Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 55
Golfklúbbur Sandgerðis
Kirkjubólsvöllur
Minningarmót Sigurðar Bjarnasonar
Sunnudaginn 24. ágúst
Ræst verður út frá kl. 9.00 til 11.00 og frá kl. 13.20 til 15.20.
Skráning er á www.golf.is/gsg eða í síma 423 7802.
Hl. m/án. Hámarks forgj.: Karlar 24 - Konur 28.
„Glæsileg verðlaun“
Styrktaraðilar mótsins eru:
Útisport Keflavík - Óskin KE - Sjáfarmál ehf
Láttu sjá þig - Mótanefnd GSG
BLACKBURN hefur gert tilboð í
Barry Ferguson, fyrirliða Rangers.
Ekki er vitað nákvæmlega upp á
hvað tilboðið hljóðar en Graeme
Souness, knattspyrnustjóri Black-
burn, hefur staðfest fréttina. Fergu-
son lýsti nýlega yfir áhuga á að
reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeild-
inni.
SOUNESS segist gjarnan vilja fá
Ferguson í raðir síns liðs, en þeir
hafa þekkst árum saman. Þá vonast
Souness til að kunningsskapur hans
við stjórnarmenn Rangers liðki til
fyrir kaupunum. Talið er að Black-
burn verði að greiða á milli 7 og 10
milljónir punda fyrir Ferguson verði
af kaupunum.
GLENN Hoddle, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, vonast til að geta
gengið frá kaupum á brasilíska tán-
ingnum Diego á næstu dögum. Tott-
enham hefur boðið nærri átta millj-
ónir punda, jafnvirði eins milljarðs
króna, í pilt sem þykir vera einstakt
knattspyrnuefni. Tilboðið var hækk-
að um nærri tvær milljónir punda í
gær og þá munu forráðamenn San-
tos hafa verið til umræðu um við-
skiptin. Þá hefur faðir Diegos sam-
þykkt tilboðið en hann fær um 40%
kaupverðsins í sinn hlut, eftir því
sem fjölmiðlar í Brasilíu greina frá.
Forráðamenn Tottenham vilja sem
minnst segja um málið, segja það
vera í réttum farvegi.
DIEGO er af ítölsku bergi brotinn
og vonast er til að það nægi til þess
að hann fái ítalskt ríkisfang því þurfi
ekki að sækja um atvinnuleyfi fyrir
hann gangi hann til liðs við Totten-
ham eða annað evrópskt félagslið
fari hann ekki til Englands.
NÝLIÐAR ítölsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu, Siena, hafa krækt í
Tore Andre Flo, en hann hefur verið
á söluskrá hjá Sunderland síðan í
vor að liðið féll úr ensku úrvalsdeild-
inni. Flo gerir eins árs samning við
ítalska liðið með möguleika á fram-
lengingu um annað ár takist liðinu að
halda sér í efstu deild ítölsku knatt-
spyrnunnar þegar dæmið verður
gert upp næsta vor.
FÓLKÍslandsmeistarar ÍBV í hand-knattleik kvenna eru líklegabúnir að finna arftaka VigdísarSigurðardóttur markvarðar
sem leikið hefur lykilhlutverk í
Eyjaliðinu undanfarin ár. Julia
Gantimurova, 27 ára gamall
markörður frá Rússlandi mun
standa á milli stanganna hjá
ÍBV á komandi tímabili en
samningur við hana verður
handsalaður á næstu dögum.
Gantimurova hefur undanfarin
ár leikið í heimalandi sínu með
liði Ekaterenburg. Hún og Alla
Gorkorian, skytta ÍBV-liðsins,
léku saman á árum áður.
Rússi í mark
meistara ÍBV
ARGENTÍNUMAÐURINN Hern-
an Crespo, leikmaður Inter Mil-
ano, verður bráðlega seldur til
Chelsea að sögn Massimo Moratti,
forseta Inter. Moratti sagði við
ítalska fjölmiðla í gær að aðeins
ætti eftir að ganga frá nokkrum
smáatriðum áður en gengið yrði
frá sölunni.
Moratti telur að Crespo hafi
neikvæð áhrif á aðra sóknarmenn
Inter með því að heimta að fá að
spila hvern einasta leik.
Crespo er 28 ára sóknarmaður
og hefur lengi verið einn af mark-
sæknustu leikmönnum í ítölsku
knattspyrnunni. Það er ljóst að
með komu Crespo til Chelsea
verður enn erfiðara fyrir Eið
Smára Guðjohnsen að tryggja
sæti sitt í byrjunarliðinu hjá
félaginu.
Vieri óánægður
Christian Vieri er mjög óánægður
með að Crespo sé að fara frá Inter
og telur að félagið ætti frekar að
selja sig en Argentínumanninn.
„Mig langar ekki að vera hjá Inter
og enda alltaf í öðru, þriðja eða
fjórða sæti í deildinni. Forráðamenn
liðsins ættu að vera að styrkja liðið
en í stað þess er leikmannahópurinn
að veikjast. Inter seldi Ronaldo og
keypti Crespo í hans stað en nú er
ákveðið að selja hann. Mér finnst
þetta óþolandi og Inter ætti bara að
selja mig í staðinn fyrir Crespo,“
sagði Vieri í samtali við ítalska dag-
blaðið Gazzetta dello Sport.
Crespo til Chelsea
WILLUM Þór Þórsson, þjálfari KR-
inga, er vongóður um að geta stillt
upp sínu sterkasta liði í leiknum við
Fylki á morgun. Hann segir að
Arnar Gunnlaugsson sé allur að
koma til eftir meiðsli og líklega
verði hann klár í slaginn en eins og
staðan er hjá KR-ingum er Sölvi
Davíðsson eini leikmaðurinn sem er
á sjúkralistanum.
