Morgunblaðið - 29.08.2003, Side 22
AUSTURLAND
22 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðleg ferðaráðgjöf
Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn á Íslandi
sem hefur kennt alþjóðlegt IATA/UFTAA námsefni
samfleitt í 12 ár. Á hverju ári útskrifar skólinn
„ferðaráðgjafa“ til starfa á ferðaskrifstofum,
flugfélögum og við aðra ferðaþjónustu,
enda er í dag krafa ferðaþjónustuaðila
að starfsfólk hafi slíka menntun.
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
GUÐRÚN Sigurðar-
dóttir, handverks-
listakona á Egilsstöðum,
hefur um árabil glatt
heimamenn og ferða-
fólk á Egilsstöðum með
litskrúðugum blóma-
körfum sem standa vítt
um bæinn til yndisauka.
Körfurnar eru að
uppistöðu úr fléttuðum
birkigreinum og skiptir
hún út blómum í körf-
unum á hverju vori. Er-
lendir ferðamenn sjást
gjarnan mynda þessar
körfur í bak og fyrir og
má af þeim sökum gera
ráð fyrir að hugmyndin
hafi verið tekin í notkun
víðar í heiminum en á
Egilsstöðum.
Birkikörfur til yndisauka
Egilsstaðir
STARFSMENN Síldarvinnslunn-
ar í Neskaupstað vinna enn að því
að leita að laxinum sem slapp úr
sjókví í höfninni í Norðfirði fyrir
rúmri viku en að sögn Björgólfs
Jóhannssonar, forstjóra Síldar-
vinnslunnar, hefur árangurinn
verið lítill.
Þrátt fyrir mikla vinnu við að
reyna að ná laxinum aftur hefur
einungis lítið brot af honum fund-
ist. Af 2.928 löxum hafa aðeins um
105 ratað í net Síldarvinnslunnar.
„Það koma 1–2 laxar á dag í
netin en við erum með net víða.
Við erum á fullu að reyna að at-
huga hvar þessi fiskur liggur. Við
erum að skoða Norðfjörð, Mjóa-
fjörð, Reyðarfjörð og við Eski-
fjörð.“
Telur ekki líklegt að
laxinn lifi veturinn af
Björgólfur segir að uppi séu
hugmyndir um að leita lengra
norður eða suður en að hvergi
hafi heyrst fréttir af fiskinum.
„Ég sé ekki hvert þessi fiskur
hefur farið. Við höfum ekki hugs-
að okkur annað en að reyna
áfram í einhverja daga og jafnvel
vikur. Það gerum við í samráði
við opinbera aðila,“ segir Björg-
ólfur.
Hann telur ekki líklegt að fisk-
urinn lifi veturinn af. „Ef við
verðum ekki búin að finna hann
innan nokkura daga tel ég ekki
líklegt að hann sjáist meira hér
við land.“
Síldarvinnslan er enn að slátra
laxi, en nú er dælt beint úr skip-
inu sem flytur laxinn og í land.
Fiskurinn er því ekki lengur
geymdur í sjókví eins og þegar
óhappið átti sér stað.
2.928 laxar sluppu í Neskaupstað í síðustu viku
Aðeins 105 laxar
hafa verið veiddir
Neskaupstaður
NÚ er verið að plægja niður há-
spennurafstreng og ljósleiðara úr
Fljótsdal inn að Kárahnjúkum.
Verkið er langt komið og eru allir
rafstrengirnir og rörið fyrir ljósleið-
arann plægð niður í einu lagi.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Plægt inn
að Kára-
hnjúkum
Kárahnjúkavirkjun
ÞESSI sjaldséðu mótorhjól voru á
bensínstöð á Egilsstöðum á dög-
unum. Hjólin eru með hliðarvagna og spókuðu sig tvö börn í öðrum
þeirra meðan foreldrarnir tóku
bensín og gerðu klárt í næsta
ferðaáfanga.
Óvenjulegur ferðamáti
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Austrakjallarinn Egilsstöðum:
Stofnfundur Hestaeigendafélags
Austur-Héraðs, 29. ágúst kl. 21:00.
Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum:
Ágústdansleikur Harmónikku-
félags Héraðsbúa 30. ágúst kl.
22:00–03:00.
Egilsstaðir: Grillferð á Húsatanga
með Lagarfljótsorminum 30. ágúst
kl. 16:00.
Valhöll, Eskifirði: Karokee 30.
ágúst kl. 11:00–03:00.
Ekkjufellsvöllur, Fellum: Opna
Símamótið í golfi 30. ágúst kl.
10:00.
Félagsmiðstöðin Ný-ung, Egils-
stöðum: Austurlandsmót í Count-
er-Strike. 30.–31. ágúst.
