Morgunblaðið - 29.08.2003, Síða 42
FRÉTTIR
42 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Tour De France 2003
Kraftwerk
MB tdf2003
Fallin High
Safri Due
MB fallinhigh
Whiketywhack
Christine Milton
MB whikety
Dance Dance Dance
Jody Bernal
MB danceda
Hardly Hurts At All
Maria Arredondo
MB hardly
Chihuahua
DJ Bobo
MB mobochi
Kántrýbær
Hallbjörn Hjartarson
MB kantry
Hey þú
Skítamorall
MB heidu
Stál og hnífur
Bubbi Morthens
MB bmstal
Gleðibankinn
Icy
MB gledib
Ryksugulag
Olga Guðrún Árnadóttir
MB ryksugu
Farin
Skítamórall
MB farin
Vöðvastæltur
Land og synir
MB vodast
Rain
Jet Black Joe
MB jbjrain
Before you let me go
Kane
MB kbeforeu
Something beautiful
Robbie Williams
MB rbsomet
Girlfriend
B2K
MB b2kgirlf
Snake
R. Kelly
MB rksnake
Crazy Beat
Blur
MB crazybeat
Faint
Linkin Park
MB lpfaint
Can’t let you Go
Fabulous
MB fabcant
Funeral of hearts
Him
MB funeheart
When you walk in the room
Jamai & Dewi
MB whenwalk
Satisfaction
Benny Benassi
MB bbsatis
21 Questions
50 Cent
MB 21quest
Hey baby
Briskeby
MB bheybaby
MB mbl
MB 4heart
MB shep
MB hpy
MB frek
MB livp
MB blank
MB owen
MB tat9
MB volvo
MB ssol
MB gang
MB yy
MB groov
MB jes
MB ferrari
MB panda
MB tat
MB sos
MB pice
MB tcow
MB thbib
MB zidn
Þú finnur rétta tóninn á mbl.is
Yfir 10.000 tónar og tákn.
Pantaður með SMS í 1910
Hver tónn/tákn kostar 99 kr.
MÁNUDAGINN 1. september verð-
ur byrjað að skrá á hjónanámskeið
haustsins í Hafnarfjarðarkirkju
Undanfarna sjö vetur hafa um
6.000 manns tekið þátt í þessum
hjónanámskeiðum á vegum kirkj-
unnar. Námskeiðin eru ætluð öllum
sem eru í hjónabandi eða sambúð,
ekki aðeins þeim sem eiga við
vandamál að stríða, heldur hinum
líka sem vilja styrkja samband sitt.
Námskeiðin sækir fólk af öllu land-
inu. Eru þau ætluð bæði giftum
jafnt sem sambúðarfólki og fólki á
öllum aldri.
Á námskeiðunum er fjallað um
samskipti foreldra og barna, stjórn-
un innan fjölskyldunnar og hvernig
þessi atriði endurspeglast í hegðun
barna og unglinga utan fjölskyld-
unnar. Farið er í gegnum helstu
gildrur sambúðarinnar, hvernig
fjölskyldumynstrum hægt er að
festast í, fjallað um væntingar, von-
ir og vonbrigði þeirra sem tilheyra
fjölskyldunni. En fyrst og fremst er
talað um þær leiðir sem hægt er að
fara til að sleppa út úr vítahring
deilna og átaka í sambúð og hvern-
ig styrkja má innviði fjölskyld-
unnar. Við skoðum líka ýmsar fjöl-
skyldugerðir og veltum því fyrir
okkur hvað hægt er að gera til þess
að fyrirbyggja deilur og sam-
skiptaörðugleika.
Námskeiðin eru samin fyrir ís-
lenskar aðstæður og byggjast ekki
á erlendri fyrirmynd. Hvert nám-
skeið tekur hálfan mánuð
Auðvitað er ekki hægt að leysa
öll mál á námskeiði sem þessu, enda
forsendur þeirra er taka þátt mjög
mismunandi. Þau pör er taka þátt
geta þess vegna skráð sig í einka-
viðtöl mánuði eftir að námskeiðinu
lýkur, þyki þeim þörf þar á.
Námskeiðið fer fram í formi sam-
tals milli þátttakennda og leiðbein-
anda, þar sem pörin eru m.a. látin
vinna ýmis verkefni, hvert fyrir sig
og í hóp.Enginn þarf að tjá sig á
námskeiðinu frekar en hann vill.
