Morgunblaðið - 23.08.2003, Page 20
AKUREYRI
20 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skorradal /Sími 822 0055 /www.safaris.is
Opið til kl. 18.
SUÐURNES
UMHVERFISÁTAK í Reykjanesbæ
hófst formlega í fyrradag með því að
tekið var í notkun svæði þar sem tek-
ið verður við járnarusli sem hreinsað
verður úr bæjarlandinu.
Reykjanesbær stendur fyrir um-
hverfisátakinu í samvinnu við Hring-
rás hf., Njarðtak hf., Sorpeyðing-
arstöð Suðurnesja, Bláa herinn og
fyrirtæki og einstaklinga í bæj-
arfélaginu. Aðalmarkmiðið er að
hreinsa jaðra Reykjanesbæjar af
málmum og öðru rusli sem safnast
hefur upp. Ruslinu verður safnað á
svæði við skolphreinsistöðina við
Bolafót í Njarðvík. Þar geta fyrirtæki
og einstaklingar losað sig við járna-
rusl, sér að kostnaðarlausu.
Fulltrúar þeirra sem standa að
átakinu hafa verið að litast um eftir
rusli að undanförnu vegna undirbún-
ings átaksins. Viðar Már Að-
alsteinsson, framkvæmdastjóri um-
hverfis- og tæknisviðs
Reykjanesbæjar, segir að mun minna
sé af rusli en á sama tíma í fyrra en
þá var einmitt efnt til sams konar
hreinsunarátaks. Þá var stefnt að því
að fjarlægja 100 tonn af járnarusli en
uppskeran var rúmlega 1.000 tonn.
Árni Sigfússon bæjarstjóri segir að
stöðugt sé unnið að umhverfismálum
en líta megi á átakið sem árlega
áminningu um að gera betur. „Um-
hverfisvernd krefst stöðugrar at-
hygli,“ ítrekar bæjarstjóri. Hann tel-
ur raunhæft að stefna að því að safna
saman 100 tonnum af járnarusli í ár.
Átakið hófst formlega með því að
fulltrúar þeirra stofnana og fyr-
irtækja sem að því standa hittust á
gámasvæðinu við Bolafót og fengu
afhenta boli sem merktir eru átak-
inu. Stefnt er að því að hreinsun ljúki
2. september næstkomandi.
Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar
tekur við ábendingum um rusl og
veitir íbúum upplýsingar um fyr-
irkomulag átaksins.
Stefnt að því að fjarlægja 100 tonn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þau sem taka þátt í hreinsunarátakinu klæddu sig í einkennisbúninginn og sögðust vilja taka til hendinni.
Reykjanesbær
UMHVERFISSAMTÖKIN Blái
herinn hafa lokið við að hreinsa rusl
af fjörum Ósabotna. Út úr því komu
rúm fjögur tonn af fiskikerum, net-
arusli og öðru plasti sem komið hefur
verið til förgunar hjá Sorpeyðingar-
stöð Suðurnesja.
Blái herinn er samtök sportkafara
sem vinna að því að auka gæði sjávar
og stuðla að hreinleika hans. Starfar
hann í nánu samstarfi við Sportköf-
unarskóla Íslands. Blái herinn tekur
þátt í umhverfisátaki Reykjanesbæj-
ar og tók sér fyrir hendur að hreinsa
fjörur Ósabotna sem eru á milli
Hafna og Sandgerðisbæjar.
Ástæðan er sú að Tómas J. Knúts-
son og félagar hans urðu varir við
mikið drasl á fjörum og úti á sjónum
þegar þeir voru að kafa í Ósunum.
„Okkur þótti tilvalið að safna ruslinu
í fiskikerin sem þarna voru og draga
þau í land,“ segir Tómas.
Bergur Sigurðsson segir að það
hafi verið erfitt að koma ruslinu í
land þar sem mikið sé af skerjum
auk þess sem mikið brimi. Einungis
hafi verið hægt að vinna að verkefn-
inu á fjöru og í góðu veðri.
Bergur vekur athygli á því að Ósa-
botnar séu á náttúruminjaskrá
vegna fjölbreytts fuglalífs og mikils
og sérstæðs botndýralífs. Vinsældir
þeirra sem útivistarsvæðis hafa ver-
ið að aukast á síðustu árum og segja
þeir félagar leiðinlegt að hafa allar
fjörur fullar af sjóreknu plastrusli.
Nú þegar það hafi verið fjarlægt sé
óhætt að hvetja fólk til að ganga fjör-
urnar og upplifa þessa náttúruperlu.
Hreinsuðu
fjögur tonn
af plastrusli
af fjörum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Liðsmenn Bláa hersins hafa flutt fjögur tonn af plastrusli úr Ósabotnum til
förgunar hjá Sorpeyðingarstöðinni. Þeir eru ánægðir með árangurinn.
Ósabotnar
NÍÐÞUNGIR þurrkarar og fleiri
tæki voru í gær flutt úr fiskimjöls-
verksmiðju Síldarvinnslunnar í
Sandgerði og niður á höfn. Þar
voru tækin sett um borð í skip til
Hafnar í Hornafirði.
Nokkuð er síðan Síldarvinnslan í
Neskaupstað lokaði verksmiðju
sinni í Sandgerði og unnið hefur
verið við að taka niður tækin und-
anfarna mánuði. Þau hafa verið
seld til fyrirtækis á Höfn í Horna-
firði.
Meðal þess sem flutt var niður
að höfn í gær og um borð í skip
eru fjórir þurrkarar sem vega yfir
fjörutíu tonn hver.
