Morgunblaðið - 23.08.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VAXANDI atvinnuleysis gætir á
Bíldudal í kjölfar lokunar rækju-
vinnslunnar Rækjuvers, auk þess
sem fiskvinnslufyrirtækið Þórður
Jónsson ehf., sem rekur bolfisk-
vinnslu staðarins, er í greiðslustöðv-
un. Rækjuveri var lokað eftir vertíð-
ina í vor og standa vonir til að
einungis sé um tímabundna lokun að
ræða.
„Það er fyrst og fremst mikil
óvissa ríkjandi á Bíldudal. Þetta er
mjög lítill staður, það eru ekki nema
rúmlega 230 manns sem búa þar. Það
er alveg ljóst að þegar tveir fjöl-
mennustu vinnustaðirnir eru lokaðir,
Rækjuverið vegna tímabundinna
þrenginga og Þórður Jónsson ehf. í
greiðslustöðvun, þá ríkir óöryggi í at-
vinnumálum á Bíldudal,“ segir
Brynjólfur Gíslason, bæjarstjóri
Vesturbyggðar.
Hann segir að afgerandi stærstur
hluti launafólks á Bíldudal starfi hjá
þessum tveimur fyrirtækjum. Það sé
því á sjötta tug fólks sem búi við
óstöðugt atvinnuástand eins og er.
„Það er ekki útséð með bolfiskfyr-
irtækið. Gangi endurskipulagning
þess eftir og sömuleiðis þegar
Rækjuver opnar aftur, verður um-
frameftirspurn eftir vinnuafli. Ég
held að það sé hvorki staður né stund
til að fara í vangaveltur hvað eigi að
gera í framhaldinu. Ég held að það
verði að gefa þessum fyrirtækjum
færi á að vinna úr sínum málum.“
Brynjólfur leggur áherslu á að
unnið sé að úttekt á stöðunni á Bíldu-
dal, útliti og horfum. Hann telur að
ýmsir möguleikar séu fyrir hendi á
staðnum, til að mynda gæti fyrirhug-
uð kalkþörungavinnsla orðið viðbót
við það atvinnulíf sem fyrir er. „Ég
held að menn reyni hvað þeir geta að
halda útgerð og fiskvinnslu áfram
þótt á móti blási,“ segir Brynjólfur
og bendir á að miklar hræringar hafi
verið í atvinnulífi á Bíldudal á und-
anförnum áratugum. Ástandið nú sé
ekkert nýtt.
Binda vonir við að hægt verði
að koma rekstrinum í horf
Að sögn Jóns Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra Þórðar Jónssonar
ehf., er fyrirtækið í greiðslustöðvun
til 1. október nk. Hann segir að það
hafi lent í erfiðleikum í rekstri árið
2002 og í byrjun árs 2003, en nú sé
reynt að vinna úr þessum erfiðleik-
um og það gangi sæmilega. „Það hef-
ur verið full vinna hjá starfsfólkinu
þennan tíma. Ég sé ekki fram á ann-
að en að svo verði í vetur. Við bindum
vonir við að við getum lagað rekst-
urinn og þau heit, sem við höfum um
það, benda til þess að það muni tak-
ast. Það munu koma fjárfestar að
þessu með okkur, en á þessu stigi er
ekki tímabært að gefa það upp hverj-
ir það eru. Þessir aðilar hafa áhuga á
að fjárfesta og taka þátt í rekstri með
okkur,“ leggur hann áherslu á.
Um þrjátíu starfsmenn eru hjá
fyrirtækinu í dag og segir Jón að
þeim hafi fækkað lítillega síðustu vik-
urnar því skólafólk hafi hætt störfum
og ekki sé búið að ráða í þær stöður.
Hann á þó von á því að það verði gert
í vetur. „Auðvitað er greiðslustöðvun
alvarlegt mál. Fyrirtæki fer ekki í
greiðslustöðvun nema staða þess sé
óviðunandi en sem betur fer eru til
lausnir til þess að leysa þetta mál án
þess að verði upplausn. Við höfum
reynt að stýra þessu með þeim hætti
að starfsfólk okkar verði ekki fyrir
skaða, það er að það verði ekki at-
vinnuleysi. Okkur hefur tekist það
sem betur fer,“ bendir hann á.
