Morgunblaðið - 08.11.2003, Qupperneq 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 29
Hvernig getur EBRD, Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu, nýst íslenskum fyrirtækjum?
Hvernig ber að sækja um fjármögnun til bankans?
Hvað er „Trade Facilitation program“ bankans?
Dagskrá:
8:10-8:15 Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, frú Valgerður Sverrisdóttir, ávarpar gesti.
8:15-8:30 Hr. Jean Lemierre, forseti Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu:
New opportunities for investments in Eastern Europe.
8:30-8:35 Hr. Sven Hegelund, Director of the Constituency of Sweden, Iceland and Estonia:
EBRD - The Constituency of Sweden, Iceland and Estonia.
8:35-8:50 Hr. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands hf. og fyrrum
aðstoðarframkvæmdastjóri hjá EBRD: Icelandic corporate sector:
Opportunities for cooperation with EBRD.
8:50-9:00 Umræður og fyrirspurnir.
9:15-9:35 Hr. Timo Hartikainen, Principal Banker, Business Development:
A practical approach to working with the EBRD.
9:35-9:55 Fr. Elina Roine, Associate Banker, Financial Institutions:
Trade Facilitation Programme - promoting trade in CEE and CIS.
9:55-10:15 Umræður og fyrirspurnir.
10:15 Lokaorð.
Fundarstjóri er Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
Aðgangur ókeypis. Óskað er eftir að þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í fundinum,
tilkynni þar um í s. 545 8500 eða á: postur@ivr.stjr.is.
Athygli er vakin á því að fyrirtækjum gefst kostur á einkafundum með sérfræðingum EBRD hinn
12. og 13. nóvember næstkomandi. Þeim, sem óska eftir slíkum fundi, er vinsamlegast bent á að hafa
samband við Jónínu S. Lárusdóttur í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, s. 545 8500 eða á postur@ivr.stjr.is.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti boða til morgunverðarfundar:
EBRD: Fjármögnun verkefna og ráðgjöf
í Austur-Evrópu og fyrrum Sovétríkjunum
Hótel Nordica, salur F og G
miðvikudaginn 12. nóvember kl. 8:10-10:15
EKKI þekki ég uppruna sögunnar
um indjánastúlkuna Litlu Ljót, sem
glöð og góð þjónustar fordekraðar og
hrokafullar systur sín-
ar þar til dís ein skrýðir
hana glitklæðum og
kemur í framhaldinu
vitinu fyrir systurnar.
Sagan hefur yfir-
bragð ævintýris, en
gæti eins verið frum-
smíð einhvers sem nýt-
ir sér ævintýrastílinn til
að koma boðskapnum
um innri og ytri fegurð
til skila. Hitt er ljóst að
tvær konur í Vest-
mannaeyjum, þær
Edda Antonsdóttir og
Halldóra Magnúsdótt-
ir, komu sögunni í leik-
búning og þar var verk-
ið sýnt 1981 og aftur nú.
Annars er vel hægt að finnast boð-
skapurinn tvíbentur í þessu verki
eins og mörgum öðrum sem ætlað er
að koma afdráttarlausum skila-
boðum til yngstu kynslóðarinnar.
Vissulega er hér boðuð ást og kær-
leikur, réttlæti og vinátta. En það er
samt sem áður hin ytri fegurð sem er
svo eftirsóknarverð, áður en hún er
til staðar virðist enginn geta séð hvað
Litla Ljót er góð. Og auðvitað er hún
falleg líka, það bara sá það enginn
fyrr en hún er komin í falleg föt.
Sigrúnu Sól lætur greinilega vel að
vinna með börnum og unglingum
eins og hér eru í flestum hlutverk-
anna og margir að stíga sín fyrstu
skref. Sýningin ber þessa vitaskuld
merki, kraftur og gleði er aðalsmerki
hennar en minna lagt upp úr fágun
og fínlegri tilfinningatúlkun. Þó hefði
kannski mátt leggja örlítið meiri
rækt við textaflutning, oft vantaði
herslumuninn á að allt kæmist til
skila. Eins var hlustun ekki alltaf
nægilega einbeitt, viðbrögðin komin
fram áður en setning mótleikarans
var fallin. Á móti kom að hóp- og
dansatriði voru prýðilega af hendi
leyst, og samspil leikenda og hljóm-
sveitar, sem hafði mikilvægu hlut-
verki að gegna, snurðulítið.
Skemmtilegar hugmyndir ein-
kenna sýninguna og víða er fært í
stílinn, brugðið út af leikgerðinni og
skírskotað til nútímans.
Þó að Litla Ljót sé titilhlutverkið
er það ekki að sama
skapi sérlega bitastætt
en Dorthy Lisa Wood-
land fór vel með það.
