Morgunblaðið - 08.11.2003, Qupperneq 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
FULLTRÚAR þeirra
íslensku fyrirtækja sem
tóku þátt sjávarútvegs-
sýningunni China Fish-
eries and Seafood Expo
í Shanghai í Kína sem
lauk nýverið voru nokk-
uð ánægðir með þann
árangur sem náðist á
sýningunni, að sögn
Vilhjálms J. Árnasonar,
starfsmanns Útflutn-
ingsráðs Íslands. Sjö ís-
lensk fyrirtæki voru á
bás sem Úflutningsráð
Íslands skipulagði, en
flest íslensku fyrir-
tækin sem voru nú á
sýningunni hafa tekið
þátt í henni áður og eru
viðskiptin við Kína orð-
in mikilvægur þáttur í
starfsemi þeirra. Þetta
er í áttunda skipti sem
þessi sýning fer fram,
en hún hefur stækkað
ár frá ári og nú, eins og
í fyrra, var sett nýtt met í fjölda sýn-
enda.
China Fisheries and Seafood
Expo fer fram árlega og er stærsta
sýning er tengist sjávarútvegi og
fiskeldi í Asíu og eru sýnendur bæði
að kynna fiskafurðir og tæki, búnað
og þjónustu fyrir vinnslu, útvegs- og
eldisaðila. Íslensku fyrirtækin sem
tóku þátt í sýningunni leggja áherslu
á viðskipti með fiskafurðir voru
Asiais Ltd., E. Olafsson Ltd., Ice-
landic Export Center og Icelandic
Japan K.K. Þau fyrirtæki sem voru
að bjóða tæki og búnað voru Sæ-
plast, Style International og Póls.
„Enn sem komið er er meginhluti
viðskipta Íslendinga við Kínverja út-
flutningur á sjávarafurðum, en
karfa-, grálúðu- og rækjuafurðir eru
þar fyrirferðarmestar. Fyrirtæki
eru þó í auknum mæli einnig að
kaupa inn afurðir frá Kína og að láta
vinna fyrir sig afurðir þar,“ segir
Vilhjálmur Jens.
Kína sífellt fýsilegri kostur
Á þeim átta árum sem liðin eru
síðan China fisheries and Seafood
sýningin var fyrst haldin hefur orðið
mikil breyting á viðskiptum Kín-
verja með fiskafurðir. „Alþjóða-
viðskipti þeirra hafa tvöfaldast og
Kínverjar eru nú þriðja stærsta
þjóðin í viðskiptum með fisk í heim-
inum með um sjö milljarða dollara
viðskipti á ári. Kínverjar eru einnig
með hverju árinu sem líður að verða
fýsilegri viðskiptaaðili og fag-
mennska í viðskiptum stöðugt að
verða þar meiri. Aðstæður til
geymslu á fiskafurðum eru að verða
betri og dreifileiðir eru að verða ein-
faldari. Erlendar stórmarkaðs-
keðjur hafa sett upp útibú í Kína og
með þeim kemur aukin krafa um
gæði og áreiðanleika. Kaupgetan
eykst frá ári til árs og áhugi á að
neyta nýrra fisktegunda hjá almenn-
ingi vex eftir því sem ferðafrelsi
verður meira og fólk í sveitum kemst
meira í snertingu við borgarlífið.
Þrátt fyrir mikla eigin framleiðslu,
en Kínverjar eru stærsta fram-
leiðsluþjóðin á fiskafurðum og fram-
leiða rúmlega 45 milljónir tonna af
fiskafurðum á ári, hefur innflutn-
ingur verið að aukast. Þrátt fyrir
þennan vöxt hafa ýmis áföll dunið
yfir og í ár var til dæmis ekki víst
hvort af sýningunni yrði vegna
bráðalugnabólgunnar sem upp kom í
Kína síðasta vetur, en þá dróst eft-
irspurn eftir sjávarafurðum saman
þegar aðsókn að veitingahúsum
minnkaði verulega. Markaðurinn
virðist þó hafa náð að rétta úr kútn-
um og því var lýst yfir í júlí sl. að
tekist hefði að ná tökum á bráða-
lungnabólgunni og sýningin var
haldin með metfjölda fyrirtækja sem
voru um 700, en gestir voru rúmlega
12.000 frá 40 löndum samkvæmt töl-
um frá sýningarhöldurum,“ segir
Vilhjálmur.
Auk íslensks þjóðarbáss voru m.a.
þjóðabásar frá Bretlandi, Banda-
ríkjunum, Kanada, Noregi, Indlandi
og Víetnam. Sýningin er haldin ár-
lega, en gjarnan á ólíkum stöðum.