Jón segir að fyrirtækið hafi staðið
að uppbyggingu á Bíldudal síðan
1998, ásamt fyrirtækinu Mír ehf.
Þessi uppbygging hafi kostað fyrir-
tækið gríðarlega mikið. Hann segist
þó sannfærður um að ennþá séu
sóknarfæri í sjávarútvegi á Bíldudal.
Jón segir að reynt hafi verið að
upplýsa starfsfólk um stöðu mála og
framgang og væntanlega verði þær
hugmyndir sem uppi eru kynntar
fyrir starfsfólki í kringum 10. sept-
ember nk.
Erfitt að segja til um haustið
Óttar Yngvason, framkvæmda-
stjóri Rækjuvers, segir að eins og er
sé reksturinn í biðstöðu. Hann bend-
ir þó á að menn hafi fullan hug á því
að halda áfram vinnslu í vetur ef
rekstrarskilyrði leyfa. „Við lokuðum
í vor eftir vertíðina. Við vorum að
endurpakka og gera ýmislegt fleira í
meira og minna þrjá mánuði, en við
vorum með hálfa áhöfn,“ segir hann.
Óttar leggur áherslu á að erfitt sé
að segja til um haustið því fljótt skip-
ist veður í lofti í vinnslumálum. Þetta
sé undir svo mörgu komið. Rækjan
hafi verið í botni í verði undanfarið.
Hann bendir á að um leið og fiskverð
hrynur, sem hafi gerst núna, sé óhjá-
kvæmilegt að breyta rekstrargrunni
fiskvinnslu og fiskveiða og það komi
rækjuiðnaðinum til góða.
„Við höfum nú heldur kosið það í
gegnum árin að stöðva reksturinn
með eigin ákvörðunum og hafa vald á
þróuninni, heldur en að láta það ger-
ast í gegnum greiðslustöðvanir eða
gjaldþrot.“ Hann segir auk þess að
Bíldudalur sé tiltölulega afskekktur
og flutningskostnaður til og frá sé
verulegur.
Rækjuvinnslan lokuð eftir vertíðina í vor og bolfiskvinnslan í greiðslustöðvun
Óvissa ríkir í atvinnu-
málum á Bíldudal
FERÐASKRIFSTOFAN Terra Nova, helsti
samstarfsaðili bresku ferðaskrifstofunnar
Arctic Experience, hefur ekki tekið ákvörðun
um afstöðu til hvalveiða en málið verður tekið
fyrir í næstu viku.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær
mun Artic Experience, einn stærsti söluaðili
Íslandsferða erlendis, biðja um staðfestingu
frá öllum samstarfsaðilum sínum hér á landi á
því hvort fyrirtækin séu á móti hvalveiðum.
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar, segir að hvalveið-
arnar hafi slæm áhrif á ímynd Íslands í aug-
um erlendra ferðamanna. „Við höfum auðvitað
varað við þessu að þessi markaður er mjög
viðkvæmur fyrir hvalveiðum. Samtök ferða-
þjónustunnar hafa sent frá sér yfirlýsingu og
það er deginum ljósara að okkar félagsmenn
eru á móti hvalveiðum þar sem þær skaða
þessa viðskiptahagsmuni. Við teljum að það sé
verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni
Breski markaðurinn er einn af okkar mik-
ilvægustu mörkuðum en hann er mjög við-
kvæmur fyrir þessu. Þar hefur ímynd Íslands
þótt mjög góð en hún hefur skaðast mikið.
Það er auðvelt að skaða ímynd en gríðarlega
erfitt að vinna hana til baka. Auðvitað vonum
við að þetta fari ekki jafn illa og margir eru
hræddir um en skaðinn er byrjaður,“ segir
Erna.
Munu taka
ákvörðun í
næstu viku
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi
yfirlýsing frá Samtökum ferðaþjónustunnar:
„Samtök ferðaþjónustunnar harma að nei-
kvæðar myndir af íslenskum hvalveiðum skuli
nú sýndar í fjölmiðlum um víða veröld og er
versta dæmið mynd sem birtist nýlega í Morg-
unblaðinu af hvalveiðimanni sem heldur sigri
hrósandi á hjarta úr hval.
