Morgunblaðið - 08.11.2003, Síða 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 23
Mosfellsbæ | Nú eru um 20 áhuga-
samir foreldrar og starfsmenn leik-
skóla á námskeiði í Mosfellsbæ sem
ber yfirskriftina „Að alast upp aftur,
annast okkur sjálf, annast börnin
okkar“. Námskeiðið, sem er haldið á
vegum Skólaskrifstofu Mosfells-
bæjar, byggir á hugmyndafræði sem
kynnt er í samnefndri bók eftir þær
Jean Illsley Clarke og Connie Daw-
son.
Námskeiðið fer fram í Lágafells-
skóla, einu sinni í viku í sex skipti.
Leiðbeinendur eru Gunnhildur Sæ-
mundsdóttir leikskólafulltrúi og
Hulda Sólrún Guðmundsdóttir sál-
fræðingur. Á námskeiðinu er lögð
megináhersla á þarfir barna fyrir
örvun, viðurkenningu og öryggi.
Auk þess er fjallað um þá staðreynd
að uppeldishæfni er ekki sjálfgefinn
eiginleiki en allir geta bætt sig í upp-
eldishlutverkinu.
Markmiðið með námskeiðinu í
Mosfellsbæ er að veita tækifæri og
leiðir til virkra umræðna um uppeld-
ismál meðal foreldra í bænum.
Skólaskrifstofan stefnir að því að
bjóða foreldrum í bænum reglulega
upp á að taka þátt í námskeiðinu.
Námskeið fyrir
foreldra
Laugardal | Alla laugardaga í nóv-
ember geta börn komið með dótið
sitt á leikfangamarkað í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum. Á
markaðnum geta börnin selt leik-
föngin sín, eða skipt og fengið önn-
ur í staðinn.
Í Vísindaveröldinni verða settir
upp 15 sölubásar sem verða í boði
alla laugardaga í nóvember, hinn 8.
15. 22. og 28. Básinn kostar 1000
krónur og sölumenn eiga að vera
börn á aldrinum 6 til 12 ára. For-
eldrar og aðstandendur eru vel-
komnir með til að aðstoða. Sölu-
menn fá ókeypis aðgang og mega
bjóða fjölskyldu sinni með.
Krakkar eiga að koma með sölu-
varning sinn milli kl 11.00 og 11.30
að morgni söludags. Sölutjaldið
verður opið kl. 12.00–16.30.
Allar nánari upplýsingar má
finna á www.mu.is.
Miðborg | Stefán Jón Hafstein,
borgarfulltrúi og formaður menn-
ingarmálanefndar Reykjavíkur,
sagði að nákvæmlega ekkert pukur
væri í kringum fornleifarannsókn-
ina í Aðalstræti þar sem hótel á að
rísa. Fór hann ítarlega yfir fram-
kvæmdina á borgarstjórnarfundi á
fimmtudaginn og sagði fullkomlega
eðlilega að henni staðið. Stór orð
sjálfstæðismanna um hneyksli,
ófagleg vinnubrögð og vanvirðingu
við þjóðargersemar hefðu betur
verið ósögð. „Vinnubrögð við forn-
leifarannsóknina hafa í alla staði
verið vönduð og í víðtæku samráði
og samstarfi allmargra sérfræð-
inga og stofnana. Umræða fag-
manna um meðferð rústarinnar er
ekki pukur heldur alvarleg og
vönduð aðferð við að varðveita
menningarminjarnar sem allra
best,“ sagði Stefán Jón.
Björn Bjarnason og Kjartan
Magnússon, borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, hafa gagnrýnt að
borgarfulltrúum var ekki sagt frá
uppgötvun fordyris að fornum
skála á þessari lóð og ekki hafi ver-
ið tekin formleg ákvörðun um
stækkun rannsóknarsvæðisins.
Stefán Jón sagði kjarna málsins
að vísindamenn hefðu haldið áfram
að vinna á þann hátt sem samþykki
lá fyrir um. Fundist hefði viðbót við
þann skála sem áður var vitað um.
Það hefði verið mat vísindamanna
að sá fundur kollvarpaði ekki sam-
þykktu erindi þeirra og leyfi svo
mjög, að sækja yrði um endurnýjað
umboð til að sýna rústinni þann
sóma sem þeir gættu í hvívetna.
Sagði hann að aldrei hefði staðið
annað til en að kynna borg-
arfulltrúum fund fordyrisins. „En
hverju hefði það breytt að gera það
við fyrstu sýn eða þegar niður-
stöður um byggingasögulegt gildi
lágu fyrir?“ spurði Stefán Jón.
