Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. 20% afsláttur af skólaosti í sérmerktum kílóastykkjum! IÐGJÖLD á lög- boðnum bifreiða- tryggingum hafa hækkað um 86,6% frá því í ársbyrjun 1999, en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 20,1%. Hækkunin á fyrri hluta þessa tímabils var þó verulega meiri en sú hækkun sem orðið hefur frá árs- byrjun 2002. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að afkoma tryggingafélaganna af ökutækja- tryggingum og meiri hækkun á vátrygginga- skuld félaganna en eðlilegt geti talist sýni að iðgjöld bifreiðatrygginga hafi verið óeðlilega há. Hann segir að vátryggingaskuldin, eða svonefndir bótasjóðir, sé að minnsta kosti 25.000 milljónir króna. Sjóðirnir vaxi stöðugt þrátt fyrir færri tjón og stórbætta afkomu tryggingafélaganna. Talsmenn stóru tryggingafélaganna segja að iðgjöld af bifreiðatryggingum hafi þegar verið lækkuð í ár og í fyrra og þau séu stöðugt í endurskoðun. Tryggingafélögin högnuðust um 1.072 millj- ónir af bílatryggingum á fyrri hluta ársins. Bílatryggingar hafa hækkað langt umfram verðlag -.%$'  '  $ &    (%   N5 '''O!'' !"' !)' ! ' !'' .' && AB  = A &      Iðgjöldin/14 86,6% hækkun frá árinu 1999 FORSTÖÐUMAÐUR Fornleifa- verndar ríkisins, Kristín Huld Sig- urðardóttir, segist harma það að gamli hitaveitustokkurinn milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur verði rifinn að mestu leyti og aðeins skilinn eftir stuttur bútur í miðbæ Mosfellsbæjar. Verktaki hefur undanfarna viku unnið við það að rífa niður stokkinn. Búið er að mölva helminginn af um 430 metra kafla milli Þverholts og Langatanga en í miðbæ Mosfells- bæjar hefur verið skilinn eftir stuttur bútur, 10–15 metra langur, sem minnisvarði um þetta gamla veitumannvirki. Tryggvi Jónsson, bæjarverk- fræðingur Mosfellsbæjar, segir að slysahætta hafi verið af stokknum og auk þess verið talið of kostnaðar- samt að varðveita stærri hluta af honum. Það mat hafi m.a. byggst á skýrslu sem verkfræðistofan Fjar- hitun hf. gerði fyrir um ári þar sem skoðaðar voru mismunandi leiðir við varðveislu stokksins. Viðhalds- kostnaður var talinn vera 10–14 milljónir, auk rekstrarkostnaðar. Tryggvi segir að hvorki bærinn né Orkuveitan hafi verið reiðubúin að sjá um reksturinn og sú ákvörðun hafi verið kynnt í bréfi til þjóðminja- varðar fyrr í sumar að stokkurinn yrði fjarlægður að undanskildum bút í miðbænum. Þar sem ekki hafi borist svar hafi verið ákveðið að hefjast handa. Kristín Huld Sigurðardóttir segir einhver mistök hafa átt sér stað við að tilkynna framkvæmdirnar rétta leið. Hún hafi ekki fregnað af þeim fyrr en á miðvikudagskvöld. „Það hefði verið mjög æskilegt að varðveita stærri hluta af stokknum. Lítið er eftir af svona minjum á svæðinu en þar sem ekki er um frið- aðar eða friðlýstar minjar að ræða er það undir Orkuveitu Reykja- víkur og Mosfellsbæ komið hvort menn vilja varðveita mannvirkið,“ segir Kristín. Byggður í miðju hernámi Fyrst var byrjað á að rífa stokk- inn í júní árið 2001, tveimur árum eftir að heitt vatn var tekið af honum, en vegna athugasemda frá Þjóðminjasafninu voru þær fram- kvæmdir stöðvaðar um sinn. Í Morgunblaðinu í ágúst 2001 var haft eftir Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði að samkomulag hefði náðst um að rífa stokkinn utan þéttbýlis en varðveita hann innan bæjarmarka Mosfellsbæjar. Fram- kvæmdir hófust á ný og þetta árið var um þriggja kílómetra kafli rif- inn. Stokkurinn var byggður í miðju hernáminu á árunum 1940–1943 og flutti heita vatnið til Reykvíkinga úr Mosfellssveit áratugum saman. Síðustu hlutar hitaveitustokksins