Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.icelandair.is Fara með krakkana í Disney World. Heimsækja St. Augustine, sem er einn af elstu bæjum Bandaríkjanna. Í Florida þarftu að: á mann í 8 daga m.v. hjón með 2 börn yngri en 12 ára með 10.000 kr. afslætti. Innifalið: flug, gisting á Best Western Plaza, flugvallarskattar og þjónustugjöld. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 21 62 2 0 8/ 20 03 VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina Verð frá 46.053 kr. Orlando www.icelandair.is/florida TVEIR bræður ætla að synda Við- eyjarsund um hádegi á morgun til að minnast bróður síns sem fyr- irfór sér, og til að safna fé fyrir Geðhjálp, sem þeir segja að hafi reynst fjölskyldunni mjög vel í kjöl- far missisins. Jóhannes Páll og Ari Gunn- arssynir ætla að synda frá Viðey inn á gömlu höfnina í Reykjavík, alls um 4.250 metra, og reikna með að vera um 1,5 til 2 klst. á leiðinni. Stefnt er á að leggja af stað frá Viðey um klukkan 12 á hádegi á morgun, en þá er reiknað með að straumar og verður verði hagstæð fyrir sundið. Bræðurnir eru báðir miklir sundmenn, Ari, sem er 19 ára, keppir í sundi fyrir Ármenn- inga og Jóhannes Páll, 24 ára, keppti áður fyrr og er að reyna að koma sér í keppnisform aftur. „Geðhjálp hefur hjálpað for- eldrum okkar, sérstaklega móður okkar, mjög mikið og þegar það barst í tal að við ætluðum að reyna að synda Viðeyjarsund kom það upp að við gætum reynt að láta gott af okkur leiða í leiðinni og styrkja gott málefni,“ segir Jó- hannes Páll, en bræðurnir ætla að synda til minningar um látinn bróður sinn, Kristján Árna Gunn- arsson, sem var tvíburabróðir Jó- hannesar Páls. Ari viðurkennir að þeir bræður hafi ekki mikla reynslu af sjósundi, þó að þeir hafi synt mikið í sjónum undanfarinn mánuð til að undirbúa sig. „Við byrjuðum á þessu í sumar en ég mundi nú ekki segja að við værum vanir. Ég held að maður venjist seint þessum kulda. Það er tvennt ólíkt að synda í sjónum og synda í sundlaug. Það er talsvert betra að synda í sjónum þar sem hann er saltur, en það er aftur erf- iðara vegna kuldans. Eftir einn og hálfan tíma í sjónum er erfitt að tala og allar hreyfingar verða mjög skertar vegna kuldans.“ Lyktuðu eins og selir í viku Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem bræðurnir reyna Viðeyjarsund. Þeir reyndu fyrir um mánuði án nokkurs undirbúnings. Þeir voru nálægt því að komast alla leið en þurftu að gefast upp og voru teknir um borð í bát sem fylgdi þeim. Ari segir að þeir séu mun betur und- irbúnir fyrir sundið núna, þeir hafi synt talsvert í sjónum í millitíðinni og séu fullvissir um að komast alla leið í þetta skiptið. „Þegar við för- um í eitthvert verkefni hættum við ekki fyrr en við höfum klárað það. Síðast náðum við ekki að klára en við erum staðráðnir í að klára það núna,“ segir Ari. Nú hafa Ari og Jóhannes Páll rætt við fjölmarga sundmenn sem hafa þreytt Viðeyjarsund, auk þess sem Sveinn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar, hefur verið óþreytandi hjálparhella í öllu sem viðkemur sundinu. Jóhannes Páll segir að Sveinn sé búinn að ákveða leiðina með aðstoð GPS- tækis og muni auk þess stýra bátn- um sem mun fylgja þeim félögum á sundinu. Bræðurnir munu synda Viðeyj- arsundið á sundskýlum með sund- hettur, en ekki í blautbúningum. Þeir segjast ætla að smyrja á sig samtals kílói af ullarfeiti til að ein- angra og minnka áhrifin frá kuld- anum. „Við töluðum við fullt af frægu sundfólki sem ráðlagði okk- ur allt frá lýsi að vasilíni,“ segir Jó- hannes Páll. „Við smurðum einmitt lýsi á okkur síðast en ætlum ekki að gera það aftur. Lyktin var ógeðsleg, við vorum eins og selir í viku á eftir. Alger viðbjóður.