Morgunblaðið - 19.08.2003, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÆR óumflýjanleg millilending
hjá karlkyns Hollywood-leikurum
sem komnir eru á efri ár og muna
sinn fífil fegurri er að tengja sig
ungum upprennandi stjörnum í
verkefnum sem eiga þá að njóta
góðs af reynslu og orðstír hins eldri
en nota kynþokka og töffaraskap
yngri stjörnunnar til að höfða til
„ungu kynslóðarinnar“, sem er vit-
anlega sú sem helst sækir kvik-
myndahús. Dæmin eru mörg og
ekki þarf að leita langt til að finna
áberandi tilbrigði við þessa aðferð
s.s. Al Pacino og Colin Farrell í Ný-
liðanum (The Recruit) og Jack Nich-
olson og Adam Sandler í Reiði-
stjórnun (Anger Managment).
Nýjasta parið er svo sjálfur Harr-
ison Ford og nýstirnið Josh Hartn-
ett. Hér leiða þeir saman hesta sína
í velþekktu kvikmyndaformi sem
kenna má við löggutvíeykið. Grund-
vallareinkennni slíkra mynda er að
saman reyna heldur ósamstæðir og
jafnvel fjandsamlegir einstaklingar
að leysa erfitt sakamál, en mestri
orku er engu að síður varið í
tengslamyndun lögregluþjónanna
tveggja. Fyrst líkar hetjunum illa
hvorri við aðra en uppgötva ávallt
leynda verðleika og hæfileika hjá
samherjanum og eru að lokum bestu
vinir. Sígilt dæmi um myndir af
þessu tagi er fjórleikurinn um Skað-
ræðisgripinn (Lethal Weapon) en
Morð í Hollywood fylgir hinum fyr-
irframgefna og staðlaða söguþræði
af hugsunarlausri hlýðni og án
nokkurrar nýsköpunar eða vænlegr-
ar tilraunar til að blása lífi í vel-
þekktar klisjur.
Ford (Joe) og Hartnett (K.C.) eru
ólíkir eins og dagur og nótt, sá fyrr-
nefndi þaulreyndur atvinnumaður
en sá yngri hálfgerður sveimhugi
sem erfitt á með að líta á rannsókn-
arlögreglustörf sem alvöru vinnu.
Enda eiga þeir eitt sameiginlegt,
það er drauminn um að hverfa frá
lögreglustörfum. Joe lítur fasteigna-
bransann hýru auga en K.C. stefnir
inn í draumaland Hollywood-verk-
smiðjunnar. Brandaramylla mynd-
arinnar gengur síðan fyrir þeim ein-
hæfa orkugjafa að endalaust virðist
vera hægt að grínast með þessa tvo
hluti, þ.e. K.C. á leiðinni í leikprufu
en Joe að rembast við að selja hús.
Lögreglurannsóknin tengist
morði á fjórum hipp hopp-tónlist-
armönnum og beinist fljótlega að
svikulum plötuframleiðanda sem
virðist hugsaður sem eins konar þjál
útgáfa af rappframleiðandanum og
stórglæpamanninum Suge Knight.
Gallinn er hins vegar sá að þrátt fyr-
ir tilraun til flókinna útúrdúra er
flétta þessi fyrirsjáanleg og nokkuð
laus við athyglisverða eða áhuga-
verða fleti. Ekki bætir úr skák að
framleiðendum og höfundum mynd-
arinnar hefur verið mikið í mun að
fylla klukkustundirnar tvær af at-
burðum og er því óhóflegum fjölda
hliðarsagna bætt inn í handritið, allt
þar til hætt er við að áhorfendur
sem ekki hafa þegar misst áhugann
ruglist hreinlega í ríminu. Ástar-
sambönd söguhetjanna tveggja fá
þannig umtalsvert rými, annar
morðingi reynist leika lausum hala
og ekki má gleyma innandeildar-
rannsókninni sem Joe verður að
sæta meðan öllu öðru fleytir fram.
Áður hefur verið minnst á starfs-
drauma lögregluþjónanna tveggja,
og er þar að finna enn eina fléttuna.
Útkoman er því þvæld og alls óljóst
hvert myndin virðist ætla að halda.
Ýmsu er flaggað en engu sinnt vel
og er það áberandi í persónunni sem
Lena Olin leikur, kærustu Joe, en
milli þeirra vottar fyrir áhugaverðu
sambandi sem því miður týnist í
kraðakinu. En þótt handritið jaðri
við að vera handahófskennt er meg-
ingalli myndarinnar enn ónefndur.
