Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÆTTA Á OFVEIÐI Á GÆS
Veiðistjórnunarsvið Umhverf-
isstofnunar hefur nú þegar gefið út
ríflega 7.000 veiðikort og 25–30%
fleiri hafa sótt um kort fyrir gæsa-
veiðitímabilið í ár en venja er. Er tal-
ið rjúpnaveiðibannið muni hafa í för
með sér aukna aðsókn í gæs og að
þetta mikla álag sem hefur verið á
veiðistjórnunarsviði megi rekja til
þess. Formaður Skotveiðifélags Ís-
lands segir hættu á ofveiði á gæs og
að félagið hafi varað við því er
ákvörðun um rjúpnaveiðibann var
tekin.
Ótryggt ástand
Stærstur hluti launafólks á Bíldu-
dal við Arnarfjörð býr við óstöðugt
atvinnuástand. Rækjuvinnslan
Rækjuver er lokuð og fiskvinnslu-
fyrirtækið Þórður Jónsson ehf. er í
greiðslustöðvun. Fyrirtækin tvö eru
fjölmennustu vinnustaðirnir á Bíldu-
dal, en þar búa rúmlega 230 manns.
Forsetinn á leik með
Chelsea
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorr-
it Moussaieff verða meðal áhorfenda
á leik Chelsea og Leicester í Lund-
únum í dag en Roman Abramovich,
eigandi Chelsea og ríkisstjóri í
Chukotka, bauð forsetahjónunum að
koma með sér á leikinn sem lið í
heimsókn hjónanna til Chukotka,
sem staðið hefur yfir undanfarna
daga.
Sýður upp úr
Óttast er að ástandið í Mið-
Austurlöndum sé enn á ný að fara úr
böndunum. Um 100.000 ævareiðir
Palestínumenn fylgdu Hamas-
leiðtoga til grafar í gær en Ísraelar
drápu hann í hefndarskyni fyrir
sjálfsmorðsárás í strætisvagni í
Jerúsalem í vikunni. Ísraelar og Pal-
estínumenn hóta grimmilegum
hefndum á víxl.
Starfsmenn viðriðnir
tilræði?
Talið er að þeir sem stóðu að
sprengjutilræði við höfuðstöðvar
Sameinuðu þjóðanna í Bagdad á
þriðjudag hafi ef til vill notið að-
stoðar íraskra öryggisvarða sem
störfuðu í byggingunni.
L a u g a r d a g u r
23.
á g ú s t ˜ 2 0 0 3
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 36
Viðskipti 12 Minningar 40/45
Erlent 14/15 Messur 46
Höfuðborgin 18 Myndasögur 48
Akureyri 20 Bréf 48
Suðurnes 20 Skák 49
Árborg 22 Staksteinar 50
Landið 22 Dagbók 50/51
Neytendur 26 Leikhús 56
Heilsa 26 Fólk 56/61
Listir 27/29 Bíó 59/61
Úr Vesturheimi 31 Ljósvakamiðlar 62
Forystugrein 32 Veður 63
* * *
SVO virðist sem höfundi tölvuormsins So-
Big.F@mm hafi ekki tekist að senda uppfærslu á
orminum á sýktar tölvur í gær. Veiran var hönnuð
til þess að sækja upplýsingar á tilteknar tölvur
klukkan sjö í gærkvöldi en svo virðist sem engar
upplýsingar hafi verið að fá. Íslenskar tölvur voru
þó varðar gagnvart þessari uppfærslu því lokað var
fyrir gagnastreymi til þessara tilteknu tölva í gegn-
um Cantat 3-sæstrenginn.
Alls er um að ræða tuttugu tölvur sem ormurinn
var forritaður til að hafa samband við en veiru-
sérfræðingar fundu svokallaðar IP-tölur þessara
tölva í orminum. IP-tölur eru eins konar heimilis-
fang nettengdra tölva á Netinu. Veiruvarnarsér-
fræðingum tókst að loka fyrir átján af þessum tutt-
ugu tölvum, en þær eru í Bandaríkjunum, Kanada
og Suður-Kóreu.
