Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 15
UM 100.000 ævareiðir Palestínu-
menn fylltu stræti og torg í Gaza-
borg í gær er þeir fylgdu til grafar
Hamas-leiðtoganum Ismail Abu
Shanab og hótuðu að hefna hans
grimmilega. Flest bendir til, að
ástandið í Mið-Austurlöndum sé enn
einu sinni að fara úr böndunum þrátt
fyrir tilraunir Bandaríkjanna og
annarra ríkja til að fá deiluaðila til að
stilla sig.
Tvenn samtök herskárra Palest-
ínumanna, Hamas og Heilagt stríð,
lýstu yfir í fyrradag, að sjö vikna
gömlu vopnahléi væri lokið og sögðu
Ísraela og Bandaríkjamenn bera
ábyrgð á því. Ísraelar hefðu í fyrsta
lagi aldrei lýst sjálfir yfir vopnahléi
og hefðu haldið áfram að drepa Pal-
estínumenn, alls 22, þessar sjö vikur.
Háttsettur, ísraelskur embættis-
maður sagði í gær, að Ísraelsstjórn
myndi halda áfram miskunnarlaus-
um árásum á hryðjuverkamenn en
nefndi ekki hvernig það yrði gert.
Ísraelska útvarpið sagði hins vegar,
að megináherslan yrði á afmarkaðar
árásir á frammámenn í Hamas.
Skorað á Arafat
Viðbúnaður í Ísrael er nú eins og
hann getur mestur orðið ef stríðs-
ástand er undanskilið og hefur her-
inn hert tök sín á Vesturbakkanum
og á Gazasvæðinu og handtekið
marga menn.
Það lýsir best ástandinu, að
Bandaríkjastjórn hefur skorað á
Yasser Arafat að leggja sitt af mörk-
um við að bjarga friðarferlinu, Veg-
vísinum svokallaða, og hafa samstarf
um það við Mahmud Abbas, for-
sætisráðherra heimastjórnarinnar. Í
júní sl. lýsti hins vegar George Bush
Bandaríkjaforseti Arafat sem óal-
andi og óferjandi og sagði, að við
hann yrði ekki framar talað.
Í gær hvatti Colin Powell, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hann til
að gera hvað hann gæti til að rjúfa
vítahring ofbeldisins.
AP
Líkfylgdarmenn Hamas-foringjans Ismail Abu Shanab og lífvarða hans biðjast fyrir við líkin í Gazaborg í gær.
Ótti við enn blóðugri
átök í Mið-Austurlöndum
Jerúsalem, Gaza. AP, AFP.
VINSÆLDIR Ole von
Beust, borgarstjóra Ham-
borgar, meðal íbúa borgar-
innar hafa nú tekið mikinn
kipp eftir að hann rak
hægripopúlistann Ronald
Schill úr embætti innanrík-
isráðherra í borgarstjórn-
inni fyrir að hóta að bera á
torg upplýsingar um einkalíf
borgarstjórans. Beust hafði
fram til þessa aðeins óbeint
gengizt við samkynhneigð
sinni og lagt áherzlu á að
kynhneigðin væri stjórnmál-
um óviðkomandi.
Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar sem Em-
nid-stofnunin gerði myndu
nú 38% kjósenda í Hamborg
vilja greiða Beust atkvæði
sitt, sem er 12% meira en
flokkur hans fékk í kosningunum
fyrir tæpum tveimur árum. Flokkur
Schills, „Sókn réttarríkisins“ sem
fékk fimmta hvert atkvæði árið 2001,
fengi nú aðeins um 6%.
Schill er fyrrverandi dómari sem
kom nýstofnuðum flokki sínum í
stjórn Hamborgar eftir kosningarn-
ar, en samsteypustjórn flokks hans
með kristilegum demókrötum
Beusts og smáflokki frjálslyndra
demókrata er fyrsta hægristjórnin
sem ráðið hefur ráðhúsinu í Ham-
borg í hálfa öld. Hamborg er eitt
sambandslandanna sextán sem
mynda þýzka Sambandslýðveldið.
Eftir brottvikninguna á
þriðjudag sagðist Schill
ætla að hætta afskiptum af
stjórnmálum, en á miðviku-
dag sagðist myndu starfa
áfram sem óbreyttur
fulltrúi á borgarþinginu.
Aðdragandi brottvikn-
ingar hins umdeilda Schills
var sá, að Beust sakaði
Schill um að hafa reynt að
kúga sig með því að hóta að
opinbera upplýsingar úr
einkalífi sínu ef nánasta
samstarfsmanni Schills,
Walter Wellinghausen, yrði
vikið úr starfi. Wellinghau-
sen er sakaður um að hafa
misbeitt embættisvöldum
sínum til að hygla fyrirtæki
sem hann er sjálfur í for-
svari fyrir. Wellinghausen
var rekinn um leið og Schill.
Beust sagði að Schill hefði hótað
að segja að borgarstjórinn hefði
komið ástmanni sínum í embætti
dómsmálaráðherra í borgarstjórn-
inni. Á þriðjudag, eftir að Beust sak-
aði Schill opinberlega um að reyna
að kúga sig, sagði Schill fyrir framan
blaðamenn að það væri satt að
Beusch og dómsmálaráðherrann,
Robert Kusch, ættu í sambandi; það
væru vitni að þeim eiga í ástarleik. Á
miðvikudag afsakaði Schill sig og
sagðist í viðtali við Hamburger
Abendblatt hafa „sagt hluti sem ég
hefði betur látið ósagða“.
Schill úr stjórn
Hamborgar
Brottvikningin skilar borgarstjór-
anum stórauknum vinsældum
Hamborg. AFP, AP
Ronald Schill
Ole von Beust