Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ                               !       " ##   "  $ "   BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. HVER hefur ekki séð hinar ömurlegu aðstæður sem hesthúsahverfið Neðri- Fákur býr við? Ein reiðleið, óþolandi mikil bílaumferð og mannabyggð hefur umkringt svæðið. Þetta hverfi verður rifið bráðlega. Nú er að rísa viðamikil byggð í kringum hestamannafélög- in Andvara í Garðabæ og Fák í Reykjavík. Háhýsi og raðhús eiga eftir að rísa við Elliða- vatn þar sem áður voru sumarbústaðir, veiðikofar og mikilvæg reiðleið er tengir Andvara og Fák saman. Þetta hét óspillt náttúra. Núna kallast það víst autt pláss. Hestamannafélagið Gustur hefur þegar verið gleypt af byggð og reið- leiðirnar þar hafa takmarkast mjög. Þetta er framtíð hestamanna. Íbúðar- hús, umferð og einhæfar reiðleiðir. Það eina sem hestamenn ætla sér að gera er að sjá byggðina kæfa hesthúsa- hverfin og kvarta svo þegar það er um seinan. Svona eins og vanalega. Ég hef ekki heyrt neina athugasemd frá hestamannafélögunum um byggðina sem er að rísa. Eiga allar hesthúsa- byggðir á höfuðborgarsvæðinu að enda eins og Neðri-Fákur? Sjálf er ég með hross í Fáki og það er svo sem ekki í frásögur færandi nema það að reiðleiðirnar hafa minnkað, mikill há- vaði berst frá umferð/byggð og sumir reiðvegir eru orðnir mjög hættulegir – samanber vegur undir tvenn undir- göng við Rauðavatn. Hestamenn kvörtuðu undan þessum breytingum á reiðvegum við Fák en lítið hefur nú gerst hvað það varðar. Það var senni- lega gert of seint. Ráðamenn Íslands, ásamt ýmsum ferðaþjónustuaðilum landsins, gorta af gæðum þessa ágæta lands og nefna alloft þennan einstaka hest sem á engan sinn líka í öllum heiminum hvað varðar geðsmuni og hæfileika. Aldrei er talað um íslenska fótboltann sem fær þó óhugnanlega mikið pláss í fréttum ljósvakans á hverjum degi. Íslenski hesturinn er fremstur meðal jafningja í dýraríki Ís- lands og margt hefur verið auglýst með hann í broddi fylkingar. Heiðurs- vörður íslenska hestsins og íslenskir hestar sem gjafir til erlendra ráða- manna eru góð dæmi um það. Um- boðsmaður íslenska hestsins? Til hvers að æða til útlanda þegar svo mikið er eftir hérlendis sem þarf að vinna í? Að- staða hestamanna er komin í heilmikil andþrengsli og sumarexemið víðfræga er enn stórt vandamál erlendis. Hví er verið að byggja ofan í hesta- hverfin? Hví er byggðin ekki tengd við Mosfellsbæ eða Reykjanesbæ í stað þess að tengja Kópavogsbæ við Breið- holt? Hví að æða ofan í sumarbústað- ina og dýraríkið við Elliðavatn? Nei, kæru hestamenn, þetta látum við ekki bjóða okkur. Byggðina verður að stoppa af. Ef ráðamenn þjóðarinnar ætla að gorta af íslenska hestinum þá ættu þeir að taka meira tillit til þeirra er rækta hann og temja. Án góðrar að- stöðu fyrir hestamenn verður erfitt að halda heiðurshestunum þægum við hlið rauða dregilsins á Keflavíkurflug- velli. Hættum að hrjóta. Nú pípir vekj- araklukkan. LINDA KAREN GUNNARSDÓTTIR, nemi og hestakona. Hestamenn, athugið! Frá Lindu Karen Gunnarsdóttur: Linda Karen Gunnarsdóttir NICOLE Vala Cariglia sellóleikari og Árni Heimir Ingólfsson píanóleikari héldu tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þriðjudagskvöldið 5. ágúst sl. Undirrituð hlýddi á leik þeirra þetta fagra sumarkvöld og langar til að óska þeim til hamingju með þessa skemmtilegu tónleika. Efnisvalið var óvenjulegt, saman- stóð af verkum spánskra tónskálda; Manuel de Falla, Pablo Casals, Gasp- ar Cassado og Alberto Ginastera, auk eins verks eftir Argentínumanninn Joaquin Turina. Voru öll verkin mjög áheyrileg, ýmist spriklandi fjörug og hrynsterk eða syngjandi ljóðræn. Nicole Vala Cariglia sýndi skemmtileg tilþrif. Hún er næmur tónlistarmaður og skilaði hlutverki sínu með stakri prýði. Hún hefur sterka hryntilfinningu og spilar áreynslulaust erfiðustu fingraflækjur, en hefur auk þess mjúkan og syngj- andi tón, sem skilar vel tregablöndn- um laglínum. Nicole Vala á heiður skilinn fyrir verulega metnaðarfulla efnisskrá. Það er svo sannarlega ekki heiglum hent að inna af hendi verk á borð við einleikssvítu Cassadós eða Pampeana eftir Ginastera. Nicole sýndi, svo ekki verður um villst, að mikils er að vænta af henni í framtíðinni. Samleikur Nicole Völu og Árna Heimis Ingólfssonar var mjög góður, og verulega ánægjulegt að heyra hversu samstilltur leikur þeirra var. Árni Heimir átti marga góða spretti og kom glöggt í ljós að hér fer fínn pí- anóleikari. Þessir tónleikar voru í heild mjög ánægjulegir og á tónlistarfólkið heið- ur skilinn. Undirrituð hlakkar til að fá að heyra til þeirra sem fyrst aftur. LOVÍSA FJELDSTED, Blönduhlíð 35, Reykjavík. Sumartónleikar í Lista- safni Sigurjóns Ólafs- sonar 5. ágúst 2003 Frá Lovísu Fjeldsted: Árni Heimir Ingólfsson og Nicole Vala Cariglia.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.