Einn stærsti söluaðili Íslandsferða í Bret-
landi hefur sagt að hann hafi aldrei séð neina
mynd sem skaði ímynd Íslands jafnmikið og
þessi mynd. Samtökin hafa rætt við stjórnvöld
um að allt sé gert til þess að lágmarka skaðann
sem af hvalveiðum hljótist.
Samtökin beina því jafnframt til annarra að-
standenda hvalveiða svo og íslenskra fjölmiðla
að þeir taki tillit til erfiðrar stöðu ferðaþjónust-
unnar í þessu máli. Það er nú þegar farið að
bera á afbókunum ferða og staðan því kvíðvæn-
leg. Það skiptir alla þjóðina máli ef tekjur
ferðaþjónustunnar stórlækka vegna hval-
veiða.“
Harma
neikvæðar
myndir af
hvalveiðum
SIGURÐUR Bessason, formaður Eflingar,
segir að viðræðuáætlun Flóabandalagsins og
Samtaka atvinnulífsins geri ráð fyrir að viðræð-
um um gerð nýrra kjarasamninga verði lokið
um áramót þegar samningar renna úr gildi. Ef
viðræður hafi ekki skilað árangri 15. desember
geti Flóabandalagið vísað kjaradeilunni til rík-
issáttasemjara. Flóabandalagið mun ganga til
kjaraviðræðna án beinnar að aðildar Starfs-
greinasambandsins líkt og gert var í síðustu
kjaraviðræðum.
Félögin sem mynda Flóabandalagið eru Efl-
ing í Reykjavík, Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavíkur.
„Við erum í dag með sameiginlegan kjara-
samning og erum með sameiginlegan starfs-
menntasjóð. Þetta vinnusvæði liggur mjög þétt
saman. Hér færist fólk á milli félaga eftir því
hvernig vinna þess liggur. Þessi félög vinna því
náið saman á mörgum sviðum. Eftir sem áður
ætlum við að eiga gott samstarf við Starfs-
greinasambandið. Það var farið í gegnum það á
framkvæmdafundi sambandsins fyrr í vikunni.
Síðan verður haustið að leiða í ljós hvernig
þessu samstarfi verður hagað,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði að félögin sem mynda Flóa-
bandalagið væru hluti af Starfsgreinasamband-
inu og þau myndu taka þátt í þeirri kjaraum-
ræðu sem fram fer á þeim vettvangi á næstu
vikum og mánuðum. „En við munum líka láta
vinna þessa hluti inni í félögunum. Þar munum
við meta árangur af samningnunum og skoða
þær leiðir sem eru færar.“
Sigurður sagði að vinna við gerð nýrra kjara-
samninga væri að hefjast. Viðræðuáætlun lægi
fyrir, en hún gerði ráð fyrir að 15. desember
gætu félögin ákveðið að vísa viðræðum til rík-
issáttasemjara, en það er forsenda fyrir verk-
fallsboðun að kjaradeilda sé komin til hans. Sig-
urður sagðist gera ráð fyrir að
Starfsgreinasambandið yrði með svipaðar dag-
setningar og því gæti reynt á það í vetur hversu
náið samstarf yrði milli Flóabandalagsins og
Starfsgreinasambandsins um hugsanlegar að-
gerðir í kjarabaráttunni.
Flóabandalagið fer eitt og sér í kjaraviðræðurnar í haust
Miðað við að nýir samning-
ar liggi fyrir um áramót
SÝNINGU á helstu verkum Kjarvals lauk í
Landsbankanum í gær en hún hefur verið
opin síðan á menningarnótt. Aðsókn að
sýningunni hefur farið fram úr björtustu
vonum og hátt í 700 manns hafa lagt leið
sína á 2. hæð Landsbankans og skoðað
verkin.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur hef-
ur gengið með áhugasömum um svæðið og
frætt fólk um verkin en mikillar ánægju
gætti meðal þeirra sem fylgdust með. Uppi
eru áform um að setja upp sýningar í
Landsbankanum á Ísafirði og á Akureyri í
tengslum við 75 ára afmæli starfsmanna-
félags Landsbankans.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýningu á verkum Kjarvals lokið