Leiðbeinandi á námskeiðunum er
sr. Þórhallur Heimisson, prestur í
Hafnarfjarðarkirkju, en hann
samdi einnig efnið.
Skráning fer fram alla virka
daga á skrifstofutíma í síma
891 7562, frá 1. september.
Kirkjustarf
Hjónanámskeið
að hefjast í
Hafnarfjarð-
arkirkju
Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl.
11:00. Bænastund alla þriðjudaga
kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólar-
hringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5.
Allir alltaf velkomnir.
Safnaðarstarf
Í DAG
Brúarhlaup Selfoss fer fram í 13.
skipti laugardaginn 6. september nk.
Keppnisvegalengdir verða hálf-
maraþon (21,1 km), 10 km, 5 km og
2,5 km. Einnig er keppt í hjólreiðum
5 km (malbik) og 12,5 km (leiðin er
bæði malbik og malarvegur). Tíma-
taka er í öllum vegalengdum, bæði
fyrir hlaup og hjólreiðar.
Allir hlauparar og hjólreiðamenn
verða ræstir á Ölfusárbrú. Hjólreiðar
hefjast kl.13, hálfmaraþon kl.13.30 og
aðrar vegalengdir kl. 14. Allir þátt-
takendur fá við skráningu keppnisbol
og verðlaunapening við komu í mark.
Skráningargjöld eru 1.000 kr. fyrir 12
ára og eldri og 500 kr. fyrir 11 ára og
yngri, í allar keppnisgreinar.
Allar hlaupaleiðir eru löggildar og
mældar upp af viðurkenndum aðila.
Skráning fer fram á hlaupasíðunni,
Hlaup.is, í Kjarnanum Selfossi, föstu-
daginn 5. september frá kl.13–19 og á
hlaupadag frá kl.10 í Hótel Selfossi
þar sem einnig verður afhending
keppnisgagna, fyrstu sætin í hálf-
maraþoni, bæði kyn. Einnig fyrir
fyrsta sæti í 10 km hlaupi, bæði kyn.
Einnig verða dregin út útdrátt-
arverðlaun úr hópi allra keppenda.
Úrslit verða birt á hlaupasíðunni,
Hlaup.is og á heimasíðu sveitarfé-
lagsins Árborgar, Árborg.is.
Markaður verður í tjaldinu í Lón-
koti í Skagafirði sunnudaginn 31.
ágúst kl. 13–17. Markaðir í Lónkoti
eru árvissir viðburðir og eru haldnir
síðasta sunnudag í hverjum sum-
armánuði.
Fyrirlestur um gagnreynda heil-
brigðisþjónustu Opinn fyrirlestur
verður haldinn á vegum Rannsókn-
arstofnunar í hjúkrunarfræði og
Landspítala – háskólasjúkrahúss í
hátíðarsal Háskóla Íslands þriðju-
daginn 2. september kl.15.30–16.30.
Fyrirlesari er Marita G. Titler og
mun hún fjalla um gagnreynda heil-
brigðisþjónustu (evidence-based
practice). Titler er í forsvari fyrir
deild innan hjúkrunar- og umönnun-
arsviðs háskólasjúkrahússins í Iowa
er stýrir er nefnist Research,
Quality, and Outcomes Management.
Hún er einnig klínískur prófessor við
University of Iowa College of Nurs-
ing.
Innleiðing alþjóðlegra reiknings-
skilastaðla Árið 2005 verður ís-
lenskum fyrirtækjum gert skylt að
haga reikningshaldi sínu og uppgjöri
í samræmi við alþjóðlega staðla í
þessum efnum. Stjórnendaskóli Há-
skólans í Reykjavík býður upp á fyr-
irlestur um innleiðingu alþjóðlegra
reikningsskilastaðla. Fyrirlesari er
Ólafur Þór Jóhannesson, löggiltur
endurskoðandi hjá PWC. Fyrirlest-
urinn verður haldinn þriðjudaginn 2.
september nk. og stendur yfir frá kl.
15–18. Á þessum námskeiði verður
leitast við að svara spurningum um
áhrif þessara breytinga á uppgjör ís-
lenskra fyrirtækja sem skráð eru í
Kauphöll Íslands. Fyrirlesturinn er
helst ætlaður stjórnendum, sérfræð-
ingum og endurskoðendum.
