Morgunblaðið - 08.11.2003, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
G
REIN vísindamanna Íslenskrar erfðagrein-
ingar um tengsl BMP2 erfðavísis og bein-
þynningar hefur vakið mikla athygli erlend-
is en greinin var birt í byrjun vikunnar í
vefútgáfu tímaritins Public Library of
Science Biology. Í greininni kemur m.a.
fram að breytileiki í þessum erfðavísi þre-
faldi hættuna á beinþynningu og að fyr-
irbyggjandi aðgerðir geti dregið verulega úr líkunum á því að
fólk í áhættuhópi fái sjúkdóminn á efri árum. Niðurstöður
rannsóknar ÍE gera kleift að þróa greiningarpróf sem finnur
þá einstaklinga sem eru með þennan tiltekna breytileika og í
framhaldinu að gera viðeigandi ráðstafanir til að draga úr lík-
um á að verða fyrir beinþynningu. Greiningarprófið, sem ÍE
hefur verið að þróa í samvinnu við Roche Diagnostics, verður
að líkindum fyrsta varan sem fyrirtækið kemur á markað og
markar því ákveðin tímamót hjá ÍE. Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar, sagði í samtali við Morgunblaðið
að fyrirtækið væri nú að komast yfir erfiðasta hjallann og á
næstu vikum og mánuðum mundi ÍE birta fleiri athyglisverðar
niðurstöður.
Nú í vikunni hafa fréttir um niðurstöðurnar birst í helstu
blöðum og tímaritum í Bandaríkjunum og m.a. fjallaði New
York Times um málið á forsíðu. Beinþynning er mjög alvarlegt
heilbrigðisvandamál og í Bandaríkjunum eru yfir milljón bein-
brot á ári rakin til þessa sjúkdóms og kostnaður bandaríska
heilbrigðiskerfisins af beinþynningu er talinn nema rúmum 10
milljörðum Bandaríkjadala á ári hverju.
Að sögn Kára Stefánssonar eru þessar niðurstöður mjög
spennandi og gætu hjálpað mjög við að draga úr líkum á því að
fólk fái þennan sjúkdóm. „Ef þú ert með þessar breytur í þess-
um erfðavísi þrefaldar það líkurnar á að þú fáir beinþynningu,
sem er eitt af stóru heilbrigðisvandamálum kvenna eftir tíða-
hvörf. Það er þó ekki einskorðað við konur því karlmenn geta
fengið þetta líka,“ segir Kári.
Hann segir erfðavísinn búa til eggjahvítuefni sem hvetur til
myndunar beina og að talsverð vitneskja hafi verið fyrir um
þetta tiltekna eggjahvítuefni og hvernig það hefur áhrif á bein
og frumur. „Þannig að við það eitt að sýna fram á að þetta er
erfðavísir sem leiðir til sjúkdómsins, þá erum við búnir að setja
hann í samhengi við mikið gagnasafn um þetta eggjahvítuefni,
sem getur orðið mjög spennandi.“
Kári segir að þótt niðurstöður sem þessar liggi fyrir sé al-
mennt ekki þar með sagt að hægt sé að nýta slíka uppgötvun. Í
þessu tilviki sé það hins vegar ekki mikið verk og niðurstöð-
urnar geti hjálpað til að finna þær konur, sem hafa tilhneig-
ingu til að fá beinþynningu, með greiningaprófi. „Það skiptir
máli vegna þess að þær konur sem hafa þessa tilhneigingu
geta breytt lífsstíl sínum og dregið úr líkum á sjúkdómnum,
með því til dæmis að borða betur, taka inn meira kalsíum, með
því að hreyfa sig meira og jafnvel með því að taka lyf sem til
eru á markaðnum. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að arf-
gerð tilhneiging verði að sjúkdómi.“
Óskynsamlegt að nota markaðinn
einan sem mælikvarða
Síðustu mánuði hafa ÍE og Roche Diagnostics unnið að þró-
un greiningaprófs til að finna þá einstaklinga sem eru með
þennan tiltekna breytileika og segir Kári að vonir standi til að
slíkt próf verði komið á markað á næsta ári. „Við höfum verið
að vinna að þessu með fyrirtæki sem heitir Roche Diagnostics í
Kaliforníu og það hefur gengið vel. Þetta þýðir að við erum
búnir að taka þessar grundvallarrannsóknir sem við erum að
gera og búa til úr þeim vöru sem fer á markað, sem er geysi-
lega mikilvægt skref fyrir okkur. Þetta greiningarpróf verður
að öllum líkindum fyrsta varan sem við komum á markað,“
segir Kári.
Á dögunum kynnti Íslensk erfðagreining afkomu fyrirtæk-
isins á þriðja ársfjórðungi, þar sem fram kom að hagur þess
hefur batnað verulega frá síðasta ári og tekjur aukist um 48%
á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra.
Aðspurður hvort ÍE væri nú í mikilli uppsveiflu sagðist Kári
leggja á það áherslu við sitt starfsfólk að það byggi til sitt eigið
innra verðmætamat en sæki ekki allan mælikvarða um árang-
ur í ytra umhverfi.
