Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 4

Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Glasgow www.icelandair.is/glasgow Skoða byggingar eftir arkitektinn Charles Rennie Mackintosh. Prófaðu þjóðarréttinn Haggis en ekki spyrja um innihaldið! Í Glasgow þarftu að: á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Premier Lodge, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Brottfarir 7. nóv, 6. feb. og 5. mars. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S IC E 21 70 5 07 /2 00 3 erston City Centre Premier Lodge Ramada Jarv Glasgow Townhead Merchant City St. Enoch Princess Square Gladgows Arts Centre Central Station Royal Concert HallSauchiehall Sauchiehall West George GeorgeSquare St. Vincent Ingram Street Waterloo Argyle Argyle Argyle West Regent Renfrew Renfrew Bath Gordon Bath Bu ch an an St . Q ue en Bi sh op H ol la nd Pi tt D ou gl as s Bl yt hs w oo d W . C am be ll C am br id ge St re et W el lin gt on H op e Bu ch an an St . H ut ch en so n R en f. K in gs to n Br id ge K in g G eo rg eV Br id ge la sg ow Br id ge The Millennium H Glasgow Thistle Hotel VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina Verð frá 29.900 kr. www.icelandair.is Í BANDARÍSKA tímaritinu Edu- cation Next er því haldið fram að ís- lenskir kennarar hafi ónóga mennt- un til þess að hafa stjórn á fjölmennum bekkjum, en Morgun- blaðið skýrði frá rannsókninni í gær. Notaðar voru niðurstöður úr TIMMS-rannsókninni, sem mælir þekkingu grunnskólanema á stærð- fræði og vísindum. Einar Guðmundsson, dósent við félagsvísindadeild Háskóla Íslands og fyrrum verkefnastjóri TIMMS- rannsóknarinnar, segir að áherslur í rannsókninni séu fremur sérstak- ar. „Greinarhöfundar finna sam- band á milli bekkjarstærðar í tveimur löndum, en síðan segja þeir eins og satt og rétt er og kemur fram ítrekað, að mönnum hafi ekki tekist að sýna fram á þetta, eða mjög illa, í rannsóknum og nánast ekkert í fjölþjóðlegum rannsókn- um, nema á Íslandi og Grikklandi. Síðan þegar þeir fara að skýra þetta, og það er það sem mér finnst galli við greinina í Education Next, er að þeir byggja skýringuna ekki að öllu leyti á greiningu breyta úr rannsókninni.“ Hann tekur sem dæmi að grein- arhöfundar segi að þar sem kenn- aralaun á Íslandi séu lág sé líklegt að það fáist til starfa lakari starfs- kraftur og stjórnvöld geti haft fá- mennari og fleiri bekki af því að starfskrafturinn sé ódýrari. Þetta séu bollaleggingar sem þeir byggi ekki á neinum gögnum úr TIMMS- rannsókninni. „Mér finnst höfundar greinarinnar seilast mjög langt í túlkun sinni á niðurstöðunni. Þetta hefur yfirbragð þess að vera birt á vísindalegum gögnum en eru vangaveltur. Þetta er mjög vill- andi,“ bætir hann við. Einar bendir á að í mjög ítarlegri greinargerð, sem unnin var úr nið- urstöðum TIMMS-rannsóknarinn- ar, skoðaði hann hlut kennara og skólastjórnenda sérstaklega. Til- gangurinn var að reyna að varpa ljósi á slakan árangur íslenskra nemenda í þessari rannsókn. „Hlutur kennara og skólastjórn- enda í námsárangri nemenda skýr- ist að mestu af aðstæðum þeirra til kennslunnar. Raunar má orða það svo að þeir skili sínu verki miðað við þær aðstæður sem þeim eru búnar til kennslunnar. Þegar að heildar- myndin var skoðuð vantaði svo mik- ið inn í íslenska kerfið sem var til staðar annars staðar,“ sagði Einar. Aðferðirnar ekki ólíkar Einar leggur áherslu á að aðferð- ir íslenskra kennara séu ekki ólíkar aðferðum starfssystkina í öðrum löndum. Kennarar á Íslandi kenni samkvæmt bókinni, en það geri kennarar annars staðar einnig. Munurinn felist helst í því að að- gangur þeirra að fjölbreytni í náms- bókum og námsgögnum sé lakari en annars staðar. „Það voru ýmsir ytri þættir sem komu í veg fyrir að sú færni og hæfni sem býr í kennurum gæti komið fram að fullum krafti. Þú get- ur verið með góðan kennara en hann getur verið svo bundinn af