Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ GRANDI hf. var rekinn með 750 milljóna króna hagnaði eftir skatta á fyrri hluta ársins, samanborið við 1.199 m.kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur drógust held- ur saman, úr 3.358 m.kr. á fyrri hluta síðasta árs niður í 2.670 milljónir í ár. Rekstrargjöld lækkuðu einnig, en ekki jafnmikið; námu 2.078 m.kr., samanborið við 2.341 milljón í fyrra. Kristján Þ. Davíðsson, forstjóri Granda, segist vera sæmilega sáttur við niðurstöðutöluna, þótt hann hefði gjarnan viljað sjá betri rekstraraf- komu. „Því miður lækkaði afurða- verð á tímabilinu og það er alltaf erf- itt að ná niður fiskverði til landvinnslu í samræmi við lækkanir á mörkuðum,“ segir hann. Kristján segir að reksturinn á næstunni fari eðli málsins samkvæmt mikið eftir þróun gengis og afurðaverðs. Gengi krónunnar hafi verið að lækka að undanförnu, sem hafi jákvæð áhrif á tekjur, en að sama skapi neikvæð á skuldir. Minni framlegð Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var 592 milljónir króna, eða 22% af rekstrartekjum, samanborið við 1.017 m.kr., eða 30% af tekjum, sama tímabil í fyrra. Veltufé frá rekstri nam 524 milljónum, sem er um 20% af rekstrartekjum, borið saman við 833 m.kr., eða 25%, á sama tíma á fyrra ári. Eignir Granda nema 14.567 m.kr., samanborið við 14.224 milljónir um áramót. Eigið fé nemur 6.006 millj- ónum og hækkaði úr 5.510 milljónum á tímabilinu. Skuldir námu því 8.561 milljónum króna 30. júní, en þær voru 8.714 milljónir um áramót. Eig- infjárhlutfall Granda er nú 41%, en var 38% um áramót. Veltufjárhlut- fall er 1,80, en var 1,33 um áramót. Félagið greiddi 15% arð til hluthafa á tímabilinu, fyrir 206 milljónir króna. Atli Rafn Björnsson, sérfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir að afkoma Granda á öðrum ársfjórð- ungi 2003 í samanburði við sama tímabil í fyrra hafi einkennst af áhrifum sterkari krónu. „Afkoman er aðeins undir væntingum Grein- ingar ÍSB, en hagnaður fjórðungsins var borinn upp af um 300 m.kr. sölu- hagnaði, eftir skatta, af bréfum Granda í SH sem Grandi seldi í byrj- un apríl,“ segir hann. Landvinnsluframlegð minni Atli segir að hagnaður fyrir af- skriftir (EBITDA-framlegð) hafi lækkað síðustu tvo fjórðunga og nemi nú 274 m.kr. eða 20,4% af rekstrartekjum. „Ef framlegðin er skoðuð sérstaklega kemur í ljós að framlegð landvinnslu hefur gefið mun meira eftir en framlegð útgerð- ar og benda stjórnendur Granda á hækkandi launakostnað og treg- breytilegt fiskverð sem aðalorsaka- vald. Þá er vel þekkt að styrking krónunnar hefur mun neikvæðari áhrif á afkomu í landvinnslu en út- gerðar. Framlegð landvinnslu nam 8,9% og framlegð útgerðar 27,8% á öðrum fjórðungi,“ segir Atli Rafn. Grandi er að sögn Atla stærsta einstaka sjávarútvegsfyrirtækið í karfa og selur mest af honum til Þýskalands. „Þar hefur verð lækkað einkum vegna mikillar samkeppni m.a. frá Kína en einnig hefur lægð í þýska efnahagslífinu og hitabylgja haft neikvæð áhrif. Samkvæmt nýj- ustu mælingum fiskifræðinga stend- ur úthafskarfastofninn illa um þess- ar mundir. Aukning þorskkvótans, sem kemur til framkvæmda á næsta fiskveiðiári, skiptir Granda minna máli en mörg önnur félög. Grandi ræður yfir 2,1% af þorskaflaheimild- um sem er um 22% af heildarkvóta fyrirtækisins.