Það eru leikararnir. Ford er nátt-
úrlega kominn til ára sinna og fer
ekki vel að vera á hlaupum, en
áhugaleysið sem skín út úr honum
hér, líkt og í flestu því sem hann hef-
ur gert síðustu árin, virkar líkt og
svefnlyf fyrir áhorfandann. Og ekki
kviknar á einum einasta neista milli
hans og Hartnett, sem sömuleiðis
hefur enga orku eða útgeislun til að
bera í hlutverki þessu og þar með er
loku skotið fyrir þann möguleika að
sjarmerandi og skemmtilegar
stjörnur bjargi vondu handriti. Hér
fara saman vondir leikarar og vont
handrit og útkoman sú að augnlokin
byrja að síga skömmu eftir að
myndin byrjar og eini hasarinn sem
finnst í námunda við löggutvíeykið
er barátta áhorfandans við að halda
þeim opnum seinni klukkutímann.
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn og Borg-
arbíó Akureyri
HOLLYWOOD HOMICIDE / HÆTTULÍF Í
HOLLYWOOD Leikstjórn: Ron Shelton. Handrit: Robert
Souza, Ron Shelton. Aðalhlutverk: Harr-
ison Ford, Josh Hartnett, Lena Olin o.fl.
Lengd: 117 mín. Bandaríkin. Columbia
Pictures, 2003.
Heiða Jóhannsdóttir
„Gallinn er hins vegar sá að þrátt fyrir tilraun til flókinna útúrdúra er
flétta þessi fyrirsjáanleg og nokkuð laus við athyglisverða eða áhugaverða
fleti,“ segir í gagnrýninni.
Á
hlaupum
Kl. 8 og 10. B i. 16.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 5.50. ísl tal.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
SG. DVÓ.H.T Rás2
GH
KVIKMYNDIR.COM
SG. DV
KVIKMYNDIR.IS
GULL MOLAR
NÓI ALBINÓI RESPIRO
Sýnd kl. 6 og 8. Með íslensku tali
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
Kl. 6.
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
FRÁ FRAMLEIÐENDUM SHREK
ATH! Munið eftir Sinbað litasamkeppninni á ok.is
THE MATRIX RELOADED
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 8. Enskt tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl tal
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6. Ísl tal
WHAT A GIRL WANTS
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
MEÐ
ÍSLENSKU
OG
ENSKU
TALI
KONUNGAR og drottningar eru
yfirleitt þekkt fyrir að vera með
kórónur en í tilviki Elísabetar
Bretadrottningar er hún ekki síð-
ur þekkt fyrir hatta sína. Hún hef-
ur oft vakið athygli fyrir skraut-
lega og sérstaka hatta og eru
margir þeirra nú til sýnis í fyrsta
sinn. Sýningin er í Kensington-
höll í London og stendur þar til í
apríl á næsta ári. Eru um 70 kon-
unglegir hattar til sýnis í þessum
fyrrum bústað Díönu prinsessu.
„Það er erfitt að skilgreina stíl
hennar hátignar,“ sagði Joanna
Marschner, sýningarstjóri í Kens-
ington-höll, í samtali við frétta-
stofu AFP. „Drottningin hefur
ávallt fylgt tískunni án þess að
vera þræll hennar. Hún velur föt-
in þannig að þau gegni ákveðnu
hlutverki og það heppnast full-
komlega hjá henni,“ sagði hún.
Nokkrir frægir hattar eru til
sýnis eins og sá sem drottningin
bar við jarðarför Winstons
Churchills árið 1965. Fyrrnefndur
hattur er úr svörtu flaueli. Einnig
er til sýnis fjólublár silkihattur,
sem drottningin var með við opn-
un nýs skosks þings árið 1999.
Sumir hattar drottningarinnar
hafa verið undarlegir að lögun
eða lit og er það með ráðum gert.
Alls staðar þar sem drottningin
fer er hún miðpunktur athygl-
innar og draga hattarnir athygl-
ina enn frekar að henni.
Sýning á höttum Elísabetar Bretadrottningar stendur yfir
Konungleg-
ir hattar
Reuters
Þennan hatt var drottningin með á silfurkrýningarhátíð sinni árið 1977.