Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 14
ÚR VERINU 14 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF AFKOMA tryggingafélaganna af ökutækjatryggingum hefur batnað og framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda telur iðgjöld bifreiðatrygginga óeðlilega há. Tals- menn tryggingafélaganna segja öku- tækjatryggingar hafa verið lækkaðar á þessu ári og því síðasta og að þær séu í stöðugri endurskoðun. Hagnaður stóru tryggingafélag- anna þriggja, Sjóvár-Almennra trygginga, Tryggingamiðstöðvarinn- ar og Vátryggingafélags Íslands, af bifreiðatryggingum á fyrri hluta árs- ins nam samtals 1.072 milljónum króna. Þar af var hagnaður af lög- boðnum ökutækjatryggingum 807 milljónir króna. Bifreiðatryggingar hækkuðu mikið á árunum 1999 til 2001 og alls nam hækkun þessara þriggja ára 68,7% samkvæmt vísitölu bílatrygginga Hagstofunnar. Hækkun lögbundu ábyrgðartrygginganna var meiri, eða sem nemur 78,2% á þessum þremur árum. Á sama tímabili hækkaði vísi- tala neysluverðs um 19,4%. Lækkun frá ársbyrjun 2002 Frá ársbyrjun 2002 hefur hins veg- ar orðið breyting á og bílatrygginga- vísitalan hefur lækkað um 2,1% á því tímabili. Lögboðnu ábyrgðartrygg- ingarnar hafa þó haldið áfram að hækka og frá ársbyrjun 2002 hafa þær hækkað um 5,3%. Lækkunin skýrist af því að húftryggingar, kaskó-tryggingarnar, hafa lækkað um 9,5% á tímabilinu. Vísitala neyslu- verðs hefur hækkað um 3,1% frá árs- byrjun 2002. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda, segir að afkomutölur trygg- ingafélaganna staðfesti málflutning FÍB um það að iðgjöld bifreiðatrygg- inga hafi verið óeðlilega há. Ljóst sé að aðeins hluti af hagnaði félaganna vegna ökutækjatrygginga komi fram með beinum hætti í bókum þeirra, en hagnaðinn megi einnig sjá af því að vátryggingaskuld félaganna, bóta- sjóðirnir svokölluðu, hafi hækkað langt umfram það sem eðlilegt geti talist. Vátryggingaskuldin vegna öku- tækjatrygginga sé að minnsta kosti ríflega 25.000 milljónir króna. Sjóð- irnir vaxi stöðugt þrátt fyrir færri tjón og stórbætta afkomu trygginga- félaganna. Að mati FÍB hafi Fjár- málaeftirlitið ekki sinnt því sem skyldi að hafa eftirlit með þessari sjóðasöfnun tryggingafélaganna. Afkoman eðlileg Gunnar Felixson, forstjóri Trygg- ingamiðstöðvarinnar, segir spurður að því hvort iðgjöld bifreiðatrygginga verði lækkuð í ljósi bættrar afkomu af þeim að félagið hafi lækkað iðgjöld af bifreiðatryggingum með auknum af- sláttum bæði á þessu ári og því síð- asta. Hann segist telja að samanlagt nemi lækkunin um 10%. Spurður að því hvernig hann meti afkomuna af bifreiðatryggingum nú segist hann telja hana eðlilega. Hagnaður Tryggingamiðstöðvar- innar af lögbundnum ökutækjatrygg- ingum nam 180 milljónum á fyrri hluta ársins og hagnaður af öðrum ökutækjatryggingum 76 milljónum. Þorvarður Sæmundsson, fram- kvæmdastjóri viðskiptasviðs hjá Sjóvá-Almennum tryggingum, segir iðgjöldin í stöðugri endurskoðun, enda sé hörð samkeppni á þessum markaði og sífellt sé verið að leita leiða til þess að bjóða sem hagstæðust iðgjöld. Aðspurður segir Þorvarður erfitt að segja til um hver sé eðlilegur hagn- aður af ökutækjatryggingum, en af- koman hafi batnað og ef afkomubat- inn haldist verði skoðað hvernig megi skila honum til viðskiptavinanna. Hann segir að afkoma annars fjórð- ungs ársins hafi þó verið lakari en af- koma fyrsta fjórðungs, þannig að nokkur óvissa sé um hversu varanleg- ur afkomubatinn sé. Hagnaður Sjóvár-Almennra trygg- inga af lögboðnum ökutækjatrygg- ingum nam 135 milljónum og hagn- aður af öðrum ökutækjatrygginum 139 milljónum. Tap án fjárfestingartekna Ásgeir Baldurs, forstöðumaður al- mannatengsla hjá Vátryggingafélagi Íslands, segir