“ Atli Rafn segir að horfur fyrir síðari helming ársins séu jákvæðar að því leyti að krónan sé mun veikari en framan af ári og aflaheimildir hafi verið auknar. Hins vegar sé allt eins búist við því að af- urðaverð geti lækkað frekar. Hagnaður hjá Granda minnkar nokkuð Lækkandi afurðaverð og hátt gengi krónunnar meðal orsaka                                             !"  #$$ ""  "!"   %            &" '    '     %     &# "(  (#" ! !&  !#"   !  & !    "   & #! $  !! "(!! (!          !"#$ %& #      ● BANDARÍSKUR dómstóll sam- þykkti í gær kaup Columbia Ventures Corporation (CVC), móðurfyrirtækis Norðuráls á Grundartanga og stórs eiganda símafyrirtækisins Og Voda- fone, á bandaríska símafyrirtækinu CTC Communications. Áður hafði til- boði CVC upp á nærri 2,5 ma.kr., í öll hlutabréf CTC, verið tekið. CTC hafði orðið gjaldþrota, og var því samþykki dómstólsins nauðsyn- legt skilyrði kaupanna. CTC tilkynnti í gær að búið væri að senda alla pappíra sem þyrfti til að fá samþykki yfirvalda á kaupunum. Dómstóll samþykkir kaup CVC á símafyrirtæki ● STEINHÓLAR ehf., sem eru í eigu Burðaráss, Sjóvár-Almennara trygg- inga og Kaupþings Búnaðarbanka, hafa gert yfirtökutilboð gagnvart öðr- um hluthöfum í Skeljungi. Steinhólar eiga 94,1% í Skeljungi. Steinhólar bjóðast til að greiða 15,9 krónur fyrir hvern hlut sem er hæsta verð sem tilboðsgjafi hefur greitt fyrir hluti í Skeljungi síðustu sex mánuði. Yfirtökutilboðið rennur út þann 19. september næstkom- andi. Steinhólar með yfirtökutilboð í Skeljung ● FARÞEGAR Icelandair voru 7,4 % færri í júlí en í sama mánuði 2002, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Flugleiðum. „Júlímánuður einkenndist af samdrætti í flutn- ingum Icelandair líkt og fyrstu sex mánuðir ársins. Þó er áberandi í júlí að samdráttur í flutningum yfir Norð- ur-Atlantshaf er umtalsvert minni en í fyrri mánuðum, hins vegar minnk- uðu flutningar til og frá landinu í júlí meira en í fyrri mánuðum. Fram- leiðslan er svipuð og á fyrra ári,“ seg- ir í tilkynningunni. Farþegum til og frá Íslandi fækk- aði í júlí um 6,6% frá fyrra ári, en far- þegum um Ísland á leið yfir Norður- Atlantshafið fækkaði um 8,7%. Sætaframboð félagsins í júlí var hið sama og í sama mánuði 2002 og sætanýting versnaði því um 5,7 pró- sentustig. Í heild lækka tekjur Ice- landair í júlí frá sama mánuði í fyrra, en félagið gerir einnig ráð fyrir lægri kostnaði, að því er fram kemur í til- kynningunni. 10% fækkun á árinu Á fyrstu sjö mánuðum ársins fækk- aði farþegum um rúm 10%. Það er fyrst og fremst rakið til yfir 20% fækk- unar Norður-Atlantshafsfarþega. Far- þegum til og frá Íslandi fjölgaði um 2,2% fyrstu sjö mánuði ársins. Sæta- nýting fyrstu sjö mánuði ársins versn- aði um 5,7 prósentustig. Eitt af markmiðum félagsins er að auka það hlutfall farþega sem ferðast með félaginu á leiðum til og frá Íslandi. Fyrstu sjö mánuði ársins var þetta hlutfall 65% en var um 60% á sama tímabili 2002. „Þegar horft er á flutn- inga á einstökum leiðum Icelandair í millilandaflugi fyrstu sjö mánuði ár- isns kemur í ljós að farþegum fækkar hluthfallslega svipað á flestum stærri leiðum. Fækkun farþega á tveimur stærstu leiðunum, til Kaup- mannahafnar og Lundúna, er undir meðallagi. Farþegum Flugfélags Íslands fjölg- aði um 