Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 47 ÍSLANDSMEISTARINN í golfi árið 2003, Ragnhildur Sig- urðardóttir úr GR, mun hefja leik á úrtökumóti fyrir Evr- ópumótaröð kvenna í dag, þriðjudag, en leikið er á Aroeira- vellinum – rétt utan við Lissabon í Portúgal. Alls eru 85 kylfingar sem hefja leik í dag og að loknum 36 holum komast 54 efstu úr þessum hóp áfram aðalúrtök- umótið sem hefst á fimmtudag. Þar bætast við 34 kylfingar og fá 90 kylfingar tækifæri að sanna sig á næstu þremur keppnisdögum eða fram á laug- ardag en þá verður hópurinn skorinn niður á ný. Aðeins 50 efstu fá að leika á sunnudaginn. Til þess að komast inn á atvinnumannamótaröð kvenna þarf Ragnhildur að vera í hópi 30 efstu þegar keppni lýkur nk. sunnudag. Ragnhildur hefur dvaldið ytra undanfarna viku ásamt Sigurði Péturssyni golfkennara og Gróu Þor- steinsdóttur sem er aðstoðarmaður Ragnhildar á meðan á mótinu stendur. Ragnhildur hefur leik kl. 9.40 að staðartíma og er í ráshóp með kylfingum frá Ítalíu og Frakklandi, en hún er fyrsta konan frá Íslandi sem tekur þátt í úrtökumóti fyrir atvinnu- kylfinga í Evrópu. Karen Sævarsdóttir og Ólöf María Jóns- dóttir hafa reynt fyrir sér á bandarísku mótaröðinni. Ragnhildur hefur leik í Portúgal FÓLK  INGVAR Ólason verður áfram í herbúðum Framara. Ingvar skrifaði undir nýjan samning við Safamýrar- liðið í fyrradag, en nokkur félög sýndu áhuga á að fá hann í sínar rað- ir, þar á meðal Íslandsmeistarar KR. Ingvar, sem er 31 árs gamall miðju- og varnarmaður, lék 16 leiki með Fram og skoraði tvö mörk, en alls hefur hann leikið 76 leiki í efstu deild og skorað þrjú mörk.  GARÐAR Gunnar Ásgeirsson og Óli H. Sigurjónsson hafa verið ráðn- ir þjálfarar 2. deildarliðs Leiknis úr Reykjavík í knattspyrnu fyrir næsta tímabil. Leiknir endurheimti sæti sitt í 2. deild í haust eftir ársdvöl í 3. deild. Þeir taka við af Magnúsi Ein- arssyni sem lét af störfum.  NORSKI knattspyrnumaðurinn Henning Hamre hefur heldur betur slegið í gegn með eistneska liðinu Flora Tallinn á leiktíðinni. Hamre hefur skorað hvorki fleiri né færri en 39 mörk í 27 leikjum fyrir liðið sem er með í eistnesku deildinni. Hamre var á skotskónum um helgina og skoraði 7 mörk þegar Flora Tallinn burstaði Kurusseare, 17:0. Talið er að Hamre fái fljótlega tækifæri með norska landsliðinu.  ÁHORFENDAMET verður slegið í norsku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í ár en þegar einni umferð er ólokið hafa 1.129.000 manns mætt á leikina, sex þúsund fleiri en á síðustu leiktíð. Líkt og endranær mæta flestir á leiki meistaraliðs Rosen- borg en að jafnaði hafa 15.852 mætt á Lerkendal, heimavöll Rosenborg á leiktíðinni. Brann er í öðru sæti en 11.829 hafa að jafnaði komið á heimaleiki þeirra og í þriðja sæti er Vålerenga með 9.336 áhorfendur.  MICHAL Tonar, Tékkinn sem lék í nokkur ár með HK í Kópavogi, fór á kostum með liði sínu EHV Aue í þýsku 2. deildinni í handknattleik á sunnudaginn. Tonar skoraði 14 mörk þegar Aue vann stórsigur á Gensungen. Aue er í áttunda sæti suðurriðils 2. deildarinnar.  SIR Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, hyggst gefa minni spámönnum tækifæri í leiknum við Leeds í deildabikar- keppninni í kvöld þegar liðið eigast við á Elland Road. Eric Djemba- Djemba, Darren Fletcher, Diego Forlan og David Bellion fá væntan- lega að láta ljós sitt skína og þá kem- ur Roy Carroll til með að standa á milli stanganna í stað Tim Howards.  MANCHESTER United komst alla leið í úrslit keppninnar á síðustu leiktíð en tapaði fyrir Liverpool í úr- slitaleik.  