Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 9 Nýtt - Mussur og skyrtur Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 Glæsilegt dragtaúrval Ullardragtir Sparidragtir Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið í dag frá kl. 10.00—18.00, laugardag frá kl. 10.00—16.00. Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán.-fös. kl. 10-18 • lau. kl. 10-14. Úrval af buxnadrögtum Pelsar, verð frá 70 þús. - mokkajakkar, verð 15 þús. - skinnúlpur, verð 16 þús. Allt ekta skinn - 2 fyrir 1 af öllu Opið í dag, laugardag, kl. 11-15 og á morgun, sunnudag 24. ág. kl. 13-17. Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. ÚTSALA - Rýmum fyrir vörum Við verðum í Kringlunni í dag og á morgun og kynnum hauststarfsemi förðunarskólans. Útskriftarnemendur verða með förðunarsýningu, tíska, tímabil, „body paint“ o.fl. Skráning og upplýsingar um skólann á staðnum. sími 544 8030 makeupforever.is Auðbrekku 14, Kópavogi Næsta Jóga gegn kvíða námskeið með Ásmundi Gunnlaugssyni hefst 25. ágúst - mán. og mið. kl. 20. Næsta jógakennaraþjálfun hefst 5. - 7. september. Ásmundur heldur kynningarfund laugardaginn 30. ágúst kl. 17:30. Skráning í síma 544 5560 og á www.yogastudio.is SKRÁÐUM nemendum í tónlistar- skólum Reykjavíkur í vetur hefur fjölgað um 514 frá því í fyrra. Þetta var kynnt á fundi fræðsluráðs í gær og segir Stefán Jón Hafstein, for- maður ráðsins, 2.653 reykvísk börn skráð í tónlistarnám á haustönn. Rekur hann aukinn áhuga til þeirrar ákvörðunar að borgin greiðir nú einungis með tónlistarnámi þeirra barna og unglinga sem búa í Reykjavík. Við það hafi myndast stóraukið svigrúm til að koma til móts við óskir þeirra um að njóta tónlistarnáms. Samkvæmt Stefáni hafa framlög Reykjavíkurborgar til tónlistarskóla hækkað um 32% frá árinu 2001 og nema á þessu ári tæpum 600 millj- ónum króna. Stefán Edelstein, skólastjóri Tón- menntaskóla Reykjavíkur, hefur sent foreldrum barna í skólanum bréf þar sem fram kemur að skólinn hafi gripið til þess ráðs að hækka skólagjöldin og loka skóladeildum til að mæta 30% skerðingu fjárfram- laga frá borginni. Skólinn uppfylli tæpast lengur skilyrði námskrár menntamálaráðuneytisins fyrir tón- listarskóla. Úthlutunarreglur samræmdar Stefán Jón segir að vegna sam- ræmingar á úthlutunarreglum til tónlistarskóla í borginni hafi framlög á hvern nemanda Tónmenntaskólans lækkað miðað við aðra, enda hafi skólinn notið mun hærri framlaga á liðnum árum en aðrir skólar. Hann segir til dæmi um aðra skóla sem fái hærri framlög nú en áður á hvern nemanda vegna þessarar samræm- ingar. Formaður fræðsluráðs segir að ef Tónmenntaskólinn eigi undir högg að sækja nú sé það einkum vegna þess að við hann hafi verið sérlega vel gert á liðnum árum, umfram flestra aðra. Hann hafi átt ítrekuð samtöl og fundi með Stefáni skóla- stjóra vegna skólans, nú síðast í fyrradag. Þar hafi komið fram að nauðsynlegt væri að fara mjög vand- lega yfir framkvæmd skólahalds og greiðslu styrkja frá borginni og fullt samráð yrði haft við skólastjóann um það efni. Stefán segir að það hafi verið trú sín að þau mál væru í jákvæðum far- vegi enda hafi skólastjórinn ekki lát- ið annað í ljós, meðal annars í samtali við sig fyrir réttri viku. Fráleitt sé af honum að tala um menningarfjand- samlega stefnu Reykjavíkurborgar í ljósi talna um stóraukin framlög til tónlistarkennslu almennt. Yfir 92% aukning á framlögum á um það bil áratug tali sínu máli. Framlög til tónlistarkennslu hafa hækkað um 32% Börnum í tónlistar- skólum fjölgar um 514 LAUN kvenna á almennum markaði hafa hækkað meira en karla á síðustu árum. Samkvæmt tölum Kjararann- sóknarnefndar hafa laun kvenna hækkað um 28,3% frá fyrsta ársfjórð- ungi 2000, þegar kjarasamningar voru gerðir, til fyrsta ársfjórðungs á þessu ári. Karlar hafa á sama tímabili hækkað í launum um 25,4%. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að ástæðan fyrir þessum mun sé sú að kjarasamningarnir gerðu ráð fyrir að lægstu laun hækkuðu meira en önnur laun og konur séu einfaldlega fleiri en karlar í lægstu launaflokkunum. Neysluverðsvísitala hefur hækkað um 15,8% frá ársbyrjun 2000. Kaup- máttaraukningin á samningstíma- bilinu er því 10–13%. „Kaupmáttur kvenna hefur aukist meira á tímabilinu en karla og það segir okkur það, sem við vissum fyrir, að konur liggja neðar í þessum launa- töflum. Við lögðum upp með það í síð- ustu kjarasamningum að lækka meira lægstu laun umfram önnur og það hefur skilað sér með þessum beina hætti,“ sagði Sigurður Bessa- son. Samkvæmt launavísitölu Hagstof- unnar hafa laun á almennum markaði hækkað um 26,5% frá ársbyrjun 2000. Laun á almennum markaði hafa hækkað um 25% og laun opinberra starfsmanna og bankamanna hafa hækkað um 28,8%. Launabreytingar á almennum vinnumarkaði Kaupmáttur kvenna hefur aukist síðustu ár PERSÓUVERND álítur að heimilt hafi verið að fylgjast með vaktmanni í Búnaðar- bankanum með myndavélum í september 2002, en myndir sem náðust af manninum leiddu til þess að á hann féll grunur um refsivert brot og var hann rekinn í kjölfarið. Fram kemur í úrskurði Persónuverndar að Búnaðar- bankinn hafi komið fyrir myndavélum á lokuðum skrif- stofum þaðan sem talið var að trúnaðarupplýsingar hefðu horfið og hafi bankinn aflað mynda af ferðum mannsins. Málefnalegur tilgangur Lagt var til grundvallar að maðurinn hafði eða mátti hafa vitneskju um staðsetningu myndavélanna og þá rafrænu vöktun sem viðhöfð var. Vöktunin var því ekki talin ólögmæt á þeirri forsendu að bankinn hefði ekki frætt manninn um hana, lögum samkvæmt. Þá taldi Persónu- vernd að vinnsla upplýsing- anna hefði átt sér málefna- legan tilgang. Persónuvernd taldi því að vöktunin og vinnsla myndefnisins hefði ekki brotið í bága við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/ 2000. Heimilt að fylgjast með vakt- manni FYRIRHUGAÐ er að halda opinn fund um línuívilnun á Vestfjörðum 14. september næstkomandi en hugsanleg upptaka línuívilnunar hefur verið mikið til umræðu að undanförnu. Guðmundur Halldórs- son, trillusjómaður í Bolungarvík, segir fundinn einkum hugsaðan fyr- ir íbúa af Vestfjörðunum en að auki hefur línuveiðimönnum úr Sand- gerði verið boðið til fundarins. Auk línuívilnunar verður rætt um stöðu dagabáta en fækkun veiðidaga síð- ustu ár er mikið áhyggjuefni að sögn Guðmundar, sem er einn af skipuleggjendum fundarins. Hann segir að undirbúningur standi nú yfir en reynt er að fá sem flesta til að koma að fundinum, meðal ann- ars bæjar- og sveitarfélög á Vest- fjörðum auk verkalýðsfélaga og sparisjóða. „Það er mikil reiði í fólki enda lofaði forsætisráðherra okkur línu- ívilnun í vor. Þessi fundur er hugs- aður til að sameina fólk frá Strönd- um til Barðastrandarsýslu og snýst fyrst og fremst um varnarbaráttu byggðanna enda er sífellt verið að skera niður við dreifðari strand- byggðir,“ segir Guðmundur. Fundurinn mun fara fram í íþróttahúsinu á Ísafirði og hefjast klukkan 14. Stór fundur um línuívilnun á Vestfjörðum www.nowfoods.com FYRIRTÆKI TIL SÖLU www.fyrirtaekjasala.is FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS Síðumúla 15 • Sími 588 5160 Gunnar Jón Yngvason lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.