Hættan ekki liðin hjá
Þótt veiruhöfundi virðist ekki hafa tekist að
koma nýju afbrigði ormsins út í gær er hættan ekki
liðin hjá því veiran hefur fyrirskipun um að sækja
gögn á þessum tuttugu tölvum á milli 19 og 22 á
hverjum föstudegi og sunnudegi fram til 10. sept-
ember. Friðrik Skúlason, hjá Friðriki Skúlasyni
ehf., segir ekki ljóst hvort veiruhöfundinum hafi
mistekist að framkvæma ætlunarverk sitt í gær
eða hvort hann hafi einfaldlega ákveðið að bíða um
hríð í þeirri von að veiruvarnarsérfræðingar og
tölvueigendur yrðu værukærari gagnvart veirunni.
Veiran hélt í gær áfram að valda miklum usla á
póstþjónum fyrirtækja. Um hríð var töfin á póst-
sendingum hjá Símanum Interneti um fimm
klukkustundir en það ástand hafði lagast töluvert
þegar leið á kvöldið og var orðið eðlilegt á ný.
Og Vodafone stöðvaði yfir milljón skeyti
Í fyrradag stöðvuðu póstsíur Og Vodafone yfir
eina milljón sýktra tölvuskeyta sem þar af leiðandi
trufluðu ekki notendur. Pétur Pétursson, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningarmála hjá félaginu,
segir að svo virðist sem varnaraðgerðir hafi tekist
vel í gær en enn sé mjög mikið af veirunni í dreif-
ingu. Friðrik Súlason segir að svo virðist sem sýkt-
ar tölvur á Íslandi séu nokkur hundruð og að út-
breiðsla sýkingarinnar sé tiltölulega lítil. Hins
vegar getur hver sýkt tölva gert nokkuð mikinn
skaða sökum þess hve haganlega veiran er hönnuð;
en hún nýtir sér alla þá bandvídd sem sýkt tölva
hefur yfir að ráða til að senda út póst.
Tölvur einstaklinga senda
stærstan hluta sýkts pósts
Nokkur fyrirtæki og opinberar stofnanir eru
meðal þeirra aðila sem ábyrgir eru fyrir dreifingu
veirunnar. Meirihluta veirusendinganna má þó
rekja til einstaklinga sem opnað hafa viðhengi með
tölvuveirunni. Þær tölvur sem tengdar eru með
ADSL, eða öðrum háhraðatengingum, geta því
sent óheyrilegt magn tölvuskeyta út án þess að eig-
anda sýktu tölvunnar sé það ljóst. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins var það tölvukerfi Ol-
íudreifingar hf. sem var mikilvirkasti dreifingar-
aðili sýkts tölvupósts í gær en samkvæmt upplýs-
ingum frá yfirmanni tæknisviðs fyrirtækisins er
tölvukerfi þeirra í umsjá Samskipa hf.
Þeir sem ekki hafa uppfært veiruvarnir geta
nálgast endurgjaldslausa reynsluútgáfu af forrit-
inu Lykla-Pétri á slóðinni www.frisk.is. Tölvunot-
endum er einnig ráðlagt að opna ekki viðhengi sem
berast með tölvupósti nema þeir viti að það sé
óhætt.
SoBig.F@mm heldur áfram að trufla tölvusamskipti
Mikið álag en veiran
ekki stökkbreytt
Morgunblaðið/Árni Torfason
ÞORBJÖRN Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, segist mjög
ánægður með fund sem fulltrúar
samningsaðila vegna virkjanafram-
kvæmda við Kárahnjúka áttu með
fulltrúum opinberra eftirlitsstofnana
á svæðinu. „Að mínu mati tókst þetta
frábærlega vel. Við fengum mjög mál-
efnalega yfirferð á málunum,“ segir
Þorbjörn. Hann segir að eftirlits-
stofnanir eigi erfitt með að fram-
kvæma hlutverk sín þar sem þær hafi
ekki fengið nægjanlegan stuðning til
þess að undirbúa sig fyrir aukið álag
vegna virkjanaframkvæmdanna. Þor-
björn segir að sérstaklega hafi komið
fram áhyggjur vegna brunavarna í
vinnubúðum á virkjanasvæðinu. Þá sé
aðstaða í mötuneyti alls ekki fullnægj-
andi og lýstu fundarmenn áhyggjum
yfir að ýmis mál varðandi lagnakerfi
væru ekki nægjanlega vel búin fyrir
veturinn.
