Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KNATTSPYRNA UEFA-bikarinn Forkeppni, síðari leikir: Fylkir – AIK 0:0 Laugardalsvöllur; Aðstæður: Gola, rigning og bleyta en völlur ágætur að öðru leyti. Skot: 8 (2) - 11 (7). Horn: 8 - 7. Gul spjöld: Hrafnkell Helgason, Fylki (19.), brot, Ólafur I. Skúlason, Fylki (89.), brot. Rauð spjöld: Mats Rubarth, AIK (20.), brot. Dómari: Mark Whitby, Wales. Góður. Áhorfendur: 1.193. Fylkir: Kjartan Sturluson - Helgi Valur Daníelsson, Hrafnkell Helgason (Sverrir Sverrisson 67.), Þórhallur Dan Jóhannsson, Arnar Úlfarsson - Ólafur Ingi Skúlason, Finnur Kolbeinsson, Eyjólfur Héðinsson (Theódór Óskarsson 60.), Ólafur Páll Snorrason, Gunnar Þ. Pétursson - Haukur Ingi Guðnason (Sævar Gíslason 58.) AIK: Svensson - Nilsson, Sundgren, Björk, Tjernström - Nordin, Corneliusson, Rub- arth - Ishizaki, Åslund, Hoch (Quansah 82.)  AIK kemst áfram, 1:0 samanlagt. Grindavík – Kärnten 1:1 Grindavíkurvöllur; Mark Grindavíkur: Ray A. Jónsson 64. Mark Kärnten: Almedin Hota 90. Aðstæður: Strekkingsvindur, rigningarúði og 11 stiga hiti. Völlurinn blautur en góður. Skot: 9 (4) - 12 (5). Horn: 3 - 2. Gul spjöld: Jack (G) 30. brot, Vorderegger (K) 35., brot, Schellander 56., brot, Zafarin 64., brot, Hota 71., leikaraskap. Rauð spjöld: Mario Hieblinger, Kärnten (60.), fyrir brot. Dómari: Jonas Eriksson, Svíþjóð, ágætur. Áhorfendur: 975. Grindavík: Helgi Helgason - Óðinn Árna- son, Sinisa Kekic, Ólafur Örn Bjarnason, Gestur Gylfason - Eysteinn Hauksson, Guð- mundur Bjarnason, Mathias Jack (Alfreð Jóhannsson 71.), Paul McShane - Ray Anthony Jónsson, Óli Stefán Flóventsson. Kärnten: Goriupp - Vorderegger, Hiebling- er, Papic - Junior (Zafarin 46.), Helgi Kol- viðsson (Ambrosius 84.), Kampel, Hota, Schellander (Höller 74.) - Kabat, Maric.  Kärnten kemst áfram, 3:2 samanlagt. Aðrir leikir, samanlögð úrslit í svigum, lið- in sem komast áfram eru skáletruð: Sioni Bolnisi - Puchov ....................... 0:3 (0:6) Shirak - FC Nordsjælland ............... 0:2 (0:6) Banants Jerevan - Hap.Tel Aviv..... 1:2 (2:3) Sartid Smederevo - Sarajevo........... 3:0 (4:1) Belasica - Publikum Celje .............. 0:5 (2:12) Dnipro D’petrovsk - Vaduz .............. 1:0 (2:0) Dudelange - Petrzalka ...................... 0:1 (0:2) Liepaja - Dinamo Búkarest.............. 1:1 (3:6) Nistru Otaci - Rauða stjarnan ......... 2:3 (2:8) Torpedo Kutaisi - Lens..................... 0:2 (0:5) TVMK Tallinn - OB Odense ............ 0:3 (1:4) Varteks - Levadia Maardu............... 3:2 (6:3) Wisla Plock - Ventspils ..................... 2:2 (3:3) Levski Sofia - Atyrau ........................ 2:0 (6:1) Maccabi Haifa - Cwmbran ............... 3:0 (6:0) Anorthosis - Zeljeznicar Sarajevo... 1:3 (1:4) Debrecen - Ekranes .......................... 2:1 (3:2) Lyn - NSÍ Runavík............................ 6:0 (9:1) Zimbru - Litex Lovech...................... 2:0 (2:0) Santa Coloma - Esbjerg ................... 1:4 (1:9) Steaua Búkar. - Neman Grodno.......0:0 (1:1) Young Boys Bern - MyPa ................ 2:2 (4:5) Derry City - Apoel Nicosia .............. 0:3 (1:5) Dinamo Minsk - Bröndby................. 0:2 (0:5) Ferencvaros - Birkirkara ................. 