Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 11

Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 11 Um leið og við þökkum frábærar móttökur á Menningarnótt viljum við minna á að sýning á 40 verkum Jóhannesar Kjarvals, sem opnuð var á laugardag í aðalbanka Austurstræti, heldur áfram út þessa viku. Nú eru um 80 ár síðan Kjarval málaði fjögur portrett af fyrstu bankastjórum bankans, en það eru einu hefðbundnu portrettmyndirnar sem Kjarval gerði um dagana. Á sýningunni eru einnig stórar landslagsmyndir frá 4. og 5. áratug síðustu aldar og ýmsar aðrar myndir og teikningar. Sýningin er opin frá 9.15 - 16.00 en Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, verður með leiðsögn um sýninguna milli kl. 12 og 13 alla daga vikunnar. Sjáðu Kjarval í Landsbankanum Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 19 46 0 8/ 20 03 Í MATJURTAGARÐINUM við Gisti- heimilið Brekkubæ á Hellnum fer einungis fram lífræn ræktun mat- jurta. Sú ræktunaraðferð hefur skil- að frábærri uppskeru undanfarin ár og séð gistiheimilinu fyrir grænmeti til salat- og súpugerðar frá miðju sumri og langt fram á haust. Næp- urnar sem Jóhann Þóroddsson sáði fyrir í vor slá þó öll vaxtarmet. Þær sem hafa verið teknar upp und- anfarna daga hafa vegið frá 1.1 kílói og upp í tæp 2 kíló hver. Ekki hefur stærðin rýrt gæði þeirra því þær eru safaríkar og bragðgóðar og ekki vottar fyrir trénun í þeim. Næp- urnar eru ræktaðar í frekar stóru beði sem í var settur húsdýra- áburður. Í hluta beðsins var einnig sett molta úr gömlum safnhaug, en sá hluti skilar einmitt tvöfalt meiri uppskeru en hinn hlutinn þar sem húsdýraáburðurinn einn veitir nær- ingu. Þessi góða uppskera sýnir svo um munar hvernig endurnýtingar- ferlið virkar. Ljósmynd/Guðrún Bergmann Guðríður Hannesdóttir og Kristín Thieme með risanæpur úr lífræna mat- jurtagarðinum við Brekkubæ. Lífrænt rækt- aðar risanæpur Hellnum. Morgunblaðið. HREPPSNEFND Skeiða- og Gnúpverjahrepps kemur saman til fundar í dag þar sem búist er við endanlegri afstöðu til framkvæmda Landsvirkjunar í Norðlingaöldu- veitu. Skiptar skoðanir hafa verið í hreppsnefndinni til málsins og meirihlutinn verið frekar andvígur áformum Landsvirkjunar en minni- hlutinn hefur verið þeim fylgjandi. Samráðsnefnd skipuð fulltrúum sveitarfélaganna á svæðinu, Lands- virkjun og Umhverfisstofnun hefur átt nokkra fundi um þá tillögu Landsvirkjunar að reisa stíflu í 566 metra hæð yfir sjó sem má hækka um tvo metra með sérstökum gúmmíbelgjum. Telur Landsvirkj- un þá tilhögun vera til samræmis við úrskurð setts umhverfisráð- herra, Jóns Kristjánssonar, um að miðlunarlón fari út fyrir friðland Þjórsárvera. Sveitarfélögin Ása- hreppur og Rangárþing ytra hafa innan samráðsnefndarinnar sam- þykkt tilhögun Landsvirkjunar með vissum skilyrðum þó. Gerir Ásahreppur t.d. kröfu um nána umhverfisvöktun af hálfu Lands- virkjunar og að rennsli úr lóninu verði í jarðgöngum en ekki skurði. Ásahreppur hefur gert ráð fyrir Norðlingaölduveitu í sínu aðal- skipulagi en þarf að breyta því vegna breyttra áforma Landsvirkj- unar. Að sögn Jónasar Jónssonar oddvita verður aðalskipulaginu ekki breytt fyrr en Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands hefur fjallað um veitusvæðið. Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur hins vegar ekki gert ráð fyrir Norðlingaölduveitu í sínu aðal- skipulagi. Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps fundar í dag Búist við endan- legri afstöðu til Norðlingaölduveitu UM klukkan fjögur á laugardag var tilkynnt um ofurölvi mann í af- greiðslu BSÍ í Vatnsmýrinni. Er lög- reglumenn frá Lögreglunni í Reykjavík komu á staðinn svaf mað- urinn ölvunarsvefni í afgreiðslunni og hjá honum var fjögurra ára dóttir hans. Vista varð manninn í fanga- geymslu en barninu var komið fyrir hjá frænku stúlkunnar. Þá barst lögreglunni tilkynning aðfaranótt sunnudags þar sem kvartað var undan bjölluónæði í Þingholtunum. Kom í ljós að ölvaður maður var þarna að fara húsavillt. Hugðust lögreglumennirnir aðstoða manninn við að komast heim til sín. Það gekk þó ekki eftir því áður en til þess kom náði maðurinn að sparka í andlit annars lögreglumannsins. Var hann því handtekinn og færður á lög- reglustöð. Ölvaður með fjögurra ára barn HÓPUR íslenskra og erlendra vísindamanna hefur undan- farna daga fjallað um land- hnignun, vandamál og við- brögð, á alþjóðlegri ráðstefnu á vegum nefndar innan Alþjóða landafræðisambandsins. Við- fangsefni ráðstefnunnar snerta landeyðingu hvort sem er af völdum landnytja eða náttúr- unnar sjálfrar. Yfir þrjátíu fyrirlestrar eru fluttir á ráðstefnunni og flytja íslenskir vísindamenn um einn þriðja þeirra. Fyrirlesarar og ráðstefnugestir eru m.a. frá Evrópu, Ástralíu, Afríkulönd- um og Austurlöndum nær. Eru það sérfræðingar í viðfangsefn- um sem snerta landeyðingu, uppgræðslu og endurheimt landgæða, nýtingu mannsins á þeirri auðlind sem jarðvegur og gróður eru. Einnig er fjallað um pólitískar ákvarðanir, stefnu og vandamál sem kunna að stafa af árekstrum milli hagsmunaaðila. Skipulagningu ráðstefnunn- ar hefur annast Guðrún Gísla- dóttir, dósent í jarðfræði við jarð- og landafræðiskor Há- skóla Íslands. Aðrir aðilar sem standa að henni eru Land- græðslan og Rannsóknastofn- un landbúnaðarins. Auk þess að hlýða á fyrir- lestra hafa ráðstefnugestir ferðast um landið, m.a. heim- sótt Þingvelli og Reykjanes. Alþjóðleg ráðstefna um land- eyðingu BÆNDUR, sem eiga fé í innláns- deild Kaupfélags Árnesinga þurfa væntanlega ekki að óttast um það sparifé sem þeir kunna að eiga í inn- lánsdeildinni. Kaupfélagið á í miklum fjárhagserfiðleikum og er núna í greiðslustöðvun. „Það eru tryggingar á innláns- deildinni þannig að það standa vonir til þess að þetta fé skerðist ekki. Tryggingarsjóður á vegum innláns- deilda kaupfélaganna á að verja þetta fé,“ segir Valur Oddsteinsson, stjórn- arformaður Kaupfélags Árnesinga. Aðspurður segist Valur ekki geta sagt til um hversu miklar upphæðir bændur eigi enda sé það sparifé bænda sem sé í innlánsdeildinni og það flokkist því sem trúnaðarmál. „Síðan eiga bændur auðvitað við- skiptareikninga hjá Kaupfélaginu en þeir geta hvort heldur verið í mínus eða plús og útkoman þar ræðst auð- vitað af þeirri stöðu sem menn voru í þegar greiðslustöðvunin gekk í gegn.“ Sparifé bænda væntanlega tryggt ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri tók í gærmorgun við fjórum lista- verkum eftir kanadísku listakonuna Wanda Koop. Listaverkin er gjöf frá Winnipeg borg í Kanada. Glen Murray, borgarstjóri Winnipeg, færði Reykjavíkurborg gjafirnar en hann var hér í opinberri heimsókn um helgina. „Þetta eru fjórar myndir í seríu sem leggja áherslu á samspil manns og náttúru,“ segir Þórólfur. „Mynd- irnar eru ýmist með „fókuskross“ eða hornklofum. Þetta á að minna á fókuskross í ljósmyndum.“ Hann segir að þegar borgarstjórarnir skiptust á gjöfum sl. laugardag hefðu gestirnir upplýst að þeir hefðu meðferðis listaverkagjafir og að myndirnar hafi verið valdar af lista- manninum sjálfum. Með þessari gjöf vildu borgaryfirvöld í Winnipeg leggja áherslu á sameiginlegan menningararf borganna tveggja. Þórólfur segir að myndunum verði fundinn viðeigandi staður í samráði við Eirík Þorláksson, for- stöðumann Listasafns Reykjavíkur. Borginni færðar listaverkagjafir Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.