Hinar ótuktarlegu syst-
ur voru og prýðilega
leiknar af þeim Kol-
brúnu Birnu Ebenesar-
dóttur, Guðrúnu Hebu
Andrésdóttur og Lauf-
eyju Sigrúnu Sigmars-
dóttur. Einnig verður
að minnast á hinn
kostulega seiðskratta
Dulda Seið, sem Hjalti
Pálsson gerði öldungis
kostulega. Þá var túlk-
unin á dísinni, sem
reyndar eru þrjár í
þessari sýningu afar frumleg og
skemmtileg, og þær Kristín Gríms-
dóttir, Drífa Þöll Arnardóttir og Erla
Ásmundsdóttir hver annarri betri.
Umgjörð og búningar var hefð-
bundin og rétt, en þó með því
skemmtilega tilbrigði að þetta var af-
ar nútímalegt indjánaþorp, trúlega á
einu af bandarísku „verndarsvæðun-
um“ sem hýsa það sem eftir lifir af
þeim þjóðflokkum. Þetta var vel til
fundið, og ágætlega gegnumfært í
búningum og leikmunum.
Sýning Leikfélags Vestmannaeyja
er ágætis skemmtun, litrík og fjörug.
Fullur salur af börnum var einstak-
lega prúður á sýningunni sem und-
irritaður sá, fylgdist grannt með því
sem fram fór en var líka alveg til í að
taka þátt þegar leikendur buðu upp á
slíkt samspil. Litla Ljót er ágætlega
metnaðarfull barnasýning þar sem
Leikfélag Vestmannaeyja leggur
jafnt grunn að leikhóp og áhorfend-
um framtíðarinnar.
Af sálarlífi
systra
LEIKLIST
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikgerð: Edda Antonsdóttir og Halldóra
Magnúsdóttir, leikstjóri: Sigrún Sól
Ólafsdóttir. Félagsheimilinu í Vest-
mannaeyjum 2. nóvember 2003.
LITLA LJÓT
Þorgeir Tryggvason
Sigrún Sól Ólafsdóttir
NORRÆNI skjaladagurinn er í dag.
Þema skjaladagsins að þessu sinni er
líkami, heilsa og íþróttir. Sum söfnin
eiga samstarf við félög eða stofnanir
sem tengjast þema ársins. Sýning
flestra héraðsskjalasafnanna stend-
ur næstu þrjár vikur.
Þjóðskjalasafns Íslands, Laugavegi
162 kl. 11 Opnun sýningar á skjölum
frá landlæknisembættinu.
Héraðsskjalasafn Kópavogs Myndir
og skjöl tengd þema ársins á Café
Borg.
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar
Börn úr 6. bekkjum í Lágafellsskóla
hanna vefsíðu með texta og gömlum
ljósmyndum úr afmælisritum Aftur-
eldingar.
Héraðsskjalasafn Akranesskaup-
staðar kl. 13–16 Í Svöfusal á annarri
hæð Bókasafn Akraness verða sýnd-
ar myndir á stafrænu formi úr Ljós-
myndasafni Akraness sem tengjast
þema dagsins.
Snorrastofa í Reykholti kl. 13–17
Opið hús. Bergur Þorgeirsson, for-
stöðumaður Snorrastofu, flytja
stutta fyrirlestra um sögu og starf-
semi stofnunarinnar kl. 14 og 16.
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar,
Borgarnesi Skjöl og myndir úr fór-
um hestamannafélagsins Faxa sem
gefa innsýn í 70 ára sögu félagsins.
Héraðsskjalasafn Ísfirðinga Skjöl
Ungmenna- og íþróttafélaga.
Héraðsskjalasafnið á Akureyri Opið
hús. Fólk er hvatt til að skila inn
skjölum um efni til varðveislu á safn-
inu.
Héraðsskjalasafn Austfirðinga,
Egilsstöðum Skjöl úr einkaskjala-
safni Þórarins Sveinssonar, sem var
um árabil kennari við Alþýðuskólann
á Eiðum og kenndi þar m.a. leikfimi.
Héraðsskjalasafn Austur-Skafta-
fellssýslu Gerðarbækur og önnur
skjöl Ungmennafélagsins Úlfljóts.
Fjöldi ljósmynda og gögn frá öðrum
félögum sem létu sig varða heilbrigði
og hreysti.
Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja
kl. 13–16 Safnið varðveitir m.a. gögn
um sundkennslu í Vestmannaeyjum
allt frá 1910 og um starfsemi Ung-
mennafélags Vestmannaeyja 1927–
29.
Sjá nánar: www.skjaladagur.is
Norræni
skjala-
dagurinn
Á TÓNLEIKUM 15.15, tónleikarað-
arinnar á nýja sviði Borgarleikhúss-
ins í dag kl. 15.15 leikur Camer-
arctica Kvartett fyrir endalok
tímans eftir franska tónskáldið Oliv-
ier Messiaen. Camerarctica hefur
fengið til liðs við sig Örn Magnússon,
píanóleikara. Hópinn skipa auk hans
Ármann Helgason, klarinettuleikari,
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðlu-
leikari, og Sigurður Halldórsson,
sellóleikari.