2,2% í júlí og hefur fjölgað um tæp 5% það sem af er ári. Sætanýt- ing félagsins hefur sömuleiðis batn- að. Farþegar Flugfélags Íslands fyrstu sjö mánuði ársins voru tæp- lega 157 þúsund, en voru um 150 þúsund á sama tímabili í fyrra. Í júlí fluttu Flugleiðir Frakt 2.147 tonn sem er 7,4 % minna en í júlí í fyrra, og fyrstu sjö mánuði ársins voru flutningar félagisns 15.695 tonn, sem er 4,7% minna en á sama tímabili í fyrra. Þrátt fyrir þetta fer af- koma Flugleiða Fraktar batnandi milli ára vegna lækkandi útgjalda og vegna þess að útgjöld breytast nú meira í takt við eftirspurn en áður,“ segir í tilkynningu Flugleiða. Samdráttur á öllum helstu leiðum Icelandair FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur veitt samþykki fyrir því að Fjárfestingarfélagið Straumur hf. eignist virkan eignarhlut í Framtaki Fjárfest- ingarbanka hf. Straumur samdi um kaup á meirihluta í Framtaki í júní sl. en samkvæmt reglum um fjár- málafyrirtæki þurfti samþykki Samkeppnisstofnunar og Fjár- málaeftirlitsins til að kaupin gætu gengið í gegn. Samkeppn- isstofnun gerði ekki athuga- semd við kaupin. Samningur- inn hljóðar upp á kaup Straums á 57,08% hlutafjár í Framtaki, að nafnverði 1.450.233.197 kr. Við lokun markaða í fyrra- dag, þegar samþykki eftirlits- ins var staðfest, var verð á hlut í Framtaki 1,98 krónur, sem er 23% hærra en um áramót. Markaðsvirði félagsins er um 4,8 ma.kr. en markaðsvirði 57,08% hlutar Straums í félag- inu nemur tæplega þremur milljörðum. Með samþykki Fjármálaeftirlitsins teljast fyr- irvarar kaupsamningsins upp- fylltir og mun Straumur senda öllum hluthöfum Framtaks Fjárfestingarbanka yfirtökutil- boð innan fjögurra vikna. Kaupþing Búnaðarbanki selur í Straumi Kaupþing Búnaðarbanki seldi í gær 8,01% hlut sinn í Straumi að nafnvirði 255.943.873 krónur og á engan hlut eftir söluna. Tvö félög keyptu hlutinn, Straumborg ehf. og Eyrir ehf. Straumborg, sem er í eigu Jóns Helga Guð- mundssonar forstjóra BYKO, keypti tæplega 5% hlut í Straumi af Kaupþingi Búnað- arbanka. Þess má geta að Nor- vik, móðurfélag BYKO, á um 28% hlut í Framtaki. Eyrir ehf., sem er að mestu í eigu Þórðar Magnússonar fjárfestis, keypti ríflega 3% hlut af þeim 8% hluti sem bankinn seldi í Straumi. Verð á bréfum í Straumi var 3,79 krónur á hlut við lokun Kauphallar Íslands í gær. Verð á hlut í Framtaki var 2,00 krón- ur við lokun í gær. Straumur eignast Framtak HAGNAÐUR samstæðu VÍS eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins 2003 nam 1.148 milljónum króna, saman- borið við 342 milljóna hagnað móð- urfélagsins á fyrstu sex mánuðum síðasta árs. Hagnaður af skaða- tryggingarekstri nam 802 milljónum króna, borið saman við 184 m.kr. í fyrra. Hagnaður af líftrygginga- rekstri, sem ekki var hjá félaginu í fyrra, var 61 milljón króna, þannig að hagnaður af vátryggingarekstri nam samtals 863 milljónum króna. Hagnaður af fjármálarekstri nam 613 milljónum króna. Vaxtatekjur og gengismunur námu 921 milljón og hagnaður af sölu fjárfestinga 735 milljónum. Heildareignir samstæðunnar 30. júní 2003 námu 28.052 milljónum króna og bókfært eigið fé var 5.452 milljónir króna. Þar af er hlutdeild minnihluta 202 milljónir króna. Við uppgjörið er tekið tillit til þess að félagið er orðið eigandi að 75% hlutafjár í Líftryggingafélagi