Þannig hefur sýningin verið í Pek-
ing, Qingdao, Shanghai og Dalian,
en allt eru þetta borgir þar sem er
mikil framleiðsla eða viðskipti með
sjávarafurðir. Næsta sýning mun
fara fram 3.-5. nóvember á næsta ári
og verður haldin í Qingdao í Shand-
ong-héraði.
Íslenski sýningarbásinn á kínversku sjávarútvegssýningunni.
Vel heppnuð
sýning í Kína
Beril Xiao og Eyþór Ólafsson, starfsmenn út-
flutningsfyrirtækisins E. Ólafsson ehf., á bás fyr-
irtækisins á kínversku sjávarútvegssýningunni.
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá
Bjarna Ákasyni, fyrrverandi
framkvæmdastjóra ACO hf.:
„Í kjölfar skoðunar KPMG á
samrunareikningi ACO og
Tæknivals vill undirritaður koma
eftirfarandi á framfæri:
Skarphéðinn Berg Steinars-
son, stjórnarformaður ATV hf.,
hefur farið hamförum nú á
haustdögum um að efnahags-
reikningur ACO hf. hafi, við
sameiningu félagsins við Tækni-
val hf., verið rangur og gert því
skóna að sameiginlegir hluthafar
beggja félaga þ.e.a.s. Opin Kerfi,
Íslandsbanki og Búnaðarbankinn
hafi sett þetta á svið og þá lík-
legast framkvæmdastjóri ACO
hf. séð um verknaðinn. Jafnframt
hefur Skarphéðinn þessi haldið
því fram að rekstur ACO hf. hafi
verið rjúkandi rústir við samein-
inguna.
Þetta er alrangt og hafa 2 virt-
ar endurskoðunarstofur skriflega
staðfest að svo sé ekki. Rekstur
ACO hf. var langt því frá rústir
einar og má því til sönnunar
benda á að félagið hafði verið
rekið samfellt um 2ja áratuga
skeið með hagnaði og kom með
traustan og endurskoðaðan efna-
hag inn í sameininguna við
Tæknival hf. þegar afskrifað var
við sameininguna var tekin 181
milljón Tæknivalsmegin en 53
milljónir ACO megin. Eftir sam-
eininguna var ákveðið að auka
ennfrekar við afskriftir og voru
afskrifaðar 70 milljónir af birgð-
um auk 30 milljóna vegna
óvæntra krafna sem komu upp
Tæknivalsmegin.
Allar afskriftir voru réttilega
tilkynntar til Kauphallar Íslands
og getur núverandi stjórn ekki
stært sig með villandi orðalagi af
að reikningar félagsins séu réttir
fyrst NÚNA. Þeir voru alltaf
réttir og hafa verið áritaðir af
endurskoðanda félagsins í sam-
ræmi við það. Ef núverandi
stjórn ATV hf. telur hins vegar
enn að reikningar félagsins séu
rangir verða þeir að gegna
skyldum sínum sem stjórnar-
menn og sjá til þess að félagið
verði áfram á athugunarlista. Af
einhverjum
orsökum er það þó ekki, sem
sýnir hversu mótsagnakenndar
fullyrðingar fyrirsvarsmanna
þess eru.
Eftir sameiningu félaganna
íhuguðu sumir hluthafa ACO hf.
möguleika á riftun sameiningar-
innar eða kröfur um breytt
skiptihlutföll þar sem staða
Tæknivals hf. var mun verri en
gert hafði verið ráð fyrir. Ekki
var þó farið í aðgerðir þar sem
talið var að erfitt væri af laga-
tæknilegum ástæðum að láta
sameininguna ganga til baka eða
sækja frekari rétt vegna óhag-
stæðra skiptihlutfalla hluthafa
ACO hf. Hins vegar var ljóst í
huga hluthafa ACO hf. að ef á
einhvern hallaði í sameiningunni
þá voru það hluthafar ACO hf. á
þeim tíma.
Með þetta í huga er með ólík-
indum að Skarphéðinn Berg
komi fram fyrir hönd stjórnar
með þessum hætti og er ekki
annað hægt en vona að van-
þekking hafi á einhvern hátt
ruglað Skarphéðinn í ríminu,
frekar en ásetningur um ósann-
sögli og rangfærslur. Þó að
Skarphéðinn hafi hlaupið á sig
með þessu þá hefur hann því
miður, þrátt fyrir nýlega skýrslu
KPMG, ekki séð ástæðu að biðja
hlutaðeigandi aðila afsökunar og
væri hann maður meiri ef hann
gerði það.“
Yfirlýsing frá fyrrverandi
framkvæmdastjóra ACO
ATVINNA
mbl.isFASTEIGNIR mbl.is