Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 19
Opnunartími virka daga frá kl. 14-18, helgar frá kl. 11-18
Stendur til 2. nóv. Upplýsingasími 511 2226
í Perlunni
BANJO barnafatnaður,
NÝTT MERKI - toppvara
BANJO
catmandoo
OKKAR TAKMARK:
Verð 50-80%
undir fullu verði.
Verðdæmi: Okkar verð: Fullt verð:
Barnaflíspeysur ....................................... kr. 1.490 .............. kr. 4.990
OSH KOSH gallasmekkbuxur ....................kr. 1.000 ............... kr. 4.500
REGATTA flíspeysur .................................kr. 1.500 ............... kr. 5.990
Bómullargallar kvenna ............................ kr. 3.500 ............... kr. 8.990
PUMA úlpur ........................................... kr. 2.500 ............. kr. 10.900
Stakir sundtoppar og buxur ....................... kr. 300 ......kr. 1.500/1.900
Skíðabuxur kvenna ................................. kr. 1.500 ............... kr. 5.990
Vöggusett .............................................. kr. 1.000 ............... kr. 7.990
Sængurverasett ungbarna .......................... kr. 500 ............... kr. 2.990
Gardínur í barnaherbergi ........................... kr. 500 ............... kr. 3.490
Moonboots barna ................................... kr. 1.000
Barnaúlpur BANJO frá ............................. kr. 1.900
Vetrarbuxur ungbarna BANJO .....................kr. 990
Reykjavík | Börnin á leikskólanum
Sólbakka komu með bangsann
sinn í skólann í gær í tilefni af al-
þjóðlega bangsadeginum. Var glatt
á hjalla og tuskudýrin fjölbreytt í
fangi eigenda sinna. Þeirra var líka
vel gætt enda allir bangsar eft-
irlæti barnanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem
bangsadagur er haldinn á Sól-
bakka. Komu tveir stórir lifandi
bangsar í heimsókn, bangsapabbi
og bangsamamma, með tvo litla
bangsa með sér. Það voru húnarnir
tveir. Sigfríður Marinósdóttir
sagði að sum börnin hefðu nú ekki
verið of hrifin af stóru böngsunum
enda ekki vön lifandi tuskudýrum.
Kusu þau þá frekar sína eigin
bangsa. En öll gátu þau tekið undir
þegar bangsalagið var sungið.
Ruth Arelíusdóttir sagði hundrað
ár liðin frá því að Teddy Roosevelt,
fyrrverandi forseti Bandaríkjanna,
þyrmdi lífi bjarnarhúns sem síðan
varð kveikjan að hinum sígilda
bangsa sem nefndur var Teddy’s
Bear í Bandaríkjunum. Bangsa-
daginn ber einmitt upp á fæðing-
ardag forsetans fyrrverandi, 27.
október.
Hún sagði að þetta yrði líklega
að árlegum viðburði. Frumkvæðið
hefði komið frá formanni foreldra-
félagsins, Ásbirni Ólafssyni, og
þetta hefði verið mikill fjördagur.
Bangsamamma og bangsapabbi komu í heimsókn og allir tóku undir
þegar bangsalagið var sungið á leikskólanum á alþjóðlegum bangsadegi
Morgunblaðið/Ásdís
Bangsar skipa sérstakan sess í lífi hvers barns og þeirra var vel gætt af eigendum sínum á Sólbakka í gær.
Bangsa-
dagur á
Sólbakka
Miðborg | Grunnskólanemendur í Reykjavík
munu eftir hádegi í dag kynna uppgötvanir
sínar um borgina og hverfin eftir að hafa leyst
verkefni tengd Borgarvefsjá. Eru verkefni til
sýnis í Tjarnarsal Ráðhússins á sýningunni Lif-
andi landakort. Á sýningunni, sem lýkur í dag,
má kynna sér Landupplýsingakerfi Reykjavík-
ur (LUKR) og hvernig það tengist starfi ým-
issa stofnana borgarinnar eins og lögreglu,
slökkviliði, Orkuveitunni, Strætó og fleiri fyr-
irtækjum. Einnig eru sýndir notkunarmögu-
leikar fyrir íbúana.
Hreinn Hreinsson, upplýsingafulltrúi
Reykjavíkur, segir borgina verða sífellt flókn-
ari og með aðstoð borgarvefsjárinnar má átta
sig á nokkrum þáttum sem snúa að hverf-
unum. Hægt sé að nota landupplýsingar til að
auðvelda aðgengi að þjónustu og upplýs-
ingum.
Á morgunverðarfundi í Ráðhúsinu í dag er
ætlunin að skoða þá möguleika sem kerfi eins
og LUKR og tenging þess við önnur upplýs-
ingakerfi getur nýst Reykjavíkurborg á fleiri
sviðum en nú er. Er horft til stefnumótunar og
áætlanagerðar til lengri eða skemmri tíma,
alls kyns áætlana um þjónustframboð og fram-
tíðarspár um þjónustuþörf og framsetningu
upplýsinga með landfræðilegum hætti. Fund-
urinn hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 10.00.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölmargir hafa lagt leið sína í Ráðhúsið til
að skoða sýninguna Lifandi landakort.
Borgin úr
hálofti
BÓKASÖFN á Norðurlöndum hafa haldið bangsa-
dag hátíðlegan frá árinu 1998. Á vef bókasafns Ísa-
fjarðar segir að dagurinn sé haldinn 27. október ár
hvert sem sé fæðingardagur Thedore Roosevelt
(Teddy), fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Sagan
segir að þegar Bandaríkjaforseti hafi verið á bjarn-
arveiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum
húni og sleppt honum lausum. Blaðið Washington
Post birti skopmynd af þessu atviki sem vakti mikla
athygli enda var Roosevelt mikill skotveiðimaður.
Búðareigandi einn í New York varð svo hrifinn af
þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem
hann seldi sem „Bangsann hans Teddy“ eða það
sem á ensku heitir „Teddy’s Bear“. Segja má að
þetta hafi verið upphaf af sigurgöngu leik-
fangabangsans sem er vinsæll félagi um allan heim.
Haldinn á fæðingardegi Roosevelts Bandaríkjaforseta