Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 53

Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 53
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 53 GUÐJÓN Þórðarson, knattspyrnustjóri Barnsley, segir í viðtali á heimasíðu félagsins að hann vilji styrkja liðið með nýjum leikmanni. „Vonandi get ég bráðlega styrkt liðið en til þess að það geti gerst verður einhver leik- maður að yfirgefa Barnsley. Það eru nokkrir leikmenn sem ég þarf að ræða við í næstu viku um framtíð þeirra hjá félaginu. Ég veit að nokkrir þeirra eru óánægðir með að hafa ekki verið í leikmannahópnum í þeim leikj- um sem búnir eru. Það kemur svo síðar í ljós hvort ein- hverjir af þeim yfirgefi liðið. Ég er að vona að við get- um fundið nýtt félag fyrir Kevin Donovan, miðjumann Barnsley, en ef hann fer frá liðinu opnast möguleiki fyrir mig að fá nýjan leikmann. Kevin er búinn að vera að æfa á fullu og er að komast í gott form en það besta í stöðunni fyrir Kevin og Barnsley er að hann yfirgefi fé- lagið. Þeir leikmenn sem ég hef áhuga á að fá til liðsins myndu ekki vera með jafnhá laun og Kevin og það er líka jákvætt fyrir félagið,“ sagði Guðjón. Guðjón vill fá nýjan leikmann í lið sitt NORSKA blaðið Verdens Gang greinir frá því í gær að þrír leikmanna norska úrvalsdeildarliðsins Lilleström hafi neitað að taka á sig launalækkun hjá félaginu og er Davíð Þór Viðarsson, leikmaður U-21 árs landsliðsins og fyrrverandi leikmaður FH, einn þessara leikmanna. Lilleström á í miklum fjáhagserfiðleikum og hafa stjórnendur félagsins biðlað til leikmanna um að taka á sig 11% launalækkun út árið en með því myndi sparast 1 milljón norskra króna. Peter Werni, talsmaður leik- manna Lilleström, er óhress með að þeir Davíð Þór, Petter Belsvik og Kasey Wehrman, vilji ekki fylgja for- dæmi annarra leikmenna liðsins og samþykkja launa- lækkun en ekki sé hægt að þvinga menn til þess. „Ég hef einfaldlega ekki efni á að lækka í launum. Ég hef fjárfest í bíl og húsnæði og það er dýrt að lifa,“ seg- ir Davíð Þór við Verdens Gang en Davíð, sem er 19 ára gamall, er meðal þeirra sem lægstu laun hafa hjá Lille- ström. Davíð Þór vill ekki lækka í launum  MÓTANEFND KSÍ hefur orðið við beiðni ÍA um að færa leik liðsins við KA í undanúrslitum bikarkeppn- innar. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Laugardalsvellinum 9. september en þar sem Julian Johns- son hefur verið valinn í færeyska landsliðið sem leikur við Litháen 10. september hefur leikur ÍA og KA verið settur á þann 17. september.  KA-menn unnu sinn riðil á æfinga- móti í handknattleik sem þeir taka þátt í í Þýskalandi um þessar mund- ir. KA sigraði Kadetten Schaffhau- sen, 18:13, þar sem Arnór Atlason var markahæstur KA-manna með 6 mörk, Bjartur Máni Sigurðsson skoraði 4 og Einar Logi Friðjónsson 3. Þá höfðu KA-menn betur á móti Frisenheim, 13:9, en leikirnir á mótinu er 2x15 mínútur. Andrius Stelmokas skoraði 5 mörk, Arnór 4 og Bjartur Máni 3 og Einar Logi 1. Með Friesenheim leikur Halldór Jó- hann Sigfússon, fyrrverandi fyrir- liði, KA. Engum sögum fer að því hvort honum tókst að skora í leikn- um gegn sínum gömlu samherjum.  