“ „Svona í og með viljum við líka sýna sundmönnum frá Skaganum hvernig á að synda í sjó,“ segir Ari. „Þeir syntu frá Reykjavíkurhöfn upp á Skaga, í blautbúningum, einn í einu í hálftíma í senn. Það er ekk- ert mál, það getur hver sem er gert það.“ Synti á móti straumnum Bræðurnin ætla að synda Viðeyj- arsundið til minningar um bróður sinn, Kristján Árna, sem fyrirfór sér fyrir tæpu einu ári, þá 23 ára gamall. „Hann var búinn að vera mjög þunglyndur lengi, en hafði farið versnandi síðustu árin,“ segir Jóhannes Páll, sem var tvíbura- bróðir Kristjáns. „Hann var svaka- lega feiminn og lítill í sér. Synti sí- fellt á móti straumnum. Hann hafði reynt þetta nokkrum sinnum áð- ur.“ Kristjáni leið mjög illa og lenti í óreglu í kjölfar þunglyndisins, seg- ir Jóhannes Páll: „Undir það síð- asta sagði hann við mig að einu skiptin sem honum liði ekki illa væri þegar hann væri í vímu. Ég gleymi því aldrei.“ „Það sem Kristjáni fannst vera sitt síðasta hálmstrá í lífinu var að fara til Frakklands og reyna að ganga til liðs við Frönsku útlend- ingahersveitina. Honum fannst að það mundi bjarga sjálfsálitinu ef það tækist. Hann fór einn til Frakklands og reyndi en það voru bara um tveir af áttatíu sem reyndu sem komust í hersveitina. Honum var vinsamlegast sagt að fara og koma ekki aftur. Stundum gefa þeir möguleika fyrir þá sem komast ekki inn að koma aftur síð- ar, en í hans tilviki var það ekki gert.“ Kristján fyrirfór sér um viku eftir að hann kom heim. Dauði Kristjáns hafði gífurleg áhrif á alla fjölskylduna. „Það tók langan tíma að jafna sig eftir þetta,“ segir Jóhannes Páll. Hann segir að fjölskyldan hafi fengið mikinn stuðning frá Geðhjálp, auk þess sem sr. Sigurður Pálsson, prestur í Hallgrímskirkju, hafi hjálpað þeim mikið. Drangeyjarsund að ári? Ari segir að hugsanlega bíði frekari sjósundsáskoranir þeirra bræðranna í framtíðinni: „Hugs- anlega reynum við að synda Drangeyjarsund næsta sumar. Það er allavega ein hugmynd. Við höf- um gaman af að taka áskorunum og sigrast á þeim, nú er búið að róa í kringum landið bæði á kajak og árabát svo við verðum að gera eitt- hvað annað.“ Þeir sem vilja heita á sundmenn- ina eða láta framlög af hendi rakna eru vinsamlegast beðnir um að leggja beint inn á reikning Geð- hjálpar hjá Búnaðarbanka Íslands nr. 0313-26-123456. Kt. 531180- 0469. Synda til minningar um látinn bróður Bræðurnir Jóhannes Páll og Ari Gunnarssynir ætla að synda Viðeyjarsund á morgun til minn- ingar um bróður sinn, Kristján Árna, sem fyr- irfór sér. Brjánn Jónasson ræddi um sund í söltum sjó og bróðurmissinn við þá. Morgunblaðið/Sverrir Jóhannes Páll og Ari Gunnarssynir synda til styrktar Geðhjálp á morgun. MORGUNBLAÐIÐ og Dagskrá vikunnar hafa gert með sér sam- komulag um að dreifa Dagskrá vik- unnar fram- vegis með föstudagsblaði Morgunblaðs- ins á lands- byggðinni og verður næsta tölublaði Dag- skrár vikunnar dreift með Morgun- blaðinu í dag, 29. ágúst. Áfram verður Dagskrá vikunnar borin í hvert hús á höfuðborgar- svæðinu á fimmtudögum. Á þessum tímamótun hefur útliti blaðsins verið breytt lítillega en Dagskrá vikunnar verður áfram í sama broti. Aukin áhersla hefur einnig verið lögð á almenna kynn- ingu á dagskrá sjónvarpsstöðvanna. Krossgátan og annað skemmtiefni er á sínum stað. Fyrsta tölublað Dagskrár vikunn- ar kom út hinn 18. september 1997 og kemur blaðið út reglulega á tveggja vikna fresti. Dagskránni dreift á lands- byggðinni FULLYRT er í nýju fréttabréfi