Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 37
✝ Guðrún Þor-valdsdóttir fædd-
ist í Hafnarfirði 30.
maí 1921. Hún lést á
Droplaugarstöðum
17. október síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Þorvaldur
Ásgeir Kristjánsson,
f. á Hjaltabakka í A-
Hún. 10. október
1900, d. 9. mars 1976,
og Björg Sigvalda-
dóttir, f. í Dæli í
Fljótum 2. september
1893, d. 20. janúar
1937. Tvíburabróðir
Guðrúnar var Kristján, d. 11.
ágúst 2003. Önnur systkini Guð-
rúnar eru Óli Sverrir, f. 3. mars
1923, d. 13.3. 1992, hálfsystir sam-
mæðra Björg Haf-
steins, f. 6. ágúst
1928, og hálfsystir
samfeðra Arndís, 23.
mars 1924, d. 2003.
Árið 1957 giftist
Guðrún Hjálmari
Jónssyni, f. 27.2.
1918, d. 22.8. 1971.
Foreldrar hans voru
Elín Sigfúsdóttir og
Jón Hjálmarsson.
Guðrún lærði fót-
snyrtingu og hand-
snyrtingu í Dan-
mörku og starfaði
við það mestan hluta
ævinnar.
Útför Guðrúnar verður gerð
frá Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku systir, þakka þér samfylgd-
ina og allar dýrmætar samveru-
stundir.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Guð blessi minningu þína. Þín
systir
Björg.
Stundum er sagt að það séu óskýr-
anleg tengsl milli systkina. Aðrir
halda því fram að tvíburar myndi enn
sterkari tengsl en gengur og gerist.
Það liðu ekki nema rúmir tveir mán-
uðir frá því að faðir okkar, Kristján
B. Þorvaldsson, lést að tvíburasystir
hans, Guðrún, kvaddi þennan heim.
Gunna frænka fæddist ekki með
silfurskeið í munni og ólst upp við
kröpp kjör á sínum uppvaxtarárum.
Hún giftist ung Hjálmari Jónssyni
en varð fyrir þeirri stóru sorg að
missa hann eftir stutt hjónaband.
Upp frá því bjó hún ein alla sína tíð.
Bróðir hennar, Óli Sverrir Þorvalds-
son heitinn, bjó hjá henni síðustu
æviár sín.
Guðrún starfaði stærstan hluta af
ævi sinni sem snyrtifræðingur. Hún
átti marga viðskiptavini sem komu
aftur og aftur til hennar með særðar
neglur og aumar tær. Og meðan
Gunna frænka „læknaði“ þær, var líf-
ið krufið í sinni margbreytilegu
mynd.
Guðrún var fagurkeri og heimili
hennar í Bogahlíð var hlýlegt og
skreytt mörgum fallegum munum.
Gunna frænka var kærkominn
gestur í Sigluvoginum. Það blésu
ávallt ferskir vindar með henni þegar
hún kom. Hún hafði ákveðnar skoð-
anir og stóð föst á sínu. Kímnigáfa
hennar var auðug og hún kom okkur
systkinunum oft til að hlæja.
Jólin og Gunna frænka var eitt-
hvað órjúfanlegt. Þau fáu jól í Siglu-
voginum sem hún ekki gat verið með
okkur voru öðruvísi jól. Það vantaði
eitthvað sem alltaf hafði verið – það
vantaði Gunnu frænku.
Gunna frænka fylgdist vel með
okkur systkinunum. Vildi ávallt vita
hvað við værum að sýsla og síðar
fylgdist hún vel með börnum okkar.
Gunna frænka hefur eflaust verið
hvíldinni fegin. Síðustu æviárin
höfðu verið henni erfið. Veikindi
gerðu það að verkum að hún var að
mestu rúmliggjandi síðustu mánuði.
Við kveðjum hér góða, umhyggju-
sama og umfram allt skemmtilega
frænku. Gunna sameinast nú bræðr-
um sínum á góðum stað.
Björg Hafsteins, vinir og vanda-
menn – megi guð, í hverri mynd sem
hann birtist, styrkja ykkur í sorginni.
F.h. systkinanna úr Sigluvoginum,
Hans Kristjánsson.