Ármann segir að ekkert þeirra
hafi áður flutt þetta verk en hafi allt-
af langað til þess. „Verkið er rosa-
lega sterkt og aðstæður sem það er
sprottið úr gera það svo magnað. Í
verkinu eru miklir öfgar, andstæður
í hraða, styrkleika og í tónhæð,“
segir Ármann. „Kvartettinn var
saminn í fangabúðum nasista í seinni
heimsstyrjöldinni og frumfluttur
þar af Messiaen og meðföngum
hans. Fyrir einskæra tilviljun völd-
ust þessir fimm fangar saman úr
hópi 5.000 annarra fanga árið 1941.
Þeir léku á klarinettu, fiðlu og selló,
sjálfur var Messiaen píanóleikari.
Það er ástæðan fyrir þessari óvenju-
legu hljóðfæraskipan,“ segir Ár-
mann. „Tónlistarmenn voru hátt
skrifaðir af nasistum og Messiaen
varð sér úti um píanógarm og bréf-
snifsi og hófst handa við skriftir.
Sellistinn var ekki með hljóðfæri en
samfangarnir efndu til samskots og
hann fékk að skreppa í fylgd fanga-
varðar út fyrir búðirnar og kaupa
sér selló.“
Messiaen skrifað fyrst klarinettu-
þáttinn, svo tríó fyrir hin hljóðfærin
og fullskrifað varð verkið átta þætt-
ir sem tekur um klukkustund í flutn-
ingi. „Verkið æfðu þeir í nokkra
mánuði og flutt nokkrum sinnum að
afloknum vinnudegi. Messiaen sagði
mörgum árum síðar að aldrei nokk-
urn tímann hefði verið hlustað af
jafnmikilli athygli og skilningi,“ seg-
ir Ármann. „Loks hlutu þeir að laun-
um náð fyrir augum fangelsisyf-
irvalda og má segja að þeir hafi
leikið sig út úr fangelsinu. Þá höfðu
þeir verið í fangelsi í eitt ár. Sellist-
inn sagði síðar að tónlistin hefði
bjargað lífi þeirra.“
„Messiaen notar fuglasöng mikið í
tónmáli sínu sem tákn fyrir þrá eftir
ljósi og birtu. Í fangabúðunum, þar
sem tíminn hætti næstum að vera til,
dróst Messiaen að andstæðunum
tíma og eilífð. Í formála verksins
birtir hann kafla úr Opinberunarbók
Jóhannesar þar sem talað er um
endalok tímans, heimsendi. Tveir
þættir eru lofsöngur til Jesú Krists,
þeir eru ótrúlega hægir og fallegir. Í
einum kaflanum líkja hljóðfærin eft-
ir lúðrum og málmbjöllum himn-
eskra sendiboða,“ segir Ármann.
Kammerhópurinn Camerarctica
er tónleikagestum að góðu kunnur.
Á þeim ellefu árum sem hópurinn
hefur starfað hefur Camerarctica
vakið eftirtekt fyrir flutning sinn á
verkum Mozarts en hefur einnig
frumflutt nýja tónlist og staðið fyrir
norrænni tónlistarhátíð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þau flytja Kvartett fyrir endalok tímans í dag kl. 15.15: Ármann Helgason,
Hildigunnur Halldórsdóttir, Sigurður Halldórsson og Örn Magnússon.
Samskot fyrir sell-
istann í fangabúðum
LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar sýnir
dagskrá í Hafnarfjarðarleikhúsinu
kl. 20 í kvöld, laugardag, sem ber
nafnið „Í boði leikfélagsins“ og
samanstendur af níu íslenskum
stuttverkum. Ekkert verkanna er
yfir 15 mínútna langt og flest
þeirra samin af félögum í leikfélag-
inu. Þetta eru verk sem spanna allt
litróf leiklistarinnar frá harmleik
til gamanleiks. Fjögur verkanna
voru sýnd á Stuttverkahátíð í
Borgarleikhúsinu 25. október sl.
Hjá leikfélaginu eru að hefjast
æfingar á nýju verki eftir Lárus
Húnfjörð sem ber vinnuheitið
„Freysteinn gengur aftur“ og er
áætlað að frumsýna það í kringum
áramótin. Þá mun félagið líka
flytja í nýtt húsnæði í gamla Lækj-
arskólanum í Hafnarfirði. Leik-
félagið mun í tilefni þess bjóða vel-
unnurum sínum og öðrum sem
áhuga hafa á starfi félagsins til
þessarar dagskrár endurgjalds-
laust.
Lilja Nótt Þórarinsdóttir og Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson í hlutverkum
sínum í Hjartað er bara vöðvi eftir Hildi Þórðardóttur í Hafnarfirði.
Stuttverkahátíð í
Hafnarfjarðarleikhúsi