1:0 (6:0) Kamen - Ettelbruck .......................... 7:0 (9:1) KÍ Klaksvík - Molde.......................... 0:4 (0:6) Hajduk Split - Haka Valkeakoski ... 1:0 (2:2) Neuchatel Xamax - Valetta.............. 2:0 (4:0) Domagnano - Torpedo Moskva ....... 0:4 (0:9) Dundee - Vllaznia............................... 4:0 (6:0) Lokeren - Din. Tirana ....................... 3:1 (7:1) Portadown - Malmö FF.................... 0:2 (0:6) Llansantffraid - Man. City ............... 0:2 (0:7) Shelbourne - Olimpija Ljubljana..... 2:3 (2:4) Katowice - Cementarnica ................. 1:1 (1:1) Uniao Leiria - Coleraine................... 5:0 (6:2) HANDKNATTLEIKUR Opna Reykjavíkurmót karla: Combault - Valur......................................22:22 Haukar - Breiðablik.................................26:13 Breiðablik - Stjarnan...............................16:17  Leik Fram og Aftureldingar var hætt í hálfleik vegna rafmagnsbilunar í Austur- bergi en staðan var 10:10. Seinni hálfleikur verður leikinn í Laugardalshöll í kvöld kl. 19.40 og á eftir leika Fram og Valur. KÖRFUKNATTLEIKUR Hraðmót Vals: Haukar - Fjölnir...................................... 62:39 Njarðvík - Breiðablik ............................. 43:46 FRJÁLSÍÞRÓTTIR HM í París: Stangarstökk karla: Giuseppe Gibilisco, Ítalíu ......................... 5,90 Okkert Brits, Suður-Afríku..................... 5,85 Patrik Kristiansson, Svíþjóð ................... 5,85 Sleggjukast kvenna: Yipsi Moreno, Kúbu................................ 73,33 Olga Kuzenkova, Rússlandi................... 71,71 Manuela Montebrun, Frakklandi......... 70,92 200 m hlaup kvenna: Kelli White, Bandaríkjunum................. 22,05 Anastasía Kapatsjínskaja, Rússlandi .. 22,38 Torri Edwards, Bandaríkjunum .......... 22,47 400 m grindahlaup kvenna: Jana Pittman, Ástralíu ........................... 53,22 Sandra Glover, Bandaríkjunum ........... 53,65 Júlíja Petjsonkina, Rússlandi................ 53,71 RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þýskalands í knatt- spyrnu, valdi í gær 22 manna leikmannahóp sem mætir Íslendingum á Laugardalsvelli 6. sept- ember og Skotum 10. september í undankeppni EM . Sebastian Deisler, leikmaður Bayern München, er kominn í hópinn á nýjan leik eftir meiðsli en hann var síðast í þýska landsliðs- hópnum 18. maí í fyrra. Þýska liðið ætlar að koma saman þriðjudaginn 2. september í Þýskalandi en kemur til Íslands tveimur dögum síðar. Mikið er um meiðsli á meðal varnarmanna þýska liðsins, þeir Jens Nowotny, Jörg Böhme, Christian Ziege og Christian Metselder geta ekki leikið með og sömu sögu er að segja um miðvallarleikmennina Dietmar Hamann og Thorsten Frings. Þá er Tob- ias Rau í leikbanni í leiknum gegn Íslendingum. Michael Ballack máttarstólpi í landsliðinu er hins vegar leikfær á ný eftir smávægileg meiðsli sem héldu honum frá æfingaleiknum gegn Ítölum á dögunum. Landsliðshópur Þjóðverja er þannig skipaður að markverðir eru Oliver Kahn, Bayern München og Jens Lehmann, Arsenal. Aðrir leikmenn eru: Frank Baumann, Werder Bremen, Arne Friedrich, Hertha Berlín, Michael Hartmann, Hertha Berlín, Andreas Hinkel, Stutt- gart, Marko Rehmer, Hertha Berlín Christian Wörns, Borussia