Morgunblaðið - 23.08.2003, Síða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 41
✝ Ólafur KristinnSveinsson fæddist
í Vesturbotni 8. mars
1928. Hann lést 14.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar Ólafs voru
Guðný Kristjana
Ólafsdóttir og Sveinn
Jónsson, lengst bænd-
ur á Sellátranesi við
Patreksfjörð. Eftirlif-
andi systir Ólafs er
Una, f. 2. nóv. 1931.
Ólafur var tví-
kvæntur. Fyrri kona
hans var Jóhanna
Valdimarsdóttir frá
Krossi á Barðaströnd. Hún dó í
janúar 1954 eftir um það bil
tveggja mánaða hjónaband. Síð-
ari kona Ólafs var Gréta Árna-
dóttir frá Reykja-
vík og bjuggu þau
á Sellátranesi allan
sinn búskap. Börn
þeirra eru: Guðni,
f. 14. október.
1957, búsettur í
Tálknafirði, Krist-
ín, f. 8. mars. 1959,
búsett í Tálkna-
firði, María, f. 5.12.
1960, búsett í
Hænuvík, og
Sveinn, f. 5.4. 1971,
búsettur í Reykja-
vík. Þau Ólafur og
Gréta slitu sam-
vistum.
Útför Ólafs verður gerð frá
Sauðlauksdalskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Hann afi Óli minn er nú látinn og
situr hjá Guði að hvíla lúin bein.
Mig langar að minnast hans með
nokkrum orðum sem vonandi varpa
ljósi á það hversu yndislegur maður
hann afi minn var.
Mín fyrsta minning af honum afa
Óla, eins og hann var oft kallaður,
var þegar hann kom í heimsókn til
okkar í Móatún 7, heima á Tálkna-
firði. Hann keyrði þá gamlan Land
Rover sem hafði þessa sveitalykt
inní sér. Lykt sem minnti á kind-
urnar í sveitinni og sandinn í fjör-
unni. Allir á heimilinu voru svo
spenntir að sjá þennan viðkunnan-
lega mann, hann var iðulega klædd-
ur í köflótta skyrtu, gráar buxur og í
svörtum „bomsum“ sem skildu eftir
sig sand við hvert fótspor. Hann
kyssti alla á kinnina og sagði bless.
Það var alltaf svo góð lykt af honum,
alveg eins og var af pabba á jól-
unum. En það var eitt sem ég skildi
ekki með hann afa þegar ég var lítill.
Hann sagði alltaf bless þegar hann
var að koma.
Afi Óli átti heima í ævintýralandi
langt út í sveit. Það var langur og
hættulegur vegur til hans, vegur
sem margir fullorðnir þorðu ekki að
keyra. Vegurinn lá eins og eitur-
slanga utan á háu fjöllunum. Ég lok-
aði oft augunum á leiðinni því ég var
svo hræddur.
Þegar loks var komið í sveitina
var alltaf nóg að gera. Þar voru til
allskyns tæki og tól sem ég hafði
einungis séð í bíómyndum. Einnig
voru þar hús og kofar sem voru
mörg eldri en afi.Svo var auðvitað
litli hvíti bærinn hans, þar sem
mamma ólst upp og „frammfrá“
húsin þar sem allt dótið hans afa
var. Hrognahöllin var í fjörunni þar
sem afi landaði aflanum sínum. Yfir
öllu gnæfði svo stóri hvíti vitinn sem
lýsti upp hafið fyrir skipin og bátana
sem rötuðu ekki heim. Stundum fór
afi meira að segja með okkur í vit-
ann og sýndi okkur alla sveitina úr
ljóshúsinu. Þau voru mörg leiksvæð-
in í sveitinni, uppá tjörn voru oft
háðar miklar sjóorrustur og niðri í
fjöru risu heilu borgirnar úr gömlu
drasli sem afi hafði ekki not fyrir
lengur. Sama hvað árin líða, verð ég
alltaf sami strákurinn og þá, þegar
ég kem í sveitina þína, afi.