Í dag kveð ég elskulega vinkonu
mína, Guðrúnu Þorvaldsdóttur. Við
andlát vinar leitar hugurinn til baka,
óháð tíma og rúmi. Maður upplifir
óteljandi myndir í áranna rás, minn-
ingabrot sorgar og gleði, endurlifir
orð og athafnir, hnyttin tilsvör og
hlýja stroku á vanga.
Bezta vinkona móðursystra
minna, Haddýjar og Huldu, var
Gunna Þorvalds. Hún kom fyrir 65
árum eins og stormsveipur inn í líf
móðurfjölskyldunnar minnar, sem þá
bjó á Brávallagötunni. Frá þeim tíma
hefur hún sveipað okkur systkina-
börnin umhyggju og væntumþykju
og að sjálfsögðu siðað okkur til frá
unga aldri. Ransý móðursystir mín
bjó á Grenimelnum ásamt Tómasi og
barnahópnum þeirra; Einari, Ragn-
ari, Gunnari, Ransý yngri og Gurrý.
En þar réð einnig Gunna Þorvalds
ríkjum og lét fátt fram hjá sér fara.
Hún hafði mjög fastmótaðar skoðan-
ir hvað varðaði barnauppeldi og
hvernig börn áttu að vera ,,pen“ og
,,prúð“ og þar þýddi sko ekkert múð-
ur.
Þegar ég var unglingur flutti
Gunna Þorvalds til okkar með
Hjálmari sínum á Hverfisgötuna, þar
sem mamma bjó með mér og Einari
bróður mínum. Mjög erfitt var á
þessum árum að fá leiguhúsnæði.
Fyrirhuguð þriggja mánaða búseta
hjónakornanna varð að þremur ár-
um. Ég tók alveg dýfur af kvíða, þeg-
ar stórskútan Gunna Þorvalds sigldi
inn í unglingstilveru mína fyrir full-
um seglum. Mamma hafði gefið mér
mjög frjálst og sjálfstætt uppeldi en
nú var sem sagt kominn annar skip-
stjóri á skútuna og nú átti sko aldeilis
að ala mig upp! Sjóorrusturnar á
heimilinu byrjuðu ekki hægt, heldur
hratt og stígandi og urðu á tímum
eins konar sjóræningjaorrustur uns
friður var saminn. Við nöfnurnar
felldum seglin og bundumst tryggða-
böndum.
Það var yfirleitt aldrei nein logn-
molla hjá okkur á Hverfisgötunni eða
í kringum Gunnu Þorvalds. Maður-
inn hennar, sem kallaður var
,,Hjálmar hennar Gunnu“ var ein-
staklega léttur í lund og mikill hug-
sjóna- og bjartsýnismaður. Hann
fékkst við alls kyns innflutning og
var einn af fáum sem fluttu inn vörur
frá austanjárntjaldslöndunum. Hann
nældi sér í umboð fyrir pólska vodk-
að og í einni Póllandsferðinni hefði
hann rekist á bragðgott súkku-
laðikex sem hann lét sneiða niður í
hentugar stærðir, pakka inn í gull-
pappír og nefndi Prins Póló. Hann
,,Hjálmar hennar Gunnu“ sem
kenndi Íslendingum að borða Prins
Póló tók gjarnan danssporin með
Gunnu sinni heima í stofu. Hann setti
Louis Armstrong í botn á grammó-
fóninum og tók tjúttaðar sveiflur
með Gunnu sína í fanginu og kallaði:
,,Sjáið þið – finnið þið – hún svífur um
í Chanel #5,“ og þessi framandi ilm-
vatnslykt sem fékkst bara í útlönd-
um, sveif um hýbýlin heima eins og
boðberi nýrra tíma. Í minningunni sé
ég þau fyrir mér dansa eftir söngn-
um hans Louis – ,,Hallo Dolly“ – með
engum smátilþrifum.
