Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÞAÐ ER sérkennileg tilfinning fyrirÍslending að koma á söguslóðirRómverja og Grikkja og virða fyrirsér forn mannvirki sem bera vott um horfna siðmenningu. Hér á landi eru slík- ar minjar fátíðar, enda veðurfar óhagstætt og fallegar trébyggingar hafa oft orðið eld- inum að bráð. Samt er eiginlega verra að minjaleysið hefur mótað sálarástand Íslendinga. Þjóðin virðist ekki kunna að umgangast sögulegar minningar af þeirri virðingu sem þeim er sýnd meðal annarra menning- arþjóða. Engin markviss stefna virðist vera til um að viðhalda þeim í sínu eðlilega um- hverfi. Þegar eitthvað finnst standa yfirvöld oft ráðþrota. Oft hafa söguleg og merkileg hús verið rifin, s.s. Fjalakötturinn gamli, en í besta falli flutt upp í Árbæ. Þá er nú komin upp ný stefna, um að varðveita beri minjar undir hótelbyggingum. hníga þau Mig lang sérstöku u sonar í Bra þjóðþekkt Ómars Ra mun vera a hans eru a um íslensk Þegar k Bíldudal e sögu. Allir bjó að Upp var merkt ustu menn arholti bjó hníptum fj hann sig ti skúlptúra smíðaði lík ljósari en n skepnunna ótrúlegust aðstæður e Meðal v kirkja sem Það er auðvitað misskilningur að minjar þurfi að vera gamlar til að vera merkilegar. Ef ekki mætti friða hús fyrr en þau eru orðin 200 ára gömul næðu fá hús svo háum aldri. Nýlega hefur farið fram umræða um Austur- bæjarbíó og hefur borgarráð heimilað að rífa það. Það gætu orðið afdrifarík mistök enda er hér á ferð ágætis tónlistarhús sem nýta má til margs konar menningarstarfsemi. Einnig er það merkilegt sögu sinnar vegna, eins og rakið var af Jóni Þórarinssyni í Morgunblaðinu nú á dögunum. En á þessi rök hefur borgarráð ekki viljað hlusta. Það er býsna nöturlegt að á sama tíma er það sótt af miklu kappi að byggja tónlistarhús í Reykjavík en enn virðist ekkert bóla á því. Einhverra hluta vegna virðast Íslendingar ekki vera spenntir fyrir menningarverðmæt- um fyrr en þau eru horfin. Þá má eyða tug- um milljóna í að endurreisa verðmætin „í upphaflegri mynd“, sem ekki verður þó ann- að en sýndarveruleiki. Þannig var reistur Þjóðveldisbær í Þjórsárdal eftir tilgátu ágæts fræðimanns en á hinn bóginn lítið hirt um að gera bæjarrústirnar að Stöng að- gengilegar. Fleiri dæmi mætti tína til og öll Fórnum ekki töf Eftir Katrínu Jakobsdóttur FLESTIR hafa sjálfsagtheyrt minnst á frægastaðlaáráttu Evrópu-sambandsins; ferhyrnd jarðarber, bogna banana, sjó- menn með hárnet – uppistaðan í fyrirsögnum breskra æsifrétta- blaða. Evrópusambandssinnar eru ævareiðir yfir slíkum frétta- flutningi. Skrifstofa Evrópusam- bandsins í London gefur t.a.m. reglulega út samantekt yfir það sem hún kallar ESB-goðsagnir („Euro-myths“) og stór hluti af heimasíðu samtaka breskra Evr- ópusambandssinna, „Britain in Europe“, fer í umfjöllun um þær. Það er auðvitað rétt að vissu marki að dagblöð eiga það til að ýkja hlutina. En það sérkennileg- asta við þessar svokölluðu ESB- goðsagnir er eeigi að síður hversu oft þær reynast sannar við nánari skoðun. Þetta kom t.a.m. skýrt fram ekki alls fyrir löngu þegar nokkr- ir breskir embættismenn fóru fyrir dómstóla og kröfðust þess að réttur þeirra til að sækja til saka aðila sem hefðu á boðstólum banana með rangri lögun væri staðfestur. Já, það er raunveru- lega til reglugerð hjá Evrópu- sambandinu um lögun banana. væri ekki lengur löglegt a hálfpott af bjór. Svar við inni kom frá skrifstofu sam bandsins í London, án sjá legrar kaldhæðni, þess efn það væri fullkomlega lögle því tilskildu að menn notu orðið „hálfpottur“. Það skal annars vel viðu ast að beinir bananar mun lega þýða alger endalok b fullveldis. Í samanburði vi tortímingu bresks sjávarú eyðingu hinna bresku hefð grundvallarlög og hina sa inlegu landbúnaðarstefnu ið varðandi bananana einu smávægilegt atriði. En þa hins vegar meira en lítið á vert að fylgjast með því h kerfiskallar Evrópusamba reyna ávallt að fela það se eru raunverulega að gera þeir eru svona viðsjárverð andi