Morgunblaðið - 23.08.2003, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI – leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
AÐEINS átta nýnemar eru skráðir til náms í
sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands í vetur en
deildin hefur 20 pláss. Að sögn Jónínu Waag-
fjörð, skorarformanns sjúkraþjálfunarskorar
læknadeildar, er þetta mikið áhyggjuefni.
Í júní voru inntökupróf fyrir nemendur sem
hugðu á nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun.
Aðeins einn þeirra sem völdu sjúkraþjálfun
sem fyrsta val náði lágmarkseinkunn á próf-
inu. Hin sjö sem skráð eru í sjúkraþjálfun
voru með læknisfræði sem fyrsta val.
„Við erum náttúrlega svekkt að vera ekki
með fleiri nemendur. Við munum skoða þetta
inntökupróf áður en það verður lagt fyrir aft-
ur. Þó að nemendur hafi fallið á þessu prófi er
ekki þar með sagt að þeir geti ekki orðið
sjúkraþjálfarar,“ segir Jónína.
Hún bendir á að lögð hafi verið beiðni fyrir
háskólaráð þar sem farið er fram á undanþágu
frá lágmarkseinkunn. „Ákvörðun hefur verið
frestað til 4. september sem er mjög slæmt
því við erum með fullt af nemendum sem eru
að bíða og skólinn byrjar á mánudaginn.“
Aðeins átta
nýnemar í
sjúkraþjálfun
FYRIR stuttu bar nóbels-
skáldið Seamus Heaney
lof á rapparann Eminem,
sem hefur verið mjög um-
deildur fyrir texta sína. Í
viðtali við BBC lofaði
Heaney Eminem fyrir að
hafa „gert heila kynslóð
spennta, ekki bara með
ágengum textum heldur
með orkunni sem felst í
þeim“.
Í Lesbók Morgunblaðsins er að finna úttekt
Árna Matthíassonar á rapptextum í gegnum
tíðina, en að hans mati hefur vaxtarbroddur í
íslenskri ljóðlist verið í íslensku rappi.
Seamus Heaney
ber lof á Eminem
Lesbók/8
STÆRSTUR hluti launafólks á Bíldudal við
Arnarfjörð býr við óstöðugt atvinnuástand.
Rækjuvinnslan Rækjuver er lokuð og fisk-
vinnslufyrirtækið Þórður Jónsson ehf. er í
greiðslustöðvun til 1. október nk. Fyrirtækin tvö
eru fjölmennustu vinnustaðirnir á Bíldudal en
þar búa rúmlega 230 manns.
Brynjólfur Gíslason, bæjarstjóri Vestur-
byggðar, telur að gefa verði þessum fyrirtækj-
um færi á að vinna úr sínum málum og of
snemmt sé að fara út í vangaveltur um hvað
gera eigi í framhaldinu. „Ég held að menn reyni
hvað þeir geta til að halda útgerð og fiskvinnslu
áfram þótt á móti blási,“ segir hann og bætir við
verði hjá starfsfólki fyrirtækisins í vetur. Hann
bindur vonir við að hægt verði að „laga rekst-
urinn“ og segir m.a. að fjárfestar muni koma að
því með fyrirtækinu. Á þessu stigi sé hins vegar
ekki tímabært að gefa upp hverjir það séu.
Forsvarsmenn Rækjuvers hafa fullan hug á
því að halda vinnslu áfram í vetur ef rekstr-
arskilyrði leyfa. Óttar Yngvason, framkvæmda-
stjóri Rækjuvers, segir þó erfitt að spá til um
hvenær rekstur geti hafist. Það sé undir mörgu
komið, en verð á rækju hafi verið í botni und-
anfarið.
að ástandið nú sé ekkert nýtt. Atvinnulíf hafi
verið óstöðugt áður á Bíldudal.
