Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 45

Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 45 „ÞAÐ er geysilega erfitt að kyngja þessum úrslitum og maður er gráti næst. Það má segja að reynsluleysi hafi orðið okkur að falli. Strákarnir gerðust allt of gráðugir á lokakaflanum. Þeim fannst greinilega svo gaman að þeir gleymdu sér. Þeir seldu sig í tæklingar og misstu einbeitingu en hefðu þeir aðeins róað sig niður og haldið boltanum hefðum við unnið og farið áfram,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindvíkinga. „Ég er annars mjög stoltur af liðinu. Eftir leikinn úti sagði ég að við ættum ágæta möguleika á að fara áfram og við vorum hársbreidd frá því. Ég sá jöfnunarmarkið ekki nógu vel og get því ekki alveg dæmt um það en aðdragandinn að því var mjög sorg- legur. Sjö til átta sekúndum áður en markið kom var pressan hjá okkur slök og við gleymdum þeirra mönnum. En strákarnir lærðu mikið af þessum leikjum og þeir geta staðið uppréttir og vel það eftir þá. Þeir stóðu sig eins og hetjur,“ sagði Bjarni. „Þetta var rosalega sárt og maður verður nokkra daga að jafna sig. Við lögðum okkur alla fram og það gekk nánast allt upp sem við ætluðum okkur en því miður náðu þeir að jafna með þessu heppnismarki. Það hefði verið draumur ef markið sem ég skoraði hefði fleytt okkur áfram. Ég sá að markvörð- urinn var ekki á línunni og reiknaði með fyr- irgjöf og því var ekkert annað að gera en að skjóta. Ég hafði heppnina með mér, notaði vindinn og sem betur fer reiknaði ég hann rétt út,“ sagði Ray Anthony Jónsson. Það er geysilega erfitt að kyngja þessum úrslitum „VIÐ vorum heppnir að skora mark og kom- ast þar með áfram. Maður var að verða úr- kula vonar. Bæði vorum við manni færri og marki undir en leikurinn er aldrei búinn fyrr en dómarinn flautar og við náðum sem betur fer að að bjarga andlitinu,“ sagði Helgi Kolviðsson, leikmaður Kärnten, við Morgunblaðið eftir leikinn. Helgi var tekinn af leikvelli á 84. mínútu og mátti bíða milli vonar og ótta á varamannabekknum síðustu mínúturnar. „Við þurftum að taka áhættu og því var ég tekinn út af og sóknarmaður settur í staðinn. Annars spilaði ég mun aftar en und- anfarið. Ég var farinn að sjá að við værum á leið út úr keppninni, ömurlega flugferð heim og að við þyrftum að sitja undir mikilli gagnrýni heima fyrir en heppnin var með okkur á örlagaríku augnabliki. Ég vissi vel og var búinn að segja félögum mínum að í vændum væri mjög erfiður leikur og það kom svo sannarlega á daginn. Grindvíkingarnir spiluðu virkilega vel. Þeir voru mjög agaðir og þéttir fyrir og við áttum erfitt með að finna glufur á vörn þeirra. Strákarnir frammi, Óli Stefán og Ray, voru mjög sprækir. McShane var sterk- ur á miðjunni og þeir Ólafur Örn og Kekic voru geysilega sterkir í vörninni. Mér fannst liðsheildin yfir höfuð sterk hjá þeim og þetta sýnir að íslensk knattspyrna er á upp- leið. Ég ætla allavega að vona að félagar mínir hætti nú að hlæja að íslenskri knatt- spyrnu,“ sagði Helgi. „Vona að félagar mínir hætti að hlæja að íslenskri knattspyrnu“  HANNES Haubitz, þjálfari Kärnt- en, sagði við Morgunblaðið að sínir menn hefðu svo sannarlega haft heppnina með sér í Grindavík. „Grindavíkurliðið reyndist okkur mjög erfiður mótherji og það mátti engu muna að það stæði í okkar sporum. Þetta er sterkt lið, agað og með marga góða knattspyrnumenn innanborðs. Ég var sérlega hrifinn af leikmanni nr 14. (Ólafur Örn Bjarna- son), og nr. 7 (Óli Stefán Flóvents- son) og gæti vel hugsað mér að hafa þá í mínu liði,“ sagði þjálfarinn.  HAUBITZ sagði ennfremur að sem betur fer þyrfti hann ekki að glíma við íslenskt lið í næstu umferð. Hann kemst að því í dag hverjir mót- herjar Kärnten verða í 1. umferð að- alkeppninnar.  