Morgunblaðið - 15.09.2003, Side 1
mánudagur 15. september 2003 mbl.is
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakki 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is
• 4ra og 5 hæða lyftuhús • Sér inngangur í íbúðir af svalagangi
• Þvottaherbergi í íbúðum • Vandaðar innréttingar
• Steinsallað að utan • Stæði í bílageymsluhúsi
• Frábær staðsetning • Hagstætt verð
• Hægt að breyta íbúðum að innan eftir óskum kaupenda
• Öflugt innra eftirlit með framkvæmdum
Höfum til sölu skemmtilega hannaðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir í 4ra og
5 hæða lyftuhúsi á skjólgóðum og fallegum útsýnisstað í Grafarholti í Reykjavík.
Stutt er í alla þjónustu og leikskóli er steinsnar frá húsinu. Íbúðirnar verða
afhentar fullbúnar án gólfefna (utan baðherbergis- og þvottaherbergisgólfa sem
verða flísalögð). Sameign og lóð verður fullfrágengin.
Fullbúin sýningaríbúð
Hafið samband við sölufólk
Verðdæmi:
með sér stæði í bílageymsluhúsi
2ja herb. 72 fm verð frá 11.600.000 kr.
3ja herb. 84 fm verð frá 13.100.000 kr.
4ra herb. 103 fm verð frá 14.700.000 kr.
Frábær staðsetning – hagstætt verð
Þórðarsveigur 2–6 Grafarholti
Góðar lausnir,
vandaðar vörur
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fasteignablaðið
// Ofhitun // Hafnarbúðir // Kollsteypa? // Iðnverk
! " # # $ # % & &
$ &! # % " & # #
'()* )
*
&
+
,-.
/ *0
1 +
2 3..
4 )5
&
4 )5
") (
4 )5
&
4 )5
7
7
7
77
7
!!!"
9
9
9
7
7
7
#
$
$
%#!
#
#&&
$
' (
6 ))
)
&
) ))
)
) %
877
6
GERA má ráð fyrir töluverðri ásókn
í byggingarrétt á nýju athafnasvæði
efst í norðanverðu Vatnsendahvarfi,
sem Kópavogsbær auglýsir nú til út-
hlutunar, en umsóknarfrestur renn-
ur út í dag. Svæðið er ætlað fyrir
verzlanir, skrifstofur og iðnað.
Um er að ræða um fimm hektara
lands, en aðkoma verður frá Breið-
holtsbraut og fyrirhuguðum Arnar-
nesvegi um Vatnsendahvarf og
Vatnsendaveg.
Á svæðinu verða alls átta lóðir frá
3.500 ferm. að stærð upp í liðlega
10.000 ferm. Áætlað er að lóðirnar
verði byggingarhæfar um miðjan
maí 2004.
Á stærstu lóðinni, sem er rúmir
10.000 ferm., má reisa byggingu,
sem verður 1–2 hæðir en að grunn-
fleti um 4.400 ferm. Hægt verður að
skipta húsinu í smærri einingar.
Á næststærstu lóðinni, sem er
rúmir 7.000 ferm., má reisa bygg-
ingu á 1–2 hæðum að grunnfleti um
1.800 ferm. og hægt verður líka að
skipta húsinu í smærri einingar
Á hinum lóðunum, sem eru sex og
á bilinu 3.500–5.000 ferm., má reisa
byggingar á 2 hæðum, að grunnfleti
um 750 ferm. Hægt verður að skipta
húsunum í smærri einingar.
Vakin er sérstök athygli á því, að
umsóknum um byggingarrétt þarf
að fylgja staðfesting banka eða lána-
stofnana um greiðsluhæfi umsækj-
enda.
Álitlegt svæði
Þarna er um mjög álitlegt svæði
að ræða, hvort heldur fyrir skrif-
stofur eða léttan iðnað. Svæðið er í
góðum tengslum við aðalgatnakerfið
og ekki spillir að það er í jaðri úti-
vistarsvæðisins í Elliðaárdal með af-
ar góðu útsýni yfir Faxaflóann að
Esjunni og í austurátt að Henglin-
um.
Skipulag svæðisins er hugsað
þannig að fleiri fyrirtæki geti verið í
hverri byggingu, sem skipta megi í
nokkrar einingar. Umsóknarfrestur
um þessar lóðir er til kl. 15.00 í dag
samkv. framansögðu.
Nýtt athafnasvæði í Vatns-
endahvarfi til úthlutunar
Morgunblaðið/Kristinn
Um mjög álitlegt svæði er að ræða, hvort heldur fyrir skrifstofur eða léttan iðnað.
Víða hefur verið gripið til ýmissa ráða til að
varna ofhitun. En kælitæki, sem hefur fengið
það skemmtilega heiti „kæliraftur“, hefur
verið lítið notað hér á landi. 16
Þar var aðstaða fyrir verkamenn og sjómenn
og einnig gistiaðstaða. Ráðningarskrifstofa
Reykjavíkur var þar og skrifstofur bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja í gosinu. 20
Líklegt er að almennur 90% lánsréttur leiði
tll nýrrar kollsteypu í húsnæðismálum af
svipuðu tagi og fyrri stórfelldar uppstokk-
anir kerfisins hafa kallað fram. 27
Fyrirtækið var stofnað af nokkrum íslenzk-
um fyrirtækjum gagngert til þess að selja
vörur þeirra, sem áttu í mikilli samkeppni við
innfluttar byggingarvörur. 32
SG-hús
áSelfossi
STARFSEMI SG-húsa hf. á Selfossi
er mjög öflug um þessar mundir.
Fyrirtækið er í röð stærstu fyr-
irtækja hér á landi í framleiðslu
timburhúsa og er nýlega flutt í
1.400 ferm. húsnæði á Austurvegi
69.
Hjá SG-húsum starfa að jafnaði
35–40 manns, en fyrirtækið fram-
leiðir fyrst og fremst timburein-
ingar í hús og þar eru íbúðarhús
langstærsti þátturinn, en sumar-
hús, leikskólar, skólastofur og minni
hús fyrir ýmsa aðila eru líka snar
þáttur í framleiðslunni.
Það er mikill kostur við timbur-
hús, hve byggingartími þeirrar er
stuttur. „Eftir að efnið er komið á
byggingarstað, tekur ekki nema 8–
10 vinnudaga að reisa 150–160
ferm. íbúðarhús, þannig að það sé
tilbúið til innréttinga,“ segja þeir
Óskar G. Jónsson og Kári Helgason,
framkvæmdastjórar SG-húsa, í við-
talsgrein í blaðinu í dag. /26