Morgunblaðið - 19.08.2003, Síða 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 19
Hlíðasmári 1-3
Til leigu/sölu
Stórglæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Smáranum í
Kópavogi. Um er að ræða allt að 8.000 fm. Hvort hús um sig ca 4.000 fm.
Möguleiki á að skipta í minni einingar. Næg bílastæði. Frábært útsýni. Sér-
lega vönduð og fullbúin sameign.
Allar nánari uppl. gefur Andres Pétur eða Ellert Bragi á skrifstofu.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
BREIÐHOLT - SELJAHVERFI
Mér hefur verið falið að leita eftir einbýlis-
húsi í góðu ástandi í Seljahverfi eða
nágrenni fyrir fjársterkan kaupanda.
Kaupandi getur veitt ríflegan afh. tíma sé
þess óskað. Sterkar greiðslur í boði fyrir
rétta eign. Verðhugmynd frá 23-26 millj.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband
og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hafðu samband - það kostar ekkert!
ÚILIT er fyrir að líkamsræktar-
stöðin Perlan flytji starfsemi sína í
Sundmiðstöðina í Keflavík. Menn-
ingar-, íþrótta- og tómstundaráð
Reykjanesbæjar (MÍT) hefur sam-
þykkt að leigja fyrirtækinu aðstöðu
þar.
Stefán Bjarkason, framkvæmda-
stjóri MÍT, segir að eftir að eign-
arhaldsfélagið Fasteign, sem
Reykjanesbær er hluthafi í, eign-
aðist allar fasteignir bæjarins hafi
vaknað áhugi á að nýta betur hús-
næði Sundmiðstöðvarinnar. Þar sé
meðal annars óinnréttað húspláss
sem ætlað er fyrir búningsklefa
væntanlegrar innisundlaugar. Segir
Stefán að eigendur Perlunnar séu
að missa núverandi húsnæði sitt við
Hafnargötuna og hafi sýnt áhuga á
að flytja starfsemina í Sundmið-
stöðina. Perlan mun sjálf annast
innréttingar á því húsnæði sem fyr-
irtækið leigir af Reykjanesbæ til
fimm ára.
Drög að samningi MÍT og Perl-
unnar voru samþykkt á fundi
Menningar-, íþrótta- og tómstunda-
ráðs í vikunni með þeim skilyrðum
að þeirri starfsemi íþróttafélaga og
deilda sem fyrir er í húsnæði Sund-
miðstöðvarinnar verði ekki raskað.
Stefáni var falið að fylgja málinu
eftir. Samþykktin verður síðan lögð
fyrir bæjarstjórn í dag til staðfest-
ingar.
Perlan leigir aðstöðu
í Sundmiðstöðinni
Keflavík
Vogar og umhverfi er tekið til
skoðunar í kvöld í gönguferð
Upplýsingamiðstöðvar Reykja-
ness. Leiðsögumenn eru Þorvald-
ur Örn Árnason og Halla Guð-
mundsdóttir. Mæting er við
Sundmiðstöðina í Vogum klukkan
20.
Í DAG
TVÖ innbrot voru tilkynnt til lögregl-
unnar í Keflavík að því er fram kemur
í dagbók lögreglunnar eftir helgina.
Stolið var vindlingum og fleiru úr sölu-
turni og GPS-staðsetningartæki úr
bíl.
Að morgni síðastliðins föstudags
var tilkynnt um innbrot og þjófnað í
söluturn við Hringbraut í Keflavík.
Þetta hefur átt sér stað um nóttina.
Farið hafði verið inn um sölulúguna og
stolið vindlingum, símakortum og
peningum.
Klukkan hálf ellefu á föstudag var
tilkynnt um innbrot og þjófnað í bif-
reið sem staðsett var í bílskúr við Ás-
garð í Keflavík. Telur lögreglan að
einhver sem þekkir til aðstæðna hafi
brotist inn um nóttina, á bilinu frá hálf
tvö til hálf átta. Úr bílnum var stolið
GPS 162-staðsetningartæki af Garmin
gerð, svörtu að lit. GPS-tækið er
tveggja ára og metið á um 70 til 80
þúsund krónur.
Lögreglan rannsakar bæði málin.
Stolið úr
bíl og
söluturni
Keflavík
KAMMERSVEITIN Ísafold heldur
tónleika í sýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar í Duushúsum í Kefla-
vík á morgun, miðvikudag klukkan 20.
Kammersveitin Ísafold er á tón-
leikaferð um landið. Hljómsveitin er
skipuð 15 ungum hljóðfæraleikurum
sem allir stunda framhaldsnám en
þeir stofnuðu sveitina fyrr á þessu ári.
Í hópnum eru tveir hljóðfæraleikarar
úr Reykjanesbæ, Ingi Garðar Er-
lendsson og Sturlaugur Jón Björns-
son. Á efnisskrá tónleikanna eru
nokkur af öndvegisverkum 20. aldar
sem sjaldan heyrast hér á landi. Eru
þetta verk eftir Charles Ives, Anton
Webern, Igor Stravinsky, Edgar Va-
rése, Withold Lutoslawsky og Hauk
Tómasson.
Tónleikarnir í Reykjanesbæ eru
næst síðustu tónleikarnir af sjö sem
Ísafold heldur í ferð sinni. Þeir síðustu
verða í Listasafni Íslands í Reykjavík
21. ágúst, og hefjast klukkan 20.
Ísafold með tónleika
í Listasafninu
Reykjanesbær
Félagar í kammersveitinni Ísafold æfa sig fyrir tónleikaferðina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Starfsemi í Sundmiðstöðinni eykst þegar Perlan flytur starfsemi sína.
UM 140 börn, flest af Suðurnesjum,
tóku þátt í Heklumóti Víðis sem fram
fór í Garði síðastliðinn laugardag.
Hekla og Knattspyrnufélagið
Víðir efna árlega til knattspyrnu-
móts á Víðisvelli fyrir 6. flokk. Mótið
nú var hið fjórða í röðinni og tóku
sex lið þátt, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Það eru sameig-
inlegt lið Víðis og Reynis úr Sand-
gerði, lið Keflavíkur, Njarðvíkur,
Grindavíkur, Voga og Hauka úr
Hafnarfirði.
Njarðvík sigraði í flokki A-liða,
Haukar í flokki B-liða og Keflavík í
flokki C-liða.
Eyjólfur Sverrisson, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði, afhenti sigurliðinu
bikar auk þess sem allir þátttak-
endur fengu verðlaunapening og
veggspjald með mynd af íslenska
landsliðinu.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Eyjólfur Sverrisson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, afhenti verðlaun og gaf börnunum eiginhaldaráritanir.
140 börn
tóku þátt
í Heklu-
móti Víðis
Garður