ÞURÍÐUR Einarsdóttir hefur verið ráðin yfirþjálfari hjá Sund- félagi Hafnarfjarðar, SH, til næstu þriggja ára og tekur hún við starfi Brians Marshalls sem hætti hjá SH í sumar eftir átta ára farsælt starf hjá félaginu.  ÞURÍÐUR er margreyndur þjálf- ari. Hún starfaði um árabil að þjálf- un sundmanna á Austfjörðum en frá árinu 1995 hefur hún þjálfað yngri sundmenn hjá SH auk þess sem hún hefur þjálfað unglingalandsliðið. Þá hefur SH gengið frá ráðningu á þjálfurum fyrir yngri sundmenn fé- lagsins og munu þau Sólveig Hlín Sigurðardóttir og Halldór Kristen- sen sinna því.  BOUDEWIJN Zenden, leikmaður Chelsea, er líklega á leið til franska liðsins Paris SG út tímabilið. Zenden greindi frá þessu í gær en hollenski landsliðsmaðurinn hefur áhuga á að fara til Frakklands. „PSG er frábært lið,“ sagði Zenden. FÓLK Glæsimark Ray Anthony Jóns-sonar á 74. mínútu virtist ætla að fleyta Grindvíkingum áfram í keppninni, sem hefði fært Suðurnesjalið- inu drjúgan skilding í kassann, en smá- einbeitingarleysi og óskynsemi leikmanna Grindavíkur gerði það að verkum að Kärnten tókst að jafna og til að bæta gráu of- an á svart jafnaði óvinsælasti leik- maðurinn á vellinum metin með lúmsku skoti sem hinn ungi Helgi Helgason, markvörður Grindvík- inga, hefði kannski átt að geta komið í veg fyrir. Það voru því þung sporin hjá liðsmönnum Grindvíkinga þegar þeir gengu af leikvelli enda þeir grát- lega nærri því að slá Kärnten út. Fyrri hálfleikurinn í súldinni í Grindavík var fremur tíðindalítill. Grindvíkingar báru litla virðingu fyrir atvinnumönnunum og ekki var neinn sjáanlegur munur á milli lið- anna. Grindvíkingar léku af var- færni. Þeir lokuðu svæðum inni á miðjunni vel, vörnin var traust og þegar færi gafst reyndu þeir að sækja hratt en Óla Stefán Flóvents- son skorti oftar en ekki hjálp í fram- línunni og fyrir vikið náðu Grindvík- ingar ekki að ógna marki Kärnten að ráði í fyrri hálfleik. Ólafur Örn Bjarnason átti þó góða aukaspyrnu yfir markið á 17. mínútu og Ray Anthony var aðgangsharður upp við markið eftir hálftíma leik en mark- vörður Kärnten varði skot hans. Austurríkismennirnir fóru sér hægt í sínum leik og voru lítt skapandi; besta færi hálfleiksins féll Brasilíu- manninum Junior í skaut á 37. mín- útu en Helgi Helgason sá við honum og varði fast skot Juniors í horn. Mikið fjör færðist í leikinn í síðari hálfleik. Paul McShane var hárs- breidd frá því að skora á 53. mínútu eftir fína fyrirgjöf Óla en Skotinn knái hitti boltann illa úr góðu færi á markteig. Sjö mínútum síðar dró aft- ur til tíðinda. Mario Hieblinger braut þá gróflega á Eysteini Haukssyni og sænski dómarinn lyfti umsvifalaust rauða spjaldinu á loft. Varamaðurinn Dave Zafarin var stálheppinn að fara ekki sömu leið og Hieblinger á 64. mínútu þegar hann danglaði í Gest Gylfason en hann slapp með gula spjaldið og þar urðu sænska dóm- aranum á mistök. Brottreksturinn gerði það að verkum að Grindvíking- ar færðu sig eðlilega framar á völlinn á sama tíma og liðsmenn Kärnten þéttu lið sitt aftar á völlinn. Óli Stef- án Flóventsson komst einn í gegnum vörn Kärnten á 65. mínútu en skot hans fór framhjá markinu. Grindvík- ingar voru þó ekkert á þeim buxun- um að slaka á. Þeir höfðu náð undir- tökunum og á 74. mínútu kom markið sem allir höfðu beðið eftir. Grindvíkingar fengu aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Kärnten ná- lægt hliðarlínu. Undir flestum kring- umstæðum hefði mátt búast við því að Ray Anthony, sem framkvæmdi spyrnuna, hefði sent boltann inn í vítateig en mörgum á óvart ákvað hann að