Enga konu þekkti ég sem átti jafn-
marga fallega skartgripi, jafnmörg
ilmvötn, naglalökk og flotta hatta,
enda var hún lærð snyrtidama frá
kóngsins Kaupmannahöfn. Og hún
var svo sannarlega dama og klassa-
kona. Gunna var alltaf jafnfín með
túberað hár á háhæluðum skóm og
rauðlakkaðar neglur. Síðar, þegar
þau fluttu á Smiðjustíginn í húsið hjá
Helgu frænku, Láru og Tryggva,
saknaði ég þeirra manna mest.
Gunna Þorvalds var mikil stemn-
ingsmanneskja og fagurkeri. Það var
ekkert betra en góðra vina fundur á
Smiðjustígnum. Á góðra vina fundi
er glóði vín á skál naut hún augna-
bliksins og návistar vina sinna.
Gunna Þorvalds átti góða vini og
fjölskyldu. Bræður hennar, Kristján
og Óli, eru báðir látnir en eftir lifir
Björg systir hennar, sem var henni
lífsakkeri og styrkur. Þegar mann-
eskjan er svipt getunni til sjálfs-
bjargar verður lífið dapurt. Síðustu
árin var gleðin og hamingjan að
mestu horfin hjá vinkonu minni.
Ég var svo lánsöm að eiga með
henni góða stund kvöldið áður en hún
dó. Ég sagði henni fréttir af fjöl-
skyldunni og hvað mér þætti vænt
um hana. Ég þakka henni samfylgd-
ina, elskuna hennar alla og fyrir það
að hafa alltaf verið til staðar fyrir
mig. Ég sendi fjölskyldu og vinum
Guðrúnar Þorvaldsdóttur samúðar-
kveðjur, þá sérstaklega Björgu syst-
ur hennar, sem var henni bezt.
Ég kveð vinkonu mína með ljóð-
línum séra Sigurbjörns Einarssonar:
Þannig varstu vinur mér
sem vorið bjarta.
Það sem gafstu
geymist mér í hjarta.
Ilma sprotar, anga lauf
sem aldrei falla.
Drottinn launi
elskuna þína alla.
Guðrún Sverrisdóttir.
Við andlát Gunnu minnar leitar
hugurinn nær sextíu ár aftur í tím-
ann. Ég var enn í móðurkviði þegar
hún fluttist inn á heimili foreldra
minna, upphaflega til að aðstoða við
heimilisstörfin og gæslu bræðra
minna. Ég var svo lánsöm í æsku og
alla tíð síðan að alast ekki eingöngu
upp við ástríki foreldra, heldur naut
ég líka umhyggju og elsku hennar
Gunnu minnar. Ég naut einnig þeirra
forréttinda sem barn að geta valið,
þegar eitthvað stóð til, hvort ég vildi
fara með Gunnu eða foreldrunum.
Og mér er sagt að oftar en ekki hafi
ég svarað því til að ég vildi fara með
Gunnu, „því hún þekkti allar leiðir“.
Í endurminningunni er Gunna
órjúfanlegur hluti af stórfjölskyldu
minni, á gleði- og sorgarstundum, því
hún var bæði traust, skemmtileg og
ekki síst góður vinur okkar allra. Við
söknum hennar.
Síðustu árin hafa verið henni
Gunnu minni erfið vegna sjúkleika,
en nú hefur hún fengið hvíldina.
Að leiðarlokum biðjum við fjöl-
skyldan þess að þú hvílir í Guðs friði
elsku Gunna mín.
Þín
Ragnheiður (Ransý litla).
Hún Gunna Þorvalds, vinkona
hennar mömmu, var alltaf böðuð æv-
intýraljóma. Hún var heimskona,
tengd einhverjum alþjóðlegum
straumum sem voru ekki algengir á
Íslandi á uppvaxtarárum okkar. Við
munum eftir henni í grænbláum sat-
ínkjól með óvenjulega skartgripi sem
báru merki um fegurðarskyn henn-
ar.