Enn er eftir að taka niður fleiri
tæki í verksmiðjunni og eftir því
sem næst verður komist liggur
ekki fyrir hvað gert verður við
húsnæði hennar.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Fiskimjölsverk-
smiðjan flutt í burtu
Sandgerði
TVEIR úrslitaleikir verða á Sand-
gerðisvelli í dag, laugardag. Reynir
tekur á móti Hetti klukkan 14 í úr-
slitakeppni 3. deildar og RKV tekur
á móti Sindra klukkan 17 í úrslita-
keppni 1. deildar kvenna.
Frítt er á völlinn í þeim tilgangi að
auka stuðning við heimaliðin í harðri
baráttu um að komast upp um deild.
Frítt á
úrslitaleiki
Sandgerði
AKSTURSÍÞRÓTTAFÉLAG Suð-
urnesja heldur torfærukeppni við
Stapafell á morgun, sunnudag, og
hefst hún klukkan 13. Keppnin nefn-
ist Sparisjóðstorfæran.
Sextán keppendur eru skráðir til
leiks enda er keppnin liður í Íslands-
mótinu. Heimamennirnar Gunnar
Gunnarsson og Gunnar Ásgeirsson
verða meðal þátttakenda.
Sparisjóðurinn í Keflavík er aðal-
styrktaraðili keppninnar og ÍAV
lætur keppnissvæðið í té.
Sparisjóðs-
torfæra í dag
Stapafell
SVEITARSTJÓRN Eyjafjarðar-
sveitar hefur ákveðið að ný sundlaug
verði byggð við Hrafnagilsskóla árið
2005 og er kostnaður áætlaður um 70
milljónir króna. Bjarni Kristjánsson,
sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar
sagði við Morgunblaðið að ákveðið
hefði verið að setja byggingu sund-
laugarmannvirkjanna á þriggja ára
áætlun og að framkvæmdaárið verði
2005.
„Framkvæmd verksins verður að
fullu lokið á þessu kjörtímabili, en
við gerum ráð fyrir að nota næsta ár
í að undirbúa okkur vel, bæði fjár-
hagslega og hvað varðar alla tækni-
og hönnunarvinnu. Við ætlum að
bjóða verkið út í heild og ljúka því í
einum áfanga. Bygging nýrrar sund-
laugar við Hrafnagilsskóla er orðin
tímabær þar sem gamla trefjaplast-
laugin er barn síns tíma og orðin slit-
in. Það þykir líka nauðsynlegt á fjöl-
förnum ferðaðamannastað sem
þessum að bjóða upp á sundlaugar-
mannvirki með rennibrautum, pott-
um og vaðlaug. Búningsklefar við
laugina eru sameiginlegir með
íþróttahúsi Hrafnagilsskóla og er
gert ráð fyrir að þeir verði einnig
endurnýjaðir samhliða byggingu
laugarinnar,“ sagði Bjarni.
Hrafnagilsskóli í Eyjafirði
Ný sundlaug
verður byggð 2005
TÆPLEGA 2.600 börn munu sækja
skóla í grunnskólum Akureyrar á
næsta skólaári, en í gærmorgun
mættu þau á kynningarfundi í sín-
um skóla. Skólahald hefst svo í
næstu viku samkvæmt stund-
artöflu. Á næstunni verða sett upp
fleiri skilti í bænum sem eiga að
minna á að skólabörn geta verið á
ferð. Þorsteinn Pétursson, lög-
reglumaður á Akureyri, vill beina
þeim tilmælum til ökumanna að
sýna aðgát í umferðinni, því nú
muni fjöldi barna verða á ferð.
„Það sem ökumenn verða að gera
er að draga úr hraða og vera við-
búnir því að börn hlaupi óvænt út á
götu, vegna þess að mörg þeirra
eru að stíga sín fyrstu skref í um-
ferðinni og því þarf að sýna sér-
staka tillitssemi og gefa þeim tíma
til aðlögunar. Við í lögreglunni vilj-
um beina þeim tilmælum til for-
eldra að æskilegt er að þeir fylgi
yngstu börnunum fyrstu dagana í
skólann og leiðbeini þeim að finna
auðveldustu og öruggustu leiðina í
skólann og segja krökkunum að
fara alltaf þá leið. Lögreglan mun
hafa sérstakt eftirlit á svæðunum í
kringum skólana þessa fyrstu daga
og fylgjast með hraðakstri,“ sagði
Þorsteinn.
Skólabörn á leið út í umferðina
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
Þessi drengur kom hjólandi þegar Lundarskóli var settur eftir sumarfrí.
Ökumenn sýni aðgát
Konukvöld. Aglow samtökin verða
með fund í félagsmiðstöðinni Víði-
lundi 22 á mánudagskvöldið,
25.ágúst næstkomandi, kl. 20. Kaffi-
hlaðborð, söngur, hugleiðing í umsjá
sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttur, bæn
og góður félagsskapur, segir í frétta-
tilkynningu. Þar segir ennfremur:
„Allar konur velkomnar, þátttöku-
gjald 500 kr. Láttu sjá þig og taktu
vinkonu þína með þér.“
Á NÆSTUNNI
ÁKVEÐIÐ var á fundi náttúru-
verndarnefndar Akureyrarbæjar
þann 21. ágúst að skipa þriggja
manna starfshóp til að fara yfir
hvernig best verði staðið að verndun
Glerárdals. Nefndin tilnefndi í
starfshópinn þá Ingimar Eydal og
Jóhannes Árnason og óskaði jafn-
framt eftir því að umhverfisráð til-
nefndi einn fulltrúa í hópinn.
Verndun Glerárdals
Starfshópur
skipaður
♦ ♦ ♦