Dortmund, Sebastian Deisler, Bayern München, Michael Ballack, Bayern München, Paul Freier, Bochum, Jens Jeremies, Bayern München, Sebastian Kehl, Borussia Dort- mund, Christian Rahn, Hamburger, Carsten Ramelow, Bayer Leverkusen, Bernd Schneider, Bayer Leverkusen, Miroslav Klose, Kais- erslautern, Fredi Bobic, Hertha Berlín, Oliver Neuville, Bayer Leverkusen, Benjamin Lauth, 1860 München og Kevin Kuranyi, Stuttgart. Tobias Rau var einnig valinn í hópinn en hann tekur út leikbann gegn Íslendingum en verður löglegur í viðureigninni við Skota. Deisler í þýska landsliðið  ELDAR Hadzimehmedovic, 18 ára piltur, skoraði öll sex mörk Lyn sem sigraði NSÍ Runavík frá Fær- eyjum, 6:0, í UEFA-bikarnum í knattspyrnu í gærkvöld. Hann kom inn í liðið fyrir Helga Sigurðsson sem sat á varamannabekknum allan tímann, rétt eins og Jóhann B. Guð- mundsson. Þetta var fyrsti leikur Lyn eftir að Teitur Þórðarson sagði upp störfum sem þjálfari liðsins, í fyrradag.  MOLDE fór líka létt með færeyska andstæðinga sína, vann KÍ, 4:0, í Klakksvík og 6:0 samanlagt. Hvorki Ólafur Stígsson né Bjarni Þor- steinsson voru í liði Molde.  ÓLAFUR Már Ægisson leikur með KR í úrvalsdeild karla í körfu- knattleik á komandi vetri. Ólafur Már er 21 árs gamall og leikur í stöðu bakvarðar en hann var í her- búðum Vals á síðasta tímabili.  BIRGIR Guðfinnsson hefur tekið við stjórn meistaraflokks Vals í körfuknattleik karla tímabundið. Hann mun stjórna liðinu í hraðmóti Vals sem fram fer nú um helgina.  LAMAR Odom hefur gengið til liðs við Miami Heat frá Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfu- bolta. Odom, sem spilar stöðu fram- herja, gerði sex ára samning við Heat. Odom er 23 ára gamall og skoraði að meðaltali 14,6 stig í leik og tók 6,7 fráköst á síðastliðnu tímabili.  LARRY Bird, stjórnarformaður NBA-körfuknattleiksliðsins Indiana Pacers, sagði í gær upp þjálfara liðs- ins, Isiah Thomas. Þessi tíðindi koma engum á óvart því Thomas og Bird hafa aldrei átt skap saman og spurningin var aðeins hvenær en ekki hvort Bird losaði sig við Thom- as. Á fréttamannafundi sagði Bird að Rick Carlisle yrði fyrsti kostur In- diana í þjálfarastöðuna en viðræður við hann hefjast í dag eða á morgun.  FRAMHERJINN Jermaine O’Neal sagði í gær að hann hefði ekki skrifað undir nýjan samning við Indiana Pacers ef hann hefði vitað að Isiah Thomas yrði rekinn. O’Neal skrifaði fyrr í sumar undir nýjan sjö ára samning við Pacers. „Ég er mjög óánægður og hissa á að Thomas hafi verið rekinn. Forráðamenn Indiana sögðu við mig áður en ég skrifaði undir nýja samninginn að Thomas yrði áfram þjálfari liðsins,“ sagði O’Neal.  PAUL Scholes, leikmaður Eng- landsmeistara Manchester United, þarf að fara í uppskurð vegna meiðsla í mjöðm. Ekki er vitað hve- nær hann fer undir hnífinn en það þarf að gerast fyrr en seinna.  