Morgunblaðið - 08.11.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hin magnþrungna
spennusaga um
Árna Magnússon
er ein mest selda
bókin á
Norðurlöndum.
Árni elst upp í
klaustri á 12. öld,
lærir vopnaburð
og verður stríðsmaður.
Leiðin til Jerúsalem
er framundan.
MILLJÓN EINTÖK SELD
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
SIR DAVID Attenborough áritaði
bækur íslenskra aðdáenda sinna í
bókabúð Eymundsson í Kringlunni í
gær. Sir David er hér á landi í boði
Iðunnar bókaforlags, sem gefur út
bók hans „Heimur spendýranna“. Ís-
lendingar létu sig ekki vanta og fjöl-
menntu í Kringluna til að berja aug-
um þennan dáða kvikmyndagerðar-
mann. Að sögn Sigurðar Svavars-
sonar hjá Iðunni mátti þarna sjá
lengstu biðröð sem starfsmenn Ey-
mundsson höfðu séð. „Fleiri hundr-
uð manns biðu þarna eftir áritun. Ég
held að Sir David hafi setið í um einn
og hálfan tíma við áritanir og þetta
hafi gengið vel upp. Áhuginn á hon-
um og verkum hans er alveg ótrú-
legur. Það er ljóst að margar kyn-
slóðir Íslendinga dá Sir David fyrir
náttúrulífsmyndir hans í gegnum
tíðina, en hann hefur verið að gera
náttúrulífsmyndir frá upphafsárum
sjónvarpsins.“
Attenborough áritaði bækur
Morgunblaðið/Þorkell
Sir David Attenborough áritaði bækur hundraða Íslendinga í bókabúð Ey-
mundsson í Kringlunni í gær. Áhugi fólks á honum var greinilega mikill.
TVÖ fjölbýlishús í Seljalandshverfi við botn
Skutulsfjarðar á Ísafirði voru rýmd um fimm-
leytið í fyrrinótt vegna hættu á aurflóði í kjölfar
mikillar úrkomu, en íbúar húsanna eru alls 45.
Vel gekk að rýma húsin og gistu flestir íbúanna á
hóteli og fengu að snúa aftur í húsin um kl. 11 í
gærmorgun, eftir að hættuástandi var aflýst. Al-
mannavarnanefnd hélt fund klukkan fjögur að-
faranótt föstudags og var ákveðið í framhaldinu
að rýma fjölbýlishúsin tvö. Húsin standa við
Múlaland en þar fyrir ofan standa yfir fram-
kvæmdir við gerð snjóflóðavarnagarðs. Þar hef-
ur miklu efni verið komið fyrir til að gera fláa á
garðinn og í mikilli rigningu er talin veruleg
hætta á að stór hluti þessa efnis geti runnið af
stað.
Jóna Kristín Kristinsdóttir býr ásamt syni
sínum í einni íbúð fjölbýlishússins í Múlalandi 12
og segist hafa vaknað við það klukkan 5 í fyrri-
nótt að lögreglan var að banka á dyrnar og biðja
fólk um að yfirgefa húsið vegna yfirvofandi
hættu á aurflóði. „Mér brá ekki neitt vegna þess
að það er svo mikil leðja hérna og hefur varla
mátt rigna pínulítið, þá er allt farið að leka
hérna niður. Þannig að það er ekki skrýtið að
þetta geti farið af stað þegar það rignir svona
mikið, en það rigndi alveg svakalega mikið í nótt.
Það er auðvitað alltaf leiðinlegt að láta vekja sig
upp á nóttunni, en við reyndum bara að vera fljót
út til að vera ekki að þvælast hérna ef eitthvað
færi af stað, enda vissum við ekkert um það,“
sagði Jóna Kristín í samtali við Morgunblaðið.
