Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ VERKALÝÐSFÉLÖGUNUM á Suðurnesjum og fleiri stéttarfélög- um var tilkynnt í gærmorgun um uppsagnir á 90 starfsmönnum Varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli um mánaðamótin. Eru þetta um 10% af heildarfjölda íslenskra starfsmanna á Vellinum. Af þessum 90 starfs- mönnum eru 69 búsettir á Suður- nesjum og 21 á höfuðborgarsvæð- inu. Innan Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavíkur eru 28 starfsmenn, 23 hjá Verslunarmannafélagi Suður- nesja, 20 utan stéttarfélaga eða stjórnunarstarfsmenn, 9 innan Iðn- sveinafélags Suðurnesja og aðrir inn- an raða sex stéttarfélaga af ýmsum toga. Talsmenn verkalýðsfélaganna draga í efa að uppsagnirnar standist lög en þeir áttu í gær fund með fulltrúum Varnarliðsins. Um miðjan dag í gær kom fulltrúi starfsmanna- halds Varnarliðsins til fundar við trúnaðarmenn verkalýðsfélaganna og nokkra foringja þeirra, auk lög- fræðings frá ASÍ, í húsakynnum Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Meðal þeirra sem sátu fundinn var Guðbrandur Einarsson, formað- ur Verslunarmannafélags Suður- nesja. Hann segir að uppsagnirnar nái til um 15% sinna félagsmanna sem starfa hjá Varnarliðinu. Ekki sé vitað nákvæmlega hverjir þetta séu en uppsagnarbréfanna sé að vænta í hendur starfsfólks í dag. Efast um lögmæti uppsagnanna Guðbrandur segir efasemdir uppi um að aðgerðin standist lög um hóp- uppsagnir þar sem ekki hafi verið mikið samráð haft við verkalýðs- félögin og trúnaðarmenn. Hann hafi t.d. verið fyrst boðaður á fund í gær- morgun með klukkustundar fyrir- vara. Verið sé að skoða þessi mál í samráði við ASÍ. Guðbrandur óttast að þessar upp- sagnir séu aðeins byrjunin á öðru meira hjá Varnarliðinu. Samkvæmt bréfi frá Varnarliðinu sé ekki hægt að sjá annað en endanleg ákvörðun hafi verið tekin um þessar uppsagn- ir. „Ég lít svo á að þessar uppsagnir séu staðreyndir, hvort sem þær taka gildi einum mánuði fyrr eða seinna. Eftir það sem á undan er gengið get ég varla sagt að uppsagnirnar komi manni á óvart. Ég held að þetta hafi bara verið spurning um tíma. Við áttum nú von á því um daginn að þoturnar færu alveg. Við getum búið okkur undir það að einhverjar þær breytingar verði á herstöðinni sem við erum ekkert endilega sátt við. Miðað við að þetta verði endurskoð- að með hliðsjón af herafla í Evrópu þá geti þetta bara orðið raunin og miklu meira til,“ segir Guðbrandur. Bílastyrkjum sagt upp Aðspurður hvernig samsetningu þessara starfsmanna sé háttað sem verði sagt upp segir Guðbrandur það ekki liggja fyrir. Þó virðist sem horft sé til ákveðinna deilda á Vell- inum þar sem ná eigi fram sparnaði. Guðbrandur segir að Varnarliðið sé einnig að segja upp bílastyrkjum til þeirra 200–300 starfsmanna sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Þetta geti þýtt launalækkun upp á 40–60 þúsund krónur á mánuði og viðkomandi starfsmenn fái í staðinn samsvarandi styrki og starfsmenn búsettir á Suðurnesjunum. Tilkynnt um 90 uppsagnir á Vellinum SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn kærði í gær til dómstóls Skáksambands Íslands þann úrskurð móts- nefndar Íslandsmóts skákfélaga að þrjár skákir í jafnmörgum við- ureignum Hróksins hafi verið lýstar tapaðar. Gerð er krafa um ómerkingu þessara úrskurða og til vara að málið verði tekið aftur fyrir til nýrrar og löglegrar með- ferðar í mótsnefnd Íslandsmóts- ins. Samkvæmt 