MIKAEL Forssell, Finninn í liði Chelsea, var í gær lánaður til Birm- ingham City. Chelsea er með mikinn fjölda góðra framherja og því varð Forssell að víkja, ætlaði hann sér að leika knattspyrnu í aðalliði. FÓLK Mikil og spennandi lokabaráttaer framundan í 1. deild karla í knattspyrnu, bæði á toppi og botni deildarinnar, en þrjár umferðir eru eftir og geta fjögur lið enn komist upp um deild og strangt til tekið getur Stjarnan, sem er í fjórða sæti og á möguleika á að komast upp, líka fallið. Keflvíkingar eru svo gott sem öruggir um sæti í efstu deild að ári, þurfa þó eitt stig til viðbótar til að gulltryggja það. Þeir eru með 36 stig. Víkingur og Þór berjast um hitt sætið, Víkingar með 30 stig og Þórsarar 28. Víkingur á Stjörnuna á útivelli, Breiðblik heima og Kefla- vík úti en Þórsarar taka á móti Haukum, heimsækja Stjörnuna og lokaleikurinn er síðan við Leiftur/ Dalvík á akureyri. Trúlega mun auðveldari leikir en Víkingar eiga eftir. Stjarnan er í fjórða sæti með 22 stig og getur fengið 31 stig með því að vinna alla leikina og komist upp á því tapi Víkingur öllum leikjunum. Víkingar hafa tapað einum heimaleik í sumar en engum á úti- velli. Þórsarar hafa hins vegar tap- að einum leik heima og tveimur á útivelli. Stjarnan getur líka fallið því Afturelding, sem er í næst neðsta sæti með 14 stig getur feng- ið 23 stig. Leiftur/Dalvík er neðst með 8 stig og róður liðsins erfiður en möguleikinn á að halda sætinu er enn til staðar. Liðið á Aftureldingu (ú), Hauka (h) og Þór (ú). Afturelding á Leiftur/Dalvík (h), HK (ú), og Njarðvík (h). Haukar eru í 8. sæti með 16 stig og á liðið eftir að mæta Þór (ú), Leiftri/Dalvík (ú) og HK (h). Breiðablik kemur þar á eftir með 17 stig og dagskráin hjá Kópa- vogsbúum er Njarðvík (h), Víking- ur (ú) og Stjarnan (h). Njarðvík er líka með 17 stig og á Breiðablik (ú), Keflavík (h) og Aft- ureldingu (ú). Í sæti þar fyrir ofan er HK með 18 stig og á Keflavík (ú), Aftureld- ingu (h) og Hauka (ú), eftir. Af þessari upptalningu má ljóst vera að næstu þrjár helgar verða spennandi í fyrstu deildinni en 16. umferð hefst í kvöld með þremur leikjum. Keflavík þarf eitt stig INDRIÐI Sigurðsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, er búinn að semja við belgíska knatt- spyrnufélagið Genk til þriggja ára. Ekki liggur samt enn fyrir hvort hann verður leikmaður með félaginu því Genk og Lille- ström hafa ekki náð sam- komulagi sín á milli. Eyjólfur Bergþórsson, um- boðsmaður Indriða, sagði við Morgunblaðið í gærkvöld að deilan snerist um hinar svoköll- uðu uppeldisbætur sem koma eiga í hlut norska félagsins. „Það getur enn brugðið til beggja vona í þessu máli. Frest- urinn er orðinn stuttur því það þarf að ljúka því á morgun (í dag),“ sagði Eyjólfur. Frestur til að ganga frá skiptunum rennur út á sunnudag en í dag er síðasti virki dagurinn áður en „félagaskiptaglugganum“ er lokað til áramóta. Indriði samdi en félögin deila enn Tveir sigrar hjá TBR TBR vann í gær tvo góða sigra í Evrópukeppni félagsliða í bad- minton í Uppsala í Svíþjóð. TBR, sem tapaði 4:3 fyrir Basel frá Sviss í fyrsta leiknum, sigraði fyrst hollenska liðið Duinwijk, 4:3, og vann síðan stórsigur á Ego Sports Club frá Tyrklandi, 7:0. Tvíliðaleikur karla gegn Duinwijk tapaðist 15–8 og 15–11 en þar kepptu Njörður Ludvigsson og Magnús Ingi Helgason, en þær Ragna Ingólfsdóttir og Katrín Atladóttir unnu sinn leik 15–9 og 15–13. Í einliðaleik kvenna vann Ragna sinn leik 11–6 og 11–3 og Tinna Helgadóttir 11–6 og 11–7. Njörður vann sinn leik 8–15, 15– 13 og 15–2 en Helgi Jóhannesson tapaði