Kalkþörungavinnsla gæti orðið viðbót
Bæjarstjórinn leggur þó áherslu á að unnið sé
að úttekt á stöðunni á Bíldudal; útliti og horfum,
og telur ýmsa möguleika fyrir hendi. Til að
mynda gæti fyrirhuguð kalkþörungavinnsla
orðið viðbót við það atvinnulíf sem fyrir er. Jón
Þórðarson, framkvæmdastjóri Þórðar Jónsson-
ar ehf., segir að fyrirtækið hafi lent í erfiðleikum
í rekstri árið 2002 og í byrjun árs 2003, en nú sé
reynt að vinna úr þeim erfiðleikum. Það gangi
sæmilega. Hann sér ekki annað en að full vinna
Atvinnuleysi eykst á Bíldudal
Óvissa/10
ÓLAFUR Ragnar Grímsson og
Dorrit Moussaieff verða meðal
áhorfenda á leik Chelsea og Leic-
ester í Lundúnum í dag en Rom-
an Abramovich, eigandi Chelsea
og ríkisstjóri í Chukotka, bauð
forsetahjónunum að koma með
sér á leikinn sem lið í heimsókn
hjónanna til Chukotka, sem stað-
ið hefur yfir undanfarna daga.
Hópurinn flaug til London í
gær í Boeing 737-einkaþotu
Abramovich. Mun Ólafur Ragnar
meðal annars hafa í hyggju að
hitta Eið Smára Guðjohnsen,
leikmann Chelsea, að leik lokn-
um. Þá mun Abramovich sýna
Ólafi Ragnari leikvanginn og
kynna hann fyrir leikmönnum
Chelsea.
Forsetahjónin og fylgdarlið
fljúga heimleiðis til Íslands á
morgun.
Ljósmynd/Örnólfur Thorsson
Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður SH, ásamt Roman Abramovich, eiganda Chelsea og ríkisstjóra í
Chukotka, og Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í heimsókn þess síðastnefnda til Rússlands.
Forseta-
hjónunum
boðið á leik
Chelsea
KÓNGASVARMAR hafa sést víða
um land nú í ágústmánuði, en það
er sérstök tegund fiðrilda sem lifir
aðallega í S-Evrópu og Afríku og
kemur sjaldan hingað til lands. Að
sögn Þorleifs Eiríkssonar, dýra-
fræðings og forstöðumanns Nátt-
úrustofu Vestfjarða, eru kónga-
svarmar flökkufiðrildi. Þau hafa
mikla flughæfileika og fljúga eins
vel og fuglar. Hann segir að fiðrildi
þessi séu á stærð við gulltoppa,
minnstu fugla á Íslandi.
Kóngasvarmar hafa m.a. fundist
á Vestfjörðum og við Höfn í Horna-
firði, þaðan sem myndirnar eru.
„Ég veit til þess einnig að þau
hafi sést í Neskaupstað, Sauð-
árkróki, Blönduósi, Reykjanesi og í
Reykjavík og sjálfsagt víðar. Það
þýðir að það hefur komið hingað til
lands gríðarlegur fjöldi,“ segir Þor-
leifur. Hann segist ekki kunna skýr-
ingu á því af hverju þessi fjöldi hef-
ur borist hingað til lands, líklegast
sé að fiðrildin hafi lent í sterkum
vindum. Þegar árferði er gott, eins
og verið hefur í Evrópu síðustu
mánuði, fjölgar kóngasvarmi sér
mikið og ferðast þá oft í stórum
hópum.
Kóngasvarmarnir eru með væng-
haf upp á 11 sentimetra, vængir eru
gráir með fíngerðu svörtu mynstri
og afturbolurinn er með rauðbleik
og svört belti. Kóngasvarmar eru
næturdýr og því líklegast
að sjá þau í ljósaskipt-
unum á kvöldin. „Þetta
eru mjög sérhæfð dýr.