„Það lekur hér leðjan og drullan niður á veg-
inn, en það eru ekki stór stykki að fara. Það var
mjög mikill vatnsflaumur um nótt-
ina hérna beggja megin við blokkina
og alveg niður undir Skutulseyrar-
braut.“
Jóna Kristín segist hafa farið á
eigin bíl á hótelið um nóttina og ekið
síðan heim aftur yfir leðjuna um
klukkan 11 um morguninn, en þá var
búið að ryðja mestu af veginum. „En
það kemur alltaf jafnóðum, þetta er
svo leirkennt þegar vatnið er svona
mikið. Garðurinn sjálfur haggast
hins vegar ekkert, hann er bara úr
grjóti, þetta er bara efni sem er búið
að ýta hérna utan með garðinum.“
Að sögn Jónu voru þau mæðgin
fegin að vera komin heim og von-
uðust eftir að þurfa ekki að rýma
húsið aftur. Vettvangsstjóri og
fulltrúi Veðurstofu Íslands mátu
ástandið þannig að ekki væri hætta á
skriðuföllum meðan úrkoman væri ekki mikil, en
Almannavarnanefnd Ísafjarðar mun áfram fylgj-
ast með aðstæðum.
Tvö fjölbýlishús á Ísafirði voru rýmd vegna hættu á aurflóði í fyrrinótt
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Horft upp Múlaland að fjölbýlishúsunum tveimur, en varnargarðurinn er til hægri ofan við húsin.
„Við reynd-
um bara
að vera
fljót út“
Ólafur Halldórsson, Sigurlaug Ingimundardóttir og Jóna
Kristín Kristinsdóttir (lengst til hægri) fengu að snúa heim í
gærmorgun eftir að hafa gist á hóteli hálfa nóttina.
MIKIÐ flóð myndaðist í Jökulsá í
Fljótsdal í gær, rétt innan við Val-
þjófsstað, og vatnsborð Lagarfljóts
hækkaði verulega. Starfsmenn
RARIK opnuðu framhjáhlaupslok-
ur rétt innan við Lagarfossvirkjun
til þess að hleypa út vatni og voru
þær hafðar opnar í gærdag. Stöðva
varð framkvæmdir við Fáskrúðs-
fjarðargögn í um þrjá tíma í Reyð-
arfirði í gærmorgun vegna vatns-
flóðs en skemmdir voru ekki taldar
miklar.
Þá ruddi vatnsflaumur niður
varnargarði ofan við búðir starfs-
manna Fosskrafts, verktakans sem
vinnur að gangagerð fyrir stöðv-
arhús Kárahnjúkavirkjunar í
Teigsbjargi. Komust starfsmenn
ekki í vistarverur sínar um tíma en
engin hætta var sögð á ferðum.
Einhverjar skemmdir urðu þó á
vinnubúðum.
Fært var orðið um alla helstu
vegi á Austurlandi í gærkvöld enda
hafði stytt þar upp. Nokkur hætta
var talin á skriðuföllum á suður-
fjörðum og í Reyðarfirði. Hliðar-
vegir innst inni í Fljótsdal voru þó
enn í sundur síðast þegar fréttist.
Grannt fylgst með
varnargörðum við Jöklu
Vatnsborð Jökulsár á Dal, eða
Jöklu eins og áin er gjarnan nefnd,
hækkaði einnig nokkuð í gær vegna
hlýindanna. Sem kunnugt er verður
áin stífluð við Fremri-Kárahnjúk
og vegna leysinganna fylgdust
starfsmenn Impregilo grannt með
varnargörðum í ánni í gær, við
munna hjáveituganganna.
Að sögn Ómars R. Valdimars-
sonar, talsmanns Impregilo, var
fleiri dælum komið fyrir aftan við
varnargarðana, sem eru í 458
metra hæð yfir sjó á meðan Jökla
er á þessum slóðum almennt í um
451 metra hæð. Rennsli árinnar var
í gær um 250 rúmmetrar á sek-
úndu. Ómar segir að ekki hafi þótt
ástæða í gær til að hækka varn-
argarðana.