sínum 15–3 og 15–3. Að lokum töpuðu Magnús og Tinna 15–5 og 15–5 í tvenndarleiknum. Evrópumeistararnir í AC Milaneru í H-riðli og munu etja kappi við Celta Vigo, Ajax og Club Brugge. Real Madrid er talið sigurstrangleg- asta liðið í keppninni hjá breskum veðbönkum. „Við erum með frábært lið og við eigum að komast áfram. Hinsvegar verðum við að vera varir um okkur því við eigum erfiða útileiki fyrir höndum,“ sagði Emilio Butr- agueno, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid. Öll bresku liðin geta vel við unað en þau lentu í riðlum þar sem þau eiga ágæta möguleika á að komast áfram. Manchester United virðist eiga greiða leið í 16 liða úrslit- in en liðið er með Panathinaikos, Glasgow Rangers og Stuttgart í riðli. Ljóst er að mikill áhugi verður á við- ureign United og Rangers en þar mætast Englandsmeistararnir og Skotlandmeistararnir. Sir Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri United, var mjög ánægður með að lenda í riðli með Glasgow Rangers. „Þetta er frábær dráttur fyrir okkur og það verður virkilega gaman að mæta skosku meisturunum,“ sagði Ferguson. Chelsea lenti í riðli með Lazio, Sparta Prag og Besiktas. „Við höfum styrkt liðið mikið og við eigum góða möguleika á að fara upp úr riðlinum,“ sagði Ken Bates, stjórnarformaður Chelsea. Arsenal mun mæta Inter, Dynamo Kiev og Locomotiv Moskva. „Við erum með mjög sterkt lið og vonandi komumst við lengra í keppn- inni en nokkru sinni áður,“ sagði Dav- id Dein, varastjórnarformaður Ars- enal. Riðlarnir í Meistaradeildinni A-riðill: Bayern München, Lyon, Celtic og Anderlecht. B-riðill: Arsenal, Inter Mílanó, Dynamo Kiev og Locomotiv Moskva. C-riðill: Deportivo La Coruna, PSV Eindhoven, AEK Aþena og Mónakó. D-riðill: Juventus, Galatasaray, Olympiakos og Real Sociedad. E-riðill: Manchester United, Pan- athinaikos, Glasgow Rangers og Stuttgart. F-riðill: Real Madrid, Porto, Mars- eille og Partizan Belgrad. G-riðill: Lazio, Chelsea, Sparta Prag og Besiktas. H-riðill: AC Milan, Celta Vigo, Ajax og Club Brugge. Manchester United og Rang- ers í sama riðli Í GÆR var dregið í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í knatt- spyrnu en riðlakeppnin hefst 16. september. Það eru alls 32 lið sem taka þátt í riðlakeppn- inni og þeim er skipt niður í 8 riðla. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara í 16 liða úrslitin. MAREL Baldvinsson skoraði fyrsta mark Lokeren þegar belgíska liðið sigraði Dinamo Tirana frá Albaníu, 3:1, í síðari leik liðanna í UEFA-bikarnum í knattspyrnu í gærkvöld. Lokeren komst þar með í aðalkeppnina en lið- ið vann stórsigur á útivelli, 4:0, í fyrri leiknum. Af þeim sökum voru Arnar Grétarsson og Rúnar Kristinsson hvíldir og sátu þeir á vara- mannabekknum, enda á Lokeren erfiða leiki fram undan. Albanarnir komust yfir en Marel jafnaði með skalla eftir fyrirgjöf á 29. mínútu. Í síðari hálfleik skoraði Fofana síðan tvö mörk. Arnar Þór Viðarsson, fyrirliði Lokeren, átti ágætan leik og Marel vann vel. Hann fékk þó aðeins 4 í einkunnagjöf Het Nieuwsblad í morgun, Arn- ar Þór fékk 6 og bestu menn Lokeren, Fofana og Kilian, fengu 7. Marel skoraði og Lokeren áfram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.