Þau eru mjög sérhæfð í
fæðuvali og lifa aðallega á
plöntu sem heitir ak-
urklukka og er ekki til
hér. Hér eru þau hrifin af
skógartoppi.“
Í mat á Þingeyri á
hverju kvöldi
Hann bætir við að líf-
fræðingur hjá Nátt-
úrustofu hafi fylgst með
nokkrum fiðrildum sem
mæti á hverju kvöldi á
slaginu ellefu í mat á
Þingeyri, þar sem þau
gæða sér á hunangi úr
skógartoppum.
„Skógartoppur er ilm-
planta og lyktin kemur
fyrst og fremst á nótt-
unni. Kóngasvarmar eru
sem sagt náttfiðrildi og
fara á stjá á kvöldin. Þess vegna eru
þau ekki skrautleg, heldur í þessum
dröppuðu litum. Þau vinna mest á
lykt og kynin til dæmis sækja hvort
á annað af lykt,“ segir Þorleifur.
Fjöldi flökkufiðrilda hef-
ur borist hingað til lands
Stærstu fiðrildin, kóngasvarmar, eru með 11 sentimetra vænghaf
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson
Fiðrildið kóngasvarmi, það stærsta á Íslandi, í
höndum Björns Arnarsonar, safnvarðar og
fuglaáhugamanns á Höfn í Hornafirði.
GEIR Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Knattspyrnusambands Ís-
lands, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að áhuginn fyrir
landsleik Íslands og Þjóðverja væri
gríðarlegur. Hann væri það mikill að
KSÍ gæti selt allt að 20.000 aðgöngu-
miða á leikinn ef Laugardalsvöllur
tæki það marga í sæti en hann tekur
aðeins 7.034 manns í sæti.
„Það hefur verið hringt linnulaust
á skrifstofur KSÍ síðan það varð
uppselt á leikinn. Fólk hefur verið að
hringja og athuga hvort það sé ekki
möguleiki að fá miða en því miður er
það ekki hægt. Fólk tekur þessu
misjafnlega illa en margir eru mjög
fúlir og ég skil það mjög vel.
Því miður er ekkert sem við getum
gert í þessu og það er virkilega leið-
inlegt að geta ekki hjálpað þeim fjöl-
mörgu sem hafa ekki miða en vilja
komast á völlinn. Það er eins og fólk
hafi ekki áttað sig á því að miðasalan
byrjaði á netinu fyrir töluverðu síðan
en salan tók svo mikinn kipp eftir
leikinn gegn Færeyjum. Ég vissi
alltaf að það yrði uppselt á leikinn
gegn Þjóðverjum en ég bjóst ekki við
því að það myndi gerast svona
snemma,“ sagði Geir í samtali við
Morgunblaðið.
Geir telur að það verði að fara að
stækka Laugardalsvöllinn til þess að
hann geti staðið undir nafni sem
þjóðarleikvangur Íslendinga.
Stækka þarf þjóðarleikvanginn
„Það hefur myndast mikil spenna í
þjóðfélaginu fyrir leiknum gegn
Þjóðverjum. Þetta hefur gerst vegna
þess að Ísland er á toppnum í riðl-
inum og það er sorglegt hve fáa miða
við getum selt. Ég efast ekki um að
við hefðum getað selt allt að 20.000
miða á leikinn ef við hefðum völl sem
tæki það marga í sæti. KSÍ lendir
allt of oft í því að hafa ekki nægilega
mörg sæti fyrir fólk og þjóðarleik-
vangurinn er einfaldlega of lítill. Það
er ljóst að það þarf að bæta úr þessu
og ég tel að það sé vilji til þess hjá yf-
irvöldum. Ég held hins vegar að það
þurfi meiri þrýsting á borgaryfirvöld
og ríkið til að drífa þetta áfram.
Laugardalsvöllurinn er okkar þjóð-
arleikvangur og hann á að taka
miklu fleiri í sæti svo það sé hægt að
uppfylla kröfur Íslendinga um að sjá
landsliðið sitt spila.“
Gríðarlegur áhugi á landsleiknum
gegn Þjóðverjum í næsta mánuði
„Gætum selt 20
þúsund miða“
♦ ♦ ♦