Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 33 Við kveðjum þig með söknuði, elsku afi. Þú varst einstakur. Okk- ur þykir svo vænt um þig og allar góðu minningarnar sem við eigum um þig. Harpa, Dögg og Skúli Júlíusarbörn. HINSTA KVEÐJA okkur mæðgur er við komum frá Þýskalandi. Þú tókst nýja hjólið mitt og settir það í fína bílinn þinn, þú varst svo hávaxinn með þitt mikla þykka hár. Alla tíð síðan hefur þú átt ákveðin stað í mínu hjarta eins og Helga heitin konan þín átti einnig. Sem barn var aldrei skemmtilegra en að koma og heimsækja stóru frændfjöl- skylduna mína á Kirkjubraut 13. Helga frænka og amma voru mjög nánar systur. Þið voruð samrýnd hjón, skemmtileg og hress. Enda þurfti gott skap til að stjórna heim- ilinu þar sem sjö strákapeyjar voru, mér fannst ég óendanlega rík að eiga alla þessa frændur og finnst það enn, þótt við séum búin að kveðja Júlíus heitinn langt fyrir ald- ur fram. Að heimsækja ykkur heið- urshjón var alltaf tilhlökkunarefni því það var alltaf svo mikið líf og fjör á Kirkjubrautinni. Svo má ekki gleyma hve gaman var að vera hjá ykkur öll gamlárskvöldin þegar þú varst brennustjóri, þá voru sko brennurnar stórar. Ég man svo vel eftir því þegar Barbý dúkkurnar voru að byrja að fást á Íslandi að ég fékk eina og nokkrar flíkur með. Nú voru góð ráð dýr, ég vildi búa til fataskáp úr skó- kassa með prjóni sem slá, en herða- trén, hvernig átti að redda þeim? Þá datt mér þú í hug, ég fór niður á rafmagnsverkstæði þitt við Bröttugötu 10 og bað um vír. Þú varst nú ekki lengi að leysa mín mál, lést mig hafa fínan rafmagnsvír sem hægt var að beygja svo ég gæti búið til herðatré í fína fataskápinn. Þú varst mikill tækni- og verk- maður, rakst þitt eigið raftækja- verkstæði á Bröttugötu og síðan heima á Kirkjubrautinni. Þú gegndir mörgum trúnaðar- störfum á Seltjarnarnesi, þú varst einn af stofnendum Gróttu og stjórnarmaður í mörg ár. Þú hafðir mikinn metnað alla tíð fyrir Gróttu og ræddir oft við mig um væntan- legan gervigrasvöll sem hanna ætti í túnjaðrinum hjá þér á Skólabraut 3–5, að með honum yrði aðstaða Gróttu loksins orðin samboðin iðk- endum félagsins. Þú varst mikill sjálfstæðismaður og formaður Sjálf- stæðisfélags Seltirninga á árunum 1978–1984. Þú varst baráttumaður og tókst virkan þátt í kosningabar- áttu flokksins alla þína tíð. Þú gegndir starfi formanns hús- félagsins á Skólabraut 3–5 þangað til í vor, áður en þú hættir varstu búinn að láta setja fullkomið eld- varnarkerfi í bæði húsin og fram- kvæma allsherjarviðhald utanhúss sem lauk í sumar. Þú varst sáttur við þitt ævistarf, stoltur af strákunum þínum og öll- um barnabörnunum og langafabörn- unum, glaður og ánægður. En þú varst ekki skoðunarlaus, nei, þú gast verið fastur fyrir ef þér sýndist svo. Þú hafðir réttlætið að leiðarljósi og þinn mesti kostur var hversu góðhjartaður þú varst og hvað þú varst tilbúinn að hlusta. Rétt áður en þú veiktist var ég á leiðinni að fá hjá þér afleggjara af sveppnum þínum, hollustudrykkn- um sem þú gafst mér oft af í vetur. Það var fastur liður hjá okkur Viggó að líta við hjá þér þegar spilakvöldin voru á Skólabrautinni. Þú spilaðir aldrei sjálfur en í kaffihléinu náði ég að hitta á þig, spjalla um daginn og veginn og fá sopa af drykknum þín- um góða. Þá sýndir þú mér margar greinar af Netinu um þennan of- urdrykk sem félagi þinn á nesinu gaf þér. Elsku Skúli, ég og fjölskylda mín og þá sérstaklega Viggó kveðjum þig með söknuði. Guðjón, Kristinn, Skúli, Helgi, Þráinn og Stefán og fjölskyldur ykkar, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Ásgerður H. Hann var hreinn og beinn. Sagði óhikað skoðanir sínar á mönnum og málefnum. Aldrei flár – ávallt heill. Ungur fylkti hann sér í raðir þeirra sem trúa á mátt einstaklingsins, fái einstaklingurinn ráðið lífi sínu, frjáls og laus við fjötra sósíalískrar forræðishyggju. Þegar sjálfstæðismenn á Sel- tjarnarnesi þéttu sínar raðir upp úr miðri síðustu öld, var Skúli í hópi frumherjanna. Hann gaf sig heilan til