unga ástin mín (á þýzku, en síðasta vess á lýta- lausri íslenzku) og kvöddu á útgöngu með niðurlenzka endurreisnarradd- söngnum Ich sag ade. Kórinn var í alla staði hið þjálasta hljóðfæri í höndum Carolu Bischoff. Jafnvægi og inntónun voru sem næst fullkomin, hrynskerpa fjaðurmögnuð og samstillt og hljómfylling raddanna skemmtilega fjölbreytt allt niður í laufléttasta hvísl. Ef nokkur ljóður fyndist á ráði stjórnandans mætti kannski helzt nefna sérkennilega styrkhneiga, nærri andstutta, mótun í hendingalokum þar sem endatónninn átti til að hverfa. En þá væri einungis vegið á vökrustu skálum faglegrar smásmygli. TÓNLIST Bústaðakirkja Þýzki stúlknakórinn Pfälzische Kurrende. Stjórnandi: Carola Bischoff. Sólveig Anna Jónsdóttir píanó. Þriðjudaginn 5. ágúst kl. 20. KÓRTÓNLEIKAR Af þjálum þokka Ríkarður Ö. Pálsson GUÐRÚN Birgis- dóttir flautuleikari, Sigurður Snorrason klarinettuleikari og Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanó- leikari eru næstu gestir á Þriðjudags- tónleikum í Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar kl. 20.30 í kvöld. Þau flytja þrjú verk eftir Cam- ille Saint-Saëns; Sónötu op. 167 fyrir klarinettu og píanó, Rómönsu op. 37 fyrir flautu og píanó og Tarantellu op. 6 fyrir flautu, klar- inettu og píanó. Einnig munu þau flytja Fjóra valsa fyrir flautu, klarin- ett og píanó eftir Dmitiri Shostak- ovich. Guðrún Birgisdóttir flautuleikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigurður Ingvi Snorrason klarinettuleikari. Sónötur og valsar í Sigurjónssafni LOKATÓNLEIKAR Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði í sum- ar verða annað kvöld kl. 20.30. Seyðfirðingurinn Magn- ús Einarsson leikur eigin lög ásamt Matthíasi Stef- ánssyni fiðluleikara, Hirti Howser harmonikkuleikara, Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni bassaleikara og Ey- steini Eysteinssyni trommuleikara. Magnús sjálfur spil- ar á gítar og syngur. Hljómsveitina hefur Magnús sett saman sérstaklega fyrir þetta tækifæri. Tónlistin er að mestu frumsamin og hefur ekki verið flutt opinberlega áður. Magnús Einarsson hóf tónlistarferill sinn með hljómsveitinni Lubbum á Seyðisfirði þegar hann var 12 ára. Síðan hefur hann leikið með ótal hljómsveitum, bæði hér heima og erlendis. Magnús Einarsson í Bláu kirkjunni Magnús Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.