Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
Ein með öllu
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Multi-vítamin og steinefnablanda
ásamt spirulínu, lecithini,
Aloe vera o.fl. fæðubótarefnum
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
AKUREYRINGAR áttu þrjá full-
trúa í hinu bráðefnilega piltalands-
liði Íslendinga í handknattleik, sem
nýlega vann frækilegan sigur á
Evrópumeistaramótinu. Þetta voru
þeir Arnór Atlason og Árni Björn
Þórarinsson úr KA og Árni Þór Sig-
tryggsson úr Þór.
Af þessu tilefni ákvað Akureyr-
arbær að heiðra þessa afreksmenn
sérstaklega og efndi til samsætis í
gær. Þar veitti Jakob Björnsson,
starfandi bæjarstjóri, piltunum
fjárupphæð í viðurkenningarskyni
fyrir árangurinn en strákarnir í
landsliðinu þurfa að greiða tugi
þúsunda úr eigin vasa þegar haldið
er í keppnisferðalög. Guðný Jó-
hannesdóttir, formaður íþrótta- og
tómstundaráðs bæjarins, afhenti
þeim síðan blómvönd og gat þess í
ræðu sinni að Akureyrarbær hefði
það á stefnuskránni að styðja við
bakið á ungu afreksfólki í íþróttum.
Evrópumeistarar
heiðraðir
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Guðný Jóhannesdóttir, Árni Björn Þórarinsson, KA, Árni Sigtryggsson,
Þór, Arnór Atlason, KA, og Jakob Björnsson, starfandi bæjarstjóri.
hagstæðastar fyrir börn og unglinga
og uppalendur þeirra. Af þeim sök-
um hafi bæjaryfirvöld lagst gegn há-
tíðum á borð við „Halló Akureyri“ en
ákveðið að styðja fjölskylduskemmt-
anir í staðinn.
Höfðað um of til annars
en fjölskyldufólks
Í bókun bæjarráðs segir: „Af
greinargerðum um hátíðina „Ein
með öllu“ má draga þá ályktun að við
undirbúning hátíðarinnar hafi að-
standendur hennar með auglýsing-
um sínum höfðað um of til annars
markhóps en fjölskyldufólks. Þar
sem ljóst er að „samsetning“ hátíð-
Í KJÖLFAR nýafstaðinnar verslun-
armannahelgar tók bæjarráð Akur-
eyrar þá ákvörðun að fjalla um og
meta hvernig til tókst um fram-
kvæmd hátíðarinnar „Ein með öllu“
sem haldin var í bænum. Formaður
bæjarráðs leitaði af því tilefni álits
þeirra sem á einhvern hátt komu að
undirbúningi og framkvæmd hátíð-
arinnar. Svör hafa borist frá þeim
sem leitað var til og á fundi ráðsins í
gær var fjallað um málið.
Í bókun ráðsins kemur fram að
Akureyrarbær hafi mótað stefnu í
fjölskyldu- og forvarnamálum. Í
þeirri stefnu sé mikil áhersla lögð á
að gera allar kringumstæður sem
argesta hefur mikil áhrif á fram-
kvæmd og framvindu hátíðarinnar
mun bæjarráð skoða þetta atriði
frekar.“
Að auki telur bæjarráð að rekstur
tjaldsvæðisins við Þórunnarstræti á
hátíðum á borð við þessa þarfnist
endurskoðunar og felur fram-
kvæmdaráði að taka það mál til um-
fjöllunar og leggja fram tillögur til
úrbóta eða breytinga.
Að lokum ákvað bæjarráð að gefa
íbúum Akureyrar kost á að koma
áliti sínu á framfæri með því að fram-
kvæma viðhorfskönnun meðal þeirra
og taka málið fyrir að nýju þegar
hún liggur fyrir.
Bæjarráð Akureyrar um hátíðina „Eina með öllu“
Höfðað var um of til ann-
arra en fjölskyldufólks
AKUREYRARVAKA verður haldin
á morgun, laugardag, frá morgni til
kvölds. Formleg setning verður
reyndar í kvöld, á afmælisdegi Akur-
eyrarbæjar. Þá verður Lystigarð-
urinn lýstur með ljósakeðjum og að
setningu lokinni verður boðið upp á
leiksýningu í garðinum, kórsöng, leið-
sögn um sýninguna 13+3 og fleira.