starfa. Heimilið á Skólabrautinni þar sem hans góða kona Helga réð ríkj- um, og þar sem hvellar hljómmikl- ar drengjaraddir margra tápmikilla sona bergmáluðu um stofur, varð fljótt einn af samkomustöðum okk- ar sjálfstæðismanna á Nesinu. Hér skulu þökkuð margra ára- tuga kynni. Hér skulu og Skúla þökkuð störf hans sem formanns Sjálfstæðisfélags Seltirninga um árabil. Hann átti sinn þátt í að gera Seltjarnarnes að öflugasta vígi Sjálfstæðisflokksins, prósentvís á landinu öllu. Vígi sem staðið hefur í fjóra tugi ára – og sterkara nú sem nær aldrei fyrr. Við gömlu „bakverðirnir“ minn- umst Skúla með djúpri virðingu og þökkum að hafa átt hann sem bar- áttufélaga og traustan vin. Merkið stendur þótt maðurinn falli. Verði okkar góða gamla félaga Skúla Júl. hvíldin vær. Magnús Erlendsson.  Fleiri minningargreinar um Maríu Þorgrímsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. María átti eftir að verða ein af þessari stóru fjölskyldu sem okkar menn koma frá. Það kom ferskleiki með Maríu og aldrei var nein logn- molla þar sem hún fór, hún var orð- heppin og varð aldrei orða vant. Við áttum eftir að eiga góðar stundir saman, börn okkar eru á svipuðum aldri og það tengdi okkur enn betur. Frumburðir okkar beggja eru stúlkur og þær eignuðust sín systk- in á sama tíma. Dóttir Maríu fékk bróður en dóttir mín fékk systur, sem er svo sem ekki í frásögur fær- andi nema af því Bjarni sem þá var í siglingum til Þýskalands keypti for- láta barnavagna, bláan fyrir son þeirra Maríu og rauðan fyrir dóttur okkar Guðmundar. Svo voru einnig keyptir dúkkuvagnar fyrir stóru systurnar sem þá vou fjögurra og fimm ára. Sú sem átti bróðurinn fékk bláan í stíl við barnavagninn en hin fékk rauðan eins og systirin litla átti. Á þeim tíma var ekki mikið um þvílík flottheit og vöktum við mikla athygli þegar við örkuðum um miðbæ Reykjavíkur sumarið 1970, og höfð- um mikið gaman af. Það voru farnar margar ferðirnar frá Hvassaleitinu vestur á Bræðraborgarstíg á þeim tíma. Ekki má gleyma ferðunum sem farnar voru í sundlaugarnar, í Nauthólsvík, í Heiðmörk og ógleym- anlega ferð, fjallabaksleið í sól og sumarblíðu. En þetta er það sem að mér og mínum snýr, síðan eru allar þær ferðir sem María og Bjarni hafa farið ein eða ásamt vinum og fjöl- skyldu. Þau lifðu lífinu lifandi og þorðu að láta draumana rætast. Þau áttu bát í nokkur ár og sigldu hon- um við Ísland. María dreif sig þá í að taka hið svokallaða pungapróf til þess að takast á við sjóinn með vél- stjóranum sínum honum Bjarna. Einnig hafa þau ferðast mikið á hús- bílnum sínum. María var bókelsk, kunni góð skil á mönnum og málefnum. Það var varla nefnd sú persóna að hún kynni ekki skil á því hverra manna hún væri eða hvaðan hún kæmi. Það var mikil glaðværð í kringum Maríu, stór systkinahópurinn og allar syst- urnar sjö samrýmdar mjög. Það er ekki hægt annað en að minnast á barnabörnin, allar litlu Mæjurnar og Bjarna Val sem áttu svo stóran stað í hjarta ömmu. Alltaf kom ný Mæja þegar stúlka fæddist. Myndir minninganna líða hjá. Ein sú síðasta er 60 ára afmæli Bjarna í Næfurholtinu í júlí síðastliðnum. Þá var María orðin mjög veik en gat þó komið til að hitta vini og vandamenn í veislunni. Það gladdi hana að geta það og hún skemmti sér eins og hægt var miðað við aðstæður. En sá sem gladdi hana hvað mest var söngvasveinninn glaðværi Erlingur Snær Guðmundsson, frændi Bjarna, sem söng fyrir hana og veislugestir tóku undir. Þessi tregablandna kvöldstund mun lifa okkur í minni um ókomin ár. Kvöldstund á heim- ilinu þeirra sem er svo fallegt, hverjum hlut vandlega valinn stað- ur, svo mikil hlýja og alúð, allt svo persónulegt. María átti stuðning og hlýju fjölskyldu sinnar í veikindun- um og það er aðdáunarvert hversu sterk börnin hennar hafa verið og tekið þessu með æðruleysi. Þar kemur uppeldi þeirra skýrt í ljós eins og dóttirin Kristín Birna sagði, við erum bara börnin hennar og við stöndum okkur. María tók áskorun lífsins, sem veitti henni mikla ham- ingju. Nú er dýrasta