Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AÐ MINNSTA kosti 18 manns
fórust, flest skólabörn, er stein-
steypt brú hrundi í Daman
Ganga-fljótið á vestanverðu Ind-
landi í gærmorgun. Skólabíll,
tveir léttivagnar og nokkur mót-
orhjól steyptust í fljótið er brúin
hrundi en bílstjóra skólabílsins
tókst að synda í land með fjögur
af þeim tólf börnum sem voru í
bílnum.
Óttast er að allt að 25 manns
hafi drukknað í slysinu, en þegar
hafa fundist 18 lík. Brúin var
byggð á valdatíma Portúgala,
sem áttu tvær litlar nýlendur á
vesturströnd Indlandsskaga fram
yfir 1960, Daman og Goa. Brúin
var einbreið og orðin mjög léleg.
AP
Steinsteypt
brú hrundi
á Indlandi
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, varði umdeilda Íraksskýrslu
ríkisstjórnar sinnar frá því í septem-
ber í fyrra af þrótti í gær og sagðist
myndu hafa sagt af sér hefðu ásak-
anir reynzt réttar um að átt hefði
verið við skýrsluna til að gera meira
úr ógninni af gereyðingarvopnabúri
Saddams Husseins í áróðursskyni
fyrir innrás í Írak. Nokkur hundruð
stríðsandstæðingar stóðu fyrir mót-
mælum fyrir utan dómhúsið í Lund-
únum þegar Blair mætti þangað.
Í vitnisburði sínum fyrir sérskip-
aðri nefnd undir forystu Huttons
lávarðar, sem rannsakar tildrög and-
láts vopnasérfræðingsins dr. Davids
Kellys, sagði Blair ásökunina – sem
kom fram í umdeildri frétt brezka
ríkisútvarpsins BBC – vera „mjög al-
varlega“; hún væri „árás á starfs-
heiður“ sinn.
„Það er eitt að segjast vera á ann-
arri skoðun en ríkisstjórnin, að við
(Bretar) hefðum ekki átt að fara í
stríð; þar er lögmætt að vera ósam-
mála um það … en hefði ásökunin átt
við rök að styðjast hefði hún kallað á
afsögn mína,“ sagði Blair.
Kelly reyndist hafa verið aðal-
heimildin fyrir frétt sem BBC-
fréttamaðurinn Andrew Gilligan
vann og send var út í fréttaþættinum
Today að kvöldi 29. maí sl., en þá var
Blair staddur í heimsókn hjá brezk-
um hersveitum í Suður-Írak.
Háttsettir menn á skrifstofu for-
sætisráðherrans voru í fréttinni sak-
aðir um að hafa ýkt hættuna sem
stafaði af Íraksstjórn með því sér-
staklega að bæta inn í skýrsluna full-
yrðingu um að hún væri fær um að
beita gereyðingarvopnum á innan
við 45 mínútum.
Blair sagði að áhyggjur manna í
forsætisráðuneytinu af þessum
fréttaflutningi hefðu aukizt er grein
birtist eftir Gilligan í blaðinu Mail on
Sunday 1. júní þar sem fréttamað-
urinn hélt því fram að hann hefði
heimildir fyrir því að Alastair Camp-
bell, almannatengslastjóri Blairs,
hefði sett þessa „45-mínútna-fullyrð-
ingu“ inn í skýrsluna, sem annars var
unnin af mönnum úr leyniþjónust-
unni.
Með því að beina slíkri ásökun að
Campbell nafngreindum varð málið
hálfu alvarlegra, að sögn Blairs. „Al-
veg upp frá því hefur málið snúizt um
það og nú, þremur mánuðum síðar,
er það enn svo,“ sagði forsætisráð-
herrann.
Blair lagði áherzlu á að þótt hann
hefði pantað skýrsluna vegna þess að
hann taldi nauðsynlegt bera fyrir
þing og þjóð þær upplýsingar sem
fyrir lægju um hættuna sem stafaði
af Íraksstjórn Saddams Husseins
hefði skýrslugerðin verið alfarið í
höndum leyniþjónustumanna.
Fór fram á að BBC drægi
fréttina til baka
Blair lýsti ennfremur símasamtali
sem hann átti hinn 7. júlí við Gavyn
Davies, formann yfirstjórnar BBC.
Sagði hann það hafa verið „fullkom-
lega vinsamlegt“, en þegar hér var
komið sögu var hafin harðvítug
rimma milli talsmanna ríkisstjórnar-
innar og talsmanna BBC um frétta-
flutning stofnunarinnar.
Sagðist Blair hafa farið þess á leit
við Davies að BBC viðurkenndi að
frétt Gilligans frá 29. maí hefði verið
röng, en það sagðist Davies ekki geta
gert án þess að grafa undan sjálf-
stæði miðilsins. Þá sagðist Blair hafa
sagt: „Þér kunnið að segja að þetta
sé ekki árás á starfsheiður minn, en í
raun er það einmitt það sem fréttin
snýst um – og verði hún ekki dregin
til baka heldur sú árás áfram.“
Forsætisráðherra Bretlands ber vitni í Kelly-rannsókn
Varðist af þrótti
Reuters
Tony Blair á leið frá skrifstofu sinni til fundar við Hutton-nefndina í gær.
!, - &
. /
/0 1
" # !-2/0
-
.3
4
4
4
/ &
2.3 . )*5
$!6 2 / 78
. 4 4/ 9/ 2:;9
-
:<
=
. / > 335
/
%&'!= 3.
%&'!??@&
AB
C.
D-7
1
&
2.3
/0 @
@& E
5
%&'!B
5) /0 5.3
1 F-? / 2 5 )3/
59
:
/1 9)*&5& -
:8.