Þú varst svo góður, afi minn. Ég
fyllist ávallt miklu stolti þegar ég
segi fólki að Ólafur á Nesi hafi verið
afi minn.
Í augum svo margra varstu
ódauðlegur, þú varst gimsteinn hins
góða í heiminum. Aldrei heyrði ég
þig tala illa um nokkurn mann.
Mér er það oft minnisstætt þegar
ég og vinir mínir ákváðum að keyra
að Látrabjargi og skoða sveitina. Sú
ferð gekk ekki betur en svo að við
festum bílinn okkar á miðju túninu í
Breiðuvík og gátum ómögulega los-
að hann. Bóndinn á bænum varð svo
öskuvitlaus að hann hótaði að
hringja á lögregluna og kæra okkur.
En þegar ég loks kom því uppúr
mér að ég væri barnabarn hans Óla
á Nesi, þá bauðst hann til þess að
draga okkur alla leið á Tálknafjörð.
Svona varstu mikils metinn og virt-
ur, afi minn.
Ég kynntist því vel þegar faðir
minn heitinn kvaddi okkur, að allir
deyja einhvern tímann. En innst
inni fannst mér, eins og mörgum
öðrum, að þú myndir ekki kveðja
okkur svona fljótt. Allir verða víst að
ganga sinn veg í lífinu og við stjórn-
um því miður ekki þessu vegakerfi.
Það voru mikil forréttindi að fá að
kynnast þér, afi minn. Ég mun aldr-
ei gleyma þér, afi Óli, ég kveð þig
með söknuði og sorg í hjarta.
Þinn góði vinur og barnabarn
Ólafur Sveinn Jóhannesson.
Við sátum saman hlið við hlið í
sófanum og ræddum andleg mál og
það hvernig hin ýmsu óhöpp verða
ekki útskýrð, hvernig spurningarn-
ar hrannast upp og engin eru svörin.
Þetta var í mars, ekki datt mér í hug
að ég mundi minnast þessarar
stundar svona stuttu seinna.
Hann Óli var engum líkur, hann
var svo mikill þúsundþjalasmiður og
kom ekki svo nálægt biluðu tæki,
hvort sem það var bíll eða eitthvað
annað, að það færi ekki fljótlega í
gang. Einu sinni fékk ég meira að
segja sendingu í pósti, „járnhólk“
eða svo leit það út fyrir mér og ég
gat ekki með nokkru móti ímyndað
mér hvað þetta væri. Skýringin var
einföld, þetta var lykill til þess að
herða upp hjólalegu, sem vildi svo til
að var biluð. Hann vissi nákvæmlega
hvernig þetta leit allt út og smíðaði
bara í snarheitum einn svona grip
fyrir son sinn og sendi suður.
Einnig er mér í fersku minni ferð
er við fórum sumarið ’96, þá bauð
Óli okkur í siglingu á grásleppu-
bátnum Guðnýju. Hann sýndi okkur
alla þá fínu staði, sem hann og nafni
hans nýttu sér til þess að fara í var
„eða bara til þess að fela sig á“ á
Blakksnesinu þau sumur sem þeir
voru á grásleppu. Hann þekkti
hvern einasta stein, hverja snös og
hverja syllu með nafni. Hann átti
sögu um flesta þessa staði og sagði
frá þeim öllum.
Þarna var Óli í essinu sínu og við
skemmtum okkur stórkostlega.
Áfram var ferðinni haldið og þá und-
ir Látrabjarg. Tóku þá við hinar
ýmsu sögur um það, hvernig fólk
hættir lífi sínu til þess að fá bestu
heyin eða ná sér í björg í bú. Þessi
ferð er mér nú í svo fersku minni því
hún lýsir honum svo vel.