að iðgjöld hafi verið lækkuð lítillega bæði á síðasta ári og í byrjun þessa árs samfara endurskoð- un á afsláttarkerfi félagsins, en erfitt sé að segja til um hver lækkunin sé í prósentum talið. Hann segir bætt tíð- arfar og minni tjón skýra bætta af- komu og ef sú þróun haldi áfram verði iðgjöldin endurskoðuð þar sem ið- gjöld taki mið af tjónum á hverjum tíma. Það sé því vonandi að þessi þró- un í fækkun slysa og lækkun tjóna- kostnaðar haldi áfram. Ásgeir segist aðspurður ekki telja að afkoman af bifreiðatryggingum sé of mikil, og segir að fjárfestingar- tekjur bæti afkomuna. Án þeirra tekna væri tap af rekstri lögboðinna ökutækjatrygginga. Hann segir að áður hafi lengi verið tap af rekstri bif- reiðatrygginga og að hafa verði í huga að sveiflur séu í afkomunni. Hagnaður Vátryggingafélagsins af lögboðnum ökutækjatryggingum nam 493 milljónum og af öðrum öku- tækjatryggingum 51 milljón. Bifreiðatryggingar eftir fyrstu sex mánuði ársins 2003 Iðgjöldin of há Formaður FÍB gagnrýnir iðgjöld af bifreiðatryggingum. Talsmenn tryggingafélaganna segja iðgjöld hafa lækkað. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lögboðnar ábyrgðartryggingar bifreiða hafa frá ársbyrjun 2002 hækkað um 5,3% en vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,1% á sama tíma. HAGNAÐUR Hampiðjunnar hf. eftir skatta á fyrri árshelmingi var 156 milljónir króna samanborið við 190 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur sam- stæðunnar námu 2.163 milljónum á tímabilinu sem er 1% minnkun frá fyrra ári. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði nam 231 milljón króna eða 11% af veltu. Fjármagnsliðir námu 22 milljón- um til gjalda en voru 133 milljónir til tekna á sama tíma í fyrra. Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga voru 76 milljónir til tekna. Er þar um að ræða hlutdeild í hagnaði Granda hf. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að áætlun ársins gerði ráð fyrir að velta samstæðunnar ykist um 5% á milli ára og framlegð yrði svipuð á þessu ári og því síðasta. „Ekki er talin ástæða til að endur- skoða áætlun ársins,“ segir í til- kynningunni. Hampiðjan með 156 milljónir króna í hagnað                                                             !"# ! $#  %$  & %"  ' & %  & #   (                ! $$ #$) # #%*  !+ ! $%!  +!  !## '  &)$ &#*  !!    ! %)! # * # ))       !""#     TAP Heklu hf. á fyrstu sex mánuðum ársins nam 8 milljónum króna eftir skatta. Á sama tímabili á síðasta árið var tapið 74 milljónir. Tap félagsins fyrir skatta var á þessu ári 30 millj- ónir en um 96 milljónir í fyrra. Veltufé frá rekstri nam 4 milljónum króna á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili árið 2002 var veltufé til rekstrar 73 milljónir. Í lok júní síðast- liðinn var eigið fé Heklu 1.053 millj- ónir og eiginfjárhlutfall 23% en í árs- lok 2002 var eigið fé félagsins 1.060 milljónir og eiginfjárhlutfall 22%. Í tilkynningu frá Heklu segir að af- koma félagsins sé að mati stjórnenda þess viðunandi. Endurskipulagning undanfarinna mánaða sé enn í gangi og stjórnendur Heklu séu ánægðir með þau skref sem tekin hafi verið og telji þau hafa bætt rekstur félagsins og framtíðarhorfur þess. Heildartekjur Heklu hf. á fyrri helmingi ársins 2003 námu 4.554 milljónum króna og jukust um 14% frá fyrra ári. Rekstrargjöld jukust hins vegar um 12% og námu 3.979 milljónum. Heildareignir Heklu voru í lok júní 2003 bókfærðar á 4.548 milljónir króna samanborið við 4.843 milljónir í árslok 2002. Verulega dregur úr tapi Heklu ÍSLENDINGAR eiga talsvert eftir af úthafsveiðiheimildum sínum á árinu. Aðeins er búið að veiða um fjórðung af leyfilegum rækjukvóta á Flæmingjagrunni og enn standa