Í fyrramálið verður Akureyringum
og gestum þeirra boðið í sund í Sund-
laug Akureyrar milli kl. 10 og 12. Eft-
ir hádegi verður stigvaxandi dagskrá
um allan bæ þar sem á milli 50 og 60
viðburðir af fjölbreytilegum toga
verða í boði. Má þar nefna:
Litum Listagilið: Börnin fá að lita
Listagilið í öllum regnbogans litum.
Tíu ára afmælissýning Listasafns-
ins á Akureyri sem opnar kl. 15 og er
þar um einstæðan viðburð að ræða
þar sem Listasafnið og Þjóðminja-
safnið taka höndum saman.
Íþróttafélög bjóða börnum á hest-
bak og í ýmsa leiki á flötinni við Sam-
komuhúsið milli kl. 15–17 og í Komp-
aníinu sýna Sérstæklingarnir Fóu
Feykirófu með reglubundu millibili.
Í miðbænum verður fjölbreytt
dagskrá og tónlistarmenn leika listir
sýnar um víðan völl.
Í Listagilinu verður allsérstæð
sýning kl. 22 þar sem koma við sögu
ljós, hljóð, eldur og íslensk hönnun en
það er ASK?-hópurinn sem heldur
þar tískusýningu undir beru lofti í
gilinu miðju.
Formlegri dagskrá lýkur með flug-
eldasýningu kl. 23.15 en sitthvað
verður í boði eftir það á einstökum
stöðum.
HVERNIG væri umhorfs á Ak-
ureyri ef íbúar bæjarins væru
margfalt fleiri en þeir eru nú? Fólk
hefur e.t.v. velt því fyrir sér, og
einhvers konar svar kann að vera í
augsýn. Á sýningunni Abbast upp
á Akureyri, sem opnuð verður í
Listasafninu á morgun, velta
myndlistarmennirnir Erla S. Har-
aldsdóttir og Bo Melin því fyrir sér
hvernig Akureyrarbær gæti litið út
í óræðri framtíð ef þar byggju í
kringum 700 þúsund manns.
Erla og Bo skeyta saman ljós-
myndum frá Akureyri og stærri
þéttbýlisstöðum úti í heimi. „Þetta
er ekki framtíðin í okkar huga;
frekar möguleg veröld, ef hér
byggju mun fleiri,“ segir Bo Melin
við Morgunblaðið. „Við erum ekki
að segja að þetta sé annaðhvort
betri leið eða verri fyrir Akureyri.
Við leggjum ekki mat á það. Hér
er hins vegar um aðra leið að
ræða.“
Myndirnar eru unnar sérstak-
lega vegna þessarar sýningar og
ekki hægt að sýna þær annars
staðar en á Akureyri, að mati lista-
mannanna. „Þetta er einhvers kon-
ar innsetning sem er algjörlega
rýmistengd við Akureyri,“ segir
Erla.
„Við mynduðum hér í maí en
hinar myndirnar sem við notum
áttum við í safni. Við höfum
ferðast víða til að mynda fyrir
þetta verkefni,“ segir Erla, en
þetta er þriðja sýningin af þessum
toga sem þau vinna saman. Árið
2000 „breyttu“ þau smábænum
Skoghall í Svíþjóð í úthverfi stór-
borgar, Reykjavík var verkefni
þeirra árið eftir og nú Akureyri.
„Við völdum staði á Akureyri
sem allir kannast við; kirkjuna,
bláa húsið í göngugötunni [París
svokallað] og svo Bautann og ís-
búðina í gilinu, sem eru komin til
San Francisco!“ segir Erla en
leggur áherslu á að engin þekkt
kennileiti frá hinum stöðunum sjá-
ist.
Á einni myndinni, sem tekin er
frá Oddeyrarbryggju, eru komin
þrjú háhýsi í miðbæinn og fremst á
myndinni eru þrír drengir að leik,
að því er virðist. En ekki er allt
sem sýnist: þegar betur er að gáð
sitja þeir og reykja og drekka
bjór!
Þau leggja einmitt áherslu á að
öll smáatriði skipti miklu máli.
„Þegar fólk gengur um sömu götu
daglega hættir það að taka eftir
umhverfinu,“ segir Erla.