óhagstæðum aðstæðum að hann getur ekki blómstrað. Eftir margra ára vinnu í þessum gögnum situr þetta eftir hjá mér. Kennararnir fara eins langt og þeir komast,“ segir Einar. Einar telur það mikinn galla hversu lítið framboð sé á náms- gögnum á Íslandi. Aðeins ein stofn- un framleiði efni fyrir allt kerfið, sem eigi að heita valddreift. Hann bendir til samanburðar á að í öllum vestrænum löndum sé frjáls náms- bókaútgáfa og því geti kennarar og skólastjórar valið námsbækur sem þeir telja henta markmiðum í sínum skóla. Erfitt að standa við þessa fullyrðingu „Þetta eru nokkuð stór orð að mínu viti og mér finnst þessar nið- urstöður settar fram á nokkuð ein- hæfan hátt. Það er að segja menn einblína á eitthvað ákveðið sem mér er síðan sagt að hafi ekki verið hluti af rannsókninni,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam- bands Íslands. Hann segist hafa vissar efasemdir um að þarna sé að öllu leyti rétt með farið og segist telja að erfitt sé að standa við þessa fullyrðingu. Eiríkur bendir auk þess á að það hafi orðið slík grundvallarbreyting á íslensku skólakerfi á síðustu árum að könnunin í raun gefi ekki rétta mynd af ástandinu eins og það er í dag. Hann nefnir sem dæmi að 6 ára grunnskólanemandi, sem hefur nám í dag, fái um það bil ári lengri tíma í grunnskóla heldur en sá sem byrjaði fyrir fimmtán árum. Hann leggur áherslu á að kenn- arar hafi barist fyrir því um árabil að kennaranámið verði lengt. „Það virðist vera að menn séu almennt sammála um, nema síðustu mennta- málaráðherrar, að það beri að lengja kennaranámið burt séð frá öllu öðru. Það er kjörið tækifæri núna til þess að hlusta á þá sem leiða kenn- aramenntun í landinu, það er að segja háskólana, samtök kennara og reyndar kennaranemana líka, og hrinda því í framkvæmd,“ segir Ei- ríkur. Rannsókn á samhengi bekkjarstærðar og námsárangurs Höfundar seilast mjög langt í túlkun á niðurstöðum Mikill galli hversu framboð á náms- bókum og námsgögnum er miklu minna á Íslandi en annars staðar INGA Dóra Sigfús- dóttir, félagsfræð- ingur og starfsmaður Rannsókna & grein- ingar, segir að það sé vel þekkt úr erlend- um rannsóknum að það sé lítið eða ekk- ert samband á milli bekkjarstærða og námsárangurs. Þessi nýja rannsókn bendi til að þessu sé háttað öðruvísi hér á landi og segir hún að sú niðurstaða sé eflaust rétt. Hún telur að ályktun höfunda sé hins vegar sennilega röng eða í það minnsta alltof takmörkuð. Það sé ekkert sem segi að mennt- un og hæfileiki kennara sé skýr- ingin ef niðurstaðan er rétt. Hún bendir á að þetta séu vangaveltur höfunda, sem henni sýnist vera byggðar á vanþekk- ingu á íslensku samfélagi. „Til þess að geta fullyrt um ástæður þess að hér sé samband milli bekkjarstærða og námsárangurs yrði að skoða miklu fleiri þætti en þá sem liggja innan skólans. Okk- ur hættir hins vegar oft til þess að einblína á skólann og kenna honum um allt sem aflaga fer í uppeldi barna okkar. Það er mik- ilvægt í svona rannsóknum að skoða aðra, væntanlega sterka áhrifaþætti, eins og fjölskylduna og jafningjahópinn,“ bendir hún á. Íslenski nemenda- hópurinn frábrugðinn Inga Dóra segir að það séu all- ar líkur á að nemendahópur ís- lenskra kennara sé talsvert frábrugðinn þeim sem kennarar í hinum sautján lönd- unum séu að fást við. Það séu allar líkur á að íslensku nemendurnir séu óagaðri og upp- vöðslusamari en samanburðarhóp- urinn og því sé erf- iðara að kenna þeim í stórum bekkjar- deildum. Hún leggur áherslu á að skýr- ingarnar á því hvers vegna þeir séu óagaðri sé svo ekki síður að leita utan skóla- kerfisins en innan þess. Það hafi til að mynda komið fram í rann- sóknum Rannsókna & greiningar að það sé grundvallaratriði að unglingar verji tíma undir eft- irliti fullorðina, það hafi forvarn- argildi fyrir ýmsa óæskilega hegðun svo og áhrif á náms- árangur. Íslenskir foreldrar verji hins vegar ekkert sérstaklega miklum tíma með sínum börnum. „Í rannsókninni er ályktað að íslenskir kennarar séu vanhæfir til að kenna stórum bekkj- ardeildum, vegna minni mennt- unar eða getu. Við vitum hins vegar að skýringin er mun flóknari og það má ekki varpa allri ábyrgðinni á skólana. Þeirra þáttur er vissulega mik- ilvægur í nútímasamfélagi og best væri ef skólarnir og for- eldrar gætu unnið betur saman að því að bæta námsárangur og líðan nemenda í skólunum,“ seg- ir hún. Vangaveltur byggðar á van- þekkingu á íslensku samfélagi Inga Dóra Sigfúsdóttir TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráðherra telur að það beri að hafa það í huga að rit- gerðin í tímaritinu Education Next sé eft- ir tvo hagfræðinga. Þeir fari heldur frjáls- lega með TIMMS- gögnin frá 1995 og þeir noti það hugtak um sínar eigin nið- urstöður að þær séu „bollaleggingar“. „Það kemur ekki síst fram þarna að íslensk- ir kennarar hafi léleg laun og séu verr menntaðir en annars staðar. Það kann að vera að þetta hafi átt við árið 1995 að því er launin varðar, en gögn sem eru nýrri sýna mjög skýrt fram á það að í dag er stað- an í launamálum allt önnur.“ Hann bendir á að í ritinu Education at a Glance, sem er gefið út af OECD og í eru upplýsingar fyrir árið 2002, komi fram að þegar borin séu saman laun í jafngildi dala skipi Ísland sér í röð með þeim þjóðum sem standa mjög fram- arlega á þessu sviði. Athugasemd- in um launin sé úrelt og endur- spegli ekki raunveruleikann eins og hann er í dag. „Það er einnig rétt að gera grein fyrir því að þegar talað er um að kennarar á Íslandi hafi ekki háskólapróf þá hlýtur það að vera byggt á einhverjum misskilningi, því menntun kennara á Íslandi er á háskólastigi og þeir sem öðlast réttindi til að kenna á Íslandi eru með háskólapróf. Fyr- ir utan að vera með kennararéttindi og há- skólapróf í þeim efn- um þá hafa margir kennarar einnig próf í öðrum greinum,“ und- irstrikar Tómas. Hann segir að réttindakenn- urum hafi fjölgað mjög mikið og það hafi orðið stórbreyting á þeim málum bæði í grunn- og framhalds- skólum. „Bæði varð- andi kjörin og hlutfall réttinda- kennara og þeirra sem eru með háskólapróf hefur gjörbreyst. Því tel ég að þarna sé verið að fjalla um mál á gjörsamlega röngum forsendum.“ Tómas segir að áhersla hafi ver- ið lögð á það að styrkja kenn- aramenntunina, meðal annars með því að setja upp kennaradeild við Háskólann á Akureyri. „Við höfum ekki haft sannfæringu fyrir því að það væri nauðsynlegt að lengja kennaranámið. Það er meðal ann- ars gert með hliðsjón af því hvern- ig það er í öðrum löndum. Við telj- um að í því kennaranámi sem nú er í boði fái menn bæði trausta og góða menntun, sem skilar sér til skólanna með hækkandi hlutfalli þeirra sem eru með full réttindi til að kenna í grunnskóla og fram- haldsskóla,“ segir hann. Ísland stendur framarlega í launamálum kennara Tómas Ingi Olrich VOPNAÐUR kústi klifraði þessi ungi maður upp eftir húsi og teygði sig að heitu blikkþakinu í því skyni að ná þar niður bolta. Félagi manns- ins beið spenntur á jörðu niðri en í hita leiks þeirra á Austurvelli hafði boltinn ratað í þessar ógöngur. Þrátt fyrir góða tilburði tókst ekki að ná knettinum niður í þetta sinn. Morgunblaðið/Ómar Kústur á heitu blikkþaki RÚM 66% kjósenda eru fylgjandi því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gefi ekki kost á sér í formannskjöri Samfylkingarinnar á landsfundi í október gegn Össuri Skarphéðins- syni. Þetta kemur fram í skoðana- könnun DV sem birt var í fyrradag. Af stuðningsmönnum Samfylkingar- innar, sem tóku afstöðu, studdu 57,6% þessa ákvörðun. Úrtakið í könnun DV var 600 manns, jafnt skipt á milli kynja og hlutfallslega milli höfuðborgarsvæð- is og landsbyggðar. Svarhlutfallið var tæp 72%. Ekki var marktækur munur á afstöðu kynjanna. Meirihluti fylgjandi að Ingibjörg fari ekki fram nú ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.