Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 26
NEYTENDUR
26 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HEILSA
EF stutt er á milli fæðinga,
er líklegra að erfiðleikar við
fæðingu seinna barns verði
meiri en ef lengra líður á
milli, að því er segir í
breskri rannsókn en greint
var frá henni á fréttavef
BBC fyrir skömmu. Erf-
iðleikarnir gætu falist í að
barn fæðist fyrir áætlaðan
tíma, eða að barnið sé undir
meðalþyngd.
Prófessor Gordon Smith
við Cambridge-háskólann og
samstarfsfélagar hans unnu
rannsóknina sem byggð er á
89.000 konum í Skotlandi á
árunum 1992 til 1998.
Ein af hverjum 20 konum
hafði orðið barnshafandi aft-
ur innan sex mánaða frá
fyrri fæðingu og er talið að
þær konur eigi sér í lagi á
hættu meiri erfiðleika við
fæðingu seinna barnsins en
aðrar konur.
Í tímaritinu the Medical
Journal er haft eftir lækn-
unum sem unnu rannsóknina
að líkleg skýring sé sú að
líkaminn þurfi lengri tíma til
þess að jafna sig og því eigi
að vara allar konur við því
að fæða börn með mjög
stuttu millibili. Það eigi sér í
lagi við mjög ungar konur
og konur sem hafa orðið fyr-
ir barnsmissi.
„Konur eiga rétt á að fá
að vita að það er lítil en
greinileg meiri hætta á fyr-
irburafæðingu eða andvana
fæðingu ef mjög stutt er á
milli fæðinga,“ segja lækn-
arnir.
Meiri hætta
ef stutt er
á milli
fæðinga
Í ÁTTUNDA geðorðinu er velgengni í
lífinu líkt við langhlaup. Því betur sem
við undirbúum okkur fyrir langhlaupið
því minni hætta er á að við ofkeyrum
okkur. Það sama á við í lífinu, því betur
sem við undirbúum okkur fyrir það
sem á vegi okkar verður því betur
gengur okkur. Þess vegna er mik-
ilvægt að byggja sig upp og styrkja
bæði andlega og líkamlega.
Í dag er fólk orðið nokkuð vant
skyndilausnum og vill oft fá það sem
hugurinn girnist strax, án þess að
vinna fyrir því áður. Í nútíma-
samfélagi gengur þetta oft upp því hægt er að kaupa ýmsar vörur án þess að
vinna fyrir þeim áður. Leiðirnar til þess eru óteljandi og má þar nefna kred-
itkort, raðgreiðslur, léttgreiðslur, bílalán til margra ára og svona mætti lengi
halda áfram.
Skyndilausnir duga hins vegar ekki til að ná góðri heilsu, hamingju eða vel-
gengni í lífinu. Að ná velgengni í lífinu næst einmitt með því að takast á við
vandamálin og erfiðleikana, leyfa mótlætinu að þroska sig og uppskera sem
erfiði. Það er oft mun ánægjulegra að hljóta eitthvað sem maður hefur virki-
lega þurft að vinna fyrir heldur en að eignast það án nokkurrar fyrirhafnar.
Hvert svo sem markmiðið er skiptir öllu máli að gefast ekki upp. Það er
mikilvægt að gera ráð fyrir því að eitthvað muni fara úrskeiðis og ekki ganga
upp eins og áætlað var. Lífið er ekki alltaf sanngjarnt en öllu máli skiptir að
gera það besta úr því á hverjum tíma. Enginn einstaklingur er merkilegri en
annar og allir eiga skilið að búa við velgengni og vellíðan. Hver og einn hefur
mikið um eigin heilsu og líðan að segja. Hægt er að auðga lífið með því að taka
ábyrgð á andlegri jafnt sem líkamlegri heilsu og rækta hana.
Boðskapur geðorðanna, um það hvernig við náum velgengni og vellíðan í líf-
inu snýst um hugarfar, að hugsa jákvætt. Við þurfum að hlúa að þeim sem
okkur þykir vænt um og rækta fjölskyldu- og vináttubönd. Við þurfum að sýna
umburðarlyndi, læra af mistökum okkar og hreyfa okkur reglulega. Ef við
náum að framfylgja þessu aukum við líkur á velgengni og vellíðan í okkar lífi.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,
verkefnastjóri Geðræktar.
Frá Landlæknisembættinu
Heilsan í brennidepli
8. geðorð: Gefstu
ekki upp, velgengni
í lífinu er langhlaup
Skyndilausnir duga ekki til að
ná góðri heilsu, hamingju eða
velgengni í lífinu.
HAUSTIN eru tíminn sem fólk fer
að hugsa sér til hreyfings og flykkist
í líkamsræktarstöðvarnar. Margar
stöðvarnar eru með tilboð á verði á
haustin og var verð kannað óform-
lega hjá nokkrum líkamsrækt-
arstöðvum fyrir helgi.
Í líkamsræktarstöðinni Hress
verður tilboð til 1. september á
þriggja, sex og tólf mánaða kortum
þar sem einn aukamánuður fylgir
með, auk tveggja ljósatíma og
vatnsbrúsa. Fjórir mánuðir kosta
því 15.990 kr., sjö mánuðir 22.990
kr. og 13 mánuðir 29.990 kr. Einnig
er hægt að ganga í Vinaklúbbinn, og
skuldbinda sig til að greiða ákveðna
upphæð á mánuði í ákveðinn tíma,
og fer þá verðið lækkandi með
lengri binditíma. Til dæmis er hægt
að binda sig í sex mánuði fyrir 3.990
kr. á mánuði, eða 23.940 kr. samtals,
eða í 12 mánuði fyrir 3.490, sem eru
41.880 kr. samtals. Meðlimir í Vin-
aklúbbnum fá einnig ýmis fríðindi.
Kort sem keypt eru hjá Sport-
húsinu, Baðhúsinu og Þrekhúsinu
gilda á alla þrjá staðina. Árskort
kostar 29.900 kr. staðgreitt eða
2.990 kr. á mánuði í 12 mánuði með
greiðslukorti. Ef greitt er með
greiðslukorti kemst fólk í áskrift-
arklúbb sem gefur 15% afslátt af
ýmsum vörum og þjónustu ásamt
ýmsum tilboðum. Einnig er tilboð
þar sem þriggja mánaða kost er
keypt á 16.400 kr. og fylgir þá fjórði
mánuðurinn með. Kortin gilda einn-
ig í Vaxtarræktina á Akureyri með
skiptisamningum.
Hjá Hreyfingu er í gangi tilboð
fyrir skólafólk, 10 mánaða kort sem
greitt er mánaðarlega 2.490 kr, eða
24.900 kr. samtals. Annars gildir al-
mennt verð og er þá mánaðarkort á
7.920 kr., þriggja mánaða kort á
18.460 kr. og árskort á 48.780 kr.
Forsvarsmenn stöðvarinnar sögðu
að flestir viðskiptavinir stöðv-
arinnar keyptu kort á mán-
aðarlegum greiðslum með
ákveðnum binditíma, og eru þá
kortin ódýrari því lengri tíma sem
fólk bindur sig. Ef valinn er 12 mán-
aða binditími kostar mánuðurinn
4.469 kr, og þannig tímabilið allt
53.628 kr. Ef binditíminn er hafður
36 mánuðir eru greiddar 3.350 kr. á
mánuði, eða 40.200 kr á ári í þrjú ár.
Tilboð er í gangi á þriggja mán-
aða kortum í stöðvum World Class
Fellsmúla og Spöng út september,
9.900 kr. Jafnframt er tilboð á árs-
kortum í World Class Austurstræti
og kostar kortið 49.900 kr., en fullt
verð er 74.990 kr. Jafnframt segir
eigandi að kort sem gildi lengur
komi til með að gilda í nýrri stöð í
Laugardalnum frá og með 3. janúar
2004 og gefa aðgang að sundlaug-
inni líka. Í Veggsport er boðið upp á
níu mánaða kort fyrir skólafólk í
skvass, spinning, þolfimi og tækja-
sal á 25.500 kr. Einnig er tilboð fyrir
fjölskyldur, árskort fyrir alla fjöl-
skylduna, óháð fjölda fjölskyldu-
meðlima, kostar 8.900 kr. á mánuði.
Verð á þriggja mánaða korti í
skvass, spinning, þolfimi og tækja-
sal kostar 14.900 kr. í Veggsport.
Árskort af sama tagi kostar 38.500
kr.
Í Gym líkamsrækt er hægt að fá
tilboð fyrir námsmenn, átta mánaða
kort á 16.000 kr., innifalið er mæting
í spinningtíma, afsláttur af tímum
og hjá ýmsum verslunum og veit-
ingastöðum. Ef hjón eða sambúð-
araðilar kaupa bæði árskort fá þau
kortin á 20.000 krónur hvort. Ekki
er tilboð á öðrum kortum, en mán-
aðarkort kostar 7.500 kr., þriggja
mánaða kort kostar 10.500 kr., sex
mánaða á 18.000 kr. og árskort kost-
ar 29.900 kr.