Reyðarfjarðarvöllur: Álfasteins-
spark 2003 31. ágúst.
Hóll, Hjaltastaðarþinghá: Göngu-
ferð út á Héraðssand 31. ágúst kl.
11:00.
Nesbær, Neskaupstað: Opnun á
málverkasýningu Kristofer Kub-
ielas 1. september.
Á NÆSTUNNI
LANDIÐ
„ÁRIÐ 2001 hófst ég, ásamt nem-
endum mínum, handa við verkefni
sem ég kalla ELFEN (Elemental
Life-Form Encounters in Nature)
og byggist á því að skrá niður
reynslu fólks af yfirnáttúrlegum
fyrirbærum. Kanadíska sjónvarpið
er með þátt á dagskrá sem heitir
Magnificent Obessions. Í þættinum
fylgja þeir í vikutíma eftir fólki
sem hefur sérkennileg áhugamál
og mitt var nógu sérkennilegt til
að hljóta náð fyrir þeirra augum,“
segir dr. Butler og hlær við. „Þess
vegna er ég nú staddur hér á
landi.“
Á meðan á dvöl hans stendur
mun hann hitta ýmsa einstaklinga
sem eru þekktir fyrir að sjá og
skynja nærveru álfa, auk þess sem
hann mun ferðast til staða sem eru
þekktir sem álfastaðir. Dr. Butler
segist vera að vinna að bók um álfa
og vætti í náttúrunni og hvernig
tilvist þeirra tengist daglegu lífi
fólks. Því hefur hann einnig áhuga
á að fá upplýsingar um fyrirtæki
hér á landi sem nota álfaheiti í
nöfnum sínum, hafa álfa í firma-
merkjum sínum eða tengja sig á
einn eða annan hátt huliðsheimum.
„Mér finnst Ísland ákaflega
spennandi land og ég hef haft sam-
band við Íslendinga í Kanada til að
leita eftir reynslu þeirra af álfum
og öðrum náttúruvættum. Ég
vænti þess að sú þekking sem ég
afla mér hér á landi komi til með
að nýtast vel í bókina mína. En
mér gefst líka tækifæri til að koma
þekkingu minni á framfæri í þess-
ari heimsókn, því Ferðaþjónusta
bænda og Hólaskóli standa fyrir
fundi í Bratta, fundarsal Kenn-
araháskólans við Stakkahlíð mánu-
daginn 1. september nk. kl. 15 þar
sem ég mun flétta saman umhverf-
isvæna ferðaþjónustu og áhugann
á álfunum í fyrirlestri sem ber
heitið: The Changing World of
Eco-tourism and the Sacredness of
Nature, and the Hidden Land-
scape of Elves, Gnomes and Fair-
ies. Ég hef í gegnum starf mitt afl-
að mér víðtækrar þekkingar á
umhverfisvænni ferðaþjónustu,
bæði frá sjónarhóli seljanda og
kaupanda, og með því að deila
þeirri þekkingu með Íslendingum
tel ég mig geta hjálpað þeim að
sneiða hjá mistökum sem aðrir
hafa gert. Jafnframt mun ég reifa
hvernig hægt er að tengja huliðs-
heima við umhverfisvæna ferða-
þjónustu.“
Dr. Butler mun dvelja hér á
landi í nokkra daga eftir að sjón-
varpsupptökum lýkur. „Ég hafði
vonast til að geta séð lunda, en er
víst aðeins of seint á ferð,“ segir
hann. „Verra er hins vegar að ég
hafði verið beðinn um að vera far-
arstjóri í fuglaskoðunarferð sem
fara átti til Íslands næsta vor, þar
sem ég hef verið fararstjóri í slík-
um ferðum víða um heim. Um leið
og Íslendingar tilkynntu að þeir
ætluðu að hefja hvalveiðar á ný var
þeirri ferð hins vegar aflýst í mót-
mælaskyni og því verður ekkert ef
því að ég komi hingað næsta ár,“
segir Butler og það er greinilegt
að hann er óhress með þessa
ákvörðun íslenskra stjórnvalda.
Kanadískur pró-
fessor með ein-
stakt áhugamál
Hann er kanadískur, prófessor í verndunarlíffræði
villtra dýra og garða við Háskólann í Alberta í Kan-
ada, hefur sem slíkur starfað úti um allan heim og
fléttað starf sitt saman við umhverfisvæna ferðaþjón-
ustu. Guðrún G. Bergmann hitti dr. James Butler og
fékk að vita meira um þetta áhugamál hans.
Dr. James Butler, kanadískur
líffræðingur með áhuga á álfum og
vættum í náttúrunni.
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann