Morgunblaðið - 28.10.2003, Síða 2
Ódýrari
flutningur
fjármuna
milli landa
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Norð-
urlandanna funduðu í Osló í gær í
tengslum við þing Norðurlandaráðs
og sótti Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra fundinn fyrir Íslands hönd.
Meðal þess sem var til umfjöllunar
var flutningur á fjármunum milli
landa. Stefnt hefur verið að því að
flutningurinn verði ódýrari og taki
minni tíma, að því er fram kemur í
tilkynningu frá ráðuneytinu.
Sömuleiðis var ákveðið að stefna
að því að bæta þjónustu við almenn-
ing um mismunandi skattareglur á
Norðurlöndunum, einkum á vefnum.
Málefni Norræna fjárfestingar-
bankans, NIB, vógu þungt á fund-
inum en forsætisráðherrar Norður-
landa fólu ráðherrum fjármála á
fundi sínum í gær að ganga frá
samningum við Eystrasaltslöndin
um aðild þeirra að bankanum.
Ísland verður í forsæti í Norður-
landasamstarfinu á næsta ári. Geir
H. Haarde gerði á fundinum í gær
grein fyrir áherslum Íslands á verk-
efnasviði ráðherranna. Í tilkynning-
unni segir að lagt verði til að ráðast í
sérstakt rannsóknarverkefni um
samspil stjórnar peningamála og rík-
isfjármála.
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
YFIRTEKUR KAUPÁS
Norvik hf., sem rekur BYKO og
ELKO, hefur samið við Landsbanka
Íslands um kaup á rúmlega 70%
hlutafjár í verslunarkeðjunni
Kaupási, en bankinn hyggst nýta
forkaupsrétt sinn til kaupa á 53,4%
heildarhlutafjárins í samræmi við
hluthafasamkomulag Landsbankans
og Framtaks fjárfestingarbanka.
Framtak hafði áður selt Áskaupum
ehf. hlut sinn í Kaupási en þau kaup
ganga með þessu til baka. Norvik
átti ekkert fyrir í Kaupási en stefnt
er að því að gera öðrum hluthöfum í
Kaupási yfirtökutilboð í þeirra hluti.
Uppsagnir á Vellinum
Verkalýðsfélögunum á Suð-
urnesjum og fleiri stéttarfélögum
var tilkynnt í gærmorgun um upp-
sagnir á 90 starfsmönnum Varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli um
mánaðamótin. Eru þetta um 10% af
heildarfjölda íslenskra starfsmanna
á Vellinum. Af þessum 90 starfs-
mönnum eru 69 búsettir á Suð-
urnesjum og 21 á höfuðborgarsvæð-
inu.
Íslenska vinsæl erlendis
Vaxandi áhugi er á nútíma-
íslensku erlendis, en alls bjóða um
40 erlendir háskólar upp á nám í nú-
tímaíslensku. Í þessu sambandi má
nefna að Stofnun Sigurðar Nordals
ásamt Hugvísindastofnun, íslensku-
skor Háskóla Íslands, háskólanum í
Madison, Wisconsin í Bandaríkj-
unum og nokkrum háskólum í Evr-
ópu er að vinna að kennsluefni á
Netinu, „Icelandic Online“, sem
stefnt er á að taka í notkun eftir
næstu jól, en verkefnið verður kynnt
sérstaklega á Hugvísindaþingi um
næstu helgi.
40 farast í Bagdad
Bílsprengjur sprungu við bæki-
stöðvar Rauða krossins og þrjár lög-
reglustöðvar í Bagdad í gær með
þeim afleiðingum að yfir 40 manns
fórust og rúmlega 200 slösuðust.
Greinilegt þótti að um þaulskipulagt
og samhæft hryðjuverk væri að
ræða. Bandaríkjamenn telja að
menn hliðhollir Saddam Hussein,
fyrrverandi forseta, beri ábyrð á til-
ræðunum.