Ekki er sömu sögu að segja af
Fylkismönnum. Valur Fannar
Gíslason er aftur kominn á sjúkra-
listann og verður ekki með, jafnvel
ekkert meira í sumar en hann er
líklega kviðslitinn. Að sögn Að-
alsteins Víglundssonar, þjálfara
Fylkis, er Helgi Valur Daníelsson
tæpur en hann meiddist á ökkla
fyrir Evrópuleikinn á móti AIK í
síðustu viku og hefur ekkert getað
æft síðan. Það skýrist ekki fyrr en
á leikdag hvort Helgi geti spilað en
Aðalsteinn er ekki bjartsýnn á að
svo verði.
Of snemmt að tala
um úrslitaleik
Margir vilja meina að leikurinn í
Frostaskjóli annað kvöld sé nánast
úrslitaleikur mótsins en þjálfarar
liðanna eru því ekki alveg sam-
mála.
„Það er alltof snemmt að stilla
leiknum upp sem úrslitaleik. Það
verða þrjár umferðir eftir þegar
þessum leik lýkur og það getur ým-
islegt gerst í þeim leikjum. Ég get
viðurkennt að staðan lítur ekki illa
út fyrir okkur ef við vinnum en
þetta getur verið fljótt að breyt-
ast,“ segir Willum Þór.
„Eins og mótið hefur spilast er
fullsnemmt að tala um einhvern úr-
slitaleik. Bæði við og KR höfum
verið að taka dýfur í allt sumar og
bæði lið eiga erfiða leiki í loka-
umferðunum. Ef KR-ingarnir vinna
verða þeir í vænlegri stöðu svo við
þurfum að ná góðum úrslitum, jafn-
tefli en helst sigri,“ sagðir Að-
alsteinn Víglundsson.
Búist er við miklum mannfjölda á
KR-vellinum og verða félögin með
forsölu. KR-ingar í KR-heimilinu
við Frostaskjól og Fylkismenn í
Fylkishöllinni og þá verður hægt
að nálgast miða í forsölu á Shell-
stöðvunum Birkimel, Suðurströnd
og Hraunbæ fram að leiknum.
Fylkir án tveggja sterkra?
Það er í rauninni bara eitt semer alveg ljóst fyrir þennan
leik og það er að þetta verður
hörkuleikur. Fylkismenn hljóta að
mæta til leiks til að sigra og auð-
veldasta leiðin til þess er að fá ekki
á sig mörk og setja einhver sjálfur.
Þeir verða að leggja áherslu á að
stöðva Veigar Pál, það er ekkert
flóknara en það. Þó svo KR-ingar
hafi marga góða leikmenn, hefur
Veigar Páll verið driffjöðrin í liðinu
í sumar og ef þeim tekst að halda
honum niðri eru þeir hálfnaðir.
Ég lét í fyrsta sinn á ævinni sem
þjálfari mann til höfuðs öðrum
leikmanni. Það gekk vel í fyrri
hálfleik en Veigar Páll var færður
út á kant í síðari hálfleiknum og ég
vildi ekki riðla of miklu og lét
manninn ekki fyglja honum út á
kantinn – en hefði trúlega átt að
gera það,“ sagði Ásgeir.
Um toppslaginn sagði Ásgeir:
„Þetta mót í sumar er þannig að
allt getur gerst og það á ennþá við
því úrslitin ráðast ekki á KR-vell-
inum á sunnudaginn. Þá eru níu
stig eftir í pottinum og það getur
allt gerst. Nánast hver einasti leik-
ur er úrslitaleikur fyrir öll lið. Ef
við tökum okkur sem dæmi, hef ég
það á tilfinningunni að við séum
sloppnir við fall með 21 stig, en
það er þó alls ekki víst og við ætl-
um okkur ekki að treysta á að
þessi stig sem eru í húsi dugi. Ég
man eftir því að 1984 gátum við í
Þrótti fallið með 22 stig og sú
staða gæti hæglega komið upp í ár
líka.
Það er enginn munur á liðunum,
við förum úr sjöunda sæti í það
þriðja með sigri í síðustu umferð.
Ef KR vinnur er liðið komið vel
á veg að titlinum en það er samt
ekki víst því KR á erfiða leiki eftir,
fara til Grindavíkur, taka á móti
ÍBV og loks FH í Hafnarfirðinum.
Þetta ræðst ekki í næstu umferð
og ég efast um að það geri það í
næstu umferð heldur, ekki nema
KR vinni næstu tvo leiki og Fylkir
tapi að sama skapi,“ sagði Ásgeir.
Morgunblaðið/Kristinn
Veigar Páll Gunnarsson hefur leikið mjög vel með KR-liðinu í sumar. Hér hefur hann snúið á
varnarleikmann armenska liðsins FC Pyunik í Evrópuleik á Laugardalsvellinum.
Fylkismenn verða
að stöðva Veigar Pál
„ÆTLI Fylkismenn sér að vinna KR þá verða þeir að leggja áherslu á
að stöðva Veigar Pál. Ef það tekst hjá þeim eru þeir hálfnaðir með
verkið,“ segir Ásgeir Elíasson, þjálfari Þróttar, um stórleik þann
þegar KR tekur á móti Fylki á morgun í Kaplaskjóli.
Ásgeir Elíasson, þjálfari Þróttar, spáir í leik KR og Fylkis