Illa staðið að málinu
Hann Birna Kristjánsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
sagði að R-listinn hefði ekki staðið
vel að þessu máli, hvorki nú né áð-
ur. Til marks um það þekktu borg-
arfulltrúar meirihlutans ekki til
málsins þegar það var til umræðu í
borgarráði. „Það var allur áhug-
inn,“ sagði hún. Kjartan Magnússon
sagði að samskiptin hefðu mátt
vera formlegri. Kjarni málsins væri
sá að þessar fornminjar væru varð-
veittar í kjallara hótels sem eitt-
hvert aukaatriðið. Með því sé stefnt
í hættu að þær komist á heims-
minjaskrá UNESCO.
Stefán Jón svaraði því til að
hvergi hefði heyrst rödd sem taki
undir orð Björns, sem sé fyrrver-
andi menntamálaráðherra. Full
ástæða sé til að taka alvarlega, að
rústin í Aðalstræti sé einstæð í sögu
mannskyns og eigi möguleika á að
komast á heimsminjaskrá. Íslend-
ingar hafi árum saman unnið að því
að koma Þingvellum á þá skrá, en
án árangurs. Skráin sé enginn
ferðamannabæklingur heldur
geymi merkustu minjar mannkyns.
Stefán Jón Hafstein segir vel staðið að fornleifauppgreftri
Heimsminjaskrá er enginn
ferðamannabæklingur
Morgunblaðið/Sverrir
Unnið við byggingu hótels á mótum Túngötu og Aðalstrætis í gærdag.
Mosfellsbæ | Ástæða þess að lögð
verða tvö hringtorg í stað mislægra
gatnamóta við tvöföldun Vestur-
landsvegar er fyrst og fremst fjár-
hagsleg að sögn Jónasar Snæbjörns-
sonar, umdæmisstjóra Vegagerðar-
innar. Hringtorgin verða tvöföld,
annað undir hlíðum Úlfarsfells þar
sem Korpúlfsstaðavegur mun tengj-
ast inn á Vesturlandsveg en hitt í
Reykjavík, nokkru norðar við Úlf-
arsá og mun tengja Hafravatnsveg
við Vesturlandsveg og tryggja að-
komu að þeirri starfsemi sem nú er
hinum megin við veginn.
Á borgarafundi í Mosfellsbæ sl.
miðvikudag kom fram óánægja með
fjölgun hringtorga en fyrir eru fjög-
ur hringtorg á Vesturlandsvegi og
verða sex að loknum framkvæmdum.
Jónas bendir á að mislæg gatna-
mót kosti um 3–400 milljónir á hvor-
um stað en hringtorg kosti í kringum
50 milljónir. „Hringtorgin koma til
með að anna umferðinni ágætlega
með litlum töfum næstu tíu til tólf ár-
in og jafnvel lengur.“
Tefur ekki sjúkraflutninga
Að sögn Jónasar er gert ráð fyrir
að gera mislæg gatnamót undir hlíð-
um Úlfarsfells á árunum 2011–2014
og að þá gæti komið til greina að
færa veginn frá fjallinu til að koma í
veg fyrir að hreyfa þurfi við hita-
veitustokk sem þar liggur. Mislæg
gatnamót við Hafravatnsveg verði
hins vegar lögð á árunum 2007–2010.
Jónas telur að hringtorgin ættu
ekki að tefja sjúkrabíla eða annað
svo um munar. „Hringtorgin eru
mjög rúm og við venjulegar aðstæð-
ur býst ég við að sjúkrabíll geti farið
býsna greitt í gegn ef það er ekki
þeim mun meiri umferð. Umferðar-
ljósagatnamót eru náttúrlega ólán
fyrir sjúkrabíla líka, þeir þurfa alltaf
að fara mjög varlega þar.“
Gert er ráð fyrir að framkvæmd-
irnar taki á annað ár og þeim verði
lokið árið 2005.
„Kostnaðaráætlun sem við erum
með núna er á milli 1.000 og 1.100
milljónir en fjárveitingar sem liggja
fyrir eru um 600 milljónir þannig að
það þarf einhverjar ráðstafanir hjá
samgönguráðuneytinu til að heimila
að við getum farið í þessar fram-
kvæmdir,“ segir Jónas.
Fleiri hringtorg
vegna fjárhags-
legra sjónarmiða