Hlutabréfahrun í Rússlandi
Mikil lækkun varð á gengi hluta-
bréfa á markaði í Rússlandi í gær í
kjölfar handtöku forstjóra rúss-
neska olíufélagsins Yukos. Sérfræð-
ingar í rússneskum stjórnmálum
segja að Vladímír Pútín forseti hafi
tekið mikla áhættu í málinu með því
að snúast á sveif með klíku embætt-
ismanna í Kreml er störfuðu áður
fyrir rússnesku leyniþjónustuna og
vilji nú koma forstjóranum, Míkhaíl
Khodorovskí, á kné.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Úr verinu 12 Viðhorf 34
Viðskipti 14/16 Umræðan 34/36
Erlent 14/16 Minningar 36/40
Minn staður 18 Skák 41
Höfuðborgin 19 Bréf 42
Akureyri 20 Dagbók 44/45
Suðurnes 21 Íþróttir 46/49
Austurland 22 Fólk 50/53
Landið 23 Bíó 50/53
Daglegt líf 25 Ljósvakar 54
Listir 26/33 Veður 55
* * *
LÁTIN er í Reykjavík
Emilía Sjöfn Kristins-
dóttir. Sjöfn var gift
Birni Hallgrímssyni,
forstjóra H. Benedikts-
sonar hf., stjórnarfor-
manni Skeljungs hf. og
nokkurra annarra fyr-
irtækja, og áttu þau
fjögur börn.
Sjöfn lést á Landa-
kotsspítala, þar sem
hún dvaldist síðustu
misseri og naut um-
hyggju og vinalegs við-
móts þess góða fólks sem þar starf-
ar.
Sjöfn var fædd í Reykjavík hinn
12. ágúst 1927 og var dóttir Emilíu
Bjargar Pétursdóttur húsfreyju og
Kristins J. Markússon-
ar, kaupmanns í Geysi
hf., sem bjuggu á Stýri-
mannastíg 12 í Reykja-
vík.
Sjöfn og Björn
bjuggu mest af sinni
hjúskapartíð á Fjólu-
götu 1 í Reykjavík.
Börn Sjafnar og Björns
eru Áslaug, gift Gunn-
ari Sch. Thorsteinssyni
og eiga þau þrjú börn,
Kristinn, kvæntur Sól-
veigu Pétursdóttur og
eiga þau þrjú börn, Emilía Björg,
sem var gift Sigfúsi Haraldssyni og
eiga þau þrjá syni, og Sjöfn Björns-
dóttir, gift Sigurði Sigfússyni og eiga
þau fjögur börn.
Andlát
EMILÍA SJÖFN
KRISTINSDÓTTIR
GREINILEG aukning hefur orðið á Norðurlönd-
unum í heild á smittilfellum þar sem fjölónæmir
sýklar (MÓSA) koma við sögu og eru samtök sýkla-
fræðinga og smitsjúkdómalækna á Norðurlöndun-
um á einu máli um að þarna sé um mjög alvarlega
ógnun við heilbirgðiskerfið á Norðurlöndunum að
ræða og að þegar þurfi að hefjast handa um aðgerð-
ir til þess að hafa stjórn á ástandinu. Var skipaður
vinnuhópur norrænna smitsjúkdómafræðinga á
þingi samtakanna, sem haldið var um helgina, til
þess að vinna að því að halda smitunum af völdum
þessara sýkla innan við 1% á Norðurlöndunum, en
víða í Evrópu eru sýkingar af völdum þessara sýkla
orðnar mjög algengar.
Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði og yf-
irlæknir á sýklafræðideild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, sem var á þinginu sem haldið var í Óð-
insvéum í Danmörku um helgina, sagði að um væri
að ræða svonefnda klasakokka sem yllu spítalasýk-
ingum og væru einnig orsök sýkinga í sárum. Þessir
sýklar væru ónæmir fyrir venjulegum sýklalyfjum
og næðu þessir sýklar fótfestu á sjúkrahúsum, eins
og væri raunin víða í Evrópu þar sem hlutfall
ónæmra stofna væri komið upp í 20–50%, þyrfti að
breyta algerlega um sýklalyfjameðferð með ærnum
tilkostnaði fyrir heilbrigðiskerfið og miklum óþæg-
indum fyrir sjúklinga.
Karl sagði að þessir ónæmu stofnar hefðu komið
nokkrum sinnum til Íslands á undanförnum árum
og meðal annars hefði þurft að loka nokkrum deild-
um á Landakoti og víðar út af þessum sýkingum
síðastliðinn vetur. Þessi tilvik hefðu orðið tíðari á
síðustu árum, bæði hér og á hinum Norðurlönd-
unum, en tekist hefði að halda þessum sýkingum
niðri með markvissum aðgerðum sem miðuðu að því
að einangra sjúklinga og starfsfólk og loka deildum
ef með þyrfti, þar til tryggt væri að sýklinum hefði
verið útrýmt.