ómerkilegt atriði ein banana, getum við þá virk treyst þeim t.d. varðandi Ég hef lesið hana sjálfur. Það er reglugerð nr. 2557/94. Þar eru skilgreint nákvæmlega leyfileg lengd og þvermál fyrsta flokks banana og auk þess tekið fram að þeir megi ekki vera of bognir. Sem betur fer fyrir breska rétt- arkerfið var kröfu embættis- mannanna hafnað af hæstarétti Bretlands. Sama er að segja um agúrkur. Ég hafði margoft heyrt fullyrt að allar sögurnar um bognar agúrk- ur hefðu einfaldlega verið samdar af æsifréttablöðunum svo ég ákvað að kanna málið sjálfur. Og viti menn! Ég rakst á reglugerð 1677/88 sem kveður á um leyfi- legan heildarboga á agúrkum og nákvæmt mál er ennfremur tekið fram, 10 mm bogi fyrir hverja 10 cm í lengd. Staðreyndin er nefnilega sú að stærsta goðsögnin af þeim öllum er þegar því er haldið fram að sögur sem þessar séu goðsagnir. Nánast hverri einustu frétt um þessi mál er algerlega hafnað af forystu Evrópusambandsins. Fyrir nokkrum árum ritaði ég grein í The Daily Telegraph þar sem ég benti á þá staðreynd að samkvæmt hinum nýju metra- kerfisreglum Evrópusambandsins Stærsta ESB-goðsögni Eftir Daniel Hannan Höfundur greinarinnar er þingmaður á Evrópuþingin breska Íhaldsflokkinn og dál undur á The Daily Telegrap Heimasíðan hans er á slóðin www.hannan.co.uk. BÚSETUÞRÓUN OG SAMGÖNGUR Í allmörg ár hefur mátt sjá merkiþess, að stórbættar samgöngurleiddu til athyglisverðrar þróunar í búsetu fólks. Eftir að samgöngur á milli Reykjavíkursvæðisins og Árborgar- svæðisins urðu svo góðar sem raun ber vitni fór að bera á því að fólk sem bú- sett var og er austan fjalls sækti dag- lega vinnu til höfuðborgarsvæðisins. Svo fóru að koma vísbendingar um, að fólk flytti austur fyrir fjall bæði vegna lægri húsnæðiskostnaðar á sínum tíma og líka vegna meiri friðsældar en hægt var að finna í fjölmenninu í höfuðborg- inni. Sama gerðist á sínum tíma með bætt- um samgöngum á milli Suðurnesja og Reykjavíkur. Fólk, sem búsett var á höfuðborgarsvæðinu sótti daglega vinnu til Suðurnesja og þá í upphafi ekki sízt til Keflavíkurflugvallar og öfugt. Þá komu líka fram vísbendingar um að lægri húsnæðiskostnaður á Suðurnesj- um leiddi til þess að fólk flytti til Suð- urnesja en héldi áfram að vinna á Reykjavíkursvæðinu. Nú er alveg ljóst að hið sama er að gerast með Vesturland í kjölfar Hval- fjarðarganga eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær. Akurnesingar hafa ekki mikið fyrir að sækja daglega vinnu til Reykjavíkur og Borgnesingar raunar ekki heldur. En jafnframt er ljóst að Hvalfjarðargöngin hafa orðið til þess, að fleira fólk á Reykjavíkursvæðinu horfir til búsetu á Vesturlandi, í Borg- arfirði og víðar, þótt áfram sé sótt til Reykjavíkur til vinnu. Þar kann bæði að koma til lægri húsnæðiskostnaður en einnig meiri friðsæld, þar sem dreifbýli er meira. Þá má líka búast við að aukin sumarbústaðaeign þróist upp í það að einhver hluti þjóðarinnar komi sér upp tveimur heimilum, á höfuðborgarsvæð- inu og í dreifbýli. Þetta er jákvæð og ánægjuleg þróun og ekki ólíklegt að í henni megi sjá vís- bendingar um, hvernig landsbyggðin byggist upp á ný og með hvaða hætti búsetuþróun undanfarinna áratuga verði snúið við. Lykillinn að slíkri breytingu er sú samgöngubylting, sem orðið hefur. Líklegt má telja, þegar fram líða stundir að sama þróun verði á Akureyrarsvæðinu og út frá byggða- kjörnum annars staðar á landinu. Eitt af því, sem getur ýtt undir þessa þróun auk samgöngubóta, er að fjar- skiptakerfið verði jafnfullkomið nánast hvar sem er á landinu. Það auðveldar fólki að stunda ákveðna vinnu hvar sem er. Þess vegna getur það orðið ríkur þáttur í að snúa byggðaþróuninni við að tryggja að tölvuvinnsla og fjarskipti öll verði jafngóð á landsbyggðinni og þau eru orðin í þéttbýli. Umskipti af þessu tagi leiða margt af sér. Stór fyrirtæki, sem fyrst og fremst hafa verið starfrækt á höfuðborgar- svæðinu fylgja fólkinu eftir út á land, sem aftur verður til þess að ýta undir aukna