19. gr. reglna Skák- sambandsins, sem samþykktar voru á aðalfundi þess síðastliðið vor verður að minnsta kosti helm- ingur liðsmanna hverrar sveitar að vera íslenskir ríkisborgarar eða hafa verið með lögheimili á Íslandi undanfarið ár. Hrókurinn stillti upp 5 erlendum skákmönn- um í 8 manna A-sveit sinni í 1., 3. og 4. umferð Íslandsmóts skák- félaga um helgina og í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Stefán Baldursson, forseti Skák- sambands Íslands, að það væri grafalvarlegt mál þegar félag bryti meðvitað lög sambandsins. „Stefáni Baldurssyni hefur ver- ið ljóst í tvo mánuði að það væru mjög miklar líkur á því að regl- urnar um Íslandsmótið, sem sam- þykktar voru í vor, standist ekki landslög, alþjóðlega samninga og skuldbindingar Íslands,“ segir Hrafn Jökulsson, forseti Hróks- ins. „Stefán fékk lögfræðiálit Árna Páls Árnasonar með bréfi til Skáksambandsins 2. sept- ember. Mér finnst mjög alvarlegt ef Stefán Baldursson telur að fé- lagslög, sem að öllum líkindum eru ólög, séu sett ofar lands- lögum. Mér þótti sérkennilegt að lesa yfirlýsingar forseta Skák- sambandsins í Morgunblaðinu í ljósi þess að hann gerði alls enga tilraun, hvorki nú um helgina né áður, til þess að finna sáttaleið í málinu og sameiginlega nið- urstöðu. Við óskuðum eftir því í bréfi okkar 2. september að að- hafst yrði í málinu til þess að ekki kæmi til atvika af þessu tagi. Þar brást Stefán Baldursson leiðtoga- hlutverki sínu í hinni gömlu, ís- lensku skákhreyfingu.“ Mál dómstóla Stefán Baldursson segir að kæran verði tekin fyrir á stjórn- arfundi í dag. Hann hafi ekki séð hana og geti því ekki tjáð sig um hana efnislega, en hann hafi ekki séð ástæðu til þess að hafa aðal- fund fyrir mótið á grundvelli eins álits. „Ég mat það nú þannig, eft- ir að hafa talað við fjölda manns, að það væri þýðingarlaust að kalla saman aðalfund til að breyta reglunum fyrir þetta Ís- landsmót því það yrði bara sama niðurstaðan og var í sumar. Hins vegar sagði ég, eins og komið hefur fram, að ég myndi beita mér fyrir því að þetta yrði skoðað vandlega fyrir næsta aðalfund.“ Forseti Skáksambandsins segir að þessi ágreiningur leysist ekki nema fyrir dómstólum. Þeir sem hafi sett saman tillöguna fyrir síðasta aðalfund hafi kynnt sér hvernig staðið væri að þessum málum í mörgum löndum og verið sannfærðir um að þetta stæðist. „Víða eru þessar takmarkanir ennþá meiri heldur en hjá okk- ur,“ segir Stefán. Segir nefndarmenn vanhæfa Í kæru Hróksins kemur meðal annars fram að í mótsnefnd séu Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Rögnvaldsson og Þráinn Guð- mundsson en Einar S. Einarsson sé varamaður. „Hinn 25. og 26. október kom mótsnefnd Íslands- móts skákfélaga saman án kæru frá þriðja aðila og kvað upp hina kærðu úrskurði ex officio. Úr- skurðina kváðu upp aðalmenn- irnir Þorsteinn og Þráinn, auk þess sem Bragi Kristjánsson var kallaður til í fjarveru Jóns Rögn- valdssonar sem staddur var er- lendis. Varamaðurinn Einar S. var á hinn bóginn ekki kallaður til“ segir í kærunni. „Kæra þessi snýst einungis um formhlið máls- ins, enda heldur kærandi því fram að hinir kærðu úrskurðir séu haldnir slíkum annmörkum að þá beri að ómerkja, sem aftur leiðir sjálfkrafa til þess að þeir eru ekki tækir til efnismeðferðar. Um aðild kæranda vísast til 2. gr. reglugerðar fyrir dómstól SÍ. Kærandi telur að sú mótsnefnd Íslandsmóts skákfélaga sem kvað upp hina kærðu úrskurði hafi ekki verið bær til að fjalla um málið vegna þess að hún hafi ekki verið rétt skipuð, auk þess sem allir nefndarmennirnir hafi verið vanhæfir til þess að fjalla um málið. Verði því ekki hjá því kom- ist að ómerkja úrskurð nefnd- arinnar, sbr. aðalkröfu kæranda.“ Bent er á að Bragi hafi ekki verið skipaður í nefndina og auk þess hafi hann verið vanhæfur til að fjalla um sakarefnið þar sem hann hafi úrskurðað í því á stjórnarfundi SÍ 15. september. Þráinn og Þorsteinn séu félagar í Taflfélagi Reykjavíkur og því vanhæfir að fjalla um mál þar sem TR eigi aðild eins og í þessu máli. „Það skal tekið sérstaklega fram að lokum, að kröfur um að þeir Bragi, Þorsteinn og Þráinn verði lýstir vanhæfir eru einungis byggðar á viðurkenndum, laga- legum sjónarmiðum um sérstakt hæfi og beinast að engu leyti að persónum þeirra, enda eru þeir allir valinkunnir sómamenn“. Bosman-dómurinn fyrirmynd Jóhann Hjartarsson, hdl. og stórmeistari í skák, er lög- fræðilegur talsmaður Hróksins og lagði fram kæruna fyrir hönd fé- lagsins. Hann segir að 19. greinin brjóti í bága við íslensk lög varð- andi atvinnuréttindi útlendinga. „Þetta er margdæmt mál víða í Evrópu þar sem hinn frægi Bosman-dómur er fyrirmynd,“ segir hann og bendir á að Hrók- urinn hafi bent á þetta á aðal- fundi Skáksambandsins í vor. Í kjölfarið hafi Hrókurinn aflað sér lögfræðiálits Árna Páls Árnason- ar, héraðsdómslögmanns og sér- fræðings í Evrópurétti, og sent það Skáksambandinu, en þar hafi það ekki fengið neina efnislega umfjöllun heldur verið afgreitt með þeim orðum að stjórn Skák- sambandsins gæti ekki breytt ákvörðunum aðalfundar. „Það var ekkert gert til þess að rannsaka málið,“ segir hann og vísar til þess að Skáksambandið hefði get- að aflað sér lögfræðiálits, haft samband við utanríkisráðuneytið, sem haldi utan um EES-samning- inn, og talað við félagsmálaráðu- neytið sem væri æðsta vald í mál- efnum sem vörðuðu atvinnuréttindi útlendinga. „Ekk- ert af þessu var gert og síðan reyndi á þetta í keppninni núna.“ Að sögn Jóhanns hefur verið opnað fyrir EES-borgara þar sem reynt hafi á sambærileg mál eins og til dæmis í Þýskalandi, Frakk- landi og síðast á Spáni. „Þjóð- verjar tóku strax á þessu eftir að dómur féll í Bosman-málinu, fengu gamlan stórmeistara í skák sem jafnframt var stjórn- sýsludómari, til að skoða málið og hann komst að þeirri niðurstöðu að það væri ekki hægt að skerða heimild EES-borgara til að tefla í þýsku deildakeppninni,“ segir Jó- hann, sem tefldi fyrir Bayern München 1989 til 1995 og varð fimm sinnum Þýskalandsmeistari með félaginu. Bjart yfir skáklífinu Hrafn Jökulsson er að undirbúa alþjóðlegt mót sem hefst á Hótel Selfossi á morgun. „Sem betur fer er lögfræðivafstur mjög lítill hluti af störfum Hróksins. Stór hópur fólks vinnur að því að skákhátíðin mikla á Hótel Selfossi geti farið fram með glæsibrag. Sömuleiðis er framundan sögulegt einvígi Bents Larsens og Friðriks Ólafs- sonar. Jafnframt þessu erum við að heimsækja hvern skólann á fætur öðrum til þess að færa 8 ára börnum skákbók og útbreiða fagnaðarerindið í skólunum. Við höfum semsagt um nóg annað að hugsa heldur en Skáksamband Ís- lands en við munum aldrei líða það að réttmætir sigrar séu dæmdir af félögum okkar. Við munum fara með þetta mál alla leið til þess að tryggja að Faruk Tamini, stjarna helgarinnar á Ís- landsmótinu, haldi sínum vinn- ingum. Við munum jafnframt, úr því sem komið er, fara með þetta