Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. NORVIK hf., sem rekur BYKO og ELKO, hefur samið við Landsbanka Íslands um kaup á rúmlega 70% hlutafjár í verslunarkeðjunni Kaupási, en bankinn hyggst nýta forkaupsrétt sinn til kaupa á 53,4% heildarhlutafjárins í samræmi við hluthafasamkomulag Landsbankans og Framtaks fjárfestingarbanka. Framtak hafði áður selt Áskaupum ehf. hlut sinn í Kaupási en þau kaup ganga með þessu til baka. Norvik átti ekkert fyrir í Kaupási en stefnt er að því að gera öðrum hluthöfum í Kaupási yfirtökutilboð í þeirra hluti. Jón Helgi Guðmundssson, stjórn- arformaður Norvik, segir enga bylt- ingu fyrirhugaða með yfirtökunni á Kaupási. „Við erum bara rekstrar- fólk sem komum að þessu. Við ætlum okkur að takast á við þetta verkefni og gera Kaupás að enn betra fyr- irtæki en það er. Fortíð okkar bygg- ist á því að reka fyrirtæki og versl- anir í smásölugeiranum. Okkur hefur gengið það vel og við teljum okkur eiga erindi inn í þann markað á víðari grunni.“ Um samkeppnina á matvörumark- aði segir hann: „Við höfum verið í mikilli samkeppni alla okkar tíð og erum hvergi bangin við það.“ Hann telur að samnýta megi ýmsa þætti rekstrar félaga í eigu Norvik og gera þannig betur. „En við erum ekki með neinar slíkar áætlanir og ætlum okkur bara að vinna úr þessu. Þetta er mjög spennandi og áhuga- vert verkefni sem við erum búin að horfa á mjög lengi. Þegar við keypt- um hlut okkar í Framtaki á sínum tíma var það meðal annars gert til að komast nær þessu takmarki,“ segir Jón Helgi og játar því að hafa vitað um samkomulag Landsbankans og Framtaks. Hann vill ekki tjá sig um kaup- verðið en varðandi hvað hann haldi að hafi ráðið úrslitum um að Norvik varð ofan á við söluna á Kaupási seg- ir hann: „Það sem við gerðum var að kaupa bæði hlut Framtaks og Landsbankans.“ Landsbankinn vildi ekki tjá sig um málið í gær enda væri þar um að ræða miðlunarverkefni á vegum bankans. Norvik hefur eignast um 70% hlut í Kaupási Landsbankinn nýtti forkaupsrétt á 53,4% eignar- hlut Framtaks sem seldur var Áskaupum nýlega HÓPUR nemenda grunnskólans í Þorlákshöfn stóð úti í glugga í anddyri íþróttamiðstöðv- arinnar þegar þeir voru að bíða eftir því að komast í skólasund. Ekki verður annað séð en hópurinn sé áhugasamur um umhverfi sitt. Sundlaug hefur verið í Þorlákshöfn í rúm tuttugu ár og sambyggt stórt íþróttahús í rúm tíu ár. Eru þessi mannvirki í notkun frá morgni til kvölds. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Beðið eftir skólasundinu VARNARLIÐIÐ á Keflavíkur- flugvelli hefur tilkynnt verkalýðs- félögum á Suðurnesjum að 90 starfsmönnum verði sagt upp um komandi mánaðamót. Eru þetta um 10% af heildarfjölda íslenskra starfsmanna á Vellinum. Af þess- um 90 eru 69 búsettir á Suðurnesj- um og 21 á höfuðborgarsvæðinu. Flestir eru innan Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, eða 28, og næstflestir hjá Verslunar- mannafélagi Suðurnesja, 23. Um miðjan dag í gær komu fulltrúar starfsmannahalds Varn- arliðsins til fundar við trúnaðar- menn verkalýðsfélaganna, forystu- menn þeirra og lögfræðing frá ASÍ. Hafa verkalýðsfélögin uppi efasemdir um að uppsagnirnar standist lög og ætla að skoða þær í samráði við ASÍ. Reiknað er með að uppsagnarbréfin berist í dag. Friðþór Eydal, upplýsinga- fulltrúi Varnarliðsins, segir í yfir- lýsingu sem hann sendi fjölmiðlum að eins og áður hafi komið fram hafi flotastöð Varnarliðsins fengið bráðabirgðafjárveitingu sem sé nokkru lægri en fjárveiting fyrra árs. Flotastöðin sé um tveir þriðju hlutar Varnarliðsins og annist alla þjónustustarfsemi á svæðinu. Stöðin sé að endurskoða áætlanir sínar í samræmi við „áætlaðar breytingar“. Varnarliðið telji óvið- eigandi að ræða um einstök atriði að svo komnu máli. Níutíu sagt upp á Vellinum  Tilkynnt um/10 ÁKVEÐIÐ hefur verið að opna Leikfélag Reykjavíkur fyrir áhugafólki og að stjórn félagsins verði ekki að meirihluta skipuð starfsmönnum. Lagabreytingar þessa efn- is voru samþykktar í gærkvöldi. Deilur urðu um tillögur um breytingar á fé- lagsaðild og skipan stjórnar sem stjórn fé- lagsins lagði fram á aðalfundi Leikfélags Reykjavíkur í júní. Var þeim vísað til sérstakrar sátta- nefndar sem hefur haft það hlutverk að fara yfir og endurskoða tillögur stjórn- arinnar. Hugmyndir nefndarinnar hafa verið kynntar á félagsfundi. Endanlegar tillögur sáttanefndarinnar sem stjórnin stóð einnig að voru samþykktar samhljóða í skriflegri atkvæðagreiðslu á framhalds- aðalfundi sem haldinn var í gærkvöldi, enginn var á móti en einhverjir at- kvæðaseðlar auðir. „Viljum stækka félagið“ „Við viljum opna Leikfélag Reykjavíkur og gera öllu áhugafólki um leiklist kleift að ganga í félagið. Við viljum breiðfylkingu fólks úr menningar- og atvinnulífi til liðs við okkur. Við viljum stækka félagið og efla það og leyfa fleirum að koma að stjórn þess,“ segir í kynningu stjórnar og sátta- nefndar á breytingartillögunum sem Marta Nordal flutti. Hingað til hefur félagsaðild verið tak- mörkuð við starfsfólk, núverandi og fyrr- verandi. Stjórnin hefur alfarið verið skipuð fólki úr þeirra röðum en í tillögum stjórn- arinnar frá því í vor var lagt til að starfs- menn sætu ekki í stjórn. Í nýju lögunum segir að félagar geti orð- ið allir áhugamenn um leiklist og leik- húsrekstur Leikfélags Reykjavíkur í Borg- arleikhúsinu. Þá er fjölgað um tvo í stjórn, þannig að fimm menn verða kosnir á aðal- fundi, þó þannig að aldrei skulu fleiri en tveir stjórnarmenn á hverjum tíma vera starfsmenn félagsins. Núverandi stjórn starfar þar til ný stjórn verður kjörin á sérstökum kjörfundi í apríl á næsta ári. Leikfélagið opnað fyrir áhugafólki SAMKOMULAG hefur náðst um kaup stjórnenda Loðskinns á Sauð- árkróki á sútunarverksmiðjunni af Búnaðarbankanum-Kaupþingi. Hef- ur bankinn átt verksmiðjuna í tæp fjögur ár en til stendur að ganga frá kaupunum um miðjan næsta mánuð. Gunnsteinn Björnsson, fram- kvæmdastjóri Loðskinns, segir þessi viðskipti ekki breyta miklu um reksturinn. Haldið verði áfram að súta skinn og vinna til sölu á erlend- um mörkuðum. Reiknað sé með að flestir starfsmenn, um 45, haldi vinnunni utan nokkurra sem ráðnir hafi verið tímabundið vegna söltunar á skinnum eftir sláturtíð. Gunn- steinn segir skinnasöluna hafa geng- ið vel, þó að vissulega hafi hann vilj- að sjá annað gengi á íslensku krónunni. Framleiðslan hefur verið um 150 þúsund skinn og helstu markaðir Loðskinns eru í Evrópu, einkum á Norðurlöndunum, Ítalíu og í Frakklandi. Viðskipti í Asíu hafa aukist verulega, að sögn Gunnsteins, sem nú er staddur á Ítalíu að hitta helstu viðskiptavini verksmiðjunnar. Búnaðar- bankinn sel- ur Loðskinn EKKI eru nema 10 dagar frá því að tilkynnt var að Áskaup ehf., fjárfest- ingarfélag undir forystu Ingimars Jónssonar, forstjóra Kaupáss, hefði keypt allt hlutafé Framtaks í Kaupási, eða 53,4% heildarhlutafjár. Meðal hluthafa í Áskaupum voru VÍS og Samvinnulífeyrissjóðurinn, sem voru fyrir hluthafar í Kaupási. Ingimar Jónsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær um sam- komulag Framtaks og Landsbank- ans um forkaupsrétt bankans að þessum hlut: „Við höfðum góðar væntingar um að Landsbankinn mundi semja um málið við okkur. Hann kaus hins vegar að fara aðra leið.“ Að öðru leyti vildi Ingimar ekki tjá sig um málið. Bankinn kaus aðra leið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.