Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 26

Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 26
UMRÆÐAN 26 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ bílar ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM SMÁAUGLÝSING AÐEINS 995 KR.* Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.* Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum. * 4 línur og mynd. HAFÐU SAMBAND! Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is Á FIMMTUDAGINNALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM EIN AF alvarlegustu fréttum síð- ustu viku hljóðaði eitthvað á þessa leið: Tæplega 3.000 eldislaxar sleppa úr bráða- birgðakví í höfninni í Neskaupstað. For- maður Lands- sambands veiði- félaga kallar atburðinn versta og alvarlegasta um- hverfisslys í laxeldi hér á landi til þessa. Mín fyrstu viðbrögð voru þessi: Þetta hlaut að gerast! Það var ekki spurning um hvort, heldur hvenær. Umhverfissjónarmið hundsuð Þegar Alþingi fjallaði um breyt- ingar á lögunum um lax- og silungs- veiði 2001 tókust á sjónarmið þeirra sem vöruðu við hættunni af slysa- sleppingum og hinna sem töldu að ekki mætti setja of mikil höft á at- vinnugreinina. Þegar fulltrúar um- hverfisráðuneytisins voru spurðir um afstöðu sína til frumvarps land- búnaðarráðherra sögðu þeir að ekk- ert samráð hafi verið haft við sér- fræðinga umhverfisráðuneytisins við samningu þess og þegar sér- fræðingar ráðuneytisins fengu fullbúið frumvarpið til umsagnar hafi ekkert mark verið tekið á alvar- legum athugasemdum þeirra. Það er því ljóst að gildandi lög taka lítið sem ekkert tillit til umhverfissjón- armiða og að við gerð þeirra skelltu menn skollaeyrum við niðurstöðum vísindarannsókna sem leitt hafa í ljós neikvæð vistfræðileg áhrif lax- eldisstöðva auk mikillar hættu sem villtum stofnum stafar af stroklöx- um. Til marks um þetta eru álit tví- klofinnar landbúnaðarnefndar og ekki síður sameiginlegt álit um- hverfisnefndar frá 05.04.01. Villtur stofn í hættu Í fjölmiðlum nú hafa menn velt því fyrir sér hvernig þeim reiði af þessum 2.800 stroklöxum og þeir geti valdið skaða á villta stofninum. Eldismenn hafa gert lítið úr hætt- unni, hafa jafnvel haldið því fram að hún sé lítil þar sem ólíklegt sé að laxarnir séu orðnir kynþroska. Það er hins vegar vitað að lax sem slepp- ur að sumri til á talsverðar lífslíkur og sé hann ekki orðinn kynþroska þegar hann sleppur þá verður hann það í sjó, svo þegar náttúran kallar þá leggur hann leið sína upp í árnar. Forstjóri Veiðimálastofnunar hefur fullyrt að íslenska laxastofninum stafi hætta af þessu alvarlega slysi, sem eldismenn kjósa að kalla „óhapp“. Eldismenn hafa sagt í fjöl- miðlum að rannsóknir skorti á kort- lagningu farleiða laxa í hafinu. Þess- ar fullyrðingar stangast m.a. á við niðurstöður áreiðanlegrar norskrar rannsóknar, sem leiddi það í ljós að lax sem á hvergi heima leitar að- allega undan hafstraumum og ferðast allt að 2.000 km leið til að komast upp í ár. Af þessu má ætla að stroklax frá eldi hér við land, geti lagt leið sína hvert sem er, þar sem segja má að hringstraumur sé rétt- sælis um Ísland (sjá Veiðimanninn 2. tbl. 2002). Sé þetta raunin má gera ráð fyrir að auglýsing landbún- aðarráðherra frá 15.03.01, þar sem hann lýsir ákveðna firði landsins friðaða fyrir eldi frjórra laxa í sjókvíum, sé í besta falli gagnslaus. En í fjölmiðlum hefur ráðherrann einmitt talað eins og hún komi til með að bjarga málunum nú. Mbl. fagnaði einnig þessari auglýsingu í leiðara 21.08.03. en þar sem bannið nær eingöngu til frjórra laxa verður að benda á þá staðreynd að lífríkinu getur stafað alveg jafnalvarleg hætta af ófrjóum löxum. Þeim fylgir sama mengunin, sama hættan á lús og ýmsum sjúkdómum auk þess sem mögulegt er að þeir leggist á nátt- úruleg „hreiður“ og eyðileggi þau ekki síður en frjói laxinn. Hver ber ábyrgðina? Nú virðist mönnum nokkuð létt, þegar komið hefur í ljós hvað olli skemmdum á kvínni, sem laxarnir sluppu úr. En hvað með hið eig- inlega tjón? Tjónið sem laxarnir 2.800 eiga mögulega eftir að valda? Lýst eftir 2.800 löxum Eftir Kolbrúnu Halldórsdóttur SKIPTA öryggis- og heilbrigð- ismál á vinnustöðum stjórnendur einhverju máli? Á norrænu vinnu- vistfræðiráðstefn- unni NES 2003 sem haldin var nýlega voru flutt mörg áhugaverð erindi. Eitt þeirra flutti Kristiina Juvas um niðurstöður finnskr- ar rannsóknar þar sem könnuð voru viðhorf stjórnenda í iðn- aðarfyrirtækjum til öryggis- og heilbrigðismála. Stjórnendur svör- uðu spurningalista og viðhorf þeirra voru síðan skoðuð meðal annars eftir því hversu mörg vinnu- slys höfðu átt sér stað í fyrirtækj- unum og á hvaða valdaþrepi stjórn- endurnir voru. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að viðhorf stjórnenda til öryggis- og heilbrigðismála voru jákvæðust þar sem slysatíðni er lág en þar sem vinnuslys eru algeng voru viðhorfin neikvæðust. Almennt höfðu stjórnendurnir já- kvæða afstöðu gagnvart öryggis- málum á eigin vinnustöðum. Æðstu stjórnendunum fannst þetta mál- efni mikilvægt og töldu að öryggis- og heilbrigðismálum væri vel stjórnað í fyrirtækjum sínum. Flestir stjórnendanna lögðu mikla áherslu á þátt starfsfólks í öryggis- málum og margir bentu á mik- ilvægi þess að breyta viðhorfum starfsfólks til öryggis- og heilbrigð- ismála en töldu minni þörf á að bæta stjórnun öryggismála og vinnuskipulag. Athyglisverður munur kom fram í viðhorfum stjórnenda eftir því á hvaða stjórnstigi þeir eru, þ.e. lægra settir stjórnendur töldu mik- ilvægast að uppfylla kröfur laga um vinnuvernd en þeir hæst settu töldu mikilvægast að fyrirtæki þeirra væru öðrum fyrirtækjum, í sömu grein, til fyrirmyndar í ör- yggis- og heilbrigðismálum. Þar spilar ímynd fyrirtækja sjálfsagt inn í og að æðstu stjórnendur vilji að fyrirtæki þeirra beri af keppi- nautum á þessu sviði og gefi þannig af sér jákvæða mynd. Finnsku stjórnendurnir töldu al- mennt að ástæðna vinnuslysa væri að leita hjá starfsfólkinu sjálfu og þau mætti rekja til ákafa, hvatvísi eða hirðuleysis og að ekki væri far- ið að reglum. Öryggismál röðuðust, að mati stjórnendanna að meðaltali, í sjötta sæti af átta þegar meta átti hvaða mál væri mikilvægust í rekstri fyrirtækja. Ekki kemur á óvart að þeir töldu fjármál, fram- leiðslu og sölu- og markaðsmál mikilvægust. Megineinkenni þeirra fyrirtækja þar sem vinnuslysatíðni var lág voru:  Mikil samskipti milli stjórnenda og starfsmanna.  Áhersla á virka þátttöku stjórn- enda og ábyrgð í verki til að verjast slysum og vernda starfs- menn gegn sjúkdómum.  Skýr markmiðssetning í öryggis- málum.  Engin óþarfa áhætta tekin. Kristiina Juvas benti á að stjórn- endurnir í finnsku rannsókninni gerðu almennt of lítið úr eigin mik- ilvægi í stjórnun öryggismála. Áhugavert væri að athuga viðhorf íslenskra stjórnenda til þessara mála en samkvæmt íslensku vinnu- verndarlögunum nr. 46/1980 ber at- vinnurekendum skylda til að tryggja öryggi og heilbrigði starfs- manna sinna. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda því á nauðsyn þess að fyrirtæki marki sér al- mennt stefnu í öryggis- og heil- brigðismálum sem á við öll stjórn- stig þannig að skýrt sé hvaða hlutverk hver stjórnandi hefur í stjórnun öryggis- og heilbrigð- ismála á sínum vinnustað. Einnig að mikilvægt sé að virkja alla starfsmenn í að huga að þessum málum og hvetja til almennrar um- ræðu. Juvas benti á að stjórnendur þyrftu að vera virkari í að meta stöðu öryggismála í fyrirtækjum sínum og tengja betur öryggis- og forvarnastarf við almenna starfsemi í fyrirtækjunum. Stórauka þyrfti gerð áhættumats í fyrirtækjum og auka umræðu, menntun og þjálfun í öryggis- og heilbrigðismálum. Viðhorf stjórn- enda í fyrirtækj- um til öryggis- og heilbrigðismála Eftir Ásu G. Ásgeirsdóttur Höfundur er sérfræðingur í fræðsludeild Vinnueftirlitsins og verkefnastjóri Landsnets um heilsueflingu á vinnustöðum. Fæst í apótekum og lyfjaverslunum ER NEFIÐ STÍFLAÐ? STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. Klapparstíg 44 Sími 562 3614 Hveitigraspressa Nýkomin verð kr. 3.900 Hægt að nota sem ávaxtapressu líka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.