Morgunblaðið - 08.11.2003, Page 25
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 25
Selfossi | Aðfaranótt föstudags héldu 24 franskir nemendur og 3 kennarar
sem dvalið höfðu hjá nemendum og kennurum Fjölbrautaskóla Suðurlands
heim á leið eftir hálfsmánaðar dvöl á Íslandi. Dvölin er liður í samskiptum
menntaskóla í Staint Nazaire á Bretagneskaga og Fjölbrautaskóla Suður-
lands. Nemendaskiptin eru styrkt af Sókrates- Comenius-áætluninni og er
þema samskiptanna þjóðsögur og náttúruöflin. Þeir fóru m.a. norður í land
og á suðurströndina. Einnig sóttu þeir kennslustundir í skólanum og fengu
kennslu í íslensku. Í verkefninu er lögð áhersla á mikilvægi tungumálakunn-
áttu og þekkingar á öðrum löndum. Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands
heimsækja síðan Frakkland á vorönn 2004 og kynna sér franskar þjóðsögur
frá Bretagne og menningu Frakka. Hrefna Clausen og Vera Ósk Valgarðs-
dóttir frönskukennarar og Örlygur Karlsson skólameistari hafa umsjón með
samskiptunum af hálfu Íslendinga. Frönsku kennararnir sem hingað komu
heita Cathrine Gillet, Marie Lancien og Jean Michel Richardeau.
Frakkar kynntu sér þjóð-
sögur og náttúru Íslands
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hveragerði | Fyrsta áfanga nýs leikvallar við grunn-
skólann er lokið. Búið er að leggja hellur, tyrfa og setja
upp leiktæki fyrir yngsta aldurshópinn. Leiktækin eru
ekki alveg hefðbundin en samt hægt að kalla þau gömlu
góðu nöfnunum eins og róla og vegasalt. Vegasaltið er
þeim kostum búið að það fer bæði upp og niður og í
hring. Það eru því þó nokkrir sem hafa fengið kúlu á
höfuðið og sumum jafnvel orðið óglatt. Núna eru flestir
búnir að læra inn á nýju tækin og orðnir færir í að leika
sér, þannig að byrjunarörðugleikar heyra fortíðinni til.
Krakkarnir eru alsæl og segja að leikvöllurinn sé
skemmtilegri en sá gamli, sem var orðinn ansi lúinn.
Nýr og skemmtilegur leikvöllur
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir