Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 45 Það snerti mig djúpt þegar ég heyrði að tengdapabbi Jón Magn- ússon væri farinn til föð- ur okkar á himnum og væri ekki lengur á meðal okkar. Það kom söknuður í hjarta mitt, það er erfitt að lýsa þessum tilfinning- um sem eru kannski dálítið eigingjarn- ar, því ég veit að hann hefur nú fengið hvíld frá sjúkum líkama. Það er ljúft að hugsa til baka og minnast þess hversu vel hann tók mér eins og sínum eigin syni og sagði oft að þannig vildir þú að það væri. Þegar ég núna er sestur niður og hugsa um liðna tíma þá eru bara hlýjar hugsanir sem koma, enda reyndist hann mér svo góð- ur tengdapabbi. Hann studdi mig og fjölskyldu mína af mikilli reisn og sam- viskusemi, t.d. man ég eftir því þegar við Kristbjörg vorum ung og vorum að fara í sumarfrí á gamallri druslu, þá hringdi tengdapabbi og sagðist vilja leigja bílaleigubíl fyrir okkur til að fara á og þannig fengum við notið sumar- frísins á góðum bíl. Hann vildi bara það góða fyrir alla eins og allir vita sem hann þekktu. Ég hugsa með hlýhug til þess hvernig hann hvatti okkur og tók mig með í aukavinnu til að drýgja tekj- urnar. Margt lærði ég af honum, t.d. kenndi hann mér að þekkja Halldór Kiljan Laxness sem hann dáði og átt- um við góðar stundir saman þegar við ræddum um bækur hans. Og þótt leiðir okkar tækju svolítið ólíka stefnu þegar ég tók trú á Jesú Krist, áhugamál og skoðanir urðu ólík, þá fann ég bara hlý- hug frá honum. Mér fannst svo góðar stundirnar núna síðustu árin þegar við ræddum saman Passíusálmana en þar gátum við náð saman aftur, það var svo yndislegt að sjá lotninguna í augum hans þegar ég talaði eða ég las úr þeim fyrir hann. Og nú hugsa ég með svo mikilli von um þær stundir sem hann sagði mér svo oft frá, úr æsku sinni þegar húslestrarnir voru heima hjá for- eldrum hans og hann lærði að elska þennan kveðskap, sem tjáir svo vel það vonarljós sem ég hafði fundið og við vorum aftur orðnir sameinaðir vinir í og þar rætist orðið sem segir: ungur nemur, gamall temur. Jón G. Sigurjónsson. Jón föðurbróðir minn ólst upp í Hró- arstungunni við þá menningu og lífs- hætti sem þjóðin hafði vanist um aldir. Undir miðja síðustu öld fluttist hann ásamt foreldrum sínum og systkinum í Þverholt 5 í Reykjavík. Þar bjuggu þau sér gott heimili og leituðu nýrra tæki- færa í höfuðborginni. Þau festu rætur og tóku þátt í uppbyggingu borgarinn- ar en lifðu samt einnig áfram í menn- ingarheimi sveitarinnar og höfðu í há- vegum þau gildi sem þar ríktu. Heimilið í Þverholti stóð öllum opið og þangað streymdu gestir að austan. Margir komu til að leita sér lækninga og dvöldu lengi. Ungir menn og konur komu í atvinnuleit. Ættingjar komu frá Vesturheimi. Aldnir Austfirðingar litu inn í kaffi. Fólkið kom og fór. Jón átti drjúgan þátt í því að skapa þann brag sem ríkti á heimilinu enda bjó hann yfir þeim eiginleikum sem prýddu best húsbændurna, foreldra hans, góð- mennsku, hógværð, glaðværð og gest- risni. Ég var svo lánsöm að vera barn á þessu heimili. Síðan kvæntust þeir Geirastaða- bræður hver af öðrum. Fyrstu hjú- skaparárin bjuggu þeir í Þverholtinu en stofnuðu síðan eigin heimili, eign- uðust börn og buru, brutu sér og sínu fólki leið áfram í lífinu. Jón kvæntist Kristínu Aspar og þau eignuðust ang- ann Kristbjörgu sem varð mér sem systir þótt mér þættu þær mæðgur nokkuð frekar á athygli Jóns sem ég átti óskipta fyrstu ár ævinnar og vildi JÓN MAGNÚSSON ✝ Jón Magnússonfæddist í Eyjaseli í Jökulsárhlíð í N- Múlasýslu 15. mars 1920. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 12. ágúst síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Grens- áskirkju 22. ágúst. helst ekki gefa eftir. Starfsferill hans var lengst af hjá Hörpu og síðar hjá Landsíma Ís- lands auk þess sem hann málaði híbýli fólks af miklu listfengi. Jón var fallegur mað- ur, vel af guði gerður, hið stakasta snyrtimenni og sundurgerðarmaður í klæðaburði. Hann var leiftrandi húmoristi, hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom og óspar á skemmtisögur sem flestar voru þó af honum sjálfum. Í heimsókn hjá Krist- ínu móður minni sagðist hann alltaf hækka um að minnsta kosti þrjá sentí- metra enda hældi hún honum óspart. Hann var óvenju hrifnæmur og bók- elskur og skynjaði snilldina betur en flestir og á sinn einstaka hátt. Kvæða- kver Laxness varð honum hrein himnasending og uppspretta margra samverustunda í góðra vina hópi þar sem lesið var og sungið fram á morgun. Sem barn skynjaði ég fremur en vissi að sköpunarþrá hans var mikil þótt hún félli ekki í beinan farveg fyrr en á efri árum. Hann var leikari af guðs náð þótt ólærður væri í þeirri listgrein. Þegar leikfélagið Hugleikur var að stíga sín fyrstu skref, og var óneitan- lega fremur valt á fótunum, vantaði leikara í erfitt hlutverk. Jón tók það að sér og var það upphafið að hugleiksferli hans sem stóð með miklum blóma í mörg ár. Þar starfaði hann m.a. með vinum sínum, hjónunum Sigríði Helga- dóttur og Sindra Sigurjónssyni, Krist- ínu Pétursdóttur, fyrrum mágkonu sinni og Birni Bjarnasyni frá Skorra- stað í Norðfirði. Þau Sigríður, Kristín og Jón urðu heiðursfélagar Hugleiks á tíu ára afmæli félagsins 1994. Það var félaginu unga mikils virði að eignast þessa mætu félaga sem stóðu svo föst- um fótum í þeirri menningu sem hug- leikshöfundar voru að fást við í skrifum sínum og ekki man ég eftir að nokkur þeirra höfunda hafi skrifað leikrit án þess að þar væri hlutverk ætlað Jóni. Eftir að hlutverkum hans fækkaði var atvikum úr lífi hans stundum fenginn staður í leikritunum. Á þessum tímamótum þakka ég Jóni föðurbróður mínum allt það sem hann gerði fyrir mig og kenndi mér á langri ævi og óska honum blessunar. Fjöl- skylda mín öll sendir Stínu, Krist- björgu og öllum afkomendum Jóns innilegar samúðarkveðjur. Margrét Björgvinsdóttir. Jón Magnússon var einn af stofn- félögum leikfélagsins Hugleiks, og tók þátt í fyrstu uppfærslu félagsins, Bón- orðsförinni, 1984. Þegar félagið hélt upp á tíu ára afmælið sitt var ákveðið að gera nokkra félagsmenn að heiðurs- félögum, og það kom aldrei annað til greina en að Jón yrði einn þeirra. Jón var dýrmætur félagi fyrir Hug- leik. Á meðan honum entist heilsa lék hann í flestum uppfærslum félagsins, og urðu öll hlutverk eftirminnileg í hans meðförum. Einstök sviðsnær- vera, óbrigðult skopskyn og textanæmi einkenndu leik hans í smáu og stóru. Enda freistuðust höfundar félagsins hin síðari ár til að skrifa hlutverk bein- línis fyrir Jón, og taka þá tillit til þess að hreyfigetan var kannski ekki eins og hún áður var. En það kom út á eitt, allt- af stóð Jón fyrir sínu. En það var ekki bara sem leikari sem Jón var félaginu ómetanlegur. Ut- ansviðs var hann einhver skemmtileg- asti maður sem hægt var að hugsa sér, sögu- og söngmaður góður, og enginn leikhópur hefur átt tryggari aðdáanda en Jón tók að sér að vera eftir að hann hætti sjálfur að stíga á svið. Á hverri frumsýningunni eftir aðra var Jón allt- af jafn dolfallinn yfir því hve vel hafði tekist til. Stundum töldum við hin okk- ur vita betur, en brosið hans Jóns fór alltaf langt með að breiða yfir þá bresti. Við söknum hans. Hugleikur vottar fjölskyldu Jóns og aðstandendum öll- um samúð sína, í þeirri fullvissu að hann sómi sér vel á nýju sviði. Þorgeir Tryggvason. Það vantaði sárlega karlmann til að leika Þórð, ungan bóndason á biðils- buxum, í leikritinu Bónorðsförinni. Sindri vinur hans kom með Jón á sam- lestur, Jón fékk handrit, varð umsvifa- laust ungur bóndasonur á biðilsbuxum og þar með hófst leikferill hans og sam- starf við okkur í Hugleik. Jón lék síðan ótal hlutverk í uppsetningum leikhóps- ins þó leikferillinn hæfist er hann var kominn vel yfir sextugt. Jón hafði hljómmikla og sterka rödd og prýðilega framsögn, engin áhuga- mannsbragur á því. Þá hafði hann til að bera þann anda og skopskyn að hann lét sér ekkert fyrir brjósti brenna, tók að sér öll þau hlutverk er honum voru falin, meira að segja lamaða, draum- lynda stúlku í hjólastól og leysti það sem allt annað af tærri snilld. Það var mikið ríkidæmi fyrir hópinn að hafa Jón innanborðs og slíkt punt þótti að honum að oftast voru hlutverkin sér- staklega skrifuð með hann í huga og sárnaði það margri prímadonnunni. Jón Fö kölluðum við hann alltaf. Hann var föðurbróðir Margrétar Björgvinsdóttur einnar af frumkvöðl- unum, en varð strax föðurbróðir okkar allra. Þessi flóknu ættartengsl vöfðust dálítið fyrir nýliðum en alls ekki fyrir Jóni. Utan sviðs var Jón einstakt ljúf- menni, svo skemmtilegur að hann var á stundum óheyrilega fyndinn, aldrei þó á kostnað annarra. Nú verðum við að kveðja hann, sem áður vini hans og gamla leikfélaga okk- ar; Sindra og Stellu. Við kjósum að sjá þau fyrir okkur sitjandi í blómskrýddri brekku, glittir í fífilsprota á lamb- hústóft og þau syngja saman, – Stella með gítarinn, Sindri fágar sönginn og Jón syngur af innlifun. Þarna syngja þau öll fallegu ljóðin og lögin sem þau kenndu okkur og við munum aldrei gleyma. Við vottum Kristínu og öðrum ætt- ingjum innilega samúð. Hjördís Hjartardóttir, Ingibjörg Hjartardóttir og Sigrún Óskarsdóttir. Jón Magnússon, maðurinn hennar Stínu móðursystur minnar, er látinn og að leiðarlokum langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Í flestum tilfellum er eftirnafni fólks sleppt þegar minnst er á það innan fjölskyldunnar en svo var ekki með Jón Magnússon í minni fjölskyldu því einhverra hluta vegna var hann yfirleitt nefndur fullu nafni. Ég var heimagangur hjá Stínu og Jóni Magnússynifrá því ég var um 13 ára gömul barnapía í Reykjavík og á frídögum fór ég oft þeirra og mér er minnisstætt hvað Jón virtist hafa gam- an af að tala við þess feimnu unglings- stelpu og var áhugasamur um mig og mína hagi. Þegar ég var óvænt flutt til Reykjavíkur til að eiga elstu dóttur mína og varð að dvelja í fyrsta skipti að heiman um jól og áramót opnuðu Stína og Jón heimili sitt fyrir mér og voru mér og telpunni minni sem bestu for- eldrar og er ég þeim ævinlega þakklát fyrir. Jón Magnússon var raunsæis- maður og hafði gaman af samræðum og rökræðum og velti oft upp hinum ólíklegustu málum og sjónarhornum, oftar en ekki var hann á öndverðum meiði við viðmælendur sína, að ég held til að fá sem fjörlegastar umræður hvort sem það var um ágæti hafra- grautar eða þjóðmálin. Mér fannst þessar samræður skemmtilegar og veita aðra sýn á tilveruna en gerist og gengur. Jón Magnússon var ættaður frá Geirastöðum á Héraði og var auðfund- ið að í hans huga var ákveðinn ljómi yf- ir einfaldleika uppvaxtaráranna og lífs- ins hér áður fyrr. Að lokum kveð ég kæran vin og votta Stínu frænku, Kristbjörgu og fjölskyldu og öðrum ættingjum Jóns Magnússonar samúð mína og fjöl- skyldu minnar. Þórunn Bernódusdóttir. Þó að brotni þorn í sylgju, þó að hrökkvi fiðlustreingur, eg hef sæmt hann einni fylgju: óskum mínum hvar hann geingur. (HKL) Með þökk fyrir ævilanga vin- áttu og elskulegheit. Magnús og Jóna. HINSTA KVEÐJA stíll. Það var ekkert hversdagslegt við Kristján vin minn. Hann var glæsilegur á velli, svo að eftir var tekið. Frumlegur í hugsun og breytni, innleiddi nýja siði og strauma. Hann var frumkvöðull í frjálsum viðskiptum, þjóðin fagnaði þegar alvöru gallabuxur litu dagsins ljósi á Íslandi, að ekki sé talað um hrifningu kvenna, þegar nælonsokk- ar viku fyrir sokkabuxum. Auga heildsalans var glöggt og framtíð- arsýnin skýr. En það var fegurðin í Sigluvoginu, sem unglingurinn skynjaði, þar ríkti innri og ytri fegurð. Vináttan hófst sem varð dýrmæt og ævilöng. Krist- ján og Guðný voru listunnendur sem heimilið í Sigluvogi bar glöggt vitni um, en mesta listaverk Kristjáns var Guðný, með glimt í augum og bros á vör. Ást og væntumþykja var þeirra hjónaband. Þau voru falleg og sam- hent hjón, þau voru góðar fyrir- myndir. Kristján aflaði tekna og dró í búið. Guðný ræktaði börnin sex, ræktaði garðinn sinn úti og inni í orðsins fyllstu merkingu. Amma Guðlín elskaði alla á heimilinu og það var endurgoldið. Hún sá um að allir væru mettir og sáttir. Systurn- ar þrjár lærðu margt í eldhúsinu hjá ömmu. Kristján launaði tengda- mömmu gjafir lífsins, það ríkti ein- stakt samband þeirra á milli. Hann keyrði hana á milli staða, fór með ,,konurnar“ sínar tvær á frumsýn- ingar í Þjóðleikhúsinu og á hinar ýmsu listsýningar í borginni. Þetta var fjölskyldan sem ég kynntist þrettán ára gömul. Á þessu fallega og fjölmenna heimili var allt- af pláss fyrir vinkonur Bjargar, frumburðarins. Hvort sem var við leik, lærdóm, útsaum eða dans. Kristján sá um að kvennaskólastúlk- urnar fjórar, sem sátu við útsaum á laugardagskvöldum, fengju appels- ín, spur og prins póló. Það var mun- aður. Sunnudagur var barnanna. Þá var gott og gaman að vera vinkona, allt- af pláss í jeppanum til að komast til fjalla á skíði, pláss við stóra borð- stofuborðið að skíðadegi loknum. Kristján naut útivistar á fjöllum, var hvata- og stuðningsmaður að upp- byggingu í Kerlingarfjöllum, þar sem hann og Guðný áttu margar un- aðsstundir með fjölskyldu og góðum vinum. Skíðadegi lýkur. Guðný dó 1992. Söknuður Kristjáns var mikill. Sólin tók aftur að skína þegar Guðfinna og hann fundu hvort annað og nutu lífsins í nokkur ár. Ævikvöld Krist- jáns kom hratt, þá var gott að eiga Guðfinnu sem besta vin og fjölskyld- una sem var honum svo kær, þau sem hafa ræktað lífsgildin hans, feg- urð og frelsi. Mesta gæfa unglingsins eru góðar fyrirmyndir og góðir vinir. Það var gæfa mín. Vinátta fjölskyldunnar úr Sigluvoginum hefur verið mér dýr- mæt í 45 ár. Fyrir þá ,,fögru kjör- gripi“ er ég þakklát. Fríða Bjarnadóttir. Fallinn er frá virðulegur maður og frændi okkar, sem við systkinin kölluðum Kidda greifa. Á bak við það var ekki neikvæð merking held- ur þótti okkur hann vera flottur karl. Hann var eins og enskur lá- varður í klæðaburði. Hann var ,,litli bróðir“ hennar ömmu Lóu. Þegar við vorum lítil fannst okkur sniðugt að hún skyldi eiga einn slíkan. Í raun var hann uppeldisbróðir hennar því hann var bróðursonur hennar. Fyrir ömmu var hann þó sannur bróðir – hennar uppáhald. Þau voru ófá skiptin sem Kiddi og Guðný komu í heimsókn í Karfavog- inn. Alltaf þótti okkur jafn gaman að sjá þau þar enda ljómaði amma í hvert sinn. Amma Lóa kvaddi þennan heim fyrr á árinu. Við áttum ekki von á því að sjá Kidda við útförina því við vissum að hann var orðinn veik- burða en þar var hann mættur ásamt börnum sínum. Það gladdi hjörtu okkar að fá að sjá hann þar í hinsta sinn. Himnaríki hefur nú eignast alvöru greifa, Ragnar, Kristján, Arnar, Lísa og Stefanía Hjaltested. fyrir því áfalli að lenda í hjólastól af völdum bílslyss. Var þetta auðvitað mikið áfall fyrir alla mína nánustu; eigin- konu, börn og foreldra en um- hyggja þessa fólks var ekki síst til þess að koma mér áfram í lífinu. Lóa tók þetta mjög nærri sér en var ásamt öðrum umhugað um að mér liði sem best og gerði allt sem hún gat hugsað sér til að að- stoða, þetta var henni svo eðlis- lægt. Við erum búin að horfa á þessa glaðværu konu ganga í gegnum mikil veikindi undanfarið þar sem hjartað var mikið skaddað og smám saman dró úr henni þrótt- inn, en glaðværðin og umhyggjan fyrir öðrum hvarf ekki fyrr en hún andaðist. Hún gekk í gegnum tvö mjög alvarleg tilvik nú í jan- úar og apríl en neitaði að gefast upp því henni fannst greinilega að hún hefði ekki gert allt, og virtist hún bíða eftir að dótturdæturnar kæmu heim frá útlöndum. Þá kom vinkona hennar frá Noregi nú fyr- ir nokkrum dögum og var eins og óskir hennar hafi verið uppfylltar og gaf hún eftir hinn 12. ágúst. Með andláti hennar höfum við misst mikinn vin, eiginkonu, mömmu og ömmu, en hún varð að fá hvíld því þrekið var búið. Elsku Jón, ég veit að þú missir mikið en ég vona að góður guð gefi þér og allri fjölskyldunni þann frið sem þarf til að vinna á sorginni og halda áfram að lifa. Þinn tengdasonur, Jón Eiríksson. Þegar ég sest niður og rita fá- ein kveðjuorð um vinnufélaga og vinkonu til margra ára er margs að minnast. Hugurinn leitar þá gjarna til gömlu góðu stundanna, þar sem málin voru rædd, og hún ötul við að miðla þekkingu sinni til okkar sem yngri vorum. En alltaf var þó stutt í glens og grín því lundin var létt. Ólöfu, eða Lóu eins og hún var kölluð, var gott heim að sækja, og það lýsir því best hve fjölmennt þar var oft á tíðum. Heimilið lista- fagurt og yfir því hvíldi mikill friður. Þú hafðir góða nærveru, Lóa mín, og er ég þakklát fyrir að hafa fengið að njóta hennar. Við hjónin sendum eiginmanni, börnum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Ólöf Gunnarsdóttir. Í dag kveðjum við elskulega vinkonu okkar og þökkum henni allar samverustundirnar sem við höfum átt saman frá barnæsku og síðan í gegnum lífið. Þökkum fyrir allar skemmti- legu stundirnar í 50 ára sauma- klúbbnum okkar. Þá var mikið hlegið og spjallað. Um leið og við kveðjum Lóu, viljum við þakka henni og Jóni fyrir hvað það var gott að koma inn á þeirra elskulega heimili, sem var alltaf opið öllum vinum þeirra. Hvíl í friði, elsku Lóa. Vinkonan góða, vinaskjólið hlýja, þú varst oss bjartur geisli Drottni frá, af honum þáðir þrek og krafta nýja, ef þungbær sorg á hjarta þínu lá. Af honum þáðir þroskapundið dýra og þrótt til dáða heil í starfagnótt. Þín breytni sýndi sálargullið skíra og sannan trúnað fram að dauðans nótt. Og Drottinn lét í friði þjón sinn fara, nú fagnar önd þín sæl í himins rann. Þín blíða minning – blessun vina skara, oss bendir þangað – Vegurinn er Hann. Svo helga ég þér ljóðið litla snauða, sem laufblað falli, á gróna beðinn þinn. Ég þakka kynning þína allt til dauða og þína elsku’ er tregar hugur minn. (Sigríður Einarsdóttir, Bæ.) Þínar saumasystur: Inga, Anna, Ragnheiður, Nikólína, Hjördís og Erla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.