í Mosfellsbæ fjarlægðir að mestu Fornleifavernd ríkisins harmar framkvæmdina Morgunblaðið/Einar Falur Byrjað var á að rífa stokkinn í miðbæ Mosfellsbæjar sl. föstudag. ENGIR fjármunir eru fyrir hendi hjá Fornleifavernd ríkisins til að halda við yfir 700 fornleifum og minjum víðs vegar um land, að sögn Kristínar Huldar Sigurðar- dóttur, forstöðumanns stofnunar- innar. Eins og í tilviki hitaveitu- stokksins milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur segir Kristín það vera erfitt að setja kvöð á ein- hvern að halda við slíkum minjum. Fornleifavernd ríkisins hafi enga fjármuni til þess. Kristín segir að farið hafi verið fram á fjármagn til viðhalds minja en við þeirri beiðni hafi ekki verið orðið enn. Sem dæmi um forn- minjar sem þarfnast viðhalds nefnir hún Stöng í Þjórsárdal og Snorralaug í Borgarfirði. Engir fjármunir til varðveislu yfir 700 minja TVEGGJA turna tal, kvikmyndagerð ann- ars hluta Hringadróttinssögu, hefur selst gríðarlega vel síðan hún kom út á mynd- bandi og mynddiski á þriðjudaginn. Á út- gáfudegi voru afgreidd frá útgefanda yfir 13 þúsund eintök, 8.500 á mynddiski og 4.500 á myndbandi, sem er algjört eins- dæmi hér á landi, að sögn Jóns Gunnars Geirdal, kynningarstjóra Hringadrótt- inssögukvikmyndanna á Íslandi. Er hér þó aðeins um fyrstu útgáfu á myndinni að ræða því í desember kemur út sérstök viðhafnarútgáfa þar sem verð- ur að finna 30 mínútum lengri útgáfu. Turnarnir rifnir út Í FRAMHALDSSKÓLUM hefur lengi viðgengist sá siður að bjóða ný- nema, „busa“, velkomna í skólann. Það hefur verið gert með ýmsum hætti í gegnum tíðina. Stundum hafa busar haft ástæðu til að kvíða busa- vígslum, enda hefur stundum verið lögð áhersla á að fara illa með þá. „Við erum ekki beint að „busa“ í gömlu merkingunni. Við erum ekki að fara illa með nýnemana heldur bara að bjóða þá velkomna,“ segir Baldur Kristjánsson, formaður Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands, en í gær voru nýnemar boðnir velkomnir í skólann. Farið var með þá í grillveislu í Ártúns- brekkunni. Baldur segir að um kvöldið hafi verið haldið nýnemakvöld þar sem sýnt var myndband sem unnið var í sumar. Nokkrir nýnemar urðu í sumar fyrir smávægilegum hrekkjum sem teknir voru upp með falinni myndavél. Að sögn Baldurs heppnaðist dagurinn mjög vel og all- ir fóru sáttir heim, bæði busar og eldri nemendur. Morgunblaðið/Arnaldur Nýnemavígsla í Verzló ÖFUGT við aðra ferðamenn á Mark- úsartorginu í Feneyjum í sumar sögð- ust hjónin Hildur Björg Ingiberts- dóttir og Erlingur Snær Erlingsson hafa gónt á göturnar og virt fyrir sér allar tyggjóklessurnar. Kannski er það ekkert skrýtið í ljósi þess að þau voru þá nýbúin að koma sér upp vist- vænni tyggjóhreinsivél og voru farin að hreinsa íslenskar götur, stéttir og torg af þessum ófögnuði. Tyggjóhreinsun er aukabúgrein hjá þeim hjónum, en þau segja mikinn markað fyrir þjónustuna, enda lítið lát á að fólk hendi tuggunum frá sér nánast hvar sem er. Meðal viðskipta- vina þeirra eru ýmsar opinberar stofnanir og einkafyrirtæki. Atlaga að tyggjó- klessum  Daglegt líf/B2 ♦ ♦ ♦ ALLT tiltækt lið Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins var kallað út á ell- efta tímanum í gærkvöld vegna mik- ils reyks frá atvinnuhúsnæði á horni Auðbrekku og Skeljabrekku í Kópa- vogi. Í húsnæðinu eru ellefu fyrir- tæki og á vettvangi kom fljótlega í ljós að reykurinn kom frá eimingar- tæki í fyrirtækinu Íslakki hf. Hafði tækið brunnið yfir en slökkviliðinu tókst að reykræsta húsið á skömm- um tíma. Mikill reykur í Kópavogi ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.