Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 13
Handbókin vinsæla frá ISO í íslenskri þýðingu
ISO 9001 FYRIR LÍTIL FYRIRTÆKI - LEIÐSÖGN
Pantaðu á www.stadlar.is
og hvað segir þú?Ókeypis símsvari í þrjá mánuði lætur vita um
númerabreyt ingar hjá starfsmönnum þegar
fyrirtækið fær GSM-áskrift hjá Og Vodafone.
Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone • Sími 800 1100 • www.ogvodafone.is
Ef þú ert númerslaus á
vegum fyrirtækisins eru
mestar líkur á að þú
verðir tekinn úr umferð.
einfalt að skipta
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
22
74
1
0/
20
03
● AUKINN hagnað bankanna á fyrri hluta
þessa árs má skýra með miklum og óvenju-
legum gengishagnaði og aukinni þjónustu
og sölu til fagfjárfesta og við stór fyrirtæki.
Um 77% af hagnaði bankanna á fyrri hluta
ársins var gengishagnaður. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá Samtökum
banka og verðbréfafyrirtækja, SBV. Þar seg-
ir að ályktanir Neytendasamtakanna í síð-
ustu viku um að stóran hluta hagnaðar
banka og sparisjóða megi rekja til óeðlilega
mikils vaxtamunar og sívaxandi tekna af
þjónustugjöldum, sem viðskiptavinum er
gert að greiða, standist engan veginn.
SBV segir að vaxtamunur íslenskra
banka hafi minnkað verulega á síðustu ár-
um og að fullyrðingar um annað séu rangar.
Tekjur af þjónustu á hefðbundnu viðskipta-
bankasviði hafi hækkað óverulega og jafn-
vel lækkað í sumum tilvikum, en aukinn
hagnaður af þjónustutekjum megi að lang-
mestu leyti rekja til stóraukinna umsvifa á
verðbréfa- og fjárfestingabankasviði síðast-
liðið ár. Þá segir í tilkynningu samtakanna
að íslenskir bankar standist fyllilega verð-
samanburð við banka á Norðurlöndunum.
SBV segir ályktanir Neyt-
endasamtakanna rangar
HAGNAÐUR samstæðu VÍS eftir
skatta fyrstu níu mánuði ársins 2003
nam 1.270 milljónum króna. Hagn-
aðurinn nærri þrefaldaðist frá sama
tímabili á síðasta ári en þá var hann
429 milljónir.
Mest munar um aukinn hagnað
VÍS af skaðatryggingarekstri milli
ára. Hann var 1.026 milljónir á
fyrstu níu mánuðum þessa árs en 316
milljónir á sama tímabili á síðasta
ári. Hagnaður af líftryggingarekstri
var 64 milljónir í ár en enginn í fyrra
en við uppgjöri nú er tekið tillit til
þess að félagið er orðið eigandi að
75% hlutafjár í Líftryggingafélagi
Íslands. Þá var hagnaður af fjár-
málarekstri 569 milljónir á þessu ári
en 252 milljónir á síðasta ári. Hagn-
aður félagsins fyrir skatta og hlut-
deild minnihluta nam 1.598 milljón-
um króna.
Í tilkynningu VÍS segir að skaða-
tryggingarekstur skili mun betri af-
komu en á sama tíma í fyrra. Tjón á
tímabilinu hafi verið færri og með-
altjónið lægra í krónum talið en á
fyrra ári. Þá segir í tilkynningunni
að horfur í rekstri þessa árs séu
áfram góðar, svo fremi sem þróun
tjóna verði með svipuðum hætti og á
fyrri hluta ársins. Þó séu blikur á
lofti með aukinni tjónatíðni á þriðja
ársfjórðungi. Sveiflur í tjónatíðni og
einstök stjórtjón geti haft veruleg
áhrif á afkomuna frá einu tímabili til
annars og því muni afkoma á fjórða
ársfjórðungi að mestu ráðast af
fjölda og stærð tjóna.
Eigin tjón VÍS lækkuðu um 3,0%
frá sama tíma á árinu 2002. Rekstr-
arkostnaður félagsins á fyrstu níu
mánuðum þessa árs var 1.171 milljón
og hækkaði um 9,5% á milli ára.
Fjárfestingartekjur samstæðunnar
námu samtals 2.123 milljónum og
hækkuðu um nærri 700 milljónir frá
síðasta ári. Þar af námu vaxtatekjur
og gengismunur 1.253 milljónum og
hagnaður af sölu fjárfestinga var 772
milljónir, sem kemur einkum frá
sölu hlutabréfa félagsins í Keri hf.
Hagnaður á sölu fjárfestinga árið áð-
ur var 604 milljónir. Heildareignir
samstæðu VÍS í lok september 2003
námu 28,1 milljarði og bókfært eigið
fé var 5.642 milljónir. Handbært fé í
lok tímabilsins var 2.365 milljónir.
Hagnaður VÍS
þrefaldast milli ára
VERÐIÐ sem kaupsýslumað-
urinn Philip Green greiddi fyrir
bresku verslunarkeðjuna Ar-
cadia á síðasta ári var of lágt.
Mikill hagnaður Arcadia á síð-
asta uppgjörsári, sem lauk í
ágúst síðastliðnum, bendir til
þess að hlutabréf keðjunnar hafi
verið meira virði en þau 408 pens
á hlut, sem Green greiddi fyrir
þau þegar hann yfirtók félagið í
september á síðasta ári. Þetta
kemur fram í grein á við-
skiptasíðum Sunday Telegraph
um síðustu helgi.
Segir í greininni að stjórn-
endur sjóða sem áttu hlutabréf í
Arcadia sjái nú eftir því að hafa
samþykkt yfirtökutilboð Green.
Sú skoðun sé nú nokkuð almenn
að fjárfestingasjóðir, til að
mynda þeir sem haldi utan um
fjárfestingar fyrir lífeyrissjóði,
hafi almennt verið of fljótir að
selja hlutabréf í fyrirtækjum sem
hafi verið of lágt metin á mark-
aði. Í greininni segir einnig að
stofnanafjárfestar séu ekki þeir
einu sem hafi ástæðu til að
harma það að hafa selt hlutabréf
í Arcadia fyrir of lágt verð. Það
eigi einnig við um Baug.
Frá því er greint að sam-
komulag hafi náðst fyrir rúmu
ári milli Baugs og Green um að
Baugur skipti á 20% hlut sínum í
Arcadia fyrir verslunarkeðj-
urnar Top Shop, Top Man og
Miss Selfridge. Ekkert hafi hins
vegar orðið af þeim viðskiptum
eftir að fréttist af húsleit efna-
hagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra í húsakynnum Baugs
í Reykjavík, vegna gruns um
fjármálamisferli. Segir í Sunday
Telegraph að það sé kaldhæðn-
islegt að það sé einmitt Top
Shop, sem fyrirhugað hafi verið
að Baugur myndi eignast, sem
eigi mestan þátt í hinum stór-
aukna hagnaði Arcadia.
Hagnaður Arcadia jókst um
96% milli ára eftir að Green yf-
irtök félagið og nam um 160
milljónum sterlingspunda fyrir
skatta á síðasta uppgjörsári, eða
tæpum 21 milljarði króna. Hann
og fjölskylda hans eiga 92% hlut í
keðjunni. Blaðið segir að mark-
aðsvirði hlutar Green og fjöl-
skyldu hans sé nú líklega ekki
lægra en a.m.k. einn milljarður
sterlingspunda, sem er nærri 300
milljónum punda meira en virði
þessa hlutar var þegar Green yf-
irtók keðjuna.
Þá hefur blaðið eftir Nigel
Hall, fyrrum fjármálastjóra Ar-
cadia, að horfa verði á þessi mál
út frá þeim aðstæðum sem voru
þegar Green yfirtók Arcadia.
Hann segir engan hafa þá séð
fyrir hve mikil aukning yrði í
einkaneyslu á komandi mán-
uðum. Sérfræðingar hafi þá talið
að Íraksstíðið myndi hafa slæm
áhrif á einkaneyslu. Reyndin hafi
orðið önnur og staða Arcadia
batnað til muna.
Philip Green hefur
hagnast vel á Arcadia
Morgunblaðið/Sverrir
● PHARMACO hefur opnað söluskrifstofu í
Svíþjóð undir merkjum dótturfélagsins UNP
AB. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að opn-
un skrifstofunnar sé liður í áformum þess
um að efla sölustarfsemi sína á Norðurlönd-
unum.
Samkvæmt tilkynningunni er lyfjaneysla á
hvern íbúa í Svíþjóð um 334 evrur, en Svíar
eru um 9 milljónir talsins. Þá segir að hlut-
fall samheitalyfja á markaðnum hafi verið
frekar lágt, en hins vegar í örum vexti eftir
að reglum um afgreiðslu lyfja í sænskum
apótekum hafi nýverið verið breytt til að
hvetja til notkunar þeirra. Með þessu hafi
sænska ríkið ýtt undir frekari vöxt samheita-
lyfjamarkaðarins.
Björn Aðalsteinsson, svæðisstjóri mark-
aðsmála Pharmaco í Norður-Evrópu, segir
að þegar starfsemi söluskrifstofunnar í Sví-
þjóð verði komin í fulla starfsemi innan árs
verði starfsmenn væntanlega 9 talsins.
Hann gefur ekki upp hvað Pharmaco áætlar
að velta fyrirtækins á þessum markaði verði
mikil, eða hver markaðshlutdeild fyrirtæk-
isins verði, nema hvað stefnt sé að því að
hvort tveggja verði umtalsvert.
Nýr framkvæmdastjóri dótturfélags
Pharmaco í Svíþjóð er Roger Tapper. Hann
er lyfjafræðingur að mennt og starfaði áður
sem framkvæmdastjóri markaðsmála hjá
lyfjafyrirtækinu Ratiopharm í Svíþjóð.
Pharmaco er með starfsemi í 15 löndum
og hjá félaginu starfa um 6.000 manns.
Pharmaco opnar sölu-
skrifstofu í Svíþjóð
HAGNAÐUR Bakkavarar Group hf. eftir
skatta fyrstu níu mánuði ársins nam 1.322
milljónum króna og er það 45% hækkun hagn-
aðar frá sama tímabili í fyrra. „Hagnaður
Bakkavarar Group fyrir fjármagnsliði (EBIT)
var 1,638 milljónir króna samanborið við 1,614
milljónir króna á síðasta ári og jókst um 1,4% á
milli ára. Fjármagnsgjöld námu 376 milljónum
króna. Skattar tímabilsins námu 336 milljónum
króna. Hagnaður af sölu sjávarútvegshluta fé-
lagsins var 397 milljónir króna og verður því
niðurstaða rekstrarreiknings 1.322 milljónir í
hagnað,“ segir í tilkynningu frá Bakkavör.
Rekstrartekjur félagsins námu 12.886 millj-
ónum króna og jukust um 8,61% frá árinu áður.
Rekstrargjöld námu 11.249 milljónum króna og
jukust um 9,74%. Veltufé frá rekstri nam 1.514
milljónum króna og jókst um 15,8% frá árinu
áður. Handbært fé frá rekstri var 1,915 millj-
ónir króna. Sala félagsins í undirliggjandi
rekstri nam 11.427 milljónum króna og jókst
um 19% frá fyrra ári.
Eigið fé Bakkavör Group hefur aukist um
1,314 milljónir króna frá áramótum eða um
17,7% og er eiginfjárhlutfall þess nú 41% ef
víkjandi skuldabréf er meðtalið. Veltufjárhlut-
fall félagsins er 3,14 sem er 200% aukning frá
síðasta ári. Félagið á 7,245 milljónir króna í
sjóðum (57,1 milljónir punda) og ónýttar drátt-
arlínur fyrir um 1.648 milljónir króna (13 millj-
ónir punda).
Í tilkynningu félagsins segir að á fyrri hluta
ársins hafi Bakkavör Group selt alla starfsemi
sína utan Bretlands til Fram Foods hf. en sú
starfsemi myndaði sjávarútvegskjarna félags-
ins. Eftir söluna byggist starfsemi Bakkavarar
eingöngu á framleiðslu og sölu á tilbúnum
kældum réttum til stórmarkaða í Bretlandi og
rekurfélagið tvö dótturfélög, Katsouris Fresh
Foods í London og Bakkavör Birmingham í
Birmingham.
Í tilkynningunni segir að rekstrarhorfur fyr-
irtækisins fyrir síðustu þrjá mánuði ársins séu
góðar. „Á síðustu mánuðum ársins setur
Bakkavör yfir 100 nýjar vörur á markað.
Framundan er helsta sölutímabil félagsins sem
eins og flest önnur matvælafyrirtæki selja hlut-
fallslega mest á síðasta árfjórðungi. Stöðug
vöruþróun og markaðssetning nýrra afurða er
lykilþáttur í stöðugum vexti fyrirtækja í fram-
leiðslu tilbúinna kældra rétta í Bretlandi og
leggur Bakkavör mikla áherslu á þennan þátt í
starfsemi sinni. Stjórnendur fyrirtækisins gera
ráð fyrir áframhaldandi örum vexti á mörk-
uðum félagsins og vinna jafnframt að verk-
efnum sem munu leiða til ytri vaxtar í náinni
framtíð.“
Bakkavör hagnast um 1.322 milljónir
HAGNAÐUR Nýherja hf. á fyrstu
níu mánuðum þessa árs nam 54 millj-
ónum króna eftir skatta. Á sama
tímabili í fyrra var hagnaðurinn 78
milljónir. Rekstrartekjur tímabilsins
námu 3.259 milljónum og jukust um
tæp 2% milli ára. Vörusala jókst um
2% og þjónustutekjur um 1%.
Hagnaður á fyrstu níu mánuðum
ársins fyrir fjármagnsgjöld og af-
skriftir, EBITDA, var 163 milljónir
en 171 milljón árið áður. Veltufé frá
rekstri nam 134 milljónum saman-
borið við 127 milljónir árið áður.
Gengistap var 9 milljónir í ár en í
fyrra var gengishagnaður hins vegar
23 milljónir.
Heildareignir Nýherja hinn 30.
september síðastliðinn námu 2.617
milljónum króna. Eigið fé var 1.291
milljón. Tap af rekstri Nýherja í
þriðja ársfjórðungi nam 7,8 milljón-
um eftir skatta samanborið við 24,2
milljóna hagnað í sama fjórðungi ár-
ið áður. Í tilkynningu frá Nýherja
segir að eftirspurn á upplýsinga-
tæknimarkaðinum hafi verið minni
en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tekjur á
fyrstu níu mánuðum ársins séu því
undir væntingum. Byggjast þær
einkum á sölu til margra smærri og
millistórra viðskiptavina og einstak-
linga, en minna sé um einstakar
stærri sölur á vélbúnaði.
Hagnaður Ný-
herja 54 millj-
ónir króna