Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 22
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
HILMAR Páll Haraldsson, tvítugur
Hvergerðingur, lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
síðastliðið vor. Ætla mætti að hann
hefði skráð sig í háskóla í haust til
frekara náms, en Hilmar Páll var
aldeilis ekki á því að fara þessar
hefðbundnu leiðir.
Hann fór til Noregs í vor og sótti
um að komast í æfingabúðir hjá
hernum. Þar puðaði hann í nokkrar
vikur og stóðst lokapróf fyrir rúmri
viku. Þá sótti hann um að komast í
skóla á vegum hersins og ætlar hann
að stunda nám í tölvu- og rafmagns-
verkfræði. Skólavist hefur verið
samþykkt og fékk Hilmar Páll helg-
arfrí um síðustu helgi. Þá skaust
hann heim, en hóf nám strax síðasta
mánudag. Námið tekur þrjú og hálft
ár og að því loknu hefur Hilmar Páll
skuldbundið sig til að vinna fyrir
norska herinn í þrjú ár.
„Hvernig datt þér þetta í hug,“ er
það eina sem fréttaritara kemur í
hug að spyrja þegar Hilmar Páll hef-
ur greint frá framtíðaráætlunum
sínum. „Gils bróðir minn er að vinna
í Noregi. Hann frétti af þessum
möguleika og hjálpaði mér að sækja
um,“ segir Hilmar Páll brosmildur á
svip. „Þarna er allt borgað fyrir mig,
fæði, klæði, húsnæði, dagpeningar
og svo fæ ég sjö ferðir heim til Ís-
lands á ári. Mér sýnist að dagpening-
arnir komi til með að safnast upp, því
að þeir borga allt fyrir mig,“ segir
þessi fyrsti hermaður okkar Hver-
gerðinga.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Hilmar Páll Haraldsson er farinn til
Noregs í nám hjá norska hernum.
Nemur í
norskum
herskóla
Hveragerði
SLÉTTUSÖNGUR Selfossbúa verð-
ur í kvöld, 23. ágúst, á útivist-
arsvæðinu við Gesthús. Þessi við-
burður hefur skapað sér fastan sess
í bæjarlífinu á Selfossi. Margir
gestir koma á gesthúsasvæðið og
taka þátt í söng og hljóðfæraleik og
Selfossbúar hafa undanfarin ár not-
að tækifærið og koma saman þetta
kvöld til að syngja og skemmta sér.
Í fyrra var mjög góð mæting og líf-
leg stemmning á staðnum. Eins og
áður verður sungið við varðeld og
ýmsir staðarkunnir hljóðfæraleik-
arar verða á staðnum með hljóð-
færin sín. Sléttusöngurinn hefst kl.
22.00 og flugeldasýning verður kl.
23.00.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Í fyrra var lífleg stemmning á Sléttusöngnum og Sléttuúlfarnir í stuði.
Sléttusöngur í kvöld
Selfoss
FIMMTÍU manna hópur eldri Vestfirðinga heimsótti þorpin á Suðurströnd-
inni 19. ágúst s.l. og er myndin tekin er hópurinn var staddur í Eyrarbakka-
kirkju. Var mikil ánægja hjá hópnum með ferðalagið.
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Vestfirðingar á ferð
um Suðurströndina
Eyrarbakki
NÚ eru allar íbúðirnar á Egilsgötu
11 sem áður hýsti Kaupfélag Borg-
firðinga tilbúnar til búsetu. Af því
tilefni bauð Reynald Jónsson, eig-
andi Búafls ehf., til móttöku og
sagði frá tilurð framkvæmdanna.
Stórhýsið á Egilsgötu 11 var byggt
árið 1957 og var á þeim tíma eitt
stærsta hús á sviði verslunar og
þjónustu á landsbyggðinni. Vöruhús
KB auk höfuðstöðva kaupfélagsins
var þar til ársloka 2000. Nú, liðlega
tveimur árum síðar, er búið að
breyta húsinu í fjölbýlishús með 21
íbúð. Búafl ehf. í eigu Reynalds
Jónssonar byggingartæknifræðings,
réðst í þetta verkefni og hefur
Reynald breytt sambærilegu hús-
næði í íbúðir, bæði á Akureyri og í
Reykjavík.
Í mars 2002 samþykkti bygging-
arnefnd Borgarbyggðar teikningar
að breytingum á 2. og 3. hæð húss-
ins í 16 leiguíbúðir. Áður hafði
Íbúðalánasjóður samþykkt að veita
hagstætt lán til byggingar leigu-
íbúðanna og að hluti lánsins félli
undir svo kallað átaksverkefni.
Breytingar á húsinu gengu greið-
lega. Ráðist var í að skipta alveg um
þak sem reyndist veigamesta ein-
staka aðgerðin. Að öðru leyti taldi
Reynald húsið vel byggt, súlur og
bita trausta auk þess sem lofthæð
væri góð. Lokaúttekt á íbúðunum 16
á 2. og 3. hæð fór fram 25. október
2002. Eftir nokkra umhugsun var
farið að athuga möguleika á kaupum
á 1. hæð í sama tilgangi. Hinn 23.
janúar sl. voru teikningar að breyt-
ingum 1. hæðar samþykktar og í
maí sl. fór fram lokaúttekt á 5 íbúð-
um á 1. hæð. Þær íbúðir eru tveggja
og þriggja herbergja að meðaltali 90
og 100 fermetrar að stærð. Í það
það heila er því tilbúin til notkunar
21 íbúð auk lítillar húsvarðaríbúðar
á liðlega 2.000 fermetrum. Verktími
var einungis sautján mánuðir í allt.