Vegna leysinga og hálku á vegum
hafa ferðir starfsmanna um virkj-
anasvæðið, og frá því, verið tak-
markaðar. Ómar segir þetta vera
gert af öryggisástæðum og þurfa
starfsmenn að gefa sig fram við ör-
yggisfulltrúa Impregilo ætli þeir
sér að ferðast á milli staða.
Stöðva varð framkvæmdir við
Fáskrúðsfjarðargöng í um þrjár
klukkustundir í gærmorgun vegna
vatnsflóðs Reyðarfjarðarmegin og
tók það starfsmenn Ístaks einn til
tvo klukkutíma að ná að hemja flóð-
ið. Að sögn Ásgeirs Loftssonar hjá
Ístaki grófst undan skrifstofu fyr-
irtækisins og þá fór vatn umhverfis
vinnubúðir starfsmanna. Eitthvað
af fyllingu vegarins Reyðarfjarðar-
megin skolaðist út í sjó en Ásgeir
taldi þó að tjónið væri minniháttar.
Unnið var að því að keyra í veginn
sem fór í sundur í gærkvöldi.
Skemmdir og tafir vegna
vatnsflóða fyrir austan UMSÓKNARFRESTUR um stöðuráðuneytisstjóra í sjávarútvegs-
ráðuneytinu rann út hinn 6. nóv-
ember síðastliðinn. Fimm sóttu um
stöðuna, þau Dagur Björn Agnars-
son sjávarútvegsfræðingur, Stefán
Eiríkur Stefánsson, vélaverkfræð-
ingur B.Sc. og líffræðingur B.Sc.,
Valgerður Kristjánsdóttir fram-
kvæmdastjóri, Viðar Helgason fiski-
fræðingur og Vilhjálmur Egilsson
hagfræðingur.
Næstu áramót verða nokkrar
hrókeringar á ráðuneytisstjórum
milli ráðuneyta. Þorsteinn Geirsson,
fráfarandi ráðuneytisstjóri í sjávar-
útvegsráðuneytinu, verður á ný
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu. Björn Friðfinnsson, ráðu-
neytisstjóri í dóms- og kirkjumála-
ráðuneyti, mun þá fara aftur yfir í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
Fimm sóttu
um ráðuneyt-
isstjórastöðu
ÁRNI Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar og formaður samgöngu-
nefndar, átti viðræður við Sturlu
Böðvarsson samgönguráðherra í síð-
ustu viku um hvernig staðið yrði að
undirbúningi við gerð Sundabrautar.
„Við sammæltumst um það að á
næstu dögum myndum við setjast
niður formlega til þess að fara yfir
það hvernig borgin og ríkið myndu í
framhaldinu halda á þessum viðræð-
um sín í milli til þess að ná niðurstöðu
í þetta mál,“ upplýsti Árni á borgar-
stjórnarfundi á fimmtudag. Þá verði
ákveðið hvernig hægt sé að leiða
þessa framkvæmd til lykta fljótlega.
Rætt um tvær leiðir
og jarðgöng
Árni sagði ekki búið að ákveða
hvernig Sundabraut muni liggja.
Helst er rætt um tvær leiðir, sem kall-
aðar hafa verið innri og ytri leið.
Einnig er uppi hugmynd um jarð-
göng. Árni segir matsskýrslur fyrir
þessar leiðir til yfirlestrar hjá sam-
gönguyfirvöldum. Að því loknu fari
þær allar í umhverfismat og ekki
verði tekin afstaða til neinnar þeirra
áður. Allir kostirnir þrír verði lagðir
hlutlaust inn til Skipulagsstofnunar
og síðan tekin afstaða til þeirra.
„Ég er bjartsýnn á að þeirri bið-
stöðu, sem hefur verið í þessu máli að
undanförnu, fari nú senn að ljúka. Ég
vonast að sjálfsögðu til þess að það
geti orðið góð samstaða um þá nið-
urstöðu sem fæst. Einnig við borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.“
Formlegar
viðræður
um Sunda-
braut
♦ ♦ ♦