Ís- lands hf. og er því gerður samstæðu- reikningur í fyrsta sinn í sögu félags- ins. Samanburðartölur við árið 2002 eru við tölur úr rekstri og efnahag móðurfélagsins. Í tilkynningu frá VÍS segir: „Það sem einkennir reksturinn á fyrri árs- helmingi í samanburði við fyrra ár er mikill hagnaður af fjármálarekstri sem að mestu er tilkominn vegna sölu eigna á fyrsta ársfjórðungi. Einnig hefur afkoma tryggingarek- usturs batnað sér í lagi á öðrum árs- fjórðungi. Það er ljóst að gott tíð- arfar á fyrri helmingi ársins hefur stuðlað að færri og minni tjónum. Einnig má gera ráð fyrir að forvarn- arstarf VÍS og fleiri aðila hafi skilað árangri til lækkunar á tjónakostn- aði.“ Vátryggingaskuld hækkaði Eigið fé samstæðunnar nam 5.452 m.kr. 30. júní, en um áramót var eig- ið fé móðurfélagsins 4.569 m.kr. Vá- tryggingaskuld óx um rúma tvo milljarða króna á tímabilinu, en í byrjun árs nam hún rúmum 17,9 milljörðum króna og um mitt ár var hún komin upp í rúmlega 20,1 millj- arð. Aðrar skuldir voru rúmlega tveir milljarðar. Eignir námu sam- tals rúmum 28 milljörðum króna, borið saman við tæpa 24 milljarða um áramót. Stóraukinn hagnaður VÍS Morgunblaðið/Kristinn Bætt afkoma rekstrar og söluhagnaður 296 MILLJÓNA króna tap varð af rekstri Og Vodafone á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 134 milljóna króna tap Íslandssíma á sama tíma í fyrra. Samkvæmt tilkynningu frá félag- inu skýrist verri afkoma árshelm- ingsins að miklu leyti af 187 millj- óna króna kostnaði vegna samruna Íslandssíma, Tals og Halló! Frjálsra fjarskipta auk neikvæðra fjár- magnsliða fyrri hluta árs 2003 í stað jákvæðra á sama tímabili í fyrra vegna gengisáhrifa. Í fréttatilkynningu félagsins segir að rekstrartekjur hafi meira en þre- faldast á tímabilinu sem sé í sam- ræmi við áætlanir félagsins. Þar er miðað við tekjur Íslandssíma á fyrri helmingi ársins 2002. Þá segir einn- ig að allar horfur séu á að mark- miðið um 6.000 milljóna króna tekjur á árinu náist. „Miðað við þann rekstrarbata sem orðið hefur á síðustu ársfjórð- ungum og væntingar stjórnenda um áframhaldandi rekstrarbata er full ástæða til að ætla að áform um hagnað af rekstri félagsins árið 2004 nái fram að ganga.“ Jákvæð samlegðaráhrif Rekstrartekjur Og Vodafone námu 2.967 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tímabili árið 2002 námu rekstrartekjur Íslandssíma, eins þeirra fyrirtækja sem mynduðu Og Vodafone þegar félagið var stofnað, 946 milljónum króna. Sú tala er því ekki sambærileg, enda er Íslands- sími aðeins eitt þriggja fyrirtækja sem mynda sameiginlegt fyrirtæki. Rekstrargjöld Og Vodafone námu 2.241 milljón króna á fyrri helmingi ársins 2003. Rekstargjöld Íslands- síma á fyrri helmingi ársins 2002 námu 959 milljónum króna. „Af uppgjöri félagsins má sjá að samlegðaráhrif af sameiningu félag- anna þriggja eru mikil. Ef horft er til þróunar rekstrar frá fyrsta árs- fjórðungi síðasta árs má sjá já- kvæða þróun allt tímabilið í flestum þáttum rekstrarins,“ segir í tilkynn- ingunni. Og Vodafone tapar 296 milljónum   '"#(! ) *$  $ &              )                     $  #"  $ "    *      %          # &   $$  '    + ,-   %     &# * !(#. $# $&$  $"   "#!     #   $  ""& !( .             !"#$ %& #  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.