Nánari upplýsingar um námskeiðið:
stundaskrá, leiðbeinendur og náms-
lýsingu er að finna á heimasíðu
Stjórnendaskólans: www.stjorn-
endaskolinn.is. Fólk getur skráð sig á
heimasíðunni eða með aðstoð þjón-
ustudeildar.
60 ára afmælissýning Félags
meistara og sveina í fataiðn
Félag meistara og sveina í fataiðn
fagnar 60 ára afmæli sínu um þessar
mundir. Af því tilefni stendur félagið
fyrir fata- og sögusýningu í miðrými
Kjarvalsstaða um næstu helgi, dag-
ana 30. ágúst til 2. september.
Þar sýna um 20 félagsmenn verk sín,
m.a. sérsaumaða brúðarkjóla, herra-
fatnað, síðkjóla og annan spariklæðn-
að frá allra síðustu árum en einnig
hversdagsfatnað. Að auki verða sýnd
verk frá fyrri árum sem gefa til
kynna tískustrauma og handbragð
síðustu áratuga. Á sýningunni má
ennfremur sjá sýnishorn af þróun
tækjabúnaðar á þessu viði en tækni-
byltingin hefur haft áhrif á klæð-
skurð og fataiðn líkt og aðrar greinar.
Fyrsti nýi Lancer-bíllinn í sjö ár
Frumsýning um helgina Mitsubishi
Lancer verður frumsýndur næst-
komandi laugardag og sunnudag, 30.
og 31. ágúst, í höfuðstöðvum Heklu,
Laugavegi 174, og hjá söluumboðum
Heklu á Selfossi, í Reykjanesbæ og
hjá Höldi á Akureyri. Opið verður á
þessum stöðum báða dagana, frá
klukkan 12 til 16.
Á MORGUN
Siðgæði í hjálparstarfi Rauði
kross Íslands og Reykjavíkur-
akademían verða með málfund um
siðgæði í hjálparstarfi á morgun,
laugardaginn 30. ágúst, kl. 13 í hús-
næði akademíunnar í JL-húsinu að
Hringbraut 121. Fjallað verður um
kröfur sem gerðar eru til hjálp-
arsamtaka, stöðu mannúðarmála í
heiminum og hvort fólki beri yf-
irleitt siðferðisleg skylda til að
hjálpa öðrum.
Erindi halda: Christopher Lamb,
yfirmaður málsvarastarfs Alþjóða-
sambands Rauða kross félaga, Sig-
ríður Víðis Jónsdóttir og Úlfar
Hauksson, formaður Rauða kross
Íslands.
Miðað er við að framsöguerindi taki
um klukkustund og eftir kaffi verða
umræður um málefnið.
Kynning á Kínaför með Kína-
klúbb Unnar
Laugardaginn 30. þ.m. verður Kína-
klúbbur Unnar með kynningu á
Kínaför ársins, að Njálsgötu 33.
Unnur Guðjónsdóttir mun sýna lit-
skyggnur úr fyrri ferðum Kína-
klúbbsins til Kína, jafnframt því að
segja frá ferðatilhöguninni á þessari
ferð, sem er 18. hópferðin þangað,
sem hún skipuleggur og stjórnar.
Kynningin hefst kl. 20 og eru allir
sem hafa hug á að fara í ferðina,
sem verður 5.–26. september, vel-
komnir.
Gróttudagur Landsbankans verð-
ur haldinn laugardaginn 30. ágúst
á Valhúsahæð. Þetta verður knatt-
spyrnuveisla sem öllum íbúum á
Seltjarnarnesi er boðið að taka þátt
í.