Tilboð eru í gangi á mán-
aðarkortum, þriggja mánaða kort-
um og árskortum hjá Betrunarhús-
inu, og er verðið 3.490 fyrir
mánuðinn, 9.900 fyrir þrjá mánuði
og 29.900 fyrir árskort. Innifalið í
kortunum er þátttaka í öllum opn-
um tímum og afnot af tækjasal.
Hjá Technosport er tilboð í gangi
á þriggja mánaða kortum, sem
kosta 15.900 kr. og fylgir nú fjórði
mánuðurinn frítt með. Einnig er til-
boð á árskorti á 29.900 kr., og gilda
bæði tilboðin til 15. september.
Hjá Ræktinni fengust þær upp-
lýsingar að ekki verði um föst tilboð
að ræða heldur reynt að halda verð-
inu samkeppnishæfu og vera hugs-
anlega með einhver dagstilboð. Þar
kostar mánaðarkort 6.800 kr. Þrír
mánuðir á 15.900 kr. Námsmenn
geta svo keypt sex mánaða kort á
21.500 kr. og árskortið á 32.500 kr.
Hjá Átaki heilsurækt á Akureyri
er opnunartilboð enn í gangi, og
verður til 5. september. Þá kostar
þriggja mánaða kort 14.900 kr. og
fylgir fjórði mánuðurinn frítt með.
Sex mánaða kort með tveim fríum
mánuðum 24.900 kr. og árskort með
þremur aukamánuðum kostar
36.900 kr. Einnig eru tilboð fyrir
skólafólk og eldri borgara, einn
mánuður á 5.300 kr., þriggja mán-
aða kort á 11.950 kr. og árskort á
29.900 kr.
Í Vaxtarræktinni á Akureyri eru
ekki sérstök tilboð í haust, fyrir ut-
an 10% afslátt til skólafólks. Þar
kostar mánuðurinn 5.300 kr., þrír
mánuðir 11.900 kr., sex mánuðir
19.700 kr. og árskort kostar 31.900
kr. Kortin gilda einnig hjá Sport-
húsinu, Baðhúsinu og Þrekhúsinu
með skiptisamningum.
Verðkönnun hjá líkamsræktarstöðv-
um sýnir umtalsverðan mun á verði
Morgunblaðið/Kristinn
Nú fer að líða að því að líkamsræktarstöðvarnar fyllist á ný.
Víða tilboð í
líkamsræktar-
stöðvar í haust BRESKIR vísindamenn telja sig hafakomist að því hvernig mikilvægt lyfgegn malaríu vinnur á sjúkdómnum.
Uppgötvunin gæti orðið til þess að
auðveldara yrði að sporna við sjúk-
dómnum í framtíðinni, að því er segir
á fréttavef BBC.
Malaría verður um það bil einni
milljón manns að bana á hverju ári, en
bresku vísindamennirnir telja að ný
meðferð geti dregið úr dauðsföllum.
Lyfið sem um ræðir kallast artem-
isinins og er unnið úr kínverskri jurt
sem kallast quingao eða malurt.
Jurtin hefur lengi verið nýtt gegn
malaríu í Kína en undanfarin ár hefur
kraftur jurtarinnar verið nýttur í
mikilvæga tegund malaríulyfja en
sníkjudýrin þ.e. moskítoflugurnar
sem valda oft sjúkdómnum hafa þró-
að með sér mótstöðu gegn mörgum
öðrum lyfjum.
„Þetta lyf er því nánast síðasta
hálmstráið,“ segir formælandi rann-
sóknarinnar, dr. Sanjeev Krishna frá
St. George sjúkrahúsinu í London.
Undir forystu Dr. Krishna hafa vís-
indamennirnir komist að því að lyfið
vinnur þannig að það ræðst á mik-
ilvægan hluta í frumum sníkjudýrs-
ins, þann sem sér um að dæla kalsíum
um frumurnar.
Þessi uppgötun mun verða til þess
að unnt verður að þróa nýtt lyf sem
vinnur á svipaðan máta, er haft eftir
dr. Krishna á BBC og einnig á þessi
kunnátta eftir að verða til þess að
auðveldara verður að fylgjast með því
hvort moskítoflugur séu að þróa með
sér viðnám gegn umræddu lyfi.
Spornað við
malaríu
AP
Uppgötvun breskra vísindamanna gæti orðið til þess að auðveldara verður að sporna við malaríu í framtíðinni.