Fyrstu minningar okkar um
Gunnu eru frá Smiðjustígnum þar
sem hún bjó með Hjálmari, eigin-
manni sínum. Þau bjuggu rétt hjá
Kardemommubænum sjálfum eins
og við kölluðum Þjóðleikhúsið á þess-
um árum. Í næstu íbúð bjó Guðrún
saumakona sem var eins og klippt út
úr svarthvítri bíómynd þar sem hún
töfraði fram glæsilega árshátíðar-
kjóla úr siffoni og tafti með títu-
prjóna á hauslausum gínum. Í næstu
götu rak Gunna snyrtistofu þar sem
hún tók á móti mömmu með okkur í
eftirdragi. Barnsaugun drukku í sig
örugg handtök snyrtifræðingsins, en
dag einn breyttist aðdáunin í undrun
þegar þar sat þjóðfrægt karlskáld í
fótabaði með svartan lit á augnbrún-
um og hárum. Svona undur gátu bara
gerst í nálægð Gunnu. Hún þekkti
alls konar fólk, listamenn og presta
og við dáðumst að kynnum hennar af
þessum furðufuglum.
Þær Gunna og móðir okkar, Hjör-
dís, höfðu verið vinkonur frá unga
aldri og því var sjálfsagt að Gunna
væri með á öllum hátíðarstundum.
Þegar faðir okkar dó og við uxum úr
grasi umgengust þær vinkonurnar
meira en áður. Gunna kom alltaf fær-
andi hendi, bæði með gjafir en líka
með skemmtilegri og gefandi návist
sinni. Hún var einstaklega góð við
syni okkar og þeir voru vissir um að
hún væri náfrænka okkar. Þeim, eins
og okkur, fannst Gunna skemmtileg
og pöntuðu sérstaklega að henni
væri boðið með þegar hist var heima
hjá ömmu. Þær vinkonurnar gátu
hlegið að gömlum minningum, sér-
staklega að neyðarlegum atvikum
sem þær þóttust hafa lent í á árum
áður, þegar tilveran var fersk.
Núna, þegar Gunna er farin, er
enn einn hluti af landslagi bernsku
okkar horfinn. Við minnumst hennar
með þakklæti og hlýju. Björgu syst-
ur hennar og öðrum ættingjum vott-
um við dýpstu samúð okkar.
Sigríður, Ágústa Ísafold
og Erla Sigurðardætur.
GUÐRÚN
ÞORVALDSDÓTTIR
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Ástkær faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi,
vinur og bróðir,
SIGURÐUR K. GUÐMUNDSSON
sjómaður,
Vatnsholti 1,
Villingaholtshreppi,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 23. október.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. október kl. 15.00.
Sigurður Ingi Sigurðsson, Gerður Hreiðarsdóttir,
Kristín Rögnvaldsdóttir, Jón Þór Einarsson,
Jón Ottó Rögnvaldsson, Andrea Baldursdóttir,
Margrét Rögnvaldsdóttir, Kristján Einarsson,
Pálína Einarsdóttir
og systkini hins látna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
amma og fyrrverandi eiginkona,
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Heiðarlundi 3G,
Akureyri,
lést á heimili sínu sunnudaginn 26. október.
Jón Kristinn Sveinmarsson, Linda Björk Sigurðardóttir,
Hólmfríður Sveinmarsdóttir, Sigurður Pálsson,
Sigurður Rúnar Sveinmarsson, Anna Sólmundsdóttir,
Fjóla Sveinmarsdóttir, Ingvar Ívarsson,
Sóley Sveinmarsdóttir, Pétur Már Björgvinsson,
Sigrún Gunnarsdóttir,
ömmubörn og
Sveinmar Gunnþórsson.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
JÓSEF EINAR MARKÚSSON
frá Görðum, Aðalvík,
Þverbrekku 4,
Kópavogi,
sem lést þriðjudaginn 21. október, verður
jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins við
Háteigsveg fimmtudaginn 30. október kl. 15.00.
Arnar Jósefsson, Margrét Tómasdóttir,
Hrafnhildur R. Jósefsdóttir, Þorleifur Finnsson,
Helga Jóhanna Jósefsdóttir, Guðni M. Guðmundsson,
Jósef Smári Jósefsson, Elin Jeppesen,
Arndís Sveina Jósefsdóttir, Sverrir Geirmundsson,
Markús Betúel Jósefsson, Aðalheiður L. Úlfarsdóttir,
Arndís Björg Smáradóttir, Gísli Georgsson,
barnabörn og barnabarnabörn.