Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 23
Ingvar
Helgason
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
7
1
9
Ingvar Helgason hf. · Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is
frá 3.289.000 kr.
TERRANO
frá 4.590.000 kr.
PATROL
frá 2.490.000 kr.
DOUBLE CAB
frá 2.760.000 kr.
X-TRAIL
frá 3.860.000 kr.
MAXIMA
frá 2.260.000 kr.
PRIMERA
frá 1.650.000 kr.
ALMERA
frá 1.390.000 kr.
MICRA
Hann er japanskur og var valinn áreiðanlegasti bíll í sínum flokki af bresku neytendasamtökunum. Könnunin tók til bilanatíðni og
gangsetningar og það var okkar bíll, Nissan Almera sem náði hæstu einkunn, einfaldlega 100% áreiðanlegur bíll. Nissan Almera er
á einstöku verði miðað við búnað, þægindi og aksturseiginleika.
Komdu í reynsluakstur, 100% bíllinn stendur þér til boða fyrir aðeins 29.929 kr. á mánuði.
ÞETTA ER BÍLLINN
NISSAN ALMERA frá
29.929
á rekstrarleigu í 3 ár.
kr./mán.
Innifalið: Leiga til 36 mánaða, akstur
allt að 20.000 km á ári, smur- og
þjónustueftirlit samkvæmt þjónustubók.
Consumers’ Association
100%
Var valinn áreiðanlegastibíll í sínum flokki af breskuneytendasamtökunum
áreiðanlegur
Í BORGARSKJALASAFNI og
Árbæjarsafni lýkur um helgina
sýningum sem settar voru upp í
tilefni aldarafmælis Lárusar Sig-
urbjörnssonar, borgarskjalavarðar
og forstöðumanns Árbæjarsafns,
undir heitinu „Lárus Sigurbjörns-
son – safnafaðir Reykvíkinga“.
Þriðja sýningin um Lárus og fram-
lag hans til íslenskrar leiklist-
arsögu og rannsókna á því sviði er
í Þjóðarbókhlöðu og verður hún
opin fram í miðjan september.
Jón Viðar Jónsson, for-
stöðumaður Leikminjasafns Ís-
lands, sagði að það hefði verið að
frumkvæði Leikminjasafnsins að
ákveðið var að minnast Lárusar af
þessu tilefni. „Lárus lagði ekki að-
eins grunn að Borgarskjalasafni og
Árbæjarsafni heldur var hann
einnig frumkvöðull í rannsóknum á
íslenskri leiklistarsögu. Við hjá
Leikminjasafninu höfum lagt
áherslu á að halda á lofti minningu
þeirra sem á fyrri hluta síðustu
aldar lögðu hér grundvöll að metn-
aðarfullu atvinnuleikhúsi. Þegar
kom að aldarafmæli Lárusar
fannst okkur tilvalið að hvetja til
samstarfs þeirra safna sem hann
kom á fót og eru með efni frá hon-
um.
Þetta var gert með þeim hætti
að hvert safn setti upp sýningu
með því efni frá honum sem helst
tengist starfi þess. Lárus var mjög
ötull safnari um íslenska leiklist-
arsögu og í raun fyrstur manna til
að iðka hana vísindalega.“
Leikminjasafnið stóð fyrir minn-
ingardegi á 100 ára afmæli Lár-
usar hinn 22. maí sl. en áður hefur
þeirra Vals Gíslasonar og Indriða
Waage verið minnst með sama
hætti.
Jón Viðar bendir á að tveir af
helstu frumherjum íslenskra safna-
mála, Lárus Sigurbjörnsson og
Sigurður Guðmundsson málari,
stofnandi Þjóðminjasafnsins, hafi
verið miklir áhugamenn um leik-
húsmál og segir gaman að geta
minnst þeirra beggja á sama ári
og Leikminjasafnið er stofnað.
Vegleg sýningarskrá var gefin
út í tilefni af þessu sýningarhaldi
og liggur hún ókeypis frammi í
söfnunum. Í hana rita bæði fræði-
menn og vinir Lárusar um líf hans
og starf auk þess sem þar er að
finna ritaskrá hans.
Sýningu um Lárus
Sigurbjörnsson að ljúka
STOFNUN Sigurðar Nordal og
Snæfellingar gangast fyrir Eyr-
byggjuþingi í Grunnskólanum í
Stykkishólmi á laugardag og
sunnudag. Farið verður á sögu-
staði í fylgd heimamanna, m.a. á
þingstaðinn á Þórsnesi, að Helga-
felli, inn í Álftafjörð, í Bjarnarhöfn
og að Eyri. Þá verður Berserkja-
gata gengin.
Erindi flytja Adolf Friðriksson,
Ármann Jakobsson, Elín Bára
Magnúsdóttir, Eyþór Benedikts-
son, Guðrún Ása Grímsdóttir, Guð-
rún Nordal, Helgi Skúli Kjart-
ansson, Magnús A. Sigurðsson,
Ólafur Halldórsson og Vésteinn
Ólason.
Þingið verður sett kl. 11 á morg-
un og lýkur kl. 15 á sunnudag.
Tvö erindi verða flutt á laug-
ardag. Eyþór Benediktsson og
Magnús A. Sigurðsson: Sýnilegar
minjar úr Eyrbyggju. Adolf Frið-
riksson: Héraðsþingin.
Sjö erindi verða flutt á sunnu-
dag: Ólafur Halldórsson. „Rekkju-
búnaður Þórgunnu.“ Ármann Jak-
obsson: „Vofa ellinnar: Af hverju
er Þórólfur bægifótur svona vond-
ur?“ Elín Bára Magnúsdóttir:
„Hugmyndaleg átök í Eyrbyggja
sögu.“ Guðrún Nordal: „Vísur og
pólitík í Eyrbyggju.“ Vésteinn Óla-
son: „Gísli og Snorri – karlmenn
tveggja tíma?“ Helgi Skúli Kjart-
ansson: „Langsótt textatengsl Eyr-
byggju“ og Guðrún Ása Gríms-
dóttir: „Vestlenskar
fornsagnauppskriftir á 17. öld.“
Frekari upplýsingar á vef stofn-
unarinnar: www.nordals.hi.is.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Ása Georgsdóttir í Miðhúsum í Breiðuvík. Í baksýn er fjara Björns Breið-
víkingakappa frá Kambi, þess sem meiri vinur var húsfreyjunnar að Fróðá
en goðans að Helgafelli, bróður hennar, samanber Eyrbyggju.
Eyrbyggjuþing
í Stykkishólmi
Í GALLERÍI Álfi, sem er í
Bankastræti 5, hefur undanfar-
ið staðið yfir ljósmyndasýning
félagsins Ljósálfanna. Gestum
hefur gefist kostur á að bjóða í
myndirnar og verður haldið
uppboð á myndunum á sunnu-
dag kl. 16. Uppboðshaldari er
Ragnar Sigurjónsson ráðsmað-
ur í Viðey.
Sýningin nefnist 2 m² af Ís-
landi og er níunda sýning ljós-
myndafélagsins.
Ljósmyndir
á uppboði