Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 37
ÞAKKA þér Óttar fyrir að upp-
lýsa það í Mbl. 8. ágúst 2003 sem
ekki hefur mátt segja op-
inberlega á Ís-
landi.
Skylda mín sem
starfsmanns tólf-
sporahússins er að
gera raunhæfa
bataáætlun sem
nýtist fólki í að
verða allsgátt og í þeirri viðleitni
sinni að verða andlega heilbrigt
að nýju.
Nú eru rétt um níu mánuðir
síðan við opnuðum húsið okkar á
Skólavörðustíg 30, það fyrsta af
þremur. Það sem við stefnum að
og erum að færa inn í íslenska
meðferðarkerfið ef svo má segja
er að ekki reynist nauðsynlegt að
loka fólk inni uppi í sveit svo
hægt sé að veita því hjálp við að
losna undan ánauð alkóhólisma,
langfæstir þurfa á því að halda.
Oftast er miðað við líkamleg
veikindi fólks eins og gert er í
Bandaríkjunum til dæmis, þar í
landi eru einungis örfá úrræði
eftirlifandi þar sem krafist er
innilokunar eða burttekningar
einstaklings úr samfélaginu með-
an á meðferð stendur. Í Banda-
ríkjunum er nú nær eingöngu
stuðst við módel sem heitir „out-
patient program“ og þar er unnið
með tólfsporakerfi AA-fé-
lagsskaparins og viðhaldið með
svokölluðu „self motivation syst-
em“. Í Bandaríkjunum í dag eru
skráð soberhouse- og halfway
house-úrræði 24.000 talsins hjá
www.soberhouses.com og þarf því
ekki að velkjast í vafa um hver
stefnan er í þessum málum í
Bandaríkjunum a.m.k.
Þetta kerfi hefur verið notað
með góðum árangri í 53 ár í
Bandaríkjunum en við höfum
einnig horft á kraftaverk í ba-
taþróun einstaklinga á Íslandi
með þessum mjög svo einföldu
leiðbeiningum frá tólfspora-
samtökunum í Bandaríkjunum.
Árangurstölurnar frá því með-
ferðarstarf hófst hér á landi eru
hlægilegar; rétt um 5–8% af
hundraði eru edrú eftir tvö ár, og
enginn telur breytinganna þörf.
Íslenski meðferðargeirinn ætlar
sem sagt að halda áfram að nota
þessar svo til gagnslausu leið-
beiningar sem stuðst hefur verið
við hingað til og halda áfram að
búast við annarri útkomu, nú
hlýtur það að takast!
Á Íslandi eigum við afeitr-
unarsjúkrahús sem við teljum
með þeim fullkomnustu í heim-
inum og skilar frábærum árangri,
en því miður hefur meðferðin hér
ekki skilað góðum árangri. Ekki
er hægt að fegra þessar stað-
reyndir eða fara í kringum þær.
Endalausir frasar og stikkorð
eru til sem þessir staðir nota, en
raunin er sú að þessi að-
ferðafræði hefur í raun ekki virk-
að nema þá fyrir takmarkaðan
hóp útvalinna sem mjög stutt eru
komnir í þróun sinni á alkóhól-
isma.
Búið er að reyna vatnslækn-
ingar, rækta líkamann, ganga í
sértrúarsöfnuði og spila tennis
eða aðrar íþróttir til að halda
alkóhólismanum í skefjum en
raunin er sú að alvöru alkóhólisti
þarf annað tveggja til að halda
geðheilsunni; brennivín og önnur
vímuefni eða þá tólfsporapró-
gramm AA, sem læknar við-
urkenna nú almennt að haldi
sjúkdómnum í skefjum og geri
fólk andlega heilbrigt að nýju.
Það er sorglegt að horfa upp á
að meðferðarstaðir kenni sig við
tólfsporakerfi AA en noti það svo
ekki. Í dag eru til staðir sem
beita þessari blekkingu til að
auka trúverðugleika sinn svo auð-
veldara sé að safna fjármunum.
Eftir að hafa lesið nýlega grein
í DV, þar sem haldið var fram að
tiltekin stofnun notaðist við tólf-
sporakerfi AA, var hringt á stað-
inn til að fá upplýsingar um þann
þátt meðferðarinnar og var svar-
ið mjög skýrt og skorinort: Við
erum með tólf sporin beint úr
Biblíunni, kristilega meðferð, en
ekki AA-prógrammið eða AA-
fundi.
Breytinga var þörf.
Allt of margir voru og eru að
deyja úr alkólhólisma í vina- og
kunningjahópum okkar félaganna
sem stöndum að rekstri tólf-
sporahússins Soberhouse.
Við framkvæmum það sem við
segjum, iðkum það sem við kenn-
um og stöndum undir nafni sem
„tólfsporahúsið“ Soberhouse.
Markmið okkar er að skila ein-
staklingum með sjúkdóminn alkó-
hólisma út í þjóðfélagið án þess
þó að loka fólk inni úti í sveit eða
draga upp úr því leyndardóma al-
heimsins með hvaða aðferðum
sem er.
Í tólfsporahúsinu Soberhouse
er dagskrá alla virka morgna og
allir eru velkomnir frá klukkan
9:00 til 11:30 mánudaga til föstu-
daga.
Við styðjumst eingöngu við
tólfsporaprógrammið og það
stendur einnig til boða þeim sem
ekki búa á staðnum en hafa
áhuga á þátttöku (outpatient pro-
gram).
Heildarkomufjöldi í tólfspora-
húsið Soberhouse er 49 ein-
staklingar (15.6. 03) og af þeim
eru 26 allsgáðir enn í dag eða
rétt um 53%, sem er í takt við
þær árangurstölur sem við feng-
um frá Pathfinders Recovery í
San Diego.
Strax við opnun hússins var
ákveðið að við gerðum miklar
kröfur til skjólstæðinga okkar um
árangur, og við leggjum sérstaka
áherslu á að hvorki fólk, staðir né
hlutir valda því að við drekkum
eða neytum vímuefna.
Bati er ekki söluvara sem má
dansa með í hringi og falbjóða
eftir geðþótta.
Mannslíf tapast með því að
vera værukær svo og ef gróða-
sjónarmið ráða.
Eftir að skjólstæðingarnir
ljúka dvöl sinni hjá okkur hefst
eftirfylgni (áætlun); prógramm
sem stendur yfir í þrjú ár.
Svar við grein dr. Óttars
Guðmundssonar
Eftir Guðjón Egil Guðjónsson
Höfundur er forstöðumaður tólf-
sporahússins Soberhouse.
Kokkabókastatíf
Verð 3.990 kr.
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Litir: Svart, blátt,
grænt, grátt
Nýtt! drapplitur