Slát- urfélags Suðurlands að framleiðslu- aukning á svína- og kjúklingakjöti hafi haft í för með sér mikla verð- lækkun á svínakjöti, að svínabændur séu í miklum taprekstri og séu marg- ir búnir að tapa öllu eigin fé. Undir fréttabréfið skrifar Steinþór Skúla- son forstjóri. Ingvi Stefánsson, formaður Svína- ræktarfélags Íslands, segist í samtali við Morgunblaðið sammála þessari lýsingu forstjóra SS. „Þetta er veru- leiki okkar í dag,“ segir hann og bætir við að verð til framleiðenda hafi lækk- að um 50% á síðustu 20 mánuðum og margir svínabændur séu upp á fóð- ursala og lánardrottna komnir. Forstjóri SS segir venjuleg viðskiptasjónarmið ekki gilda „Fóðursalar og lánardrottnar halda mörgum gangandi og er spurn- ing um úthald þeirra,“ segir einnig í Fréttabréfi SS. „Skuldsett aukning framleiðslu hefur farið út yfir öll vel- sæmismörk í kjúklingum og svínum og einkum orðið hjá stærstu fram- leiðslueiningunum. Við þær aðstæður sem nú ríkja má segja að venjuleg viðskiptasjónarmið gildi ekki heldur „hagfræði hins neðra“. Það eru ekki endilega þeir sem eru með besta reksturinn og eigið fé sem lifa heldur þeir sem tekst að koma lánardrottn- um sínum í verstu stöðu og byggja upp einingar sem verður að reka áfram til að tryggja einhverja arð- semi fjármagnsins sem búið er að lána. Litlir framleiðendur allra kjöt- greina eiga litla möguleika þar sem þeir skulda engum nóg og verða því gerðir upp.“ Ingvi tekur einnig undir þessi at- riði í máli forstjóra SS og segir lána- stofnanir eiga mikilla hagsmuna að gæta hjá stórum framleiðendum. Hann segir að vegna ákvæða í sam- keppnislögum geti svínabændur ekki beitt sér skipulega fyrir því að draga úr framleiðslu eins og þyrfti að gera nú. „Þannig hefur það lengi vel þótt já- kvætt fyrir íslenskan landbúnað að lánsfjármagn hefur verið tiltölulega þolinmótt. Hins vegar er staðan í dag þannig að á meðan lánastofnanir ekki treysta sér til að höggva á hnútinn eykst tap framleiðenda og lánar- drottna og því er í raun og veru óskiljanlegt að ekki sé enn búið að grípa til þeirra aðgerða sem nauðsyn- legar eru til þess að koma jafnvægi á kjötmarkaðinn. Á meðan lánar- drottnar og fóðursalar geta ekki ákveðið hverjir fái að lifa í þessari grein og hverjir ekki halda allir áfram að tapa,“ segir Ingvi. Í lok umfjöllunar sinnar um svín á kjötmarkaði segir forstjóri SS í fréttabréfinu: „Þá kröfu verður að gera til lánastofnana að þær horfi á heildarmyndina og taki rekstur úr höndum þeirra sem vísvitandi eða með skorti á skynsemi valda stórtjóni með óábyrgum rekstri. Það er mark- mið allra kjötframleiðenda að hag- ræða í rekstri til að geta lækkað verð til lengri tíma litið og styrkt þannig samkeppnisstöðu innlendrar fram- leiðslu. Þetta er langtímasjónarmið og verður að byggjast á hagræðingu og lækkun kostnaðar. Verðkollsteypa sem nú er orðin er án innistæðu og mun ganga að hluta til baka þegar dregur úr framboði með einum eða öðrum hætti.“ Formaður svínabænda segir framleiðendur vera upp á lánardrottna komna, en mikið tap er í atvinnugreininni Um 50% verðlækkun á 20 mánuðum GÖNGIN um Oddsskarð, á milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar, lok- uðust um tíma í gær þegar tveir flutningabílar með tengivagna mættust í göngunum. Göngin eru einbreið og svona stórir bílar geta ekki nýtt sér útskot í göngunum til þess að mætast. Það tók bílana um fjörutíu mínútur að bakka út úr göngunum. Á meðan var umferð beint um gamla veginn yfir Odds- skarð. Oddsskarðs- göng lokuð- ust í um 40 mínútur ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.