Dagskráin hefst á Landsbanka-
mótinu sem er hraðmót fyrir 6. og 7.
flokk. þar sem Grótta, Haukar og
KR keppa. Síðan taka við leikir þar
sem 2.–5. flokkar Gróttu keppa við
nágranna sína í KR. Gróttudegi
Landsbankans lýkur með stórleik
þar sem úrvalslið Jónmundar Guð-
marssonar, bæjarstjóra á Seltjarn-
arnesi, leikur gegn meistaraflokki
Gróttu. Boðið verður upp á kaffi og
kökur á vægu verði, og á staðnum
verður hoppukastali og trampolín
fyrir börnin. Þá mun Landsbankinn
bjóða keppendum í grillmat og færa
þeim gjöf til minja um daginn. Um
500 knattspyrnumenn úr Gróttu,
Haukum og KR taka þátt í Gróttu-
degi Landsbankans, og eru íbúar á
Seltjarnarnesi sem og aðrir knatt-
spyrnuáhugamenn hvattir til að
fjölmenna á Valhúsahæðina.
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
vitnum að árekstri á gatnamótum
Höfðabakka og Bæjarháls hinn 27.
ágúst laust fyrir klukkan 10.
Þar rákust saman silfurgrá Sub-
aru-fólksbifreið, sem ekið var suður
Höfðabakka og beygt til vinstri áleiðis
austur Bæjarháls, og rauð sendibif-
reið, sem ekið var norður Höfða-
bakka. Ökumenn greinir á um stöðu
umferðarljósa. Sjónarvottar eru
beðnir að hafa samband við lögregl-
una í síma 569-9020 eða 569-9014.
Lýst eftir
vitnum
FREYJA Haraldsdóttir er 17
ára og fæddist með sjaldgæfan
og erfiðan beinasjúkdóm.
Beinasjúkdómurinn kallast
Osteogenesis imperfecta og er
genagalli sem lýsir sér í því að
beinin eru stökk og brotna auð-
veldlega. Þegar hún fæddist
kom í ljós að hún var brotin á
útlimum. Beinin höfðu brotnað
við fæðinguna og við nánari at-
hugun kom í ljós að hún hafði
einnig brotnað í móðurkviði.
Enn í dag þarf ekki mikið til að
hún brotni t.d. ef henni bregður
eða einhver rekst utan í hana.
Þrátt fyrir að hún þurfi daglega
að kljást við þennan erfiða
beinasjúkdóm er hún lífsglöð
og tekur þátt í samfélaginu eft-
ir bestu getu.
Draumur Freyju er að kom-
ast á fjölskylduráðstefnu er-
lendra foreldrafélaga. Hana
langar mikið að hitta aðra sem
hafa sama beinagalla og hún.
Freyja er sú eina hér á landi
sem er með þennan sjúkdóm.
Það yrði mikil hjálp fyrir hana
að geta skipst á allskyns upp-
lýsingum um sjúkdóminn við
fólk sem glímir við það sama og
hún.
Hreyfing hvetur alla til að
leggja leið sína í Faxafen 14 og
taka þátt í Hreyfingardeginum
og leggja söfnuninni lið. Fyrir
þá sem ekki eiga heimangengt
en vilja styrkja Freyju má
leggja inn á reikning 111-26-
10100.
Hreyfing og Landsbankinn
munu tvöfalda upphæðina sem
safnast.
Söfnun
fyrir utan-
landsferð
Freyju Har-
aldsdóttur
Levi’s-búðin opnuð í Smáralind í
dag, föstudaginn 29. ágúst. Verslunin
er staðsett á milli Benetton og Vila í
plássi sem Sisley var áður í en Sisley
hefur flutt starfsemi sína inn í Ben-
etton. Levi’s-búðin hefur verið starf-
rækt á Laugaveginum í rúmlega 30
ár og verður rekstri hennar þar hald-
ið áfram jafnhliða rekstri búðarinnar
í Smáralind. Báðar búðirnar eru
starfræktar með Levi’s Franchise
leyfi eða sérleyfi, eins og það kallast
á íslensku og er búðin í Smáralind því
Levi’s Original Store.
Levi’s Strauss er einn stærsti fata-
framleiðandi í heimi og fyrirtækið
hefur verið starfrækt í 150 ár. Núna
er starfseminni skipt upp í þrjár
rekstrareiningar Levı́s Strauss USA,
Levi’s Strauss Evrópu og Levi’s
Strauss Asíu, en hver eining hannar
og framleiðir sína eigin vörulínu. Eitt
þekktasta vörumerki Levi’s er án efa
Levi’s 501 en þær gallabuxur hafa
verið framleiddar hjá fyrirtækinu í
130 ár. Levi’s 501 eru enn þann dag í
dag mest seldu gallabuxur í heimi.