reyna skot. Og viti menn. Boltinn fór í fallegum boga yfir markvörð Kärnten og steinlá fyrir aftan hann í netinu. Stórglæsilegt mark og Grindvíkingar þar með komnir í vænlega stöðu. Kappsfullir leikmenn Grindavíkur héldu áfram að sækja en hvort skilaboð Bjarna Jóhannssonar þjálfara um að slaka aðeins á og hugsa kannski meira um að halda fengnum hlut hafa farið fyr- ir ofan garð og neðan hjá leikmönn- um skal ósagt látið. En í öllu falli þá gerðust leikmenn Grindavíkur helst til gráðugir og líklega varð það þeim að falli. Þeir gleymdu sér eitt augna- blik, misstu einbeitinguna og hvað hefur maður ekki oft séð íslensku liði í Evrópukeppni vera refsað fyrir slíkt? Úr einni af síðustu spyrnum leiksins jafnaði Hota metin, mark sem Grindvíkingar hefðu átt að geta komið í veg fyrir en oft er gott að vera vitur eftir á. Grindavíkurliðið á annars mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína og ekki verður annað sagt en að það hafi fallið út með sæmd. Liðið spilaði virkilega vel sem ein heild og var betri aðilinn þegar allt er talið. Vörn- in var mjög traust með miðverðina Ólaf Örn og Sinisa Kekic í sínu besta formi. Miðjumennirnir og þá sér- staklega Paul McShane og Guð- mundur Bjarnason áttu mjög góðan leik og þeir Ray Anthony og Óli Stef- án voru afar duglegir í framlínunni og gerðu hvað eftir annað usla í aust- urrísku vörninni. Leikur Kärnten var ekki mikið fyrir augað og austurríska liðið má teljast stálheppið að vera komið áfram. Helgi Kolviðsson var ekki ýkja áberandi. Hann stóð þó vaktina vel sem aftasti miðjumaður og í vörn- inni eftir að Kärnten varð manni færra en var látinn víkja fyrir sókn- armanni þegar austurríska liðið freistaði þess að jafna undir lokin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Helgi Kolviðsson, leikmaður Kärnten, með boltann í leiknum í Grindavík en heimamaðurinn Eysteinn Húni Hauksson sækir að honum. Sárt hjá Grindvíkingum LEIKMENN Grindvíkinga og þeir sem að liðinu standa eiga svo sannarlega um sárt að binda eftir viðureignina við austurríska liðið Kärnten í Grindavík í gærkvöld. Grindvíkingar voru komnir með annan fótinn og rúmlega það í 1. umferð UEFA-keppninnar. Þeir höfðu 1:0 yfir þegar leikklukkan sýndi 90 mínútur en einni mínútu áður en sænski dómarinn flautaði til leiksloka dundi ógæfan yfir heimamenn. Bosníumaðurinn Almedin Hota jafnaði metin fyrir Kärnten og tryggði þar með sínum mönnum áframhald í keppninni en Grindvíkingar sitja eftir með sárt ennið. Guðmundur Hilmarsson skrifar KNATTSPYRNA 1.deild karla: Stjörnuvöllur: Stjarnan - Víkingur......18.30 Akureyrarvöllur: Þór - Haukar ...........18.30 Kópavogsv.: Breiðablik - Njarðvík ......18.30 HANDKNATTEIKUR Opna Reykjavíkurmót karla: HK - Víkingur.............................................15 Afturelding - Selfoss ..................................16 Haukar - ÍBV..............................................17 Magdeburg - Víkingur ...............................18 Combault - Selfoss .....................................19 HK - KA ......................................................20 ÍBV - Stjarnan ............................................21  Allir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu Austurbergi. KÖRFUKNATTLEIKUR Hraðmót Vals: Hamar-Fjölnir............................................17 Snæfell-Haukar .........................................18 Keflavík-Valur ............................................19 Stjarnan-ÍR ................................................20 KR-Grindavík .............................................21  Leikið verður í íþróttahúsi Vals. Í KVÖLD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.