HERMANN Hreiðarsson verður í byrjunarliði Charlton í dag þegar liðið sækir nýliða Wolves heim í ensku úrvalsdeildinni. Charlton steinlá fyrir Manchester City, 3:0, á heimavelli í fyrstu umferðinni. Ívar Ingimarsson er í 20 manna hópi Úlf- anna en verður líklega ekki í leik- mannahópnum. Líkt og Charlton fékk Wolves skell í fyrstu umferðinni en Úlfarnir töpuðu fyrir Blackburn, 5:1.  EIÐUR Smári Guðjohnsen verður væntanlega í liði Chelsea sem tekur á móti nýliðum Leicester á Stamford Bridge. Rúmeninn Adrian Mutu gæti fengið tækifæri á að spreyta sig í stað Jimmy Floyd Hasselbaink í fremstu víglínu en Hasselbaink kom inná fyrir Eið í leiknum við Liver- pool og skoraði þá sigurmarkið.  HEIÐAR Helguson verður á miðj- unni hjá Watford í dag þegar liðið tekur á móti WBA í 1. deildinni. Lár- us Orri Sigurðsson verður hins veg- ar fjarri góðu gamni í liði WBA vegna meiðsla í brjóstvöðva sem hann hefur ekki jafnað sig að fullu af ennþá.  SVEN Göran Eriksson landsliðs- þjálfara Englendinga verður boðinn nýr samningur við enska knatt- spyrnusambandið takist Englend- ingum að vinna sér keppnisréttinn í úrslitakeppni EM á næsta ári. Er- iksson hefur oft verið nefndur til sögunnar sem næsti knattspyrnu- stjóri Chelsea en Eriksson lét hafa eftir sér í gær að fregnir um að hann væri á leið til Chelsea væru algjör- lega úr lausu lofti gripnar.  ERIKSSON er sagður fá í sinn hlut 3 milljónir punda skrifi hann undir nýjan samning við enska knatt- spyrnusambandið sem mundi gildi fram yfir HM 2006. FÓLK Ég á ekki góðar minningar fráHM utanhúss. Ég hef þurft að hætta vegna meiðsla á öllum mót- unum svo fyrir mig yrði það hreinlega sigur að ná að ljúka keppni í París,“ sagði Jón Arnar Magnússon í samtali við Morgun- blaðið. Jóni hefur hins vegar tekist vel upp á Evrópumeistaramótum og HM innanhúss og skemmst er að minnast frábærs árangurs hans í Birmingham í vetur þegar hann varð fjórði á HM og missti naum- lega af bronsverðlaunum. „Fyrsta markmiðið er að komast í gegnum þrautina og ef það tekst get ég alveg séð fyrir mér að ég verði í hópi átta efstu manna. Ef hins vegar allt gengur að óskum og ég næ mér sérlega vel á strik er aldrei að vita nema að ég verði í baráttunni um verðlaunasæti. Ég er í góðu standi og engin meiðsli eru að angra mig ólíkt því sem ég hef átt að kynnast á fyrri heimsmeist- aramótum utanhúss. Ég hef á þess- um fyrri mótum dregið á eftir mér meiðsli frá því fyrr um sumarið en sem betur fer er ekkert slíkt í gangi núna. Jón Arnar segir að hann geti bætt sig í flestum greinum en greinarnar sem hann þurfti kannski helst að bæta sig í séu stangar- stökkið, kringlukastið og grinda- hlaupið. „Grindahlaupið hefur ekki komið eins og ég vildi en ég hef ekki alveg náð að slípa það til. Sama gildir um hinar tvær greinarnar. Ég á að geta gert betur en þetta er bara spurning að detta á þetta og fá með sér í lið smáheppni. Hún hefur ekki fylgt mér hingað til, ég á inni hjá lukkudísunum“ Jón Arnar segir litlar breytingar vera á keppendum og hann komi til með að hitta sömu andstæðinga og hann hefur verið að glíma við mörg undanfarin ár. „Ég veit að vísu ekki um Lev Lobodin. Hann meiddist í Götziz fyrr í sumar og ég hef lítið heyrt af honum. Ég reikna ekki með öðru en að slagurinn um gullið standi á milli Romans Sebrle og Tom Pappas. Þeir berjast um sigurinn svo lengi sem ekkert kemur fyrir hjá þeim. Ég ætla hins vegar að láta þá hafa fyrir hlutunum og það er alveg á hreinu að þeir fá ekkert gefins hjá mér.