Kveikjan að endanlegri útgáfu
myndarinnar var, segir Erla, at-
burður sem varð þegar þau voru á
bryggjunni að mynda. „Þá kom allt
í einu bíll brunandi niður að höfn
og unglingar ældu út um gluggann
á honum!“
Rétt er að geta þess að tvær
sýningar verða raunar opnaðar í
safninu á morgun, hin er Þjóð í
mótun: Ísland og Íslendingar fyrri
alda sem sett er upp í samvinnu
við Þjóðminjasafnið. Það er afmæl-
issýning; Listasafnið er 10 ára um
þessar mundir og Þjóðminjasafnið,
elsta safn lýðveldisins, 140 ára.
MYNDLISTARMENNIRNIR Jón-
as Viðar og Þórarinn Blöndal opna á
morgun nýjan sýningarsal á Akur-
eyri. 02 Gallery, eins og þeir kalla
staðinn, er staðsettur í Amarohúsinu
í Hafnarstræti 101.
Fyrstur til að sýna í galleríinu
verður myndlistarmaðurinn Finnur
Arnar. Í frétt frá fyrirtækinu segir
að 02 Gallery stefni að metnaðar-
fullri sýningarstarfsemi og meðal
annarra muni sýna þar á næsta ári
Aron Mitchell, Arna Valsdóttir, Ás-
laug Thorlacius, Hlynur Hallsson,
Húbert Nói, Jón Laxdal, Magnús
Sigurðarson, Margrét Blöndal og
Snorri Ásmundsson.
02 Gallery
á laggirnar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jónas Viðar Sveinsson, t.v., og Þór-
arinn Blöndal eru eigendur hins
nýja gallerís.
Hvernig væri umhorfs á Akureyri ef íbúar bæjarins væru 700 þúsund?
„Leikur með
umhverfið“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Erla S. Haraldsdóttir og Bo Melin við eitt verka sinna í Listasafninu.
Listasumri lýkur á morgun með Akureyrarvöku
Eldur, vatn og allir
regnbogans litir
TENGLAR
.....................................................
www.akureyri.is
GUÐMUNDUR Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Lundar, sem á og rek-
ur nýju nemendagarða framhalds-
skólanna á Akureyri, telur að
gagnrýni hótelhaldara í bænum á
rekstur sumarhótels á nemenda-
görðunum sé að hluta til á misskiln-
ingi byggð.
„Hótelrekstraraðilinn nýtur ekki
góðs af því hvernig húsið er fjár-
magnað. Það fór fram útboð meðal
hótelrekstraraðila og Flugleiðahótel
þurftu að senda inn tilboð eins og
aðrir. Hagstæðasta tilboðinu var
tekið og það er alger misskilningur
að hótelið njóti góðs af því hvernig
Lundur fjármagnar húsnæðið. Að
halda því fram að hótelreksturinn sé
fjármagnaður með ríkisfé er bara
ekki rétt,“ sagði Guðmundur og
bætti við að hinn almenni skattgreið-
andi hlyti að vilja sjá svona fram-
leiðslutæki nýtt allt árið. „Það sem
við erum að gera er bara liður í því.
Það hefði verið hægt að setja út á
þetta ef Flugleiðahótel hefðu samn-
ing við Lund á óeðlilegum kjörum.
Það er fjarri lagi, þeir voru einfald-
lega með hagstæðasta tilboðið,“
sagði Guðmundur.
Hann telur að horfa eigi á málið í
stærra samhengi og þegar til lengri
tíma litið efli þetta sumarhótel ferða-
þjónustuna í bænum. „Auðvitað er
erfitt þegar aukið hótelrými kemur
inn á markaðinn og þá þarf mark-
visst að finna markað fyrir aukn-
inguna. Eins og í öðrum atvinnu-
greinum tekur það tíma. Einkenni
ferðaþjónustu á Akureyri er að nýt-
ingin yfir sumarið er mikil en minni á
veturna. Þessi viðbót er bara yfir
sumartímann og það hlýtur að henta
hótelrekstrarmarkaðinum betur,“
sagði Guðmundur Magnússon.
Framkvæmdastjóri nemendagarða framhaldsskólanna
Hótelreksturinn ekki fjár-
magnaður með ríkisfé
ÁRLEGT ágústhraðskákmót Skák-
félags Akureyrar verður haldið á
sunnudagskvöldið í Íþróttahöllinni.
Mótið hefst kl. 20 og eru allir vel-
komnir.
Á NÆSTUNNI
ATVINNA
mbl.is