„Við erum að vinna nákvæmlega sams konar vinnu og við
vorum að vinna meðan markaðurinn mat okkur miklu minna.
Ég held að það sé óskynsamlegt að nota markaðinn einan sem
mælikvarða, því þá hefði í raun ekkert gerst hjá okkur annað
en við hefðum bara verið til. Markaðurinn hlustaði ekki á nein-
ar góðar fréttir í tvö til þrjú ár en var með eyrað á jörðinni að
hlusta eftir vondum fréttum, hvort sem þær voru sannar eða
lognar,“ segir Kári.
Erum að komast yfir erfiðasta hjallann
Hann segir starfið innan fyrirtæksins ganga mjög vel, eins
og það hafi reyndar gert mjög lengi, en nú hilli hins vegar und-
ir að menn njóti uppskeru erfiðisins. „Nú erum við að sjá
ávextina af þessari ágætu vinnu undanfarinna ára. Við erum
komnir í þá aðstöðu að geta birt niðurstöður af því sem við er-
um að búa til og þar með tryggt okkur þann einkaleyfarétt
sem við þurfum á að halda til þess að geta haldið utan um okk-
ar vöruþróun. Þetta hefur gengið mjög vel og það eru fréttir í
vændum sem ég vonast til að geta sagt frá á næstu vikum og
mánuðum af svipuðum niðurstöðum, sem við erum að koma í
birtingarhæft form. Það er spennandi að vinna á slíkum vinnu-
stað þegar hlutir ganga á þennan hátt.
Að sögn Kára er vandinn við þennan iðnað að afar langur
tími líður frá því að grundvallarhugmyndin kemur fram og í
framhaldinu uppgötvunin þar til að vara er tilbúin á markað.
„Þannig að þetta er maraþon, en ekki spretthlaup, og reynir á
þolrifin í fólki. En ég held að við séum komnir yfir erfiðasta
hjallann, þ.e. að komast frá því að vera alveg nýtt fyrirtæki
með hugmynd yfir í það að vera fyrirtæki með mjög góð vís-
indi, sem búið er að tengja við vöru. Ég er alveg handviss um
að vinnan innan fyrirtækisins mun halda áfram að batna og við
höldum áfram að þoka fleiri niðurstöðum nær vörum á mark-
aði,“ segir Kári.
En munu þá umsvif fyrirtækisins aukast á næstu misserum?
„Við verðum að breyta eðli fyrirtækisins og bæta við það.
Hversu mikið við komum til með að bæta við það markast ann-
ars vegar af verkefnum sem á okkur hvíla og hins vegar af vilja
umhverfisins til að fjármagna þau verkefni. En ég reikna með
því að ef eitthvað kemur til með að breytast, þá muni fyr-
irtækið stækka.“
Frá stofnun fyrirtækisins hefur Íslensk erfðagreining verið
umdeild og segir Kári að fyrirtækið hafi um skeið lent í mjög
mikilli samfélagsumræðu sem hafi að miklu leyti skyggt á það
starf sem í raun fer fram innan veggja ÍE. „Það hefur hins
vegar ekki gert það erlendis og ef þú lítur á þau fyrirtæki sem
voru stofnsett um svipað leyti og við, þá eru fæst þeirra eftir
og flest þeirra horfin.“
Íslensk erfðagreining talin hafa umtalsvert forskot
Það mál sem vakið hefur hvað mestar deilur hér á landi
varðandi Íslenska erfðagreiningu er uppbygging gagnagrunns
á heilbrigðissviði sem ÍE samdi um við heilbrigðisyfirvöld á
sínum tíma. Hins vegar er gagnagrunnurinn ekki enn kominn í
gagnið tæpum fjórum árum eftir að samningar náðust og að
sögn Kára er lítið að gerast í þeim málum í dag.
„Það er allt í járnum, en ég vil leggja áherslu á að þær upp-
götvanir sem við erum að gera núna byggjast á því að nota
sömu grundvallarhugmyndina og við höfum nýtt okkur hingað
til, að ná eins heildstæðum upplýsingum og hægt er um
ákveðna hópa varðandi sjúkdóma og erfðir. Nú eru menn að
setja saman gagnagrunna á heilbrigðissviði úti um allan heim
á grundvelli þessarar hugmyndafræði, en hér sitjum við fjór-
um til fimm árum síðar vegna þess að skriffinnar hafa haldið
þessu í gíslingu allan tímann. Ef gagnagrunnurinn kemst á
koppinn er ég eiginlega handviss um að hann kemur til með að
bæta aðstöðuna hér enn meir og ekki bara fyrir Íslenska
erfðagreiningu, heldur fyrir alla þá sem vilja fást við lækn-
isfræðilegar rannsóknir og nota til þess íslenskar upplýs-
ingar,“ segir Kári.