mál eins langt og þarf. En ég minni á, og það er mikilvægt, að við vöruðum við því fyrir mörg- um vikum að svona gæti farið ef Stefán Baldursson og Skák- samband Íslands aðhefðust ekki. En, að þessu frátöldu, er bjart yf- ir íslensku skáklífi og það er það sem skiptir máli,“ segir Hrafn. Deilur og kærumál í skákhreyfingunni Morgunblaðið/Ómar B-sveit Hellis með Davíð Ólafsson í broddi fylkingar lenti á móti A-sveit Hróksins í annarri umferð Íslandsmóts skákfélaga með Vladimir Malakov á efsta borði, Viktor Bologan á öðru borði og stigahæsta skákmann Íslend- inga, Jóhann Hjartarson, á þriðja borði. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Orra Vigfússyni vegna ummæla Guðna Ágústssonar í Morgunblaðinu á sunnudag. „Þegar það óhappaverk var unnið fyrir nær 20 árum að heimila inn- flutning á norskum laxi var gert heið- ursmannasamkomulag um að hann færi aðeins í strandeldi og í kvíar að Lóni í Kelduhverfi þar sem náttúru- legar aðstæður væru líkar strandeld- isstöðvum. Nýlega var upplýst að þessi lax hafði verið settur í eldiskví í Eyjafirði, að sjálfsögðu í algjöru heimildarleysi. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra galopnar síðan þessa leið fyrir laxeldismenn og skrifar upp á rekstr- arleyfi risalaxeldisstöðva fyrir aust- an í blóra við hagsmunaaðila og rýfur þannig heiðursmannasamkomulagið með norska laxinn. Þá setur ráð- herrann reglugerð sem er ónothæf til að vernda laxastofnana eins og í ljós hefur komið nú í haust þegar lax- veiðiárnar á Austurlandi menguðust af frjóum norskum eldislaxi. Landbúnaðarráðherra telur reglu- gerðina um bannsvæði ná til allra eldislaxa, frjórra sem ófrjórra. Þetta er rangt hjá ráðherra. Umrædd reglugerð nr. 226 nær aðeins til frjórra laxa. Ofan í kaupið býður hann þjóðinni upp á þann málflutning að laxeldiskvíarnar í Austfjörðum séu einu eldiskvíarnar í heimi sem lax strýkur ekki úr. Það er óumdeilt að milljónir laxa sleppa árlega úr eld- iskvíum, slys og óhöpp eru daglegt brauð. Forysta Landssambands veiðifélaga hefur í kjölfar atburðanna nú í haust sett opinberlega þá kröfu fram að aðeins verði leyft að ala ófrjóan lax í sjókvíum við Ísland. Þessari sjálfsögðu kröfu ansar ráð- herrann engu. Í mínum huga hefur ráðherrann tekið afstöðu með fisk- eldinu gegn íslensku laxveiðiánum með setningu vafasamra bráða- birgðalaga. Verndarsinnar, veiðimenn og veiðiréttareigendur munu ekki horfa þegjandi á skjólstæðinga hans í fisk- eldinu eyðileggja íslenskar laxveiði- ár. Þolinmæði verndarsinna, hags- munaaðila og væntanlega allra þingmanna, er á þrotum.“ Þolinmæðin á þrotum Athugasemd frá Orra Vigfússyni FRIÐÞÓR Eydal, upplýsingafulltrúi Varnarliðsins, vildi hvorki tjá sig um uppsagnirnar né staðfesta þær er Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Vísaði hann eingöngu til yfirlýsingar sem hann sendi á vef Víkurfrétta í gær, sem fyrstur greindi frá málinu. Í yfirlýsingunni segir eftirfarandi: „Eins og áður hefur komið fram hefur Flotastöð varnarliðsins, sem er um tveir þriðju hlutar varnarliðs- ins og annast alla þjónustustarfsemi á varnarsvæðinu, fengið bráða- birgðafjárveitingu sem er nokkru lægri en fjárveiting fyrra árs. Flota- stöðin er að endurskoða áætlanir sínar í samræmi við áætlaðar breyt- ingar. Varnarliðið telur óviðeigandi að ræða um einstök atriði að svo komnu máli.“ Flotastöðin að endurskoða áætlanir sínar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.