„Það sem við vorum fyrst og fremst
að gera í dag var að hitta fulltrúa eft-
irlitsstofnana sem eiga að sjá um eft-
irlit á Kárahnjúkasvæðinu. Það er
heilbrigðiseftirlit, vinnueftirlit,
brunaeftirlit og byggingarfulltrúi
ásamt sveitarstjórnarmönnum úr
þeim byggðarlögum sem eiga land að
framkvæmdasvæðinu. Tilgangurinn
var sá að fara yfir það með stofnunun-
um hvernig þær væru í stakk búnar
að taka að sér það eftirlit sem þeim
ber að hafa,“ segir Stefán.
Hann segir að í kjölfar fundarins
verði óskað eftir fundum með ráð-
herrum til að fara yfir stöðu mála á
virkjanasvæðinu. Hann segir að halda
þurfi fundi með félagsmálaráðherra,
umhverfisráðherra og dómsmálaráð-
herra, en sýslumaðurinn á Seyðis-
firði, sem hefur umdæmi á virkjana-
svæðinu, sagðist á fundinum ekki
hafa fjárhagsleg úrræði til að fram-
fylgja skyldum sínum á svæðinu.
Þorbjörn segir að stjórnvöld þurfi
að gefa til kynna hvort þau séu tilbúin
að leggja út í þann kostnað sem til
falli vegna þessara miklu fram-
kvæmda. Hann segir að ekki skorti
vilja hjá eftirlitsaðilum á staðnum
heldur sé vandinn sá að stofnanirnar
hafi ekki burði til að sinna verkefnum
sínum á svæðinu.
Fulltrúar eftirlitsstofnana og hagsmunafélaga funduðu vegna framkvæmda
Fengu ekki nægilegan
stuðning til undirbúnings
SÓLIN skein sem mest hún mátti
víða um land í gær og var hiti
víða nálægt 20 stigum. Þrátt fyrir
að vel sé liðið á ágústmánuð mátti
sjá íbúa höfuðborgarinnar spóka
sig á stuttbuxum og baða sig í
Nauthólsvíkinni sem á miðju sumri
væri. Þar brugðu unglingarnir
líka á leik og skelltu sér í
„strandablak“, ekki seinna vænna
þar sem skólinn byrjar af alvöru
hjá flestum eftir helgi.
Morgunblaðið/Arnaldur
Sólríkt síðsumar BIFREIÐ hafnaði utan vegar viðBægisá í Hörgárbyggð við Þelamörk
laust fyrir klukkan níu í gærkvöldi.
Þrír voru í bifreiðinni en þeir sluppu
án teljandi meiðsla, að sögn lögreglu
á Akureyri. Tildrög slyssins eru
óljós.
Lenti utan
vegar
ELDRA fólk, kona og maður, voru
flutt á sjúkrahúsið á Blönduósi eftir
harðan árekstur á Norðurlandsvegi
við Vatnsdal um klukkan sjö í gær-
kvöldi. Ekið var aftan á bifreið fólks-
ins með þeim afleiðingum að öku-
maður bifreiðarinnar fékk sár á
höfuð. Ákveðið var að láta fólkið
dvelja á sjúkrahúsi yfir nótt til ör-
yggis. Bifreið þeirra hafnaði á hlið
utan vegar en vegfarendur komu
þeim til aðstoðar. Tveir karlmenn
voru í aftari bifreiðinni, en þeir
sluppu án meiðsla. Bifreiðirnar eru
mikið skemmdar eftir áreksturinn.
Slys við
Vatnsdal
♦ ♦ ♦