Hann elskaði náttúruna og mat
hana svo mikils, hann hafði frábæra
frásagnargáfu og svo þægilega nær-
veru. Mér er nú ljóst hversu mikið
kynslóðabil var á milli mín og
tengdaföður míns. Ég hefði viljað
kynnast honum miklu fyrr. En
minningarnar lifa og við getum miðl-
að af þeim dýrmæta sjóði til barna
okkar. Innilegar þakkir fá allir sem
sýndu samhug og hjálpsemi á erfiðri
stundu.
Nú skil ég stráin, sem fönnin felur
og fann þeirra vetrarkvíða.
Þeir vita það best, sem vin sinn þrá,
hve vorsins er langt að bíða.
En svo fór loksins að líða að vori
og leysa mjallir og klaka.
Ég fann, að þú varst að hugsa heim
og hlaust að koma til baka.
Þú hlýtur að vera á heimleið og koma
með heita og rjóða vanga,
því sólin guðar á gluggann minn,
og grasið er farið að anga.
(Davíð Stefánsson.)
Steinunn Rán Helgadóttir.
Óli á Nesi er horfinn úr heimi.
Minnst er nágranna, sem aldrei
brást þegar á þurfti að halda. Manns
sem leysti vandann, þegar aðrir
höfðu horfið frá. Nauðleitarmaður.
Eðlilegu endurgjaldi varð oft illa við
komið, bæði vegna stærðar greiðans
og hins að greiðamaðurinn lifði sam-
kvæmt boðorðinu að sælla er að gefa
en þiggja.
Óli var fæddur í Vestur-Botni við
Patreksfjörð og ólst þar upp, en
flutti út að Sellátranesi með foreldr-
um sínum á fimmta áratug síðustu
aldar. Búið var örsmátt, jafnvel á
þeirrar tíðar mælikvarða, nægju-
semin í hámarki en hagur þó ekki
slæmur. Fjölskyldan hafði einhvern
veginn lag á því að gera sér allt úr
engu. Þar lék einkasonurinn stórt
hlutverk, hann var með eindæmum
úrræðagóður, handlaginn og nýjasta
tækni var honum mikið áhugamál.
Þannig var hann snemma búinn að
koma upp vatnsrafstöð í bæjarlækn-
um, og bærinn á Nesi var með
fyrstu bæjum sveitarinnar, sem
slíkra hlunninda nutu. Fljótlega
kölluðu þó störf utan heimilis og
stjórnaði hann jarðýtu, sinnti
minkaleit, hafði eftirlit með endur-
vörpum á fjöllum uppi og gætti vita,
sem stendur við túnfótinn á Nesi. Þá
rak hann bílaverkstæði á Nesi um
margra ára skeið.
Í nóvember 1953 gekk Óli að eiga
Jóhönnu Valdimarsdóttur frá Krossi
á Barðaströnd. Tveim mánuðum síð-
ar var hann orðinn ekkjumaður, en
Jóhanna dó í janúar 1954 úr svokall-
aðri slagaveiki, sem lagst hefur í
vissar ættir þar vestra.
Öðru sinni giftist Óli, nú stúlku úr
Reykjavík, Grétu Árnadóttur. Með
henni átti hann fjögur börn og var
Nesfjölskyldan allstór um tíma, því
að gömlu hjónin Sveinn og Guðný
voru til heimilis á Nesi til andláts-
dægra. Gréta flutti aftur til Reykja-
víkur og var Óli síðast einn á Sel-
látranesi.
Með fráfalli Óla eru orðin viss
þáttaskil. Kvaddur er einhver vin-
sælasti sveitungi þeirra sem enn
þrauka í Rauðasandshreppi. Gamli
bærinn, sem var heimili þessarar
vönduðu og lítillátu fjölskyldu, hefur
væntanlega lokið hlutverki sínu, og
hafa örugglega fáar byggingar í
landinu verið nýttar svo til hlítar, ef
litið er til verðgildis. Börn þeirra Óla
og Grétu hafa nú komið sér upp
sumarhúsi á Nesi, svo að aldrei hef-
ur verið reisulegar byggt á þessu
smábýli en einmitt nú þegar enginn
á þar lögheimili. „Nútíminn er
trunta, með tóman grautarhaus“ er
sungið. Óli var gamansamur í betra
lagi og laðaði að sér yngra fólk með
ýmsum uppátækjum og fyndnum
frásögnum. Þá var Óli einstakur
dýravinur og lagði sig eftir því að
kynnast lífsháttum villtra dýra og
fugla. Hrafn og tófa voru honum sí-
vinsælt athugunarefni.