eftir rúm 10 þúsund tonn af úthafs- karfakvótanum. Hinsvegar er þegar búið að veiða nánast allan kvóta Ís- lendinga í norsk-íslenska síldarstofn- inum og hratt hefur gengið á þorsk- kvóta Íslendinga í Barentshafi síðustu vikur. Úthafskarfaveiðum á Reykjanes- hrygg er skipt milli tveggja svæða. Annað tekur einkum mið af fiskveiði- lögsögunni en þar er íslenskum skip- um heimilt að veiða 45 þúsund tonn á þessu ári. Þar hafa veiðar gengið ágætlega það sem af er árinu, aflinn er orðinn rúm 43 þúsund tonn. Á því svæði sem er fjær landi, utan ákveðinnar línu, er íslenskum skipum heimilt að veiða 10 þúsund tonn en aflinn þar er hinsvegar aðeins 356 tonn það sem af er árinu. Íslenskum skipum er heimilt að veiða 13.500 tonn af rækju á Flæm- ingjagrunni á árinu. Aðeins hafa tvö íslensk skip stundað veiðar þar á þessu ári og er afli þeirra rétt ríflega 3.000 tonn, þar af hefur Pétur Jóns- son RE veitt rúm 2.300 tonn. Því eru ennþá rúm 10 þúsund tonn eftir af kvóta Íslendinga á Flæmingjagrunni og má ljóst vera að ekki næst að veiða nærri allan kvótann. Dræm sókn ís- lenskra skipa á Flæmingjagrunn helgast fyrst og fremst af lágu verði fyrir rækjuafurðir. Gengur hratt á kvótann í Barentshafi Töluverður gangur hefur verið í þorskveiðum íslenskra skipa í Bar- entshafi síðustu vikur en þeim er heimilt að veiða þar ríflega 5.000 tonn á árinu. Þar af mega þau veiða rúm 3.100 tonn á norsku hafsvæði en nú er sá kvóti uppurinn, aðeins um 2 tonn eftir. Hinsvegar hefur gengið verr að veiða kvóta Íslendinga innan rúss- nesku lögsögunnar en þó hefur geng- ið hratt á kvótann á allra síðustu dög- um. Þar er kvótinn um 1.938 tonn og er aflinn orðinn 1.256 tonn það sem af er árinu. Íslendingum er heimilt að veiða rúm 91 þúsun tonn úr norsk-íslenska síldarstofninum árinu, auk 12 þúsund tonna sem veiða má innan norsku lögsögunnar. Íslensku skipin hafa þegar veitt upp kvóta sinn á þessu ári og vel það, aflinn er orðinn rúm 96 þúsund tonn. Þau hafa hinsvegar ekkert veitt af síldinni innan norsku lögsögunnar það sem af er árinu. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Úthafskarfaveiðar hafa sóst vel það sem af er árinu en enn eru þó um 10 þúsund tonn óveidd af kvóta Íslendinga. Talsvert eftir af úthafskvótanum Aðeins búið að veiða tæpan fjórðung rækjukvótans á Flæmingjagrunni UNDIRBÚNINGUR fyrir komandi síldarvertíðar er í fullum gangi þessa dagana, þannig að allt verði klárt þegar skipin halda til veiða í byrjun september. Hjá Skinney- Þinganesi hf. á Hornafirði er verið að leggja lokahönd á nýtt sjálfvirkt pækilblöndunarkerfi og segir Her- mann Stefánsson, framleiðslustjóri, að kerfið muni gjörbreyta ná- kvæmni og afköstum í pækilblönd- un, auk þess sem það muni létta verulega vinnuálag. „Kerfið er mik- ið framfaraskref í verkun saltsíldar en þar hafa vinnubrögð verið óbreytt í áraraðir. Kerfið er hannað og smíðað af starfsmönnum Skinn- eyjar-Þinganess,“ segir Hermanna. Hönnun og smíði þess er styrkt af Vöruþróunar- og markaðs- öflunarsjóði síldarútvegsins. Þá er verið er að setja upp fituskilju sem hreinsa á fitu úr frárennsli frá frystihúsinu. Skiljan er smíðuð hjá SR vélaverkstæði á Siglufirði. Ýmis verk fylgja því að gera klárt fyrir síldarvertíð en alls þarf 40–50 manns til síldarvinnslunnar og eitt- hvað þarf að ráða af nýju starfsfólki. Tvö skip munu hefja veiðarnar fyrir Skinney-Þinganes í september, Jóna Eðvalds SF og Steinunn SF en Ás- grímur Halldórsson SF fer til síld- veiða fyrir félagið í október. Síldarvertíðin er nú undirbúin af fullu kappi hjá Skinney-Þinganesi á Hornafirði og verður tekið í notkun nýtt pækilblöndunarkerfi. Gert klárt fyrir síldina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.