Allt eru þetta leiguíbúðir og
leiguverð er a.m.t. 30% ódýrara en
markaðsverð leiguíbúða á höfuð-
borgarsvæðinu.
Gamla kaupfélagshúsið
orðið að fjölbýlishúsi
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Borgarnes
GRETTISHÁTÍÐ var haldin í átt-
unda sinn í Húnaþingi vestra um
síðustu helgi. Sú nýbreytni var að
nú var boðið upp á Grettisvöku með
fjölbreyttu efni á laugardagskvöld í
Félagsheimili Hvammstanga.
Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur
flutti rímur m.a. nýbirt Grettisljóð
eftir Bólu-Hjálmar, Einar Kárason
rithöfundur kynnti frumhugmyndir
að kvikmyndatexta um Grettis-
sögu, Þórarinn Eldjárn las Grett-
isljóð og kafla úr skáldsögu sinni
Brotahöfuð, sem gerist að hluta til
á Bjargi í Miðfirði, Íþróttaleikhúsið
flutti leikverk úr sögunni og lék
m.a. örleik á sex sekúndum og
hljómsveitin Rain flutti nokkur lög.
Á sunnudag var svo fjöl-
skylduhátíð á Bjargi, í blíðskapar-
veðri. Þar var kynning á staðnum
og Grettissögu, farið í gönguferðir
um svæðið, leikir fyrir ungdóminn
og söngur við harmonikkuleik.
Kraftakeppnin dregur flesta að,
þar voru um tuttugu keppendur í
kvenna- og karlariðli. Hlutskörpust
urðu hjónin Hólmfríður Ósk Guð-
björnsdóttir og Hjörtur Einarsson
frá Reykjavík Grettisbikar karla
vann Reynir Guðmundsson og
kvenna Elín Anna Skúladóttir.
Stjórnandi keppninnar var Hjalti
Úrsus. Fjöldi fólks var á svæðinu
og naut veðurblíðu og skemmti-
legra atriða.
Grettishátíð
haldin í skín-
andi veðri
Hvammstangi
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Sigurvegari karlariðils, Hjörtur Einarsson, tekst á við stein. Sitjandi t.h. er
Hólmfríður, kona hans, sem var sigurvegari kvennariðils.
ÞAÐ er orðin hefð fyrir að veittar
séu viðurkenningar fyrir snyrtilegt
umhverfi lóða, bændabýla og fyr-
irtækja í Húnaþingi vestra. Við-
urkenningar fyrir árið 2003 voru
veittar á Hvammstanga hinn 18.
ágúst.
Arnar Birgir Ólafsson, umhverf-
is- og garðyrkjustjóri Húnaþings
vestra, gerði grein fyrir nið-
urstöðum viðurkenningarnefndar,
en hún hafði leitað eftir ábend-
ingum frá íbúum héraðsins. Við-
urkenningu í ár hlutu eftirtaldir.
Húseigendur við Hvamms-
tangabraut 29 og 31, þau Hrólfur
Egilsson og Guðrún Hauksdóttir og
Ágúst Oddsson og Elísabet Ein-
arsdóttir, en þau eiga samliggjandi
lóðir. Þá hlaut Heilbrigðisstofnun
Hvammstanga, Sjúkrahúsið, við-
urkenningu og bændabýlið á
Sauðadalsá á Vatnsnesi, en þar eru
ábúendur Heimir Ágústsson og
Þóra Þormóðsdóttir. Allir fengu
viðurkenningarskjal úr hendi El-
ínar R. Líndal, formanns byggð-
aráðs Húnaþings vestra.
Sigurður Eiríksson á Hvamms-
tanga afhenti Guðmundi H. Sig-
urðssyni teikningar og gögn sem
hann átti í fórum sínum frá upphafi
ræktunar trjágarðs við Heilbrigð-
isstofnun Húnvetninga. Frumgerð
skipulags var eftir Óla Val Hans-
son. Fegrunarfélagið, sem annaðist
gerð garðsins, var stofnað árið
1957 og stóð m.a. fyrir skemmtun
sumardaginn fyrsta. Ágóði
skemmtunarinnar rann síðan til
kaupa á trjáplöntum í garðinn.
Nú er þessi garður með fegurstu
blettum á staðnum, mörg grenitrén
8–10 metra há. Má telja þennan ár-
angur kraftaverk í trjárækt við
kalda sjávarströnd Húnaflóa.
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Frá verðlaunaafhendingunni, f.v. Arnar Birgir Ólafsson, Guðmundur H. Sigurðsson, Sigurður Eiríksson, Guðrún
Hauksdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Ágúst Oddsson, Þóra Þormóðsdóttir og Heimir Ágústsson.
Umhverfisviðurkenningar í Húnaþingi
Hvammstangi