Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 17 ERLENT NÝTT útivistarsvæði á Víði- staðatúni í Hafnarfirði var form- lega tekið í notkun við afar lit- ríka og gleðilega athöfn í gær. Útivistarsvæðið, sem hefur hlotið nafnið Hraungerði, er hannað, út- fært og unnið í samvinnu nokk- urra kennaramenntunarstofnana á Norðurlöndunum. Samstarf stofnananna, Norræna menning- arnetið, felst í því að miðla fræðslu um listir og menningu og standa fyrir gerð sérhannaðra útivistar- og leiksvæða í þátt- tökulöndunum. Um fimmtíu kenn- arar og kennaranemar frá öllum Norðurlöndunum tóku þátt í verkefninu og komu saman í hálfa aðra viku til að vinna verk- ið, fræðast um listir og menningu og efla uppeldislega þekkingu. Naut hópurinn leiðsagnar lista- mannsins Halldórs Ásgeirssonar, sem kenndi þeim á ýmis tól og tæki og aðferðir í sköpun og mót- un efnis. Litrík skemmtun fyrir börnin Opnunarathöfnin var vægast sagt litrík og gleðileg, leikið var á hljóðfæri, sungið og sprellað fyrir hafnfirsk leikskólabörn sem kunnu vel að meta skemmtunina. Settur var upp leikþáttur í hrauninu þar sem komu við sögu litlar álfadísir, allmyndarleg álfa- drottning, úlfar, fimm stríðin tröll, Batman, draugur, seiðkona og tveir lögreglumenn sem að lokum tóku úlfana grimmu til fanga eftir miklar hremmingar álfadísanna sem komust loks heilu og höldnu til móður sinnar. Tungumálin voru enginn múr í gleðilegri uppfærslu norrænu kennaranemanna, enda ná lát- bragð og söngur yfir öll landa- mæri. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segist afar ánægð- ur með hvernig til tókst. „Víðistaðasvæðið er að vissu leyti hjarta Hafnarfjarðar sem útivist- arsvæði, ekki ólíkt Laugardalnum í Reykjavík. Þetta svæði er kjörin viðbót í þá flóru sem er að mynd- ast hér og frábært að sjá hvernig tekist hefur að ná samspili við hraunið. Fjölmargir starfsmenn bæjarins komu einnig að þessu og það var sérstaklega gott að sjá hvað samstarfið við garð- yrkjudeildina okkar gekk vel, hér hafa myndast mörg góð vin- áttutengsl í allar áttir.“ Frábært að prófa nýja hluti Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, lekt- or við KHÍ og kennari á nám- skeiðinu sem nemendurnir stunda, tekur undir orð Lúðvíks um samstarfið. „Það er líka svo merkilegt að hér komum við saman og sköpum eitthvað sjáanlegt og var- anlegt í stað þess að tala bara út í eitt. Leiðtogar heimsins ættu að prófa eitthvað svona í stað þess að sitja bara við borð og ræða málin. Það var líka frá- bært að fá tækifæri til þess að prófa ný verkfæri og til dæmis að bræða hraun, sem er al- veg ný upplifun fyrir okkur öll. Halldór Ásgeirsson listamaður var ómetanleg hjálp og hann kynnti okkur fyrir mörgum spennandi hlutum. Nokkrir nemend- anna hafa sagt mér að þetta hafi verið lærdómsríkasta reynslan í þeirra námi.“ Jóhanna var einnig ánægð með uppfærslu leikþáttarins. „Það er frábært að nota náttúruna sem leiksvið. Það kostaði ekki neitt og svo voru rekaviðardrumbar notaðir sem sæti. Við erum mjög þakklát öllum sem lögðu þessu verkefni lið því að án hjálpar þeirra hefði aldrei orðið neitt úr þessu.“ Nýtt útivistarsvæði tekið í notkun á Víðistaðatúni Ánægjulegt samstarf norrænna kennaranema Morgunblaðið/Svavar Stríðin tröll og úfnir úlfar gerðu aðsúg að álfameyjunum tveimur, sem sýndu djörfung og dug í mótlætinu. Álfadrottningin var hin sköruglegasta og vakti mikla kátínu með blómlegri framkomu sinni. Morgunblaðið/Jim Smart Börnin brostu sínu blíðasta og kunnu vel að meta leik norrænu nemanna. Hafnarfjörður Morgunblaðið/Jim Smart FINNSKIR vísindamenn hafa komist að því að lesblinda kunni að orsakast af galla í erfðaefni og það skýri hvers vegna les- blinda sé algengari í sumum fjölskyldum en öðrum. Telja þeir að í framtíðinni verði jafn- vel hægt að þróa lyf gegn les- blindu. Vísindamennirnir rannsökuðu 20 finnskar fjölskyldur þar sem lesblinda var algeng og komust þeir að því að ákveðið erfðaefni, svokallað DYXC1 var gallað í mörgum þeirra. Segja þeir niðurstöðurnar benda ótvírætt til þess að les- blinda tengist