Í frétt New York Times um niðurstöður ÍE varðandi bein-
þynningu segir m.a. að fyrirtækið hafi umtalsvert forskot á
önnur fyrirtæki sem sinna svipuðum rannsóknum. Kári segist
hafa sagt í langan tíma að Íslensk erfðagreining sé sú stofnun í
heiminum sem sé hvað best hæf til að einangra erfðavísa í al-
gengum sjúkdómum. „Þannig að fyrir mér eru það engar nýj-
ar fréttir og ég trúi því ekkert frekar þó að það birtist í New
York Times. Það bendir hins vegar til þess að það séu aðrir
sömu skoðunar.“
Niðurstöður Íslenskrar erfðagreiningar varðandi erfðavísi tengdum beinþynningu vekja mikla athygli
Forstjóri ÍE telur fyrirtækið
komið yfir erfiðasta hjallann
Morgunblaðið/Þorkell
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Beinþynning er afar stórt heilbrigðis-
vandamál og talið að rekja megi yfir
milljón beinbrot til sjúkdómsins á ári
hverju í Bandaríkjunum. Niðurstöður
Íslenskrar erfðagreiningar um tengsl
BMP2-erfðavísis og beinþynningar
hafa því vakið mikla athygli. Eiríkur
P. Jörundsson ræddi við Kára
Stefánsson, forstjóra ÍE, um þýðingu
þessarar uppgötvunar og stöðu
Íslenskrar erfðagreiningar í dag.
eirikur@mbl.is
PÁLL Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, hefur sent Morgunblaðinu eft-
irfarandi yfirlýsingu vegna umræðu
um skólagjöld á háskólastigi.
„Það er rangt, sem fram hefur
komið í fjölmiðlum undanfarið, að há-
skólarektor hafi lagt til að tekin verði
upp skólagjöld við Háskóla Íslands.
Á undanförum árum hafa stjórn-
völd heimilað skólum á háskólastigi
sem reknir eru sem sjálfseignastofn-
anir að innheimta skólagjöld af nem-
endum sínum til viðbótar við opinber
framlög sem þeir fá vegna kennslu.
Háskólum í eigu ríkisins er hins veg-
ar bannað með lögum að innheimta
slík gjöld.
Af þessu leiðir lögvarinn aðstöðu-
mun í öflun fjár til kennslu milli rík-
isháskóla og ríkisrekinna einkaskóla
sem þekktist líklega hvergi í ná-
grannalöndum okkar og er viðunandi
fyrir ríkisháskólana.
Þessi ójafna samkeppnisaðsstaða
milli skóla á háskólastigi bitnar eink-
um á deildum og námsgreinum sem
eru í beinni samkeppni innbyrðis.
Þetta er jafnframt meginástæðan
fyrir því að viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla Íslands hefur formlega
óskað eftir því að fá heimild til að inn-
heimta skólagjöld í meistaranámi við
deildina.
Á það hefur verið bent að Háskóli
Íslands fái ríkisframlag til rannsókna
sem aðrir háskólar fái ekki í sama
mæli. Sú staðreynd breytir engu um
samkeppnisstöðu Háskólans hvað
varðar fjármögnun kennslu því að
rannsóknarstarfsemi hans er rekstr-
arlega sjálfstætt lögbundið verk-
efni.“
Yfirlýsing frá rektor Háskóla Íslands
Aldrei gert tillögu
um skólagjöld við HÍ
FORRÁÐAMENN Sláturfélags
Suðurlands, SS, óskuðu í gær eftir
greiðslustöðvun fyrir gamla Reykja-
garð sem félagið keypti nýlega.
Verður afstaða tekin til beiðninnar í
Héraðsdómi Reykjavíkur eftir
helgi.
Leita á nauðasamninga við helstu
lánardrottna og að sögn Steinþórs
Skúlasonar, forstjóra SS, eru vonir
bundnar við að náist að greiða um
helming krafna ef um semst.
Stærstu lánardrottnar eru Búnað-
arbankinn-Kaupþing og síðan fóð-
ursalar. SS hefur stofnað nýtt félag
með sama nafni en annarri kenni-
tölu um rekstur Reykjagarðs. Stein-
þór segir engin önnur áform uppi
en að halda rekstri Reykjagarðs
áfram, en þar starfa 60–70 manns í
dag. Nýja félagið sé verulega skuld-
sett en hlutafé hafi verið aukið.
Milljarðatap á kjötmarkaðnum
„Við teljum félagið hafa alla burði
til að halda áfram rekstri. Þetta
upplausnarástand sem ríkt hefur á
markaðnum ætti að fara að taka
enda,“ segir Steinþór, sem telur að
frá ársbyrjun 2001 hafi fyrirtæki á
kjötmarkaði tapað nærri þremur
milljörðum króna og bændur tapað
um milljarði króna á sama tíma með
tilliti til verðlækkunar á svínakjöti,
lambakjöti, nautakjöti og kjúkling-
um. Alls hafi þessi kjötgrein sem
slík tapað hátt í fjórum milljörðum
króna. Steinþór segir að frekari
uppstokkunar megi vænta á mark-
aðnum næstu vikur.
Gamli Reykjagarð-
ur í greiðslustöðvun