atvinnustarfsemi á þeim land- svæðum, þar sem þessarar þróunar gætir. Ný landsbyggðarstefna er því í mót- un. Hún byggist ekki sízt á samgöngu- bótum, staðsetningu menntastofnana úti um land eins og háskólanna tveggja í Borgarfirði og Háskólans á Akureyri og fjarskiptabyltingu, sem nauðsynlegt er að fylgja fast eftir utan þéttbýlis- kjarna. HÆTTUM OKRINU Eitt helsta umkvörtunarefni erlendraferðamanna er koma til Íslands er hátt verðlag á áfengi. Þeir sem hafa vanist því að greiða „evrópskt“ eða „bandarískt“ verð fyrir flösku af bjór eða glas af víni eiga erfitt með að skilja þá stefnu sem rík- ir hér á landi við verðlagningu á áfengi. Það sama á við um Íslendinga er dvalist hafa erlendis í lengri eða skemmri tíma. Lengi vel var hægt að færa rök fyrir því að Ísland hefði ekki sérstöðu í þessum efn- um. Norðurlöndin voru nokkurn veginn samstiga í því að halda verði á áfengi háu með það að markmiði að draga úr neyslu. Þau rök eru hins vegar löngu fallin úr gildi. Danmörk hefur lengi haft ákveðna sér- stöðu í þessum efnum vegna Evrópusam- bandsaðildar sinnar. Þrátt fyrir það er áfengisverð innan ESB hvergi hærra en í Danmörku. Svíþjóð og Finnland hafa markvisst unnið að því á síðustu árum að lækka verð á áfengi. Vissulega skiptir það miklu máli að ESB-aðild þessara ríkja gerir að verkum að þau hafa orðið að draga mjög úr hömlum á innflutningi ein- staklinga á áfengi. Þar sem Svíþjóð á landamæri á sjó að Danmörku og Finn- land að Eistlandi (sem brátt verður aðild- arríki ESB) hafa þessi ríki staðið frammi fyrir því að taka ákvörðun um hvort áfengiskaup landsmanna fari fram innan eða utan landamæranna. Til að tryggja að þau verði innan landamæranna hefur verð verið lækkað til muna. Síðast í gær tók ríkisstjórn Finnlands ákvörðun um að lækka tolla á áfengi um þriðjung að jafnaði. Var sú ákvörðun tekin til að bregðast við yfirvofandi ESB-aðild Eistlands. Noregur hefur staðið frammi fyrir svip- uðu vandamáli þar sem Norðmenn hafa í auknum mæli gert áfengiskaup sín í Sví- þjóð til að komast hjá hinum norsku of- urtollum. Þróunin þar í landi hefur verið sú að lækka verð á áfengi til að koma í veg fyrir að salan flytjist úr landi. Morgunblaðið hefur nokkrum sinnum á undanförnum áratug borið saman verð á áfengi á Norðurlöndunum. Niðurstaðan hefur verið sú að lengi hefur verið mikill munur á áfengisverði á Íslandi og í Sví- þjóð og Finnlandi. Helst hefur verið hægt að bera saman verð á Íslandi og í Noregi. Þar sem áfengisverð fer lækkandi í Nor- egi er hins vegar ljóst að Ísland situr eitt eftir með hæstu áfengisgjöld í Evrópu. Sé horft á málið með augum ríkissjóðs er væntanlega erfitt að sjá rökin fyrir því að lækka þessar álögur á neytendur. Mál- ið er hins vegar ekki svo einfalt. Hið háa verðlag á áfengi er að verða einhver helsti þröskuldur í vegi þess að íslensk ferða- þjónusta fái að dafna. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr gera ferðamenn kröfur til þess að geta fengið sér glas af víni eða bjór á hagstæðu verði þegar þeir eru í fríi. Það á við um Íslendinga jafnt sem aðrar þjóðir. Myndi nokkur Íslend- ingur láta bjóða sér það að greiða 800–900 krónur fyrir glas af lélegu víni í sumarfríi sínu? Varla. Samt erum við vön að greiða slíkt verð hér heima. Hvernig skyldi þetta nú blasa við ferðamanninum sem er vanur að geta fengið sér flösku af víni af sam- bærilegum gæðum fyrir þennan pening? Og ef ekki er hægt að bjóða ferðamönnum upp á slíkt okurverð, er þá í lagi að bjóða Íslendingum upp á það sama? Ísland á ekki landamæri að neinu ríki Evrópusambandsins. Við búum á eyju í Norður-Atlantshafi. Sú staðreynd á hins vegar ekki að koma í veg fyrir að Íslend- ingar njóti sömu lífsgæða og aðrar þjóðir. Þvert á móti eigum við að reyna að tryggja að lífsgæði hér séu með þeim hætti að fólk sækist eftir þeim frekar en að hrista hausinn og reyna vandræðalega að útskýra fyrir erlendum gestum að þetta sé nú bara svona.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.