gerð erfðafnis. Rannsóknin var unnin við há- skólann í Helsinki og birtust niðurstöðurnar í tímaritinu Pro- ceedings of the National Aca- demy, að því er fram kemur hjá BBC. Talið er að 3–10% fólks þjáist af lesblindu sem lýsir sér í erf- iðleikum við að þekkja og lesa orð. Komið hafa fram kenningar þess efnis að lesblindir noti ekki sömu hluta heilans og annað fólk. Einnig hefur því verið haldið fram að þeir noti hægra heilahvelið þegar þeir lesa í stað þess að nota vinstra hvelið, en með því sé auðveldara að greina orð. Ef fleiri rannsóknir styðja kenningu finnsku vísindamann- anna munu læknar í framtíðinni geta prófað hvort börn séu les- blind og þannig verður hægt að tryggja betur að þau fái alla þá hjálp sem þau þurfa til að drag- ast ekki aftur úr námi. Telja galla í erfða- efni orsaka lesblindu ÞJÓÐVERJAR verða að hækka eftirlaunaaldurinn úr 65 árum í 67 ár og draga úr bótagreiðslum til þess að bregðast við auknum byrð- um sem leggjast munu á almanna- tryggingakerfið í kjölfar þess að hlutfall aldraðra af þjóðinni hækk- ar. Kemur þetta fram í skýrslu sem nefnd 26 fulltrúa úr röðum hagfræðinga, vísindamanna, verka- lýðsleiðtoga og sérfræðinga í stjórnmálum hefur sett saman og unnið að í níu mánuði. Formaður nefndarinnar, Bert Rürup, sagði að yrði tillögunum hrundið í framkvæmd gætu þær orðið öflugur grundvöllur umbóta. Margir hafa bent á að haldi sem horfir komist kerfið í þrot innan nokkurra áratuga. Nú er eftirlauna- aldur miðaður við 65 ár en margir Þjóðverjar fara mun fyrr á eft- irlaun. Nefndin gerir ráð fyrir að eftirlaunaaldurinn verði hækkaður í áföngum í 67 ár frá 2011 til 2035 og greiðslurnar verði frystar næstu tvö árin. Ungt fólk hefur í vaxandi mæli fundið að því að þeir sem nú eru farnir að þiggja eftirlaun og fólk sem nálgast þann aldur muni í reynd lifa góðu lífi vegna framlaga þeirra sem nú eru ungir og á starfsaldri. En síðar verði hinir síð- arnefndu að greiða reikninginn og þá verði að lækka mjög greiðsl- urnar. „Þetta mun dreifa útgjöldunum með réttlátari hætti á kynslóðirn- ar,“ sagði Rürup um hækkun eft- irlaunaaldursins. Hann sagði að menn gætu ekki endalaust sópað undir teppið erfiðum spurningum varðandi aukinn kostnað við eft- irlaunakerfið. Schröder virðist tvístígandi Nú þegar hafa sumar tillögurnar, sem hafa lekið út, verið gagnrýndar hart og sagðar brjóta rétt á þeim sem hafi unnið hörðum höndum allt sitt líf. Ulla Schmidt heilbrigðis- málaráðherra sagði að margt væri „skynsamlegt og rétt“ í tillögunum. En spurð um hækkun eftirlaunaald- urs sagði hún aðeins að hún væri sammála því að sporna bæri gegn því að fólk hætti að vinna fyrir 65 ára aldurinn. Gerhard Schröder kanslari fól á sínum tíma nefndinni verkefnið en hann virtist á þriðjudag forðast að láta bendla sig um of við þær. Sagði hann að skýrslan væri engin „bibl- ía“ og hann vonaðist til þess að hægt yrði að koma því til leiðar að fólk færi að jafnaði ekki fyrr á eft- irlaun en við 65 ára aldurinn. Efnahagsumbótatillögur í Þýskalandi Hærri eftir- launaaldur og bætur lækkaðar Gerhard Schröder Berlín. AFP. BRESKA tryggingafélagið Lloyd’s of London hét í gær „verulegum verð- launum“ fyrir upplýsingar, sem kom- ið gætu lögreglunni á slóð þeirra, sem stálu einni kunnustu Maríumynd Leonardos da Vincis í fyrradag. Meira en 30 lögreglumenn vinna í málinu en málverkinu, sem er mjög lítið, 48,3 sinnum 36,9 sm, var stolið í Drumlanrig-kastala í Skotlandi þar sem það hékk uppi ásamt myndum eftir aðra meistara, til dæmis Holbein og Rembrandt. Hefur málverkið ver- ið í eigu hertogafjölskyldunnar af Buccleuch í 250 ár. Er málverkasafn hennar metið á 52 milljarða ísl. kr. að minnsta kosti. Er verðmæti málverks- ins, sem var stolið, áætlað 7,3 millj- arðar kr. Lögreglan leitar fjögurra manna, tveggja, sem komu í kastalann sem ferðamenn, og tveggja, sem biðu fyrir utan í bíl, líklega hvítum Volkswagen. Lloyd’s lofar verðlaunum Reuters Madonnumynd Leonardos sem stolið var í Skotlandi. Edinborg. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.