Nú væri hins vegar álagið á sjúkrahúsum að
aukast bæði hér og á hinum Norðurlöndunum
vegna fjölgunar sýkinga af völdum þessara fjöl-
ónæmu sýkla, auk þess sem dæmi væru um smit-
anir af völdum þessara sýkla utan sjúkrahúsa. Þó
væri ekki um það að ræða hér á landi en bæði í Dan-
mörku og í Noregi til dæmis. Á þinginu hefðu komið
fram áhyggjur smitsjúkdómalækna af því að nægur
skilningur væri ekki á meðal sjúkrahússtjórna og
stjórnmálamanna á þörfinni fyrir að grípa til jafn-
róttækra aðgerða og að loka deildum og elta uppi
þessa ónæmu stofna til þess að uppræta þá.
Fer vaxandi frekar en hitt
„Þar sem þetta kemur til með að fara vaxandi
frekar en hitt núna á næstunni lýstu þátttakendur á
þinginu yfir áhyggjum sínum vegna þessa og köll-
uðu eftir skilningi heilbrigðisyfirvalda og stjórn-
málamanna á þörfinni fyrir að halda þessum sýk-
ingum niðri. Hinn valkosturinn að leyfa þessum
sýklum að breiðast út, eins og hefur gerst til dæmis
í Bretlandi, er miklu verri. Það er bæði dýrara og
mun lakari kostur fyrir sjúklingana þegar upp er
staðið,“ sagði Karl.
Hann sagði að hlutfall þessara sýkinga í blóðsýk-
ingum bæði hér og á Norðurlöndunum væri enn
innan við 1% á sama tíma og algengasta hlutfallið
væri 20–40% á stóru sjúkrahúsunum í Evrópu.
Áhyggjur á Norðurlöndum af fjölgun smitana af völdum fjölónæmra sýkla
Vinnuhópur skipaður til að
halda smitunum innan við 1%
Alvarleg ógnun
við heilbrigðiskerfið á
Norðurlöndum
NOKKUÐ er um það að hvalfriðunarsinnar eyðileggi
veggspjöld sem Flugleiðir hafa látið setja upp á lest-
arstöðvum í Lundúnum þar sem ferðir til Íslands eru
auglýstar.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða,
segir að um víðtæka auglýsingaherferð sé að ræða sem
hafi hafist um miðjan september og standi yfir fram í
miðja nóvember. Um sé að ræða nokkrar mismunandi
útgáfur af veggspjöldum sem komið sé upp á 700 stöð-
um í öllum neðanjarðarlestastövunum í Lundúnum.
Herferðin hafi gengið mjög vel og Flugleiðir hafi feng-
ið mikil og góð viðbrögð við henni.
Hins vegar hafi verið nokkur dæmi þess að hvalfrið-
unarsinnar hafi skemmt eitthvað af vegspjöldum. Það
sé aftur á móti erfitt að fá yfirsýn yfir hvað það sé mik-
ið um þetta, þar sem að veggspjöldin séu hreinsuð og
skipt út af starfsfólki lestarstöðvanna jafnóðum og
þetta gerist.
„Við þekkjum allnokkur dæmi um að hvalfrið-
unarsinnar hafi verið að koma svona skilaboðum á
framfæri, en það er ekki hægt að hafa yfirsýn yfir það
hvað það er mikið,“ sagði Guðjón.
Hann sagði að andstæðingar hvalveiða væru mjög
áberandi í Bretlandi og notuðu flest tækifæri sem gæf-
ust til þess að koma málstaðnum á framfæri. Þeir yrðu
áþreifanlega varir við það í sínu markaðsstarfi. Skrif-
stofur þeirra í Bretlandi og víðar fengju mikið af orð-
sendingum og tölvupósti þessa efnis. Þá væri mikið
fjallað um hvaðveiðarnar í bandarískum fjölmiðlum.
Þannig væri hann með undir höndum þykka möppu
með úrklippum úr bandarískum blöðum þar sem um-
fjöllunarefnið væri hvalveiðar Íslendinga.
Aðspurður hvort þeir teldu hættu á að hvalveiðarnar
sköðuðu íslenska ferðaþjónustu sagði Guðjón að þeir
hefðu áhyggjur af þeim áhrifum sem hvalveiðarnar
hefðu í þeim efnum.
Hvalfriðunar-
sinnar skemma
veggspjöld í
Lundúnum
Mikið fjallað um hvalveiðar
Íslendinga í Bandaríkjunum