“ Sigur að ná að ljúka keppni ÞAÐ má með sanni segja að Jón Arnar Magnússon þurfi að kveða niður draug sem fylgt hefur honum á öllum fjórum heimsmeist- aramótunum í frjálsum íþróttum utanhúss sem hann hefur tekið þátt í. Jóni hefur nefnilega ekki tekist að ljúka keppni á neinu af þessum fjórum mótum en með þátttöku sinni í París jafnar hann met Vésteins Hafsteinssonar, kringglukastara, sem keppti á fimm heimsmeistaramótum á keppnisferli sínum. Tekst Jóni Arnari Magnússyni að ljúka keppni á HM utanhúss í fyrsta sinn? Eftir Guðmund Hilmarsson Hefði viljað hafa fleiri keppendur frá Íslandi „ÞETTA er svolítið þunnskipað hjá okkur að þessu sinni. Aðeins tveir keppendur, Jón Arnar og Þórey Edda en því miður tókst ekki fleirum að ná lágmarkinu. Ég hefði kosið að vera með fjóra til fimm keppendur en lág- mörkin voru hins vegar mjög stíf. Vala Flosadóttir og Magnús vert stífara en það hefur verið og B-lágmarkið er kannski að nálgast það sem A-lágmarkið var fyrir tveimur keppnum síð- an. Samkeppnin er orðin meiri og jafnari í öllum greinum og það er verið að sporna við því að það séu of margir kepp- endur.“ Aron Hallgrímsson náðu ekki settu lágmarki og Einar Karl Hjartarson hefur verið meidd- ur,“ segir Guðmundur Karlsson landsliðsþjálfari í frjálsum íþróttum en heimsmeist- aramótið í frjálsum íþróttum hófst í París í morgun. „A-lágmarkið núna er tölu- Guðmundur segir að Jón Arnarsé þrautreyndur í svona stór- mótum. „Raunhæft markmið hjá honum er að vera á bilinu fjórði til sjötti. Það er mjög eðlilegt að stefna á þennan árangur á heimsmeistara- móti þar sem allir bestu tugþraut- armenn eru saman komnir. “ Guðmundur segir að Jón Arnar þurfi fyrst og fremst að ná jafnri og góðri þraut. „Jón hefur undanfarið verið frekar brokkgengur í kringlu- kastinu og í stangarstökkinu. Hann hefur til að mynda verið að kasta rúman 41 metra í kringlunni sem er allt of stutt hjá honum. Jón á að kasta henni 44 metra minnst. Þá hef- ur hann verið að stökkva í stönginni 4,90 m en mér finnst lágmark að hann fari yfir fimm metrana. Svo þarf hann auðvitað að ná sínum topp- árangri í sínum bestu greinum sem eru langstökkið og kúluvarpið enda ekki síður mikilvægt að standa sig vel í þeim greinum sem hann er góð- ur í. Jón Arnar á að mínu mati inni í 110 metra grindahlaupinu og ég hef verið að bíða eftir því að hann nái því besta út úr þeirri grein enda hefur hann æft þá grein mjög vel á síðustu mánuðum. En eins og ég segi þá er aðaltriðið að ná jafnri og góðri þraut og koma sér ekki í þá stöðu að gera tvö ógild og setja þar með pressu á sig og þurfa að taka öryggisstökk eða kast.“ Jón Arnar kemur vel hvíldur til Parísar „JÓN Arnar Magnússon kemur út á sunnudaginn og förum við yfir lokaáherslurnar. Hann er búinn að æfa mjög markvisst og kemur vel hvíldur til leiks. Það var mikið álag á honum í kringum Meist- aramótið og bikarkeppnina heima en hann hefur fengið góðan tíma til að hvíla sig eftir þá törn. Það eru engin meiðsli að plaga hann og hann er bara í toppstandi,“ segir Guðmundur Karlsson, landsliðs- þjálfari í frjálsíþróttum, um Jón Arnar Magnússon sem er að taka þátt í sínu fimmta heimsmeistaramótinu utanhúss.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.