ARSENAL er sagt vera á höttun- um eftir tveimur frönskum leik- mönnum, Sebastian Squillaci og Patrice Evra, sem báðir leika með Mónakó. Squillaci er 22 ára gamall miðvörður og Evra er jafnaldri hans og leikur í stöðu miðjumanns. Í vetur mun koma GaryPayton og Karl Mal- one, og endurnærður Shaquille O’Neal, gleðja margt Lakers hjartað og fá margt körfuknattleiksáhugafólk til að fylgjast með gangi mála í deildinni. En það verður sjálfsagt nauðgun- ardómsmál Kobe Bryant sem mun ná mestri at- hygli ef marka má um- fjöllun fjölmiðla undan- farnar vikur. Venjulega vekja upphitunarleikir Lakers litla athygli hér í Los Angeles, sem víðar, en eftir að Bryant var sakaður um að hafa nauðgað ungri konu í Colorado-ríki í sumar var eins og jarðskjálfti hafi hrist allt upp. Fréttaritar- ar frá alls konar fjölmiðl- um um allan heim hafa flykkst til englaborgar- innar og hrúgast í kring- um Kobe og aðrar stór- stjörnur liðsins í þeirri von að verða fyrstir með nýjar fréttir. Bryant hefur annaðhvort framið hryllilegan glæp með því að nauðga tæplega tvítugri konu, eða gert sig sekan um alvarlegan skort á skyn- semi með því að halda framhjá eig- inkonu sinni með ókunnri ungri konu. Ekki bætti það úr skák fyrir hann að hann var í Colorado til að láta skera sig á hné án þess að vera í samráði við lækna eða forráðamenn Lakers. Bryant hefur ávallt virst skyn- samur ungur maður, en skoðun margra á honum hér á bæ hefur breyst nokkuð eftir að staðreyndir málsins hafa komið fram í sakamál- inu. Nauðgunarmálið hefur sýnilega haft mikil áhrif á Bryant og velta margir sérfræðingar um mál Lakers nú fyrir sér hvort hann verði tilbúinn að leika lykilhlutverk í leik liðsins á keppnistímabilinu. Kobe hefur grennst töluvert í sumar og hefur lítið leikið með í æf- ingaleikjum Lakers. Hann vantar enn allan sprengikraft í leik sinn og hefur hitt illa úr skotum. Ef hann nær sér ekki á strik á næstu vikum (en hann hefur sagt að hann þurfi að- eins um mánuð til að komast á fullt flug), er ég ósköp hræddur um að gengi Lakers verði ekki upp á marga fiska. Bryant leikur lykilhlutverk í velgengni Lakers í flestum leikjum og án hans er Lakers ekki samt. Sakamál Bryants mun annaðhvort koma fyrir dóm í vor, sem mun verða erfitt fyrir Lakers þegar baráttan er sem hörðust um sæti í úrslitakeppn- inni, eða ekki fyrr en eftir að keppn- istímabilinu lýkur. Það er sama hvort verður uppi á teningnum, Bryant mun verða með þetta á bak- inu allt keppnistímabilið. Ef hann verður fundinn sekur á hann yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisvist. Bryant segir að þetta muni ekki hafa áhrif á leik hans í vetur, en er hægt fyrir nokkurn að láta sem slíkt hafi ekki áhrif á sig? Hvað verður um Kobe Bryant? LOKAÚRSLITIN síðastliðið sumar höfðu svo lítið áhorf hér í Banda- ríkjunum að forráðamenn NBA og sjónvarpsstöðvanna höfðu af því miklar áhyggjur, enda miklir peningar í húfi. San Antonio er gott körfuknattleikslið, en það er enginn vafi á því að Los Angeles Lak- ers dregur hið almenna íþróttaáhugafólk að sjónvarpsskerminum þegar í úrslitakeppnina kemur vegna vinsældar liðsins um allt land og allan heim. Reuters Kobe Bryant, leikmaður Lakers. Gunnar Valgeirsson skrifar frá Los Angeles verða mjög eftirsóttur leikmaður þegar nýliðasamningur hans renn- ur út eftir þrjú ár. Umboðsmaður hans segir að hann sé í viðræðum um fleiri samn- inga, þannig að augljóst er að James mun ekki vanta peninga í framtíðinni. „Ég hef verið viðrið- inn NBA-boltann í fjörutíu ár og hef aldrei séð aðra eins athygli í kringum nýliða,“ sagði Paul Silas, þjálfari Cleveland, um daginn. „Ég veit að David Stern (forseti NBA) mun eflaust fylgjast með hvernig ég þjálfa James,“ bætti hann við, en Silas er þekktur fyrir að láta menn á varamennabekkinn ef þeir spila ekki eftir leikfyrirkomulag- inu. Það verður gaman að fylgjast með James í vetur. Hann er stór- stjarna framtíðarinnar í NBA. Reuters Tveir af nýliðunum í NBA – LeBron James hjá Cleveland Cavaliers og Carmelo Anthony, Denver Nuggets. Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.