- 8 8
- 4
B
/-
8
G5
- 8 G
('!B
/ !"
@3/8/-
/ /-
2
%%&'('!= -
/08
4 B
8 -
('!D-7 . - 7 - B
('!D- - - 9 5:
/2 -
9
:
('!H
1 - ?
. 8 . 7D-
0. 8. .. 1
B
H8./
D-.
B
('!D-/. -
7/ .35
.
8.
. ('!
- - 8
8
('!D-.
8 . IJ
1
5
('!K $
D- 7
1 . 5
! 3
D-
. "$ %&'(%
Lundúnum. AFP, AP.
FRAKKAR hvöttu í
gær til þess að „raun-
verulega alþjóðlegt her-
lið“ yrði látið gæta ör-
yggis í Írak í umboði
öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. „Hvað sem
menn gera er ekki nóg
að senda fleiri hermenn
eða gera einhvers konar
lagfæringar á fyrir-
komulagi núverandi
hernáms,“ sagði Dom-
inique de Villepin, utan-
ríkisráðherra Frakk-
lands.
Bandaríkjamenn hafa
gefið í skyn að þeir séu
reiðubúnir að fallast á að Sameinuðu
þjóðirnar fari formlega með yfir-
stjórn fjölþjóðlegs setuliðs í Írak, sé
bandarískur hershöfðingi yfir liðinu.
Kom þetta fram í sjónvarpsviðtali við
Richard Armitage, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, í vikunni.
Efnt verði til kosninga í
Írak fyrir árslok
De Villepin sagði nauðsynlegt að
leggja meiri áherslu á að Írakar
tækju sjálfir við stjórn. Efna yrði til
kosninga fyrir árslok og bráðabirgða-
stjórn sem myndi fá aukið lögmæti
fyrir tilstuðlan SÞ ætti að taka við
völdum. Virtist de Villepin þar gera
lítið úr framkvæmdaráði Íraks sem
Bandaríkjamenn settu á laggirnar en
í því eiga sæti fulltrúar helstu stjórn-
málafylkinga, trúar-
hópa og þjóðarbrota.
Stefnubreyting
í vændum?
Yrði hugmyndin sem
Armitage nefndi ofan á
myndi hún þýða all-
verulega stefnubreyt-
ingu af hálfu Banda-
ríkjastjórnar hvað
varðar stjórnun í Írak,
en Armitage sagði að
þessi tillaga væri meðal
annarra sem nú væru á
dagskrá viðræðna milli
Bandaríkjastjórnar og
fulltrúa SÞ og miðuðust
að því að fá fleiri þjóðir til að axla
byrðar af uppbyggingarstarfinu í
Írak.
Breskur hermaður féll í Maysan-
héraði í sunnanverðu Írak í gær en
bandamenn héldu áfram leit að mönn-
um sem grunaðir eru um árásir á her-
námsliðið. Mun flokkur fallna Bret-
ans hafa verið að koma úr slíkri leit í
borginni Ali al-Gharbi er ráðist var á
hann. Tugir manna hafa verið hand-
teknir síðustu daga, einkum á svæði
norðan við höfuðborgina Bagdad.
Pólskar hersveitir tóku á miðviku-
dag formlega við gæzlu á stóru svæði
í Mið-Írak sem Bandaríkjamenn
sömdu um við Pólverja að sinna. Auk
Pólverjanna munu búlgarskir her-
menn verða við gæslu í borginni
Karbala.
Frakkar vilja
alþjóðalið í
umboði SÞ
De Villepin hvetur til þess að Írakar
taki sem fyrst við stjórn eigin mála
París, Bagdad. AP, AFP.
Dominique de Villepin BRESKA vísindatímaritið New
Scientist gagnrýnir umfjöllun um
hvalveiðar í nýjasta hefti sínu og
segir að tími sé kominn til að menn
tali skýrt. Íslendingar viðurkenni að
þeir vilji hefja atvinnuveiðar og and-
stæðingarnir ákveði hvort þeir vilji
nota vísindaleg rök eða siðferðisleg.
„Um fjórðungur þeirra 150.000
hrefna sem eru í Norður-Atlants-
hafi er nú á höfunum við Ísland – að
sögn Alþjóðahvalveiðiráðsins, IWC,
fleiri dýr en þar voru áður en nú-
tímahvalveiðar í atvinnuskyni hóf-
ust. Sé litið til niðurstaðna gena-
rannsókna gera menn ráð fyrir að
hrefnustofnarnir hafi náð sér svo
vel að þeir séu meira en hálfdrætt-
ingar á við mestu stærð sem þeir
hafi nokkurn tíma náð.
Í stuttu máli er ekki um að ræða
nein verndarrök sem mæla gegn því
að Íslendingar hefji aftur veiðar.
Hvað með siðferðisleg rök?
Grænfriðungar segjast munu berj-
ast „til eilífðar“ gegn hvalveiðum.
Það er heiðarlegt og skýrt. En hvað
finnst ríkisstjórnum sem fara með
atkvæði hjá IWC? Ríki sem hafa
barist gegn hvalveiðum, ríki eins og
Bretland, hafa alltaf farið undan í
flæmingi þegar spurt hefur verið
hvort andstaðan byggðist á vísinda-
legum eða siðferðislegum rökum.
Hættan á því að mörgum hvala-
stofnum verði útrýmt er úr sögunni
og þess vegna er kominn tími til
þess að andstæðingar veiðanna tjái
sig skýrar. Þá fyrst getur IWC
byrjað að ræða af viti um framtíð
stærstu og mest heillandi spendýra
á jörðinni,“ segir New Scientist.
Tímaritið New Scientist
Hvalir ekki í hættu