Á seinni árum stundaði hann
ferðalög, bæði innanlands og erlend-
is, og naut hann þeirra vel og ekki
síður ferðafélagarnir, sem fengu þar
traustan og skemmtilegan ferða-
félaga.
Óli hefur farið í sína síðustu ferð
og kannar nú annað tilverustig,
bjartara og fegurra en við dauðlegir
þekkjum. Líkami hans verður lagð-
ur til hinstu hvílu í Sauðlauksdals-
kirkjugarði laugardaginn 23. ágúst.
Megi drottinn blessa allt hans mikla
starf, sem gjarna var unnið í kyrr-
þey og án þess að hrópað væri um
það á torgum. Sérstakar þakkir eru
færðar frá nágrönnum, sem nutu
hjálpsemi hans í tíma og ótíma.
Megi minningin um gæfusaman
föður og afa verða börnum, barna-
börnum og barnabarnabörnum
huggun og hlíf á lífsins vegum.
Sigurjón Bjarnason
frá Hænuvík.
Elsku afi Óli.
Ég man þegar við hittumst fyrst,
ég kom í fallegu sveitina þína á
Hvítasunnu. Það var blíðskapar veð-
ur og fjölskyldan var saman komin
að halda mikla grillveislu. Þú varst
svo myndarlegur maður, ég hugsaði
strax: Mikið er hann er afalegur. Þú
gafst frá þér útgeislun og góðvild
sem ég gleymi aldrei. Sveitin þín
fjaran og vitinn, það var svo fallegt
um að litast, þessi helgi var full-
komin.
Ég fékk aldrei tækifæri til að
segja þér hvað mér þótti vænt um
þig. En ég held að þú hafir vitað það
því þú heilsaðir og kvaddir mig alltaf
svo innilega, mér leið svo vel í návist
þinni.
Guð geymi þig.
Rakel Guðbjörnsdóttir.
Óli frændi minn og vinur er látinn,
það er dapurlegt og ekki hægt að
sætta sig við. Ég kynntist Óla fyrst
þegar ég var sex ára gamall og hann
var ásamt Bjarna félaga sínum að
leggja bílveg að Hvallátrum. Það
var hlutverk mitt að færa honum
kaffi á staðinn og fékk þá stundum
að sitja í ýtunni hjá honurn.
Ég bar það undir mömmu hvort
það væri óhætt, en hún sagði að hon-
um gæti ég treyst og voru það orð
að sönnu.
Vinátta okkar Óla óx með árunum
og varð hann minn besti vinur alla
tíð. Hann var einstakur maður á svo
margan hátt. Allt sem hann tók sér
fyrir hendur leysti hann betur en áð-
ur hafði þekkst. Það lék allt í hönd-
um hans og vandvirkni og hjálpsemi
var honum í blóð borin, þannig að
allt var svo öruggt sem hann kom að
bæði í leik og starfi.
Minningar mínar um Óla eru
margar og ljúfar, öll ferðalög okkar
um fjöll og dali og allar veiðiferð-
irnar eru ógleymanlegar. Reynsla
hans var svo mikil á flestum sviðum
að hann átti fáa sér líka ef nokkurn.
Ég hef heyrt sögur af afburða
mönnum en engan hitt í líkingu við
hann. Það voru forréttindi að vera
honum samtíða. Hans ævistarf er
gríðarlegt. Það votta verkin hans og
óteljandi smíðisgripir sem fínna má
á hverjum einasta bæ í hans heima-
sveit og víða um land.
Nú hefur orðið breyting á, allt er
hljótt á verkstæðinu hans þar sem
hann stóð frá morgni til kvölds ára-
tugum saman. Bandsögin hans
stóra er hætt að snúast, einnig
rokkar og rennibekkir. Túrbínan
bíður fullsmíðuð rétt ókomin á sinn
stað. Þú hefur nú lagt árar í bát í
hinsta sinn hér á jörð og lokið þínu
mikla starfi.
Að lokum vil ég þakka honum
fyrir allt sem hann gerði fyrir mig
og mína fjölskyldu og foreldra
mína og systur á Hvallátrum. Ég
votta fjölskyldu og hans mörgu vin-
um mína dýpstu samúð. Megi guð
vera með ykkur öllum.
Kristinn Guðmundsson.
Hann Óli á Nesi er dáinn, þessi
grandvari ljúflingur sem ekki mátti
vamm sitt vita á nokkurn hátt er
horfinn okkur vinum hans.
Við kynntumst fyrst í Tálknafirði
á sundnámskeiði, ég sem þetta
skrifa 12 ára en Óli 14 ára.
Síðan vissum við hvor af öðrum en
höfðum ekki mikið samband fyrr en
síðustu áratugina sem við lifðum
báðir, en þá varð til frá beggja hálfu
djúp vinátta. Ólafur var mjög ungur
með ólíkindum hugkvæmur og lag-
inn í viðgerðum á nánast öllum
sköpuðum hlutum, og í mörgum til-
fellum verkefni sem fagmenn töldu
ekki fært að leysa af hendi. Svo viss
var hönd og hugur frjór að það að
gefast upp var ekki til í orðabók Óla
á Nesi.
Á litla býlinu sem hann var á
mestalla ævi sína, Sellátranesi við
Patreksfjörð, batt hann órofa
tryggð, þarna byggði hann í læknum
rafstöð til ljósa aðeins 16 ára gamall.
Honum þótti vænt um fjörðinn og
umhverfið, heill og sannur Vestfirð-
ingur.
Ég er viss um að hefði hann mátt
velja hefði hann kosið að deyja
svona, við bátinn sinn í fjörunni sem
hann þekkti svo vel.
Ég bið Guð almáttugan að vera
með þér ljúfi drengur.
Þórarinn Samúels
frá Krossadal.
ÓLAFUR KR.
SVEINSSON
Hann var besti afi í heimi. Hann
var náttúrumaður og hafði gaman
af því að veiða. Stundum smíðaði
hann mikið en stundum lítið.
Hann fór oft í gönguferðir með
vídeóið sitt. Hann hafði alltaf eitt-
hvað að gera. En nú sakna ég
hans mikið því nú er hann bara
fallegur engill.
Sædís Rán Sveinsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
Genginn er mætur maður sem
starfaði með mér að héraðsstjórn
prófastsdæmisins.
Sól rís, sól sest.
Mínir vinir fara fjöld,
feigðin þessa heimtar köld.
Ég kem á eftir, kanske í kvöld,
með klofinn hjálm og rofinn skjöld,
brynju slitna, sundrað sverð og
syndagjöld.
(Bólu-Hjálmar.)
Séra Flosi Magnússon
prófastur.
Elskulegur sonur minn,
GUÐLAUGUR SVEINN SIGURÐSSON,
Mánagötu 25,
Reyðarfirði,
varð bráðkvaddur aðfaranótt fimmtudagsins
21. ágúst.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Sveinsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
EINAR KR. EIRÍKSSON
frá Brekku, Fáskrúðsfirði,
Seljahlíð,
Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 13. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 25. ágúst kl. 13.30.
Kristbergur Einarsson,
Pétur Einarsson, Margrét Aðalsteinsdóttir,
Matthildur Einarsdóttir, Ólafur Ben Snorrason,
Erlingur Einarsson, Hanna Júlíusdóttir,
Stefán Einarsson, Þuríður Júlíusdóttir
og afabörnin.