djásnið fjöl- skyldunnar horfið þeim sjónum, en áfram mun minning um hamingju- ríka samfylgd lifa með þeim. Elskulega fjölskylda, Guð geymi ykkur og blessi minningu ykkar ást- kæru Maríu. Viltu leiða vininn minn verndarengill fagur, þar sem heiða himininn hyllir kveldlaus dagur. (Höf. ók.) Álfheiður Guðjónsdóttir. Samstarfskona okkar til margra ára, María Þorgrímsdóttir, lést fyrir aldur fram laugardaginn 23. ágúst sl. eftir erfið veikindi. María hóf störf á Félagsþjónustunni árið 1989 eftir að hafa verið leikskólakennari og síðast leikskólastjóri hér í Hafn- arfirði. Eins og starfsval hennar gefur til kynna var María mjög barngóð kona og hafði einlægan áhuga og yndi af börnum. Þetta fundu börnin og hændust mjög að henni. Hvar sem María kom var glatt á hjalla. Hún var mjög fróð og hafði frá mörgu að segja og var alltaf tilbúin til að taka þátt í samræðum dagsins á sinn gamansama hátt. Þrátt fyrir mikil veikindi tók María virkan þátt í síðustu vorhátíð okkar starfsmannanna og var þar hrókur alls fagnaðar eins og hún ævinlega var. Fáa þekkjum við sem voru jafn gestrisnir og María. Við vinnufélag- ar hennar nutum þess oft á tíðum því hún var ólöt við að bjóða okkur heim. Í heimboðum hennar urðum við gjarnan aftur börn á leikskóla undir dyggri stjórn Maríu sem setti okkur í margvíslega leiki okkur til ómældrar skemmtunar. Við söknum góðs vinar og vinnu- félaga. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu henn- ar. Hugur okkar er hjá henni þessa erfiðu daga. Vinnufélagar á Félagsþjónustunni í Hafnarfirði. Nú er komið að því að kveðja kæra vinkonu og samstarfskonu eft- ir harða baráttu þar sem hún varð að láta undan að lokum. Kynni okkar þróuðust í gegnum árin, á Mæju-róló eins og við köll- uðum gjarnan gæsluvöllinn okkar í Norðurbænum, og synir mínir sóttu, og einnig nálægð okkar þegar hún bjó á Norðurvanginum. Síðar kom að því að við áttum langt og gott samstarf eftir að þú tókst að þér starf umsjónarfóstru dagmæðra. Við áttum það til að lenda á löngu spjalli og verður að segjast eins og er að aldrei þraut umræðuefni okkar á milli og hafði ég mikla ánægju af að hitta þig kæra vinkona og ræða um lífið og tilveruna. Elsku María, það er komið að kveðjustund og þakka ég þér góð kynni og bið Guð að styðja þína ynd- islegu fjölskyldu. Steinunn Ólafsdóttir. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og systir, INGIBJÖRG ÞÓRSTÍNA EINARSDÓTTIR RAINS frá Vestmannaeyjum, Beloit, Wisconsin, USA, lést á Mercy Hospital í Janesville sunnudaginn 17. ágúst. Jarðarför hennar fór fram í Rockford Illinois fimmtudaginn 21. ágúst. Russell Rains, Daniel Einar Rains, Colleen Rains, Ronald John Rains, Guðbjörg Einarsdóttir, Sigurjón Einarsson. Elskuleg systir okkar og mágkona, BIRGITTA ÍRIS HARÐARDÓTTIR, sem lést mánudaginn 25. ágúst, verður jarð- sungin frá Landakirkju miðvikudaginn 3. sept- ember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Vilhjálmur Jóhannes Bergsteinsson, Sigurlaug Harðardóttir, Jóhann Freyr Frímannsson, Helena Ósk Harðardóttir, Magnús Eðvald Pétursson. Ástkær móðir okkar, ÁGÚSTA SIGURÐARDÓTTIR RINGSTED, Víðilundi 10c, Akureyri, er látin. Gunnur, Sigurður, Gunnar, Ingibjörg, Guðbjörg og Baldvin. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ANNA INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR frá Ísafirði, Digranesheiði 21, Kópavogi, andaðist miðvikudaginn 27. ágúst. Þráinn Árnason, Rebekka Þráinsdóttir, Sigurður Á. Þráinsson, Þór Þráinsson, Þráinn Vikar Þráinsson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Skálholtsvík, lést á Sjúkrahúsi Hvammstanga aðfaranótt miðvikudagsins 27. ágúst. Sigurrós Magnea Jónsdóttir, Hilmar Guðmundsson, Sveinbjörn Jónsson, Jóhanna Guðrún Brynjólfsdóttir, Jóhannes Jónsson, Birna Hugrún Bjarnardóttir, barnabörn, langömmubörn og langalangömmubarn. Lokað verður eftir hádegi í dag, föstudaginn 29. ágúst, vegna jarðarfar- ar GUNNARS MAGGA ÁRNASONAR. LITLAPRENT ehf., Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.