Morgunblaðið - 28.10.2003, Síða 7

Morgunblaðið - 28.10.2003, Síða 7
Veislusmiðjan ehf., Smiðjuvegi 14, 200 Kópavogi, sími 587 3800, netfang: veislusmidjan@veislusmidjan.is heimasíða: www.veislusmidjan.is Nýr veislu- og samkomusalur Veislu- og samkomusalur Ferðafélags Íslands var opnaður árið 1995. Veislusmiðjan leigir salinn út til veisluhalda og funda alla daga vikunnar. Góð staðsetning - smekklegt útlit Salurinn er í kjallara Ferðafélagshússins, Mörkinni 6 í Reykjavík. Aðkoman er á efri hæð, gengið beint inn af götunni (sérinngangur). Greið aðkoma er fyrir fatlaða. Anddyrið er lagt graníti og öll önnur umgjörð glæsileg. Aðbúnaður Rúmgott fatahengi, þrjú snyrtiherbergi, barborð eru tvö; eitt í sal og annað á gangi. Í salnum eru 34 borð og má reikna með sætum fyrir 180-240 gesti við borð. Salurinn rúmar 300 manns í bíóuppstillingu. Leyfilegt er að hafa að hámarki 340 gesti í salnum í einu. Dansgólf er parketlagt og sviðið er færanlegt. Flygill og hljóðkerfi eru í salnum. Skreytingar skapa stemmningu Heimilt er að skreyta salinn eftir tilefni hverju sinni. Vínföng og skemmtanaleyfi Veislusmiðjan hefur vínveitingaleyfi og selur borðvín og veitingar á bar gegn vægu gjaldi. Hægt er að semja um aðra tilhögun vínveitinga. Tónlistarflutningur/hljómsveit Veislusmiðjan getur aðstoðað við útvegun tónlistarflutnings. Við getum útvegað píanóleikara og annað tónlistarfólk, sem og hljómsveit til að spila á dansleik að loknu borðhaldi. Hafið samband og kannið málið. Þjónustufólk Veislusmiðjan leggur til þjónustufólk í sal, barþjóna, dyraverði og matreiðslumenn eftir þörfum og umfangi veislunnar. Þegar vanda skal til veislu, þarf að vanda undirbúninginn Pantaðu tíma til að skoða salinn og leggja á ráðin um skipulag veislunnar í salnum. Upplýsingasíminn er 587 3800 eða 899 2959

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.