Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 46
KIRKJUSTARF/MESSUR
46 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fríkirkja og Þjóð-
kirkja í hafnfirsku
samstarfi
ELSTA og yngsta kirkja Hafn-
arfjarðar tóku höndum saman um
fermingarundirbúning í Áslands-
hverfi og á Völlum, nýjustu hverf-
um Hafnarfjarðar.
Hugmyndin fæddist á sameig-
inlegum fundum hafnfirskra presta
sl. vetur. Fríkirkjubörnin eru um
þriðjungur fermingarbarna í Ás-
landshverfinu og þar sem svo stór
hluti árgangs er saman í bekk, tóku
kirkjurnar þá ákvörðun að skipta
honum ekki upp eftir kirkjudeild-
um.
Samstarfið nær til sameiginlegra
þemaguðsþjónusta og uppfræðslu.
Fyrsta sameiginlega guðsþjón-
usta þessara tveggja kirkna er nk.
sunnudag, 24. ágúst 2003 í sam-
komusal Hauka á Ásvöllum kl.
17:00.
Þar verður samtalsguðsþjónusta
leidd af sr. Carlos Ferrer, sr. Einari
Eyjólfssyni og sr. Sigríði Kristínu
Helgadóttur.
Fermingarbörn
og djákni í
Hallgrímskirkju
HÁTÍÐ verður í Hallgrímskirkju á
morgun, sunnudaginn 24. ágúst.
Tilefnið er tvöfalt. Ferming-
arfræðsla er hafin og í guðsþjón-
ustu kl. 11 árdegis verða ferming-
arbörn næsta vors kynnt
söfnuðinum. Foreldrar og aðstand-
endur fermingarbarnanna eru
hvattir til messuþátttöku.
Þá verður Magnea Sverrisdóttir
boðin velkomin til starfa sem djákni
Hallgrímssafnaðar. Magnea hefur
starfað sem fræðslufulltrúi hjá
söfnuðinum en hefur nú verið ráðin
djákni.
Eftir guðsþjónustu verður
messukaffi og eru allir velkomnir.
Prestarnir.
Skráning í safnaðar-
ferð Árbæjar- og
Grafarholtssóknar
ÁRLEG safnaðarferð Árbæjar- og
Grafarholtssóknar verður farin
sunnudaginn 31. ágúst. Lagt verður
af stað frá Árbæjarkirkju kl. 10 ár-
degis og haldið sem leið liggur til
hins merka kirkjustaðar Hruna í
Hrunamannahreppi. Þar tekur
sóknarpresturinn sr. Eiríkur Jó-
hannsson á móti hópnum.
Í kirkjunni verður helgistund og
stutt ágrip af sögu staðarins í umsjá
sr. Eiríks. Hádegisnesti verður
snætt að stundinni í kirkjunni lok-
inni. Frá Hruna verður haldið um
Brúarhlöð að Gullfossi og Geysi. Á
heimleiðinni verður stoppað við
Vígðulaug á Laugarvatni og Í Eden
í Hveragerði. Frá Hruna að Laug-
arvatni sér Óskar H. Ólafsson leið-
sögumaður um leiðsögn.
Þátttakendur taki með sér nesti
til dagsins en stefnt er að heim-
komu eigi síðar en kl. 17.
Skráning fer fram í Árbæj-
arkirkju alla næstu viku milli kl. 10
og 12. Allir hjartanlega velkomnir.
Fermingarbörn
í Neskirkju
FERMINGARBÖRN í Neskirkju,
sem hafa verið á námskeið í kirkj-
unni alla vikuna og fræðst um
kristna trú, eru boðuð til messu á
morgun, sunnudag kl. 11, ásamt
foreldrum sínum, og fá þau þá að
ganga til altaris í fyrsta sinn. Með
námskeiðinu er lokið fyrri hluta
fræðslunnar.
Í vetur mæta þau síðan í messur
og á æskulýðsfundi, vinna verkefni
eftir hverja messu, taka þátt í söfn-
unarátaki fyrir Hjálparstarf kirkj-
unnar og loks eru æfingar í vor þar
sem þau eru prófuð í kunnáttu á
vissum sviðum.
Sumarnámskeiðið er nú haldið
fjórða árið í röð og hefur þetta fyr-
irkomulag mælst vel fyrir. Að auki
er í boði vetrarnámskeið handa
börnum sem ekki gátu af ein-
hverjum ástæðum verið með á sum-
arnámskeiðinu. Kennt verður einu
sinni í viku og hefst kennslan í
fyrstu viku september. Væntanleg
fermingarbörn sem ekki hafa enn
skráð sig á námskeið eru beðin um
að gera það hið fyrsta í síma 511
1560, með tölvupósti á neskirkja-
@neskirkja.is eða á skrifstofunni í
kjallara kirkjunnar við Hagatorg.
Tímamót hjá
Hjálpræðishernum
NÚ eru tímamót í sögu Hjálpræð-
ishersins á Íslandi. Nýir lands-
leiðtogar taka við störfum þessa
helgi, þau hjónin Anne Marie og
Harold Reinholdtsen, majórar.
Þau eru mörgum vel kunn hér á
Íslandi, þau hafa starfað í mörg ár
bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Umdæmisleiðtogar Noregs, Fær-
eyja og Íslands, Kommandörarnir
Berit og B. Donald Ödegaard, koma
til að setja þau inn í stöðuna á Ak-
ureyri á laugardagskvöld og í
Reykjavík á sunnudagskvöld.
Ísland og Færeyjar hafa áður
verið ein deild undir sömu stjórn,
en nú verður Ísland sér umdæmi og
mun Majór Anne Marie axla aðal-
ábyrgð á starfinu.
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks
er bent á guðsþjónustur í nágrannakirkjun-
um.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar. Sönghópur úr
Dómkórnum syngur. Organisti Marteinn H.
Friðriksson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl 11:00.
Furugerðiskórinn syngur undir stjórn Ing-
unnar Guðmundsdóttur. Kirkjukór Grensás-
kirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson.
Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 10:15. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Sr. Hreinn S. Hákonarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson prédikar. Hópur úr Mót-
ettukór syngur. Organisti Hörður Áskels-
son.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Organ-
isti Douglas A. Brotchie. Væntanlega ferm-
ingarbörn mæti. Sr. Tómas Sveinsson.
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús: Hring-
braut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr. Sigfinn-
ur Þorleifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11:00. Félagar úr Kór
Langholtskirkju syngja. Organisti Jón Stef-
ánsson. Prestur Jón Helgi Þórarinsson.
Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20:00. Kór Laugarneskirkju syngur undir
stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista.
Sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt Sigurbirni
Þorkelssyni. Stúlkur, sem fermdust sl. vor
annast barnagæslu meðan á prédikun og
altarisgöngu stendur. Messukaffi.
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Prestur sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11:00. Organisti Viera Manasek. Prestur
sr. Arna Grétarsdótitr.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjónusta kl.
20:30.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Almenn guðs-
þjónusta klukkan 11:00. Barn borið til
skírnar. Fermingarbörn sem hafa verið í
fermingarskóla Fríkirkjunnar síðastliðna
viku aðstoða í guðsþjónustunni. Allar nán-
ari upplýsingar um fermingarstarfið er hægt
að nálgast á heimasíðu kirkjunnar www.fri-
kirkjan.is. Allir velkomnir. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Sr. Sigrún Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir
söng undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár
organista. Molasopi í safnaðarheimilinu
eftir guðsþjónustu.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Org-
anisti Jón Bjarnason. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Sameiginleg kvöld-
messa Digranes- og Lindasókna kl. 20:30.
Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Ömmurn-
ar leiða söng.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Organisti: Lenka Mátéová. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar leiða almennan
safnaðarsöng.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta í
Grafarvogskirkju kl. 11:00. Séra Vigfús Þór
Árnason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Guð-
laugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl. 20.
Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr
kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðar-
söng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Við
minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðju-
dag kl. 18. (sjá nánar á hjallakirkja.is).
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11:00. Séra Karl V. Matthíassson prédikar
og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópa-
vogskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti
Julian Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA: Sameiginleg kvöldmessa
Digranes- og Lindasókna í Digraneskirkju
kl. 20:30. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson.
Ömmurnar leiða söng.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Organisti Jón
Bjarnason. Kór Seljakirkju leiðir söng. Alt-
arisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Almenn sam-
koma kl. 20 á Bíldshöfða 10. Ræðumaður:
Ingimundur Olgeirsson. Lofgjörð og fyrir-
bænir.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11:00.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Bibl-
íufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boð-
un FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Í dag, laugardag, kl.
14: Útisamkoma á Lækjartorgi. Sunnudag-
ur: Kl. 19.30 bænastund. Kl. 20 nýir yf-
irmenn starfsins á Íslandi, majórarnir Anne
Marie og Haröld Reinholdtsen, verða settir
inn í starfið. Kommandörarnir Berit og B.
Donald Ödegaard, taka þátt.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Sunnudaginn 24. ágúst er samkoma
kl. 20.00. Sigrún Einarsdóttir talar. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1–7
ára börn á samkomutíma. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Húsið er opn-
að kl. 20:00. Seldar verða kaffiveitingar á
góðu verði. Samkoman hefst kl. 20:30. Er
lífið dans á rósum? Þórunn Elídóttir kenn-
ari. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Laugardagur 23. ágúst:
Bænastund kl. 20:00. Opinn AA-fundur í
kjallara kl. 20:15. Sunnudagur 24. ágúst:
Almenn samkoma kl. 20:00. Ræðumaður
Vörður Leví Traustason. Mikil lofgjörð og fyr-
irbæn. Allir hjartanlega velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Hámessa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka
daga: Messa kl. 18.00. Sunnudaginn 24.
ágúst: Biskupsmessa kl. 10.30. Keith
ÓBrien, erkibiskup í Edinborg, Skotlandi, er
í heimsókn og messar ásamt biskupi okk-
ar.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00. Miðvikudaga kl. 20.00
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00.
Ísafjörður: Sunnud: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugard: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnud: Kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnud: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl.
18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl.
11:00 Guðsþjónusta. Kór Landakirkju
syngur, leikinn verður einleikur á selló. Org-
anisti er Jóhanna Wlaszczyk og prestur sr.
Þorvaldur Víðisson. Molakaffi í safnaðar-
heimilinu eftir messu. Kl. 12:30 Guðsþjón-
usta á Hraunbúðum. Kór Landakirkju syng-
ur, prestur sr. Þorvaldur Víðisson.
Viðtalstími presta kirkjunnar er þriðjudaga
til föstudaga kl. 11:00–12:00. Sími vakt-
hafandi prests er 488-1508. Þess má geta
að styttast fer í upphaf barnastarfs kirkj-
unnar. Það hefst 7. september með fjöl-
skylduguðsþjónustu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morgunsöng-
urkl.10:30. Organisti. Antonía Hevesi.
Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Kvöldmessa kl.
20. Hugleiðingarefni kvöldsins er: Hvar er
ríki Guðs og réttlæti að finna? Örn Arnarson
ásamt hljómsveit og kór kirkjunnar leiðir
söng. Að lokinni messu er kaffi í safnaðar-
heimilinu. Einar Eyjólfsson, Sigríður Kristín
Helgadóttir.
ÁSTJARNARSÓKN í Hafnarfirði: Samtals-
guðsþjónusta í Samkomusal Hauka á Ás-
völlum, sunnudagurinn 24. ágúst 2003 kl.
17:00. Sr. Carlos Ferrer, sóknarprestur, sr.
Einar Eyjólfsson, fríkirkjuprestur og sr. Sig-
ríður Kristín Helgadóttir, prestur hjá Fríkirkj-
unni leiða helgihaldið og samtalið. Léttar
veitingar og spjall eftir guðsþjónustu. Ferm-
ingarbörn Áslandshverfis eru beðin að
koma kl. 16:00 ásamt foreldrum sínum
vegna skráningar í fermingarundirbúning
vetrarins og taka þátt í helgihaldinu.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Fermd
verður Elísa Jóhanna Gísladóttir, Bæjargili
3, Garðabæ. Kirkjukórinn leiðir safnaðar-
söng, en organisti er Jóhann Baldvinsson.
Sr. Friðrik J Hjartar og Nanna Guðrún djákni
þjóna. Guðsþjónustur verða framvegis kl.
11.00 í Vídalínskirkju. Allir velkomnir.
Prestarnir.
NJARÐVÍKURKIRKJA: (Innri-Njarðvík).
Guðsþjónusta sunnudaginn 24. ágúst kl.
20. Kór Njarðvíkurkirkju syngur undir stjórn
Arngerðar Maríu Árnadóttur organista.
Meðhjálpari Kristjana Gísladóttir. Baldur
Rafn Sigurðsson.
HNÍFSDALSKAPELLA: Messa kl. 11.
Kvennakórinn syngur undir stjórn Huldu
Bragadóttur. Sóknarprestur.
ÓLAFSFJARÐARKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 11. Sóknarprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Kvöldmessa verður
fyrir allt prestakallið í Möðruvallakirkju
sunnudagskvöldið 24. ágúst kl. 20:30.
Messukaffi á prestssetrinu á eftir. Allir
hjartanlega velkomnir. Mætum öll og njót-
um samveru í kirkjunni á sumarkvöldi.
Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Eyþór
Ingi Jónsson.
GLERÁRPRESTAKALL: Kvöldmessa verður
í Lögmannshlíðarkirkju kl. 20.30. Gunn-
laugur Garðarsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Laugar-
daginn 23. ágúst kl. 20.30 bjóðum við vel-
komna nýja leiðtoga okkar á Íslandi, major
Önnu Maríu og Harold Reikholdtsen. Þau
hafa starfað hér á landi áður og eru því
mörgum vel kunn. Einnig verða hér yfir-
menn Hjálpræðishersins í Noregi, Íslandi
og Færeyjum, komandör Berit og Donald
Ödegaard. Veitingar. Allir velkomnir. Sunnu-
dagur: Kl. 19.30 bænasamvera. Kl. 20 al-
menn samkoma. Allir velkomnir.
LJÓSAVATNSPRESTAKALL: Lundarbrekku-
kirkja. Guðsþjónusta sunnudag kl. 20.30.
Prestur sr. Pétur Þórarinsson. Í messunni
verður sérstök stund fyrir börnin.
EGILSSTAÐAKIRKJA: 23. ágúst (laugard.):
Kirkjustund í bæjarhátíðartjaldi um kl. 15 í
umsjá Þorvaldar Halldórssonar og Mar-
grétar Scheving. 24. ágúst sunnudag:
Helgistund í Egilsstaðakirkju kl. 20:30. Þor-
valdur Halldórsson og Margrét Scheving sjá
um tónlistina. 25. ágúst (mánud.): Kyrrð-
arstund kl. 18. Sóknarprestur.
MÚLAPRÓFASTSDÆMI: Sleðbrjótskirkja:
Messa kl. 11.
Kirkjubæjarkirkja: Messa kl. 16. Prófastur
Múlaprófastsdæmis sr. Sigfús J. Árnason
vísiterar söfnuðina. Organisti Muff Worden.
Kaffisala kvenfélagsins í Tungubúð. Allir
velkomnir. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11 sunnudag-
inn 24. ágúst. Prófastur síra Úlfar Guð-
mundsson á Eyrarbakka messar í sumar-
leyfi sóknarprests. Léttur hádegisverður
framreiddur í safnaðarheimilinu eftir emb-
ætti. Morguntíð er sungin í kirkjunni alla
morgna kl. 10 frá þriðjudegi til föstudags.
Beðið fyrir sjúkum og sorgmæddum. Kaffi-
drykkja á eftir. Foreldramorgnar eru í safn-
aðarheimilinu á hverjum miðvikudegi kl.
11. Sr. Gunnar Björnsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður á
sunnudag kl. 11.00. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa nk. sunnudag
kl. 14:00. Organisti Guðmundur Vilhjálms-
son. Almennur safnaðarsöngur. Ganga
undir leiðsögn um þinghelgi eftir messu.
Kristinn Ág. Friðfinnsson.
Morgunblaðið/Ómar
Súðavíkurkirkja